Reykjalundur - 01.10.1980, Qupperneq 41

Reykjalundur - 01.10.1980, Qupperneq 41
ísafirði og Jóhannes Guð- mundsson, Stakkanesi við Skutulsfjörð. Ungur að ár- um missti Guðmundur föður sinn, sem mun hafa dáið úr berklum. Árið 1912 fluttist liann með móður sinni og stjúpa, Valdimar Þorvalds- syni til Súgandafjarðar, þar sem liann átti sitt heimili til fullorðins ára. Snemma beindust störf Guðmundar að sjómennskunni svo sent flestra ungra manna á fjörð- um vestur á þeim árum og mun svo enn vera. En hug- urinn leitaði lengra en á fiskimiðin fyrir Vestfjörðum. Liðlega tvítugur réðist hann í siglingar og voru þau ár, er þá fóru í hönd, margslung- in ævintýrum og lífsreynslu. Var löngum gaman að lieyra Guðmund segja frá ferðum sínum urn nær öll heimsins höf og hinum ýrnsu atburð- um, er ekki gleymdust og voru frásagnar verðir. Voru frásagnir hans jafnan lifandi en látlausar og án tilrauna til að gera sinn hlut stærri en efni stóðu til. Félagar Guð- mundar hvöttu hann oft til að setja Jtessar minningar á blað, en það leiddi hann ætíð lijá sér. Árið 1928 lauk þessari úti- vist Guðmundar, en sjó- mennsku liélt hann áfram um nokkur ár enn. Til Rauf- arhafnar fluttist hann upp úr 1930 og átti þar lögheimili þar til fyrir fáum árum, að hann fékk það flutt hingað að Reykjalundi. Árið 1933 kvæntist Guð- mundur Sigríði Magnúsdótt- ur og eignuðust þau tvö börn, Hólmfríði og Jóhann- es, sem bæði eru á lífi. 1939 veiktist Guðmundur af berkl- um og beið þess aldrei bæt- ur síðan. Var hann sjúkling- ur á Kristneshæli til ársins 1946, að hann kont hingað að Reykjalundi. Á þessum ár- um var fátt til hjálpar þeim, sent berklarnir náðu veruleg- um tökum á. Allt of margir eygðu fáa möguleika til aft- urhvarfs til hins eðlilega, heilbrigða athafnalífs og samfélags; líklega yrðu hæl- in framtíðarverustaðurinn, einum skemur, öðrum leng- ur. Þannig mun þetta hafa blasað við Guðmundi fyrstu árin á Kristnesi, enda oft fár- sjúkur. Mun hann hafa talið kontina sína ungu og börnin tvö betur sett óbundin af sér sent heimilisföður og fékk því vilja sínum framgengt, að þau hjón slitu samvistum á þessum hans fyrstu hælis- árunt. En þótt berklarnir lékju Guðmund oft grátt lögðu þeir hann þó aldrei að velli; þar kom annar illvíg- ur sjúkdómur til. Svo sem fyrr segir dvaldist Guðmund- ur á Kristnesi urn sjö ára skeið og náði þar nokkurri heilsu. Árið 1946 gekk hann að eiga Rögnu Jónsdóttur frá Akureyri, sem einnig var sjúklingur að Kristneshæli og fluttu þau hjón hingað að Reykjalundi þann 17. júlí 1946. Áttu þau hér hamingju- ríka fjórtán ára sambúð, en Ragna andaðist liinn 31. maí 1960. Ekki gat hjá því farið, að Guðmundur yrði virkur í lé- lagsstörfum innan SÍBS, sem á þessum árum var að mótast til þeirrar myndar, er ekki verður máð úr sögu íslensku þjóðarinnar. í félaginu Sjálfs- vörn á Kristnesi, en þó öllu lremur í félagi vistmanna á Reykjalundi, gegndi liann mörgurn trúnaðarstörfum og var nteðal annars um langt skeið fulltrúi vistmanna í stjórn Reykjalundar. Hann sat fjölda þinga SÍBS og fylgdi jafnan af einurð og drenglyndi þeini málum er hann taldi lengst mundu skila fram hugsjóninni að „styðja sjúka til sjálfsbjarg- ar“. Guðmundur var tryggur og einlægur vinur vina sinna; fremur léttur í lund og kunni vel að meta það skoplega, sem fyrir bar í daglega lífinu. Ein hans besta skemmtun var að grípa í spil, þegar tækifæri gafst, svo sem löng hælisvist býður oft upp á. Bókasöfn á Kristnesi og hér að Reykjalundi notfærði hann sér mjög og var þar jafnan á hnotskógi eftir hverri nýrri bók, er söfnun- um barst. Einn eiginleiki var áberandi í fari Guðmundar; það var hversu barngóður (Framh. á bls. 41) ItEVKJALUNDUR 39

x

Reykjalundur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.