Ægir - 01.09.2014, Síða 11
11
ana. Stjórnmálamenn geta ekki skrifað sig
stikkfrí, stjórnandi í raun þriðju stærstu út-
gerð landsins. Eru menn sannfærðir um að
það að dreifa þessum pottum í litlum ein-
ingum út um land sé endilega árangursrík-
asta aðferðin eða væri hægt að nýta þessi
tonn til að styðja við bak þeirra byggða sem
virkilega þurfa á að halda og þá með þeim
hætti að máli skipti fyrir þær? Eru kerfin eins
og þau eru í dag að nýtast Djúpavogi,
Suðureyri og Flateyri, svo dæmi séu tekin?
Eða eru til aðrar leiðir sem eru skoðunar-
verðar? Innan okkar raða er auðvitað víð-
tæk þekking sem við erum að sjálfsögðu til-
búin að miðla ef eftir væri leitað um ráðgjöf
til stjórnvalda um hvernig málum væri best
fyrir komið. Sú ósk yrði að koma úr þeirri
átt.“
Erum 90% sammála
Jens leggur áherslu á þá framtíðarsýn sína
að sem flestir aðilar í sjávarútvegi snúi bök-
um saman fyrir greinina og rói í sömu átt.
Hann segist koma til með að funda með
fulltrúum allra stjórnmálaflokka á komandi
vikum og kynna samtökin, auk þess að
ræða við önnur félagasamtök í greininni.
„Þannig ætla ég mér að hitta fulltrúa
Samtaka fiskvinnslustöðva án útgerðar og
forsvarsmenn Landssambands smábáta-
eigenda. Mín ósk til allra þessara aðila er að
við getum átt góð skoðanaskipti um grein-
ina og það sem skiptir mestu fyrir hana. Í ís-
lenskum sjávarútvegi hafa alltaf verið og
verða áfram ólíkir hagsmunir, ólík útgerðar-
mynstur, ólík form á vinnslum og svo fram-
vegis. En ég er líka þeirrar skoðunar að
þegar allt kemur til alls þá séum við að eyða
mikilli orku í 10% sem við erum ósammála
um en athyglin mætti meira beinast að
þeim 90% sem við erum í aðalatriðum sam-
mála um. Ég er jákvæður og glaðlyndur
maður að eðlisfari og treysti mér alveg til að
fara í það verkefni að reyna til þrautar að ná
meiri sátt í ágreiningsmálunum því það á
sjávarútvegurinn skilið. Bæði starfsfólk í
greininni og þjóðin á að vera stolt af henni,
einfaldlega vegna þess að hún er sér á báti
á heimsvísu.“
Jens Garðar Helgason er 37 ára gamall, fæddur og uppalinn Esk-
firðingur. Leikvöllurinn var fjaran og hafnarsvæðið á blómaskeiði
Aðalsteins Jónssonar í Hraðfrystihúsi Eskifjarðar. Sem líka varð fyrsti
vinnuveitandi Jens Garðars sem byrjaði í frystihúsinu 13 ára gamall.
„Ég var þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast Alla mjög vel, sem
og Magnúsi Bjarnasyni sem var hans hægri hönd í rekstrinum. Að
mörgu leyti held ég að mín hugsun og sýn í sjávarútvegsmálum
markist talsvert af því að hafa upplifað og séð hvernig þessir menn
stóðu að rekstri á öflugu sjávarútvegsfyrirtæki og létu sér annt um
fólki og samfélagið sem fyrirtækið starfaði í. Þetta voru bæði hug-
sjónamenn og góðir rekstrarmenn.“
Jens Garðar lærði viðskiptafræði í Háskóla Íslands og áður en
náminu lauk var hann þegar kominn á fulla ferð í sölu á mjöli og lýsi
í fyrirtækinu Fiskimiðum ehf. Það keypti hann síðan af stofnandan-
um, Elfari Aðalsteinssyni, árið 2002. Í framhaldinu flutti Jens Garðar
fyrirtækið til Eskifjarðar og hefur starfað hjá því allar götur síðan en
árið 2009 keypti Eskja ehf. á Eskifirði fyrirtækið og er Fiskimið ehf.
síðan rekið sem dótturfélag.
Síðustu kjörtímabil hefur Jens Garðar verið í bæjarstjórn Fjarða-
byggðar og er núverandi formaður bæjarráðs.
Lærdómsríkt að kynnast Alla
Frá stofnfundi Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Stofnaðilar eru um 130 og vonast Jens Garðar til að fleiri aðilar sem starfa í sjávarútvegi sjái sér hag
í að ganga til liðs við þau.