Fréttablaðið - 12.11.2015, Qupperneq 66
Ég er enginn sÉr-
fræðingur en hef
aðeins verið að gera kvik-
myndatónlist og hef mikinn
áhuga á þeirri hlið. við
höfum oft talað um að
okkur langi til þess að búa
til kvikmyndatónlist
saman.
Frumsýningar
steve Jobs
Drama
Aðalhlutverk: Michael
Fassbender, Kate Winslet, Seth
Rogen, Jeff Daniels og Michael
Stuhlbarg.
IMDB 7,7/10
Rotten Tomatoes 85%
Frumsýnd: 13.11.2015
hanaslagur
Teiknimynd
Aðalhlutverk: Bruno Bichir,
Carlos Espejel og Angélica Vale
IMDB 6/10
Rotten Tomatoes 69%
Frumsýnd: 13.11.2015
rock the kasbah
Gamanmynd
Aðalhlutverk: Bill Murray, Zooey
Deschanel, Bruce Willis, Kate
Hudson og Danny McBride.
IMDB 5,3/10
Rotten Tomatoes 7%
Frumsýnd: 20.11.2015
„Ég held að þetta sé í fyrsta sinn sem
við gerum þetta en við höfum samt
oft talað um að gera þetta,“ segir
Úlfur Eldjárn, meðlimur í hljóm-
sveitinni Apparat Organ Quartet.
Sveitin mun opna kvikmyndahá-
tíðina Perlur úr kvikmyndasögu
Póllands með lifandi undirleik
við pólsku myndina Harðjaxl en
hátíðin hefst í kvöld í Bíó Paradís.
Apparat Organ Quartet kemur
sjaldan saman og er því um sér-
stakan tónlistarviðburð að ræða
þar sem sveitin flytur frumsamda
tónlist við opnunarmynd hátíðar-
innar.
„Þetta verður mjög skemmtilegt,
þessi kvikmynd er alveg stórkostleg.
Hún er í raun algjör svona týndur
demantur, eða öllu heldur fundinn
demantur, því hún hvarf í seinni
heimsstyrjöldinni og var um tíma
talið að hún hefði glatast að eilífu.
Þrátt fyrir að vera svarthvít og þögul
þá höfðar efni myndarinnar sterkt
til nútímamanna: Eiturlyf, framhjá-
hald, morð og kapítalistar, það er
allt í þessari mynd. Við erum búnir
að horfa á hana nokkrum sinnum
því við höfum verið að undirbúa
okkur,“ segir Úlfur fullur tilhlökk-
unar.
Sveitin ætlar að leika nýtt efni
við myndina en Úlfur segir að þó
sé pláss fyrir ýmislegt spontant á
sýningunni. „Þetta er mjög lifandi
flutningur, við fylgjum myndinni
en það er líka pláss til að vera
mjög spontant. Þetta verður mjög
skemmtilegt fyrir okkur, þetta er í
fyrsta sinn sem við gerum þetta en
vonandi ekki það síðasta.“
Úlfur hefur unnið við að semja
kvikmyndatónlist en segir hljóm-
sveitina í heild sinni alltaf hafa
haft mikinn áhuga á að búa til kvik-
myndatónlist saman. „Ég er enginn
sérfræðingur en hef aðeins verið að
gera kvikmyndatónlist og hef mik-
inn áhuga á þeirri hlið. Við höfum
oft talað um að okkur langi til þess
að búa til kvikmyndatónlist saman.
Það er líka skemmtileg pæling að fá
hljómsveit til að semja tónlist við
heila mynd,“ segir Úlfur.
Myndin sem sveitin spilar tón-
list við er svarthvít og þögul en
Úlfur segir þetta einmitt henta
orgelkvart ettinum vel. „Í gamla
daga voru notuð risavaxin bíó orgel
til að leika undir þöglu myndunum.
Í Bandaríkjunum er hægt að finna
risavaxin bíóorgel sem eru með
alveg fjórum eða fimm nótna-
borðum og alls konar tökkum.
Þöglar myndir og lifandi tónlist er
eitthvað sem mér finnst virka mjög
vel. Það gefur manni tækifæri á að
gera öðruvísi hluti,“ útskýrir Úlfur.
Meðlimir Apparat Organ Quartet
ætla einmitt að grafa upp alls kyns
eldri hljóðfæri, sem þeir hafa ekki
notað mikið, til þess að nota á sýn-
ingunni í kvöld.
Þetta verða fyrstu og einu tón-
leikar Apparats um nokkurt skeið,
en hljómsveitin kemur næst fram á
tónlistarhátíðinni Sónar Reykjavík
í febrúar á næsta ári.
Á hátíðinni í Bíó Paradís verður
boðið upp á perlur úr kvikmynda-
sögu Póllands, fimmtán kvik-
myndir, en pólsk kvikmyndalist á
sér langa og ríka sögu.
Hátíðin er hluti af samstarfs-
verkefninu Ultima Thule: At the
End of the World, sem Kvikmynda-
safn Póllands í Varsjá, Bíó Paradís
og Reykjavík Film Academy standa
að. Verkefninu er ætlað að auðga
skilning og vitund á milli pólskrar
og íslenskrar kvikmyndamenn-
ingar.
Á undan hverri sýningu mun
Michal Chacinksi reifa sögulegt
samhengi hverrar myndar fyrir sig.
Tveir viðburðir verða í boði fyrir
börn og unglinga, annars vegar
vinnusmiðja þar sem kenndar
eru nokkrar sniðugar leiðir til að
gera hreyfimyndir án myndavélar
og sýningar á költ-klassíkinni Mr.
Blot’s Academy.
Aðgangur að öllum viðburðum er
opinn öllum og ókeypis.
gunnarleo@frettabladid.is
Lifandi undirleikur í fyrsta sinn en
vonandi ekki það síðasta
apparat organ Quartet leikur í fyrsta sinn lifandi tónlist við pólska kvikmynd sem
hvarf í seinni heimsstyrjöldinni. Pólsk kvikmyndahátíð hefst í kvöld í bíó Paradís.
Apparat Organ Quartet leikur lifandi tónlist við þögla pólska mynd í Bíó Paradís. mynd/Antje tAigA
Stærsti fasteignavefur landsins
fasteignir.is á
1 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U D A G U r50 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A ð I ð
bíó
1
2
-1
1
-2
0
1
5
1
5
:5
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
E
E
-9
1
2
4
1
6
E
E
-8
F
E
8
1
6
E
E
-8
E
A
C
1
6
E
E
-8
D
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
8
0
s
_
1
1
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K