Fréttablaðið - 12.11.2015, Page 10

Fréttablaðið - 12.11.2015, Page 10
Karnivaltíminn að hefjast Skoda Octavia Ambiente 1.6 TDI 2.490.0002011 94 VW Take up! Peugeot 206 Active Mitsubishi Colt Toyota Corolla 1.650.000 2.190.000 950.000 890.000 2014 2013 2007 2005 16 22 172 67 Audi A4 2.0 TDI AT 3.950.0002012 69 VW Polo 1.2 Trendline Hyundai I30 MM Pajero Intstyle 3.2 Honda Civic 1.8i ES 2.050.000 1.790.000 8.290.000 1.190.000 2014 2012 2014 2006 15 96 125 40 Klettháls 13 · HeklaNotadirBilar.is · 590 5040 Afskornar frostrósir Götuprýði Raf / Bensín Ekinn þús. km. Myndir á vef Dísil Fjórhjóladrif Metan & bensín Sjálfskiptur Beinskiptur Rafmagnsbíll 30 Sýrland Rússar hafa gert áætlun um friðarferli í Sýrlandi, þar sem þeir falla frá afdráttarlausum stuðningi við Bash­ ar al Assad Sýrlandsforseta. Þeir vilja að Sýrlendingar taki sér átján mánuði til að semja nýja stjórnar­ skrá og síðan verði efnt til forseta­ og þingkosninga. Ekki er annað að sjá en að Assad eigi að fá að bjóða sig fram. Andstæðingar Assads segja þó ekk­ ert nýtt í tillögunum og halda fast við þá kröfu að eini grundvöllurinn að friði sé afsögn Assads. Reuters­fréttastofan komst yfir eintak af þessari áætlun, sem hefur gengið á milli manna hjá Sameinuðu þjóðunum. Stríðið í Sýrlandi hefur nú staðið yfir í meira en fjögur ár, kostað hundruð þúsunda lífið og hrakið milljónir manna á flótta. Fulltrúar margra ríkja koma saman í Vínarborg á laugardaginn til að ræða mögulegar lausnir á þessu ástandi. Rússar hófu í haust loftárásir á upp­ reisnarmenn í Sýrlandi, en hafa verið gagnrýndir fyrir að beina árásum sínum ekki aðeins að Íslamska ríkinu heldur einnig hófsamari uppreisnar­ mönnum sem notið hafa stuðnings Bandaríkjanna og fleiri ríkja á Vestur­ löndum og í Mið­Austurlöndum. Bandaríkin hafa brugðist við með því að skipta um áherslur, beina stuðn­ ingi sínum annað og hyggjast senda tugi bandarískra hermanna til landsins. Hugmyndir Rússa ganga út á það að hálft annað ár verði tekið í að breyta stjórnskipun landsins, þannig að ný stjórnskipun geti tryggt „varanlegt öryggi og sanngjarnt jafnvægi hags­ muna, réttinda og skyldna allra þjóð­ ernis­ og trúarhópa í valdakerfum og ríkisstofnunum“. Komið verði á fót stjórnlaganefnd með fulltrúum „úr öllu litrófi sýr­ lenska samfélagsins, og þar á meðal úr stjórnarandstöðunni innanlands jafnt sem erlendis“. Formennskan komi í hlut einhvers sem allir þátttakendur fallast á. Síðan verði drög að nýrri stjórnar­ skrá borin undir þjóðaratkvæða­ greiðslu. Eftir það verði efnt til forseta­ kosninga. Frestað verði þingkosningum, sem halda átti næsta vor. Þess í stað verði þær haldnar jafnhliða forsetakosn­ ingum samkvæmt nýrri stjórnarskrá, þegar hún liggur fyrir. Samkomulag verði um að sá forseti, sem kjör hlýtur, verði yfirmaður herafl­ ans og hafi eftirlit með bæði sérsveitum hersins og utanríkisstefnu landsins. Þá vilja Rússar að alþjóðlegur stuðn­ ingshópur verði settur á laggirnar til að styðja Sýrlendinga í gegnum breyt­ ingarnar. Í þessum hópi verði Rússar, Kínverjar, Bandaríkjamenn, Frakkar, Þjóðverjar, Sádi­Arabar, Tyrkir, Íranir, Egyptar og fleiri þjóðir í Mið­Austur­ löndum, ásamt fulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Arababandalagsins, Sam­ vinnustofnunar íslamskra ríkja og Evrópusambandsins. gudsteinn@frettabladid.is Rússar komnir með plan fyrir Sýrland Fjölmiðlar hafa komist yfir hugmyndir Rússa að friðaráætlun í Sýrlandi. Rússar vilja meðal annars að stefnt verði að forsetakosningum eftir hálft annað ár. And- stæðingar Assads forseta segja fátt nýtt í þeim hugmyndum sem birtar voru. Rússlandsforseti fellur frá afdráttarlausum stuðningi við Assad. FRéttAblAðið/EPA Það var glatt á hjalla hjá mörgum þegar karnivaltímabilið hófst í Maastricht í Hollandi í gær, en það hefst venjulega 11. nóvember. Margir klæddu sig í litskrúðuga búninga. FRéttAblAðið/EPA 1 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U d a G U r10 F r é T T I r ∙ F r é T T a b l a ð I ð 1 2 -1 1 -2 0 1 5 1 5 :5 4 F B 0 8 0 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 E F -0 C 9 4 1 6 E F -0 B 5 8 1 6 E F -0 A 1 C 1 6 E F -0 8 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 B F B 0 8 0 s _ 1 1 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.