Fréttablaðið - 12.11.2015, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 12.11.2015, Blaðsíða 72
PS4 Assassins Creed Syndicate HHHHH Assassins Creed Syndicate tekst vel að rífa upp leikjaseríu sem var byrjuð að dala nokkuð. London árið 1868 er skemmtileg borg að heimsækja og eins og áður er nóg að gera í leiknum. Jafnvel of mikið. Leikurinn er skemmtilegur og í stað þess að Ubisoft hafi reynt að bæta við gömlu leikina á var- hugaverðan hátt, hafa grunnatriði Assassins Creed verið löguð til og fínpússuð. Þó er ekki hægt að segja að engar nýjungar líti dagsins ljós. Meðal annars er hægt að aka hestvögnum og nota reipisbyssu til að klifra upp veggi á skjótan hátt. Óhætt er að segja að leikirnir hafi í raun tekið stakkaskiptum frá því að Altaïr Ibn-La’Ahad myrti fólk í Jerúsalem á tímum krossfaranna. Lengi hafa verið vandræði með klifur og hlaup karaktera leikjanna, en þeim tilvikum þar sem þessi vandræði líta dagsins ljós hefur fækkað til muna. Þá var síðasti leikur seríunnar, Unity, fullur af útlitsgöllum við útgáfu, en það er ekki að sjá að þessu sinni. Syndicate er níundi leikurinn í seríunni, en auk þessara níu leikja hafa þrettán aðrir verið gefnir út. Fyrsti leikurinn var gefinn út árið 2007 svo ljóst er að Ubisoft hefur ekki slakað á við framleiðsluna. Þá verður kvikmynd sem byggð er á sögu leikjanna frumsýnd á næsta ári. Að þessu sinni stýra spilarar tveimur launmorðingjum, sem hægt er að skipta á milli eftir því hvor hentar fyrir verkefnið sem liggur fyrir. Um er að ræða tví- burana Jacob og Evie Frye. Jacob hentar betur til bardaga og Evie hentar betur þegar þörf er á leynd og laumugangi. Verkefni þeirra er að frelsa London undan harðstjórn Musterisriddaranna, eða Templ- ars, og finna Huluna frá Eden, eða Shroud of Eden. Það gera þau með því að frelsa hverfi fyrir hverfi í gríðarlegra stórri borg sem Ubisoft hefur byggt og að safna mönnum í Hróka- gengið. Í leiðinni hitta systkinin fjölmarga sögufræga aðila, eins og Charles Darwin, Alexander Bell og fleiri. Leikurinn lítur vel út og er skemmtilegur, eins og áður segir. London er gríðarlega stór og Syndi- cate virkar vel fínpússaður. Sagan er hins vegar ekki upp á marga fiska og er frekar einföld. Þá er mikið um léttleika og grín sem á vel við þau Jacob og Evie. Kjartan Atli Kjartansson NiðurStAðA: Styrkir leiksins eru margvíslegir. Hann lítur frábærlega út og spilunin er hröð og skemmtileg. Iðnbyltingin kemur vel út í Assassins Creed leik, þar sem farið hefur verið víða um. Saga Synidicate er hins vegar frekar einföld og kliskjukennd. Frískað upp á slappa seríu Jacob og Evie Frye kynnast fjölmörgum sögufrægum aðilum í baráttu sinni gegn Musterisriddurunum. Mynd/UbisoFt 2 msk. olía 2–2,5 l vatn 1 laukur, smátt saxaður 2 hvítlauksrif, smátt söxuð 1 msk. ferskt engifer, rifið niður með rifjárni 1 grænt epli, skorið í litla bita 3 – 4 gulrætur, smátt skornar 6 - 7 stilkar mini-maís, skornir í grófa bita 2 – 3 kjúklingabringur 3 – 4 tsk. karrí 4 msk. rjómaostur 1 tsk. kjúklingakrydd 2 kjúklingateningar 1 dós kókosmjólk 3 tsk. tómatpúrra Salt og pipar, magn eftir smekk Kjúklingasúpa með eplum, karrí og kókosmjólk Ljúffeng súpa sem glimrandi gott er að gæða sér á þegar kvöldin taka að lengjast. Húsvíkingurinn Axel Flóvent vakti mikla athygli á Iceland Airwaves- hátíðinni um síðustu helgi en tón- listarblaðamenn og bransakallar kepptust um að hrósa honum og nokkrir þeirra breyttu ferðaplönum sínum til þess að sjá síðustu tón- leika hans á sunnudagskvöldið. „Við vitum um  að minnsta kosti fjögur plötufyrirtæki í stærri kantinum sem voru að fylgjast með honum um helgina. Ég veit að tveir útsendarar áttu flug heim á sunnu- deginum sem þeir breyttu til að sjá síðustu tónleikana á sunnudags- kvöldið. Við erum í viðræðum við nokkur plötufyrirtæki en stígum varlega til jarðar og pössum okkur að gera það sem er rétt fyrir Axel,“ segir Sindri Ástmarsson, umboðs- maður Axels. Alls kom Axel fram á átta tónleik- um á hátíðinni ásamt því að taka upp vídeó-sessjón fyrir bandarísku útvarpsstöðina KEXP og tónlistar- tímaritið Line of Best Fit. „Ég hef sagt það áður að íslenskir tónlistarmenn fá ekki betra tæki- færi til að sýna sig en á Iceland Airwaves. Við höfum nú þegar gengið frá meira en  tíu erlendum tónleikabókunum og á Axel að minnsta kosti helminginn af því. Ég á von á því að þessi tala fimmfaldist á næstu vikum. Einnig seldi Axel lag í stóra þýska auglýsingu og vinsælan sjónvarpsþátt í Bandaríkjunum. Hinir tónlistarmennirnir mínir stóðu sig einnig mjög vel og bókaði AmabAdamA sína fyrstu erlendu tónlistarhátíð. Emmsjé Gauti og Úlfur Úlfur fengu líka margar fyrir- spurnir og nokkur plötufyrirtæki fylgjast náið með Mána Orrasyni,“ útskýrir Sindri. Næsta stóra verkefni Axels er Eurosonic-tónlistarhátíðin í Hol- landi. Þar spilar Axel á  þrennum tónleikum. – glp Seldi lag í auglýsingu og sjónvarpsþátt Tónlistarmaðurinn Axel Flóvent vakti mikla lukku á Iceland Air­ waves og er í viðræðum við nokkur plötufyrirtæki eftir hátíðina. Hitið olíu í potti við vægan hita, steikið lauk og hvítlauk í smástund. Bætið næst gulrótum, eplabitum og engifer saman við. Kryddið til með salti, pipar og karrí. Hellið vatni saman við og bætið tómatpúrru og kjúklingateningum út í, suðan látin koma upp og súpan látin malla í 10 mínútur. Hitið olíu á pönnu við vægan hita og skerið kjúklinga- bringurnar í litla bita. Steikið kjúkling- inn í örfáar mínútur og kryddið til með kjúklingakryddi og ef til vill smá karrí. Bætið kjúklingabitum, kókosmjólk og rjómaosti saman út í súpuna og leyfið henni að ná suðu, leyfið henni að malla þar til kjúklingurinn er eld- aður í gegn. Gott er að leyfa súpunni að malla við vægan hita í svolítinn tíma, látið hana malla í lágmark 30 mínútur. Smakkið súpuna til með salti, pipar og karrí. Berið súpuna fram með sýrðum rjóma og ef til vill söxuðu klettasalati eða kóríander, það gefur súpunni ein- staklega gott bragð. Uppskrift fengin af Evalaufeykjaran.com Axel Flóvent spilaði á átta tónleikum á iceland Airwaves og vakti mikla lukku. Mynd/siggA EllA 1 2 . N ó v e m b e r 2 0 1 5 F i m m t u D A G u r56 L í F i ð ∙ F r É t t A b L A ð i ð Lífið 1 2 -1 1 -2 0 1 5 1 5 :5 4 F B 0 8 0 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 E F -0 7 A 4 1 6 E F -0 6 6 8 1 6 E F -0 5 2 C 1 6 E F -0 3 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 A F B 0 8 0 s _ 1 1 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.