Reykjalundur - 01.10.1980, Page 34

Reykjalundur - 01.10.1980, Page 34
Blindir að störfum. atvinnu sína fyrir eigin dugnað, en ekki vegna aðstoðar iiins opinbera. Það eru fleiri öryrkjahópar liér, sem eru vel settir ltvað vinnu snertir. Svo eru aftur á móti aðrir þar sem mikilla úrbóta er þörf. Ein leiðin til þess að koma öryrkjum út á almennan vinnumarkað er hálfvernduð vinna. Þá greiða vinnuveitendur öryrkjum full laun, cn fá síðan hluta launanna til baka frá Trygg- ingastofnun ríkisins. Vinnusamningur er venjulega gerður til 3 ára og endurgreiðsl- urnar fara smálækkandi. Ætlunin er að á 3ja ára samningstímanum hafi öryrkinn fengið ]jað mikla þjálfun að hann geti farið óstudd- ur út á vinnumarkaðinn á eftir. Þetta er athygjisverð aðferð til þess að að- laga öryrkjann að vinnu og vinnustað og þess má geta, að af þeim 7000 öryrkjum sem Svíar komu út á vinnumarkaðinn 1976—1977, þá fór verulegur hluti í hálfverndaða vinnu. Hér hefir þessi aðferð hins vegar ekki reynst vel. Um hana segir í skýrslu frá Endurhæf- ingarráði: Reglugerð um öryrkjavinnu nr. 319 1979 tók gildi á árinu. Fyrsti samningurinn unt reynslutíma samkvæmt henni var gerður 19. okt. 1979 og verða samningar vegna þriggja skjólstæðinga undirritaðir skömmu eftir ára- mót 1979—1980. Framvinda þessa máls hefir einkennst af seinagangi og tregðu af hendi Tryggingaj>tofnunarinnar og hefir þessi af- staða lífeyrisdeildar Tryggingastofnunarinn- ar torveldað mjög alla framgöngu þessa rnáls. VERNDAÐIR VINNUSTAÐIR Ætíð verður það nokkur fjöldi öryrkja sent hefir vinnugetu en þó ekki ]:>að rnikla, að starf á almenna vinnumarkaðinum sé mögu- legt. Hve stór þessi hópur er hér, er erfitt að segja, það byggist á ýmsu, til dæmis, hve virk skólun og starfsendurhæfing er, hvernig ástandið er á vinnumarkaðinum og hvort líf- eyristryggingar fullnægja sæmilega fjárþörf öryrkja. Þeim, sem þarfnast verndaðrar vinnu, er það sameiginlegt að þeir eru illa fatlaðir andlega eða líkamlega og starfsgetan er mjög mismunandi. Til þess að þeir nýtist þarf því fjölbreytni í störfum, natni og tillitssemi. Vegna þessara séreinkenna vinnuaflsins á vernduðum vinnustöðum, þá verður að gera sérstakar kröfur til stöðvanna. Vinnustaðir verða að vera loftgóðir, rúmir og snyrtilegir, helst með aðstöðu til hvíldar og afþreyingar. Þeir verða að bjóða upp á fjölbreytt verkefni bæði einföld og flókin. Þar þarf rnikla verk- stjórn, þar eð hver einstaklingur þarf sér- staka meðferð. Mikill vinnuhraði er óhent- ugur þessu fólki. Þess vegna er tímavinna æskilegri en akkorð. Það er ekkert létt verk- efni að reka verndaða vinnustaði enda flestir þeirra reknir með halla. Hér á landi hafa verndaðir vinnustaðir ver- ið reknir, allt frá því vinnustofa Blindravina- félagsins hóf rekstur árið 1932. 32 REYKJALUNDUR

x

Reykjalundur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.