Fréttablaðið - 12.11.2015, Blaðsíða 58
Ástkær bróðir okkar og frændi,
Ólafur Anders Kjartansson
bóndi,
frá Pálmholti í Arnarneshreppi,
lést á dvalarheimilinu Grenilundi á
Grenivík föstudaginn 30. október.
Útförin fer fram frá Möðruvallakirkju
laugardaginn 14. nóvember kl. 14.00. Blóm og kransar
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á
dvalarheimilið Grenilund á Grenivík.
Elín Guðrún Kjartansdóttir Guðrún Þóra Kjartansdóttir
systkinabörn hins látna og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Jóhanna Sigurbjörg
Markúsdóttir
(Lilla)
Fensölum 6, Kópavogi,
lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu
laugardaginn 7. nóvember. Jarðsungið verður frá
Kópavogskirkju föstudaginn 13. nóvember kl. 13.00.
Aldís Guðmundsdóttir Bjarni Þormóðsson
Gerður Guðmundsdóttir Óskar Þorbergsson
Már Guðmundsson Björg Sigmundsdóttir
Berglind Guðmundsdóttir Sigurður Björnsson
ömmubörn og langömmubörn.
Í kvöld mun tvíeykið Funi sem skipað er
þeim Báru Grímsdóttur og Chris Foster
spila í Mengi.
Á tónleikunum mun Funi flytja íslensk
og ensk þjóðlög en þau Bára og Chris leika
á langspil, gítar, kantele og íslenska fiðlu.
Bára segir þjóðlög alla tíð hafa verið sér
hugleikin en hún ólst upp við söng og kveð-
skap.
„Hjá mér var það nú þannig að ég ólst
upp við kveðskap hjá foreldrum mínum,
fyrst í sveitinni og svo þegar við fluttum í
bæinn, þá gengu þau í kvæðamannafélagið
Iðunni, ég er nú formaður þar í dag,“ segir
Bára glöð í bragði. „Svo var ég svo heppin
þegar ég var í Barnamúsíkskólanum þegar
ég var lítil að þar var ég með kennara sem
kenndu okkur skemmtileg þjóðlög, þulur
og svona ýmislegt. Þá kynntist ég annarri
hlið íslensku þjóðlagatónlistarinnar.“
Bára og Chris hófu svo samstarf árið 2001
og segir Bára hann hafa verið viðloðandi
þjóðlagatónlist frá barnæsku líkt og hún
sjálf en Chris er alinn upp á Englandi og
hefur haldið tónleika víðsvegar um heim-
inn síðastliðin 40 ár.
„Foreldrar hans voru mikið söngfólk og
þau voru í enskum danshóp. Svo kynntist
hann fólki sem sýndi þessu einnig áhuga
og hann var ungur að reka folk club á Eng-
landi. Einnig kynntist hann gömlu fólki sem
söng á enskum pöbbum og lærði af þeim.“
Nafnið er vísun í lag sem var á fyrsta disk
þeirra Báru og Chris og er kvæðið við lagið
samið af ömmu Báru. „Hún amma mín,
Petrína, samdi kvæði um Funa sem var einn
af uppáhaldshestunum hans afa. Það var á
fyrsta disknum okkar og við ákváðum að
kalla dúóið Funa, þetta er svona þjált nafn.“
Síðan þau hófu að spila saman hafa þau
haldið námskeið og komið fram á ýmsum
hátíðum og tónleikum, bæði hér heima
og einnig í útlöndum. „Við spilum oft
erlendis og höfum gert það í gegnum árin.
Við höfum verið svona mest á Bretlands-
eyjum og svo höfum við líka farið ansi oft til
Bandaríkjanna, á austurströndina þá helst,
og líka víða í Evrópu.“
Lögin útsetja þau Bára og Chris sjálf
og segist Bára, sem er tónskáld, oft lengja
íslensku lögin þar sem þau séu oft á tíðum
stutt. Einnig voru lögin sem flutt eru oft
sungin án nokkurs undirleiks. „Ég geri meira
í kringum þau. Bý til millispil og lög við sum
versin til þess að ramma þetta meira inn og
gera þetta að heilsteyptari lögum,“ segir
hún og heldur áfram: „Við erum líka að nota
þessi gömlu íslensku hljóðfæri. Við erum
með langspilið og höfum stundum verið
með íslenska fiðlu og ég spila á litla finnska
borðhörpu sem kallast kantele.“ Langspilin
létu þau sérsmíða fyrir sig og munu þau í
kvöld flytja lag sem Bára gerði við kvæði
Jóns Steingrímssonar um móðuharðindin
þar sem þau leika á tvö langspil. Einnig mun
Bára kveða í kvöld, bæði hluta úr gamalli
rímu auk nýlegs kvæðis eftir ungan hag-
yrðing. Á meðan á tónlistarflutningnum
stendur verður myndheimi varpað á vegg
Mengis og segir Bára það skýra texta og
umfjöllunarefni tónlistarinnar.
Tónleikarnir hefjast í Mengi, Óðinsgötu
2, klukkan 21.00 í kvöld og er miðaverð
2.000 krónur. gydaloa@frettabladid.is
Þjóðlög flutt á sérsmíðuð
langspil og finnska hörpu
Tvíeykið Funi mun spila í Mengi í kvöld en þar verður meðal annars flutt lag við kvæði
Jóns Steingrímssonar um móðuharðindin en Bára og Chris hafa spilað saman síðan 2001.
Bára Grímsdóttir og Chris Foster skipa tvíeykið FUNA. FréttABlAðið/GVA
Í dag verður sýningin Farvegir vatns opnuð í Galleríi Gróttu á
Seltjarnarnesi.
Á sýningunni má sjá verk systranna Ingileifar, Áslaugar og
Sigrúnar Thorlacius og er þetta fyrsta samsýningin á verkum
systranna þriggja. Þráðurinn í gegnum sýninguna er vatnið, áhrif
þess, nýting og kraftur sem þær vinna með á ólíkan máta.
„Við ákváðum að finna einhvern þráð og sáum fljótlega
hvernig við gátum tengt okkur saman með farvegum vatnsins,“
segir Áslaug en verkin sem hún sýnir eru blýantsteikningar og
röð blekmynda af náttúrufyrirbrigðum þar sem farvegir vatns
eru í aðalhlutverki. Verkin fjalla um vestfirskar fjallahvilftir, gil
og klettabelti sem vatn og aðrir náttúrukraftar hafa mótað.
„Ingileif, elsta systir okkar, notaði mikið vatnsliti í sínum
verkum og í síðustu verkum sínum lét hún vatnslitina eiginlega
stjórna útkomunni. Lét litinn flæða og þorna í pollum svo úr
varð mynd. Stundum einn lit og stundum fleiri,“ segir Áslaug um
verk elstu systur sinnar en Ingileif hélt fimm einkasýningar á
ferli sínum og tók þátt í átta samsýningum á Íslandi og í Svíþjóð
en hún lést árið 2010. Lýsa má verkum hennar á sýningunni sem
einfaldri rannsókn á ferðalagi vatnsins um pappírinn. Sigrún er
vöruhönnuður að mennt og eru verk hennar hugvekja um vot-
lendið en þetta er hennar fyrsta opinbera sýning eftir útskrift úr
Listaháskóla Íslands síðastliðið vor.
Sýningin verður opnuð klukkan 17.00 í Galleríi Gróttu
sem er á annarri hæð á Eiðistorgi. Sýningin verður opin til
4. desember. – gló
Verkin tengd saman
með farvegum vatns
Sýning á verkum systranna þriggja verður opnuð í dag í Galleríi
Gróttu. MyNd/Úr eiNkASAFNi
Við erum líka að nota
þessi gömlu íslensku
hljóðfæri. Við erum með lang-
spilið og höfum stundum verið
með íslenska fiðlu og ég spila á
litla finnska borðhörpu sem
kallast kantele.
Merkisatburðir
1906 Blaðamannaávarpið er sett fram af rit-
stjórum sex helstu dagblaða á Íslandi.
1929 Grace Kelly, bandarísk leikkona og fursta-
frú í Mónakó, fæðist á þessum degi.
1944 Þúsund farast þegar þýska skipið Tirpitz
sekkur utan við Tromsø í Noregi.
1965 Hvassaleitisskóli er settur í fyrsta skipti.
1967 Flatey á Skjálfanda fer í eyði er síðustu 10
íbúarnir flytjast þaðan. Þar höfðu 100 manns
búið fáum árum áður.
1974 Þórbergur Þórðarson rithöfundur deyr á
þessum degi.
1991 Íslenska stálfélagið hf. er tekið til gjald-
þrotaskipta.
1994 Guðmundur Árni Stefánsson biðst lausn-
ar sem félagsmálaráðherra og tekur Rannveig
Guðmundsdóttir við embættinu.
2011 Silvio Berlusconi segir af sér embætti for-
sætisráðherra Ítalíu.
1 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U D A G U r42 T í m A m ó T ∙ F r É T T A b L A ð I ð
tímamót
1
2
-1
1
-2
0
1
5
1
5
:5
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
E
E
-4
2
2
4
1
6
E
E
-4
0
E
8
1
6
E
E
-3
F
A
C
1
6
E
E
-3
E
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
8
0
s
_
1
1
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K