Fréttablaðið - 12.11.2015, Síða 80

Fréttablaðið - 12.11.2015, Síða 80
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja Atla Fannars Bjarkasonar Bakþankar 5 5 2 8 6 0 0 B O S S - K O N U R M E N N K R I N G LU N N I 5 3 3 4 2 4 2 strax! Ríkið fellir niður tolla á föt og skó um áramót. Við lækkum 15% afsláttur af öllum vörum út árið! HJÁLPA ÐU okkur að hjálpa ÖÐ RUM Landssöfnun Samhjálpar SÍMI 905-2002 TIL AÐ GEFA 2.000 KR. SÍMI 905-2004 TIL AÐ GEFA 4.000 KR. SÍMI 905-2006 TIL AÐ GEFA 6.000 KR. SÍMI 905-2010 TIL AÐ GEFA 10.000 KR. TAKTU ÞÁTT! www.samhjalp.is Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka Einu sinni vann ég með manni sem fannst fátt skemmtilegra en að vera sniðugur á Facebook. Hann var líka mjög góður í því og uppskar oftar en ekki fjölda læka sem glöddu hann mikið. Dag einn komst ég í tölvuna hans og í staðinn fyrir að skrifa vandræða- lega stöðu í hans nafni leitaði ég enn dýpra í sótsvarta sál mína. Ég breytti stillingunum á Facebook-síðunni þannig að aðeins hann og enginn annar sá það sem hann skrifaði. Þannig gat hann sett inn einhvern snilldarlegan orðaleik um málefni líðandi stundar, eins og hann var vanur, án þess að uppskera svo mikið sem eitt einasta læk, þar sem hann var sá eini sem sá það. Þetta var auðvitað hrein og klár martröð fyrir minn mann. Ég fylgdist með honum dæla inn snilldarlegum athugasemdum um menn og málefni, sem hefðu rakað inn tugum læka undir venjulegum kringumstæðum, án þess að uppskera svo mikið sem eina athugasemd. Hann bar harm sinn í hljóði en ég sá sjálfstraustið hægt og rólega að gufa upp. Spurður út í lækþurrkinn reyndi hann að bera sig vel og gerði lítið úr lækþorstanum sem virtist þó beintengdur lífsvilj- anum, ef eitthvað er að marka þessa ómannúðlegu tilraun mína. Það leið ekki á löngu þar til sam- viskan brá fæti fyrir illt innrætið og ég sagði honum frá grikknum. Ég bjóst við ofsafengnum viðbrögðum með tilheyrandi hótunum um makleg málagjöld og kannski fullyrðingum um að ég hefði unnið orrustuna en að stríðið væri rétt að byrja en í staðinn fékk ég ekkert. Akkúrat ekki neitt. Hann starði á skjáinn og kom varla upp orði – eins og hann væri að hugsa um lækin sem hefðu getað orðið en hurfu ofan í grafreitinn sem ég breytti síðunni hans í. Ég hugsa stundum um þennan hrekk þegar ég renni yfir Facebook … Besti hrekkur í sögu Facebook 1 2 -1 1 -2 0 1 5 1 5 :5 4 F B 0 8 0 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 E D -B 7 E 4 1 6 E D -B 6 A 8 1 6 E D -B 5 6 C 1 6 E D -B 4 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 8 0 s _ 1 1 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.