Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.2014, Blaðsíða 16

Ægir - 01.09.2014, Blaðsíða 16
16 Menntaskólinn á Ísafirði hóf nú í haust kennslu á skipstjórnar- námi til A-stigs, sem veitir réttindi til skipstjórnar á skipum sem eru styttri en 24 m að skráningarlengd. Námið er 46 einingar og kennt með svoköll- uðu dreifnámssniði á 3 önnum og lýkur í árslok 2015. Náms- brautin er rekin í nánu samstarfi við Skipstjórnarskóla Tækni- skólans, sem metur allt námið inn í frekara skipstjórnarnám hjá þeim sem vilja halda áfram að loknu A-stiginu. Kennarar í skipstjórnarnáminu eru Guð- björn Páll Sölvason og Heiðar Kristinsson. Fjörutíu og þrír eru nú skráðir i námið. Skipstjórnarnám skiptist í 5 stig, sem hvert um sig veitir ákveðin réttindi til skipstjórnar og stýrimennsku. Auk A-stigs- ins eru það S-stigið sem veitir réttindi til að stjórna smáskip- um undir 12 m að skráningar- lengd, B-stigið sem veitir réttindi til skipstjórnar á skipum allt að 45 m, C-stigið veitir ótak- mörkuð réttindi á fiskiskip og önnur skip með ótakmarkað farsvið og E-stigið veitir réttindi til að gegna stöðu skipherra á varðskipi. Skipstjórnarnámið á Ísafirði átti sér nokkurn aðdraganda, því þörf fyrir meiri réttindi en smáskipanámið gefur hefur ver- ið að byggjast upp. Stafar það af almennri menntunarþörf á þessu sviði en einnig af breytingum á útgerð og nýjum atvinnugreinum. Útgerð smá- báta hefur aukist, en stórum bátum og togurum á Vestfjörð- um fækkað. Menn hafa verið að stækka smábátana og endur- nýja með stærri bátum. Lög nr. 82/2013 um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða ýttu undir þessa þróun, en með þeim geta fiskiskip, sem eru styttri en 15 metrar að mestu lengd og minni en 30 brúttótonn, öðlast veiðileyfi í krókaaflamarkinu, í stað 12 m lengdar í eldri lögum. Smáskiparéttindi duga því ekki lengur til að stjórna öllum bát- um í krókaaflamarkskerfinu. Önnur ástæða er að nokkuð er um að skipstjórnarmenn með meira en smáskiparéttindi vant- ar í fiskeldið. Þá hefur farþega- bátum fjölgað, sem ýtir undir að menn nái sér í aukin skipstjórn- arréttindi. Í vélstjórnarréttindum hefur sama þróunin verið og í skip- stjórn. Með stækkun bátanna dugar vélgæslunám ekki leng- ur, en það veitir rétt til að vera vélavörður á smáskipum sem eru 12 metrar að skráningar- lengd og styttri og með vélarafl minna en 750 kW. Þess vegna hafa Fræðslumiðstöð Vest fjarða og Menntaskólinn á Ísafirði að undanförnu boðið viðbótar- nám í vélgæslu, sem veitir réttindi til að vera vélstjóri á skipum með 750 kW vél og minni allt að 24 metrar að skráningarlengd. Til að stytta nám sitt var þeim sem það átti við, gefinn kostur á að gangast undir svo- kallað raunfærnimat og sá Fræðslumiðstöð Vestfjarða um það. Að frumkvæði Fræðslu- miðstöðvar atvinnulífsins hefur raunfærnimat verið þróað í all- mörgum greinum. Raunfærni er samanlögð færni sem einstak- lingur hefur náð, hvort sem hennar hefur verið aflað í skóla eða með öðrum hætti. Með raunfærnimati geta einstak- lingar fengið þessa færni metna á móti námsskrám skóla eða annarri viðmiðun. Þeir geta síð- an nýtt sér niðurstöðurnar til að halda áfram námi. Fræðslu- og símenntunar- miðstöðin Viska í Vestmanna- eyjum hafði umsjón með þróun raunfærnimatsins í skipstjórn og stjórnaði Sólrún Bergþórs- dóttir náms- og starfsráðgjafi því verki. Var raunfærnimatið tilbúið í desember 2013 og gekkst þá fyrsti hópurinn undir mat hjá Visku. Samstarfaðilar að þróun raunfærnimatsins voru Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Skipstjórnarskóli Tækniskólans og Framhaldsskólinn í Vest- mannaeyjum. Til mats geta komið 22 einingar í 10 áföng- um. Inntökuskilyrði eru að einstaklingur sé: • orðinn 25 ára. • hafi að lágmarki starfað á sjó í 1125 daga. • hafi áhuga á því að ljúka til- skyldum stýrimanns- og skipstjórnarréttindum. Þar sem markhópur skip- stjórnarnámsins voru einkum starfandi sjómenn og þar á meðal skipstjórar, var eðlilegt að bjóða þeim að gangast und- ir raunfærnimat. Raunfærni- Skipstjórnarnám á Ísafirði Fjórir af þeim nemendum sem tóku þátt í raunfærnimati sem undanfara skipstjórnarnáms við Menntaskólann á Ísafirði. M en n tu n

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.