Fréttablaðið - 12.11.2015, Blaðsíða 22
Foreldrar gætu dregið verulega úr
skutlinu tækju þeir upp ferðavenjur
skólabarna í nokkrum hverfum
Óslóar í Noregi. Þetta segir Halldóra
Hrólfsdóttir skipulagsfræðingur,
einn fyrirlesara í fundaröðinni
Hvernig má skipuleggja borg fyrir
börn og unglinga?
Halldóra segir ferðamáta barna til
skóla misjafnan eftir hverfum. „Börn-
um er víða skutlað í skólann. Það
gerir það að verkum að mjög mikil
umferð er í kringum skólana með
þeim afleiðingum að margir veigra
sér við að senda börn gangandi. Þetta
verður vítahringur.“
Hún getur þess að í sumum hverf-
um Óslóar séu foreldrar hvattir til að
senda börnin gangandi í skólann.
„Meðal yngstu nemendanna eru
myndaðir gönguhópar með fjórum
til sex börnum sem búa nálægt hvert
öðru. Foreldrar skiptast á að ganga
með hópunum. Börnin fá endur-
skinsvesti og verðlaun ef þau eru
dugleg að ganga í skólann. Þetta hefur
mælst vel fyrir og talið öruggara því
að það dregur úr umferð. Auk þess
mæta börnin hress í skólann eftir
gönguna.“
Um 90 prósent nemenda í Breið-
holtsskóla koma gangandi í skólann,
að því er niðurstöður könnunar á
ferðavenjum barna sýna. „Skipu-
lagið í Bökkunum í Neðra-Breiðholti
er talið mjög barnvænlegt. Hverfið
er þétt og skólinn er í fjölbýlishúsa-
hverfinu. Börnin sem búa þar og í
raðhúsahverfinu þurfa ekki að fara
yfir götu,“ greinir Halldóra frá.
Í Fossvogi hjóla mörg börn í skól-
ann. „Það er stefna skólastjórnenda
en þeir myndu ekki hvetja til þess
ef það væri ekki talið öruggt. Það
eru skiptar skoðanir á því hvort það
sé æskilegt en það er alltaf örugg-
ast að þurfa ekki að fara yfir miklar
umferðargötur á ferðum til og frá
skóla,“ bendir Halldóra á.
Skipulagsfræðingurinn segir
Hægt að draga úr skutlinu
Mikil umferð verður í kringum skólana þegar börnum er ekið í skólann. Í Ósló skiptast foreldrar
á að fylgja gönguhópum yngstu nemendanna. Börnin mæta hress í skólann eftir gönguna.
Ingibjörg Bára
Sveinsdóttir
ibs@frettabladid.is
„Það sem fullorðnir vilja er ekki frábrugðið því sem börn vilja. Í skipulagi Reykjavíkur er fókuserað á borg fyrir fólk. Börn eru líka
fólk þannig að slík borg hlýtur líka að vera góð fyrir þau,“ segir Halldóra Hrólfsdóttir skipulagsfræðingur. FRéttaBlaðið/VilHelm
7%
barna í Breiðholtsskóla
er ekið í skólann.
Niðurstöður könnunar meðal
3. til 7. bekkinga í apríl 2010
23%
barna í Foldskóla er
ekið í skólann.
Niðurstöður könnunar meðal
3. til 7. bekkinga í nóvember 2009
Umhverfið þarf að
vera öruggt en líka
skemmtilegt og líflegt. Það er
ekki endilega ein lausn í
boði.
Halldóra Hrólfsdóttir
skipulagsfræðingur
það henta börnum að búa í þéttri
byggð þar sem skóli, félagsmiðstöð
og íþróttahús er innan hverfisins og
stutt er á milli áfangastaða. Það þurfi
þó að gæta jafnvægis í skipulaginu.
„Umhverfið þarf að vera öruggt en
líka skemmtilegt og líflegt. Það er
ekki endilega ein lausn í boði. En
leggja þarf áherslu á að börnin geti
ferðast sjálf og uppgötvað borgina
upp á eigin spýtur.“
Hagsmunir barna og fullorðinna
rekast ekki á, að sögn Halldóru. „Það
sem fullorðnir vilja er ekki frábrugðið
því sem börn vilja. Í skipulagi Reykja-
víkur er fókuserað á borg fyrir fólk.
Börn eru líka fólk þannig að slík borg
hlýtur líka að vera góð fyrir þau.“
„Þessi bók
er veisla“
Vigdís Grímsdóttir
„Þetta er sláandi og hreinskilin frásögn sem nær til manns því
að hún er allt í senn hversdagsleg og hádramatísk — þetta er jú
saga um venjulega Íslendinga og íslenskt samfélag en um leið
um þær sterku tilfinningar sem leynast undir þessu venjulega
yfirborði. Það er ekki hver sem er sem getur opnað sig með
þessum hætti og hleypt lesendum undir yfirborðið.“
Katrín Jakobsdóttir
„Það væri auðvelt að hrista hausinn og fussa yfir fáfræði og
múgsefjun, ef sögusvið þessarar mögnuðu bókar væri myrk
mið alda kirkja en ekki raflýst nútímakirkja í smá íbúða hverf
inu.“ Helgi Seljan
Táningarnir í skólanum Hampton
Court House i Surrey á Englandi
þurfa ekki að mæta í skólann fyrr
en kl. 13.30 á daginn. Vísindamenn
í Oxford ætla að fylgjast með hvaða
áhrif þessar breytingar hafa.
Bæði nemendur og foreldrar hafa
lýst yfir ánægju með nýja fyrirkomu-
lagið. Nemendur sofa nú betur, þeir
eru betur upplagðir og hafa meira
gagn af kennslunni.
Einn nemendanna segir í viðtali
við BBC að táningum sem vakna
klukkan sjö á morgnana líði eins og
fullorðnum sem vakna klukkan hálf
fimm á morgnana. – ibs
Unglingar mæta
í skólann 13.30
Þeir sem sofa lítið eru í meiri hættu
en aðrir á að veikjast þegar þeir
komast í snertingu við kvefveiru.
Niðurstöður rannsóknar frá 2013
bentu til að unglingar sem sváfu
mikið fengju sjaldnar kvef, flensu
og aðrar umgangspestir en aðrir.
Til að rannsaka þetta betur fengu
bandarískir vísindamenn 164 sjálf-
boðaliða í lið með sér sem þegar
höfðu gengist undir heilsufars-
rannsóknir sem tóku til þátta eins
og streitu, skapgerðar, reykinga og
áfengisneyslu.
Þátttakendur í rannsókninni
sváfu með nema sem mældu hversu
lengi og hversu vel þeir sváfu. Vís-
indamennirnir úðuðu síðan kvef-
veiru í nef þátttakenda til að kanna
hvort svefn þeirra hefði áhrif á hætt-
una á veikindum.
Niðurstöður rannsóknarinnar
sýndu að þeir sem sváfu skemur
en sex klukkustundir að næturlagi
vikuna áður voru fjórum sinnum
líklegri til að veikjast heldur en þeir
sem sváfu lengur en sjö klukku-
stundir.
Aldur fólks, streita, kynþáttur,
menntun og tekjur skiptu engu
máli. Það skipti heldur ekki máli
hvort þátttakendur voru reykinga-
menn.
Það er mat vísindamannanna að
líta eigi á svefn sem jafn mikilvægan
þátt í heilbrigði manna og mataræði
og hreyfingu.
Rannsóknin leiddi ekki í ljós
hvort hægt væri að koma í veg fyrir
kvef með því að sofa lengur, að því
er segir á vísindavefnum forskning.
no. – ibs
Kvefast frekar ef
svefninn er lítill
Vísindamenn segja mikilvægt að fá
nægan svefn. NORDiCPHOtOS/GettY
Fjölskyldan
1 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U D A G U r22 F r é T T I r ∙ F r é T T A b L A ð I ð
1
2
-1
1
-2
0
1
5
1
5
:5
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
E
D
-F
3
2
4
1
6
E
D
-F
1
E
8
1
6
E
D
-F
0
A
C
1
6
E
D
-E
F
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
8
0
s
_
1
1
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K