Fréttablaðið - 12.11.2015, Side 42

Fréttablaðið - 12.11.2015, Side 42
„Við bjóðum mjög fjölbreytt úrval af alls konar vörum. Til dæmis finnska merkið Samuji en frá þeim erum við með bæði fatnað og heim­ ilislínu. Þá erum við með töskur og fylgihluti frá danska hönnuðinum Yvonne Kone,“ segir Rannveig Sig­ urðardóttir, annar eigandi Mýrar­ innar í Kringlunni. „Íslensk hönnun er einnig stór hluti af okkar vöruúrvali. Vinsæl­ ustu íslensku merkin eru Farm­ ers Market og Feldur. Einnig má nefna barnafatnað frá As we grow en vörur frá þeim eru vinsælar.“ Hver verður jólagjöfin í ár? „Ilmkerti eða ilmvatn frá Mad et len og Andreu Maack fyrir hana, hlý peysa frá Farmers Market fyrir hann og fatnaður frá As we grow fyrir börnin.“ Vefverslun Mýrarinnar er www.myrinstore.is Úrval hönnunar Verslunin Mýrin býður hágæða hönnunarvörur frá bæði íslenskum og erlendum merkjum. Verslunin hefur verið starfrækt í Kringlunni frá árinu 2009. Íslensk hönnun er stór hluti af fjölbreyttu vöruúrvali Mýrarinnar. Mynd/stefán „Við bjóðum mjög fjölbreytt úrval af alls konar vörum,“ segir Rannveig sig- urðardóttir, annar eigandi Mýrarinnar í Kringlunni. Mikið úrval er af fallegu handverki í IndIsKA. „Vörur INDISKA eru skandinav­ ísk hönnun sem er innblásin af ind­ versku handverki með sínum ótelj­ andi litum og mynstrum,“ segir Sigrún Andersen hjá INDISKA. Heimilis­ og gjafavaran saman­ stendur af ýmiss konar vefnaðar­ vöru  eins og dúkum og púðum. Einnig fjölbreyttu úrvali af hand­ verki eins og keramik, glösum, luktum og ljósum. „Samfélagsleg ábyrgð og um­ hverfisvernd eru hjartans mál fyrir INDISKA,“ segir Sigrún og bætir við að fyrirtækið  sé stolt að hafa haft að markmiði í ára­ tugi að vörur þess séu framleidd­ ar án þess að umhverfið beri skaða af, og að starfsemin leiði til góðs í hlutaðeigandi samfélögum.“ INDISKA hefur lengi stutt við samfélagsverkefni á Indlandi og hefur til að mynda veitt fé til menntunar kvenna, stúlkna og barna á Suður­Indlandi. skandinavísk hönnun INDISKA er sænsk verslunarkeðja sem rekur yfir 100 verslanir í Skandinavíu og Þýskalandi. Þar má finna blöndu af tískufatnaði, fylgihlutum, heimilis- og gjafavöru. Jólalegt er í IndIsKA þessa dagana. fríður aðventukertastjaki. Okkur hefur verið afar vel tekið hér frá fyrsta degi,“ segir Tinna Brá Baldvinsdóttir, eigandi Hríms í Kringlunni, en verslunin var opnuð í mars á þessu ári. Þetta er þriðja verslunin undir merkjum Hríms en fyrir eru tvær verslanir á Lauga­ vegi, Hrím hönnunarhús og Hrím eldhús. „Við leggjum áherslu á góða þjónustu og fjölbreytt vöruúrval. Hér í Kringlunni erum við með brot af því besta, söluhæstu vörurnar af Laugaveginum,“ útskýrir Tinna. „Við leggjum mikla áherslu á að hafa eitthvað við allra hæfi í hill­ unum. Við erum til dæmis með mjög fallegar herravörur frá Wild & Wolf, vörur fyrir börn frá De­ signletters og fallegar vörur fyrir konur. Þá erum við með úrval af vörum fyrir heimilið. Eldhúsvör­ urnar okkar hafa notið mikilla vinsælda eins og Chasseur­pott­ arnir, Britu Swe­ den­plastmotturn­ ar, Kyocera ker­ amíkhnífarnir og Iris kústarnir. Við erum einnig með sælkeravörurn­ ar frá Cottage de­ light.“ Hvað er vin- sælast? „Vinsæl­ ustu vörurnar eru Chasseur járnpottarnir, Ferm li­ ving vírkörfuborðin og Helle for Lone skartið. Muurla moomin boll­ arnir njóta líka alltaf mikilla vin­ sælda hjá okkur og eru kjörin jóla­ gjöf, einnig Britu Sweden motturn­ ar og Ratzer ullarteppin. Heitasta varan þetta árið verður þó klárlega jólatrésdúkurinn frá Ferm living,“ segir Tinna. nánar á Hrim.is fallegt í Hrími Gjafavöruverslunin Hrím var opnuð í Kringlunni í vor. Þar er að finna fallegar hönnunarvörur fyrir heimilið meðal annars frá Ferm Living og Chasseur. tinna Brá Baldvinsdóttir, eigandi Hríms Gjafavöruverslunin Hrím í Kringlunni býður upp á úrval fallegrar hönnunarvöru. stefanía M. Vilbergsdóttir tekur vel á móti viðskiptavinum. Mynd/stefán KRInGlAn GJAfAVöRuR Kynningarblað 12. nóvember 20154 1 2 -1 1 -2 0 1 5 1 5 :5 4 F B 0 8 0 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 E D -F 3 2 4 1 6 E D -F 1 E 8 1 6 E D -F 0 A C 1 6 E D -E F 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 8 0 s _ 1 1 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.