Fréttablaðið - 12.11.2015, Page 56

Fréttablaðið - 12.11.2015, Page 56
ufc Um helgina fer fram einstakur við- burður í UFC-heiminum. Á hinum risa- vaxna Etihad-velli í Melbourne í Ástral- íu munu 70 þúsund manns fylgjast með UFC 193. Stærsta kvöld í sögu UFC og aðalbardagarnir eru kvennabardagar. Það er keppt í tveim þyngdarflokk- um hjá konunum í UFC og bæði beltin verða undir í Melbourne. Næststærsti bardagi kvöldsins er í strávigt á milli pólska meistarans, Joanna Jedrzejc- zyjk, og kanadísku stúlkunnar Valerie Letourneau. Aðalbardaginn er síðan á milli meist- arans í bantamvigt, Rondu Rousey, og Holly Holm. Tvær frábærar stúlkur sem aldrei hafa tapað. Rousey þó mun sigur- stranglegri enda haft ótrúlega yfirburði í íþróttinni og er að klára sína bardaga á um 30 sekúndum að meðaltali. Hún er rosalegur íþróttamaður Júdódrottning Íslands, Anna Soffía Vík- ingsdóttir, þekkir aðeins til Rousey eftir að hafa glímt við hana í tvígang. Anna Soffía hefur unnið 23 Íslandsmeistara- titla í júdó og hún er líka fjórfaldur Íslandsmeistari í brasilísku jiu jitsu. „Ég keppti tvisvar við Rondu árið 2007. Það var á opna bandaríska og opna sænska meistaramótinu í júdó. Er ég mætti á bandaríska mótið var ég nýbúin að heyra af henni í fyrsta skipti enda hafði hún nælt í silfur á HM,“ segir Anna Soffía en hún fékk að finna fyrir styrk Rousey. „Það gekk ekkert sérstaklega vel í fyrri bardaganum þar sem ég tapaði eftir um eina og hálfa mínútu. Ég fann þar hversu rosalegur íþróttamaður hún er. Hún kemur inn í mann af fullu afli strax frá fyrstu sekúndu. Ef maður er ekki viðbúinn þá bregður manni svolítið. Þetta er stíll sem fólk þekkir ef það hefur horft á hana í MMA. Hún byrjaði snemma með þennan agress- íva stíl,“ segir Anna Soffía en í seinni bardaganum í Svíþjóð gekk betur. „Þá tapaði ég fyrir henni í gólfinu þegar það var svona mínúta eftir.“ Ronda er lokuð týpa Eftir mótið í Svíþjóð fóru margar af júdóstelpunum saman í æfingabúðir í viku. Þar á meðal voru Anna Soffía og Ronda. Þar náði Anna að fylgjast betur með henni. „Ég náði nú ekkert að kynnast henni persónulega. Hún var frekar lokuð týpa og það virtist vera erfitt að kynnast henni. Þegar hún var bæði að æfa og keppa þá var hún svolítið ein úti í horni að hugsa um sitt,“ segir Íslandsmeistar- inn og bætir við að það hafi stundum verið kostulegt að fylgjast með líklega þekktustu og vinsælustu íþróttakonu heims í dag. „Hún v a r ekki alltaf sú vinalegasta við stelpurn- ar sem hún var að glíma við. Ef henni gekk ekki vel þá fór hún stundum að láta illa. Ég man sérstaklega eftir einu atviki þar sem hún var að glíma við góða, þýska stelpu. Það gekk ekki vel og þá fór Ronda að sparka í hana. Þjálfarinn þurfti að stoppa hana og þá rauk hún út. Hún var með stórt skap greinilega og tók ekki allt- af í höndina á andstæð- ingnum sem er ekki vel séð.“ Ber meiri virð- ingu fyrir henni Anna Soffía hefur fylgst vel með uppgangi Rondu í UFC á síðustu árum og er ánægð með það sem Ronda er að gera og ekki síst með það sem hún hefur fram að færa. „Ég fór að bera meiri virðingu fyrir henni er hún fór að tjá sig almennilega. Ég er einmitt að lesa ævisögu hennar líka núna. Mér finnst frábært að hún sé að nýta nafn sitt og frægð til þess að tala fyrir og gegn ákveðnum mál- efnum. Það var flott er hún lét til að mynda Floyd Mayweather heyra það. Hún hefur líka talað opin- skátt um líkamsímyndina sem er gott. Hún sagði að allir vöðvarnir hefðu sinn tilgang er hún var gagnrýnd fyrir að vera of mössuð. Svo er hún auðvitað rosalegur íþróttamaður og einn sá besti sem ég hef séð.“ Anna Soffía er líka hæstánægð með hvað Ronda hefur gert fyrir kvennaíþróttir. „Hún er að sýna að við getum gert þetta jafn vel og karlarnir og jafnvel betur,“ segir Anna Soffía en hún bíður spennt eftir bar- dagakvöldinu um helgina sem verður í beinni á Stöð 2 Sport. „Ég er búin að vera að telja niður í keppnina. Báðar stelpurnar eru rosa- lega flottar og góðir íþróttamenn. Ég held að Ronda vinni og Holly sé ekki tilbúin en ég vona að bardaginn standi í meira en lotu,“ segir Anna og hlær. henry@frettabladid.is Slegist um að sjá stelpurnar Áhorfendamet verður sett hjá UFC um helgina og það eru sterkar stelpur sem hafa selt 70 þúsund aðgöngumiða í Melbourne. Helsta aðdráttaraflið er þó hin ótrúlega Ronda Rousey sem hefur glímt tvisvar við Önnu Soffíu Víkingsdóttur, Íslandsmeistarann í júdó. Tíu staðreyndir um Rondu Rousey l Hún á metið yfir fljótasta sigur í búrinu. Það er 14 sekúndur og hún vann annan bardaga á 16 sekúndum. l Hún hefur aðeins einu sinni barist lengur en í fyrstu lotu. l Hún er kvikmyndastjarna og lék í The Expendables 3, Furious 7 og Entourage. l Hún var fyrsta konan sem fékk samning hjá UFC. l Hún vann bronsverðlaun í júdó á ÓL í Peking árið 2008. l Móðir hennar varð heimsmeist- ari í júdó árið 1984 fyrst allra Bandaríkjamanna. l Hún er fyrsta konan sem kemst á forsíðu blaðsins Men’s Fitness. l Faðir hennar lamaðist og svipti sig lífi þegar hún var 8 ára. l Kærastinn hennar er UFC-kapp- inn Travis Browne. l Hún var fyrsta konan sem fékk að vera gestastjórnandi í íþróttaþætti ESPN, Sports- Center. Ronda Rousey Aldur 28 ára Hæð 170 cm Þyngd 61 kíló Árangur 12-0-0 Holly Holm Aldur 34 ára Hæð 173 cm Þyngd 61 kíló Árangur 9-0-0 1 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 f I m m T u D A G u r40 s p o r T ∙ f r É T T A b L A ð I ð Anna Soffía hefur tvívegis glímt við Rousey. 1 2 -1 1 -2 0 1 5 1 5 :5 4 F B 0 8 0 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 E E -A 4 E 4 1 6 E E -A 3 A 8 1 6 E E -A 2 6 C 1 6 E E -A 1 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 8 0 s _ 1 1 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.