Fréttablaðið - 12.11.2015, Page 8

Fréttablaðið - 12.11.2015, Page 8
KIA SORENTO Nýskr. 2012, ekinn 62 þús. km. dísil, sjálfskiptur. VERÐ kr. 5.290 þús. Rnr. 310119. BMW 525 xDrive 4x4 Nýskr. 2008, ekinn 101 þús. km. bensín, sjálfskiptur. VERÐ kr. 4.390 þús. Rnr. 131761. Kletthálsi 11 -110 Reykjavík Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is www.bilaland.is www.facebook.com/bilaland.is RANGE ROVER SPORT HSE Nýskr. 2007, ekinn 89 þús. km. dísil, sjálfskiptur. Rnr. 282923. RENAULT MEGANE SP TOURER Nýskr. 2013, ekinn 27 þús km. dísil, sjálfskiptur. VERÐ kr. 3.090 þús. Rnr. 143068. NISSAN PATHFINDER SE Nýskr. 2003, ekinn 84 þús km. dísil, sjálfskiptur. VERÐ kr. 6.250 þús. Rnr. 191910. NISSAN QASHQAI SE Nýskr. 2014, ekinn 87 þús. km. dísil, beinskiptur. VERÐ kr. 3.570 þús. Rnr. 120806. RENAULT CLIO EXPRESSION Nýskr. 2015, ekinn 34 þús. km. dísil, sjálfskiptur. VERÐ kr. 2.890 þús. Rnr. 120832. Glæsilegur bíll 6.590 þús. GOTT ÚRVAL NOTAÐRA BÍLA Skoðaðu úrvalið á bilaland.is ALLT AÐ 90% FJÁRMÖGNUN TÖKUM NOTAÐAN UPPÍ NOTAÐAN! GERÐU FRÁBÆR KAUP! Efnahagsmál Einungis níu af tutt- ugu og fimm stærstu fyrirtækjum landsins notast við krónu sem upp- gjörsmynt. Ellefu styðjast við Banda- ríkjadal og fimm gera upp í evrum, samkvæmt samantekt í nýjasta hefti efnahagsritsins Vísbendingar. Í ritinu er notast við nýja samantekt Frjálsrar verslunar á 300 stærstu fyrirtækjum landsins. Þá má sjá að hlutfall krónu í veltu stærstu fyrirtækja landsins nemur 22,7 prósentum þótt þau séu 36 pró- sent fjöldans. „Lengi hefur verið vitað að flest íslensk sjávarútvegsfyrirtæki nota evruna í sínum ársreikningum og álfyrirtækin nota Bandaríkjadal. Það sama gildir um nokkur orkufyrir- tæki,“ segir í umfjöllun Vísbendingar. Talað er um að fyrirtæki „kjósi með fótunum“ og velji í bókhaldi sínu þá mynt sem þau telji að henti best og leiði til mesta stöðugleika í uppgjöri. „Þessi fyrirtæki velja stöðugleika og lága vexti, en almenningur á ekki þetta val,“ segir í Vísbendingu og vísað til þess lærdóms sem draga hafi mátt af hruninu að fái fólk greitt í krónum sé hættulegt að skulda í erlendri mynt. „Sérstaklega þegar stjórnmálamenn telja aðalkost krón- unnar þann að hægt sé að fella gengi hennar. Þess vegna mun almenn- ingur ekki fá notið stöðugleika og hagræðis sterkrar myntar meðan krónan er gjaldmiðill Íslands.“ Bent er á að margir aðhyllist að Íslendingar taki upp aðra mynt en íslensku krónuna og þar hafi forsætis ráðherra nefnt bæði Kanada- dal og norska krónu. „Ætla mætti að mörg fyrirtæki vildu nota þessar myntir, sem að sögn „henta Íslend- ingum vel“, en það er öðru nær. Af 276 fyrirtækjum sem mega gera upp í erlendri mynt eru bara sjö sem nota þessar ágætu myntir.“ Einhliða upptöku myntar fylgi líka vandamál sem komast megi hjá með stuðningi seðlabanka við gjaldmiðil, svo sem vantraust á bankakerfinu. „Algjört frelsi fyrir Íslendinga í pen- ingamálum, frelsi þar sem þeir menn geta nýtt sér lægri vexti öruggari myntar en krónunnar er útilokað nema hér á landi verði hreinlega tekin upp erlend mynt sem hefði baktryggingu seðlabanka þeirrar myntar. Þar er ekki nema um eina mynt að ræða,“ segir í umfjöllun Vís- bendingar, en í úttekt Seðlabankans á valkostum landsins í peninga- málum 2012 var niðurstaðan sú að valið stæði á milli krónu og evru. olikr@frettabladid.is Fyrirtækin velja stöðuga og lága vexti Af 25 stærstu fyrirtækjum landsins gera níu upp í íslenskum krónum. Hin gera upp í evrum eða dal. Hlutfall krónufyrirtækja í veltu fyrirtækjanna allra er 23 prósent. Fyrirtækin geta valið milli evru eða krónu en ekki almenningur. Uppfyllum eitt af fjórum skilyrðum Maastricht Í nýjasta tölublaði Vísbendingar segir að „allir“ virðist sammála um að hvort sem Íslendingar taki upp nýjan gjaldmiðil eða ekki verði þeir að uppfylla stöðugleika- skilyrði Maastricht-samningsins. „Mörgum kemur á óvart að nú þegar uppfyllum við eitt skilyrði af fjórum, því að jafnvægi er í ríkis- fjármálum,“ segir þar. Þá sé stutt í að skuldir hins opinbera verði innan við 60 prósent af vergri landsframleiðslu. „Verðbólgan er meira að segja nálægt mörkum í bili þó að flestir eigi von á því að hún hækki á næstunni.“ Lengst sé hins vegar í að vextir verði innan seilingar við meðaltal Evrópu- sambandsríkja. „Núna greiða Íslendingar margfalda vexti á við nágrannaþjóðirnar.“ Erlendar uppgjörsmyntir Mynt Fjöldi fyrirtækja Evra 125 Bandaríkjadalur 113 Bresk pund 23 Norsk króna 5 Sænsk króna 4 Dönsk króna 3 Kanadadalur 2 Japönsk jen 1 Alls 276 Heimild: Vísbending/Ársreikningaskrá Myntir 25 stærstu Mynt Fjöldi Velta* Dollar 11 736 Króna 9 379 Evra 5 551 Alls 25 1.666 *í milljörðum króna. Heimild: Vísbending/Frjáls verslun Lengi hefur verið vitað að flest íslensk sjávarútvegs- fyrirtæki nota evru í sínum ársreikningum og álfyrirtækin nota Bandaríkjadal. Úr Vísbendingu Lítill hluti af stærstu fyrirtækjunum velur krónu. Flest velja bandaríkjadal eða evru. Búrma U Thein Sein, forseti í Búrma, óskaði í gær Lýðræðisfylkingunni, stjórnarandstöðuflokki Nóbels- verðlaunahafans Aung San Suu Kyi, til hamingju með árangur hennar í þingkosningunum um helgina. Talningu atkvæða er þó engan veginn lokið, en Suu Kyi og félagar hennar hafa til þessa fengið um 90 prósent allra þingsæta í þeim kjör- dæmum sem búið er að telja í. Þar á meðal er Suu Kyi búin að tryggja sér þingsæti áfram í sínu kjördæmi. Sjálf skrifaði Suu Kyi bréf til Thein Sein á þriðjudaginn, þar sem hún bauð honum upp á viðræður um framhaldið. Hamingjuóskir hans lofa góðu um að herinn taki vel í samstarf við Suu Kyi. Kosningafyrirkomulagið er þannig að herinn fær að lágmarki 25 prósent þingsæta og hefur því neitunarvald um allar breytingar á stjórnarskránni. Yfirburðasigur Lýðræðisfylkingar- innar verður hins vegar til þess að herinn kemst í minnihluta á þingi, en hann hefur verið einráður um stjórn landsins áratugum saman. Samkvæmt stjórnarskrá landsins getur Suu Kyi ekki orðið forseti, en hún segir það ekki koma í veg fyrir að hún muni taka allar ákvarðanir þótt einhver annar verði í forseta- embættinu. – gb Þreifingar um stjórn hefjast í Búrma Frétt- irnar 1 2 . n ó v E m B E r 2 0 1 5 f I m m T U D a g U r8 f r é T T I r ∙ f r é T T a B l a ð I ð 1 2 -1 1 -2 0 1 5 1 5 :5 4 F B 0 8 0 s _ P 0 7 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 E E -E A 0 4 1 6 E E -E 8 C 8 1 6 E E -E 7 8 C 1 6 E E -E 6 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 8 0 s _ 1 1 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.