Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.2014, Blaðsíða 22

Ægir - 01.09.2014, Blaðsíða 22
22 S íld a rv ertíðin Hjá vinnslustöð Ísfélagsins sem staðsett er á Þórshöfn á Langanes er enn verið að vinna síld úr norsk-íslenska síldar- stofninum og segir Siggeir Stef- ánsson framleiðslustjóri að ver- tíðin hafi gengið vel. „Við erum um það bil að klára okkar kvóta í norsk-íslensku síldinni, það er misjafnt milli ára hvenær þeirri vertíð lýkur. Við erum örlítið seinni í ár en oft áður,“ segir hann. Siggeir segir að vertíðin hafi heilt yfir gengið ljómandi vel, síldin sé stór og falleg, meðal- stærð um 400 grömm sem telj- ist mjög gott og hún henti vel í vinnslu. „Hún gefur betur af sér svona stór. Við höfum verið að fá ágætis verð fyrir hana.“ segir hann en síldin er seld heilfryst og flökuð á markaði í Austur- Evrópu, m.a. til Póllands, Rúss- lands og Hvíta-Rússlands. Mikið fjör þegar síldarvertíð stendur yfir Tvö skipa Ísfélagsins, Heimaey og Álsey, hafa séð vinnslunni á Þórshöfn fyrir hráefni að undanförnu. Skip félagsins hafa landað um 11 þúsund tonnum af norsk-íslensku síldinni á ver- tíðinni á Þórshöfn. Áður stóð yf- ir vinnsla á markíl og voru um 7000 tonn af honum unnin hjá vinnslunni á Þórshöfn. „Það hefur verið mikið um að vera hjá okkur, mikið fjör í þessu eins og jafnan er þegar vertíðir standa yfir og menn hafa gam- an af því,“ segir Siggeir. Þegar lokið verður við vinnslu á norsk-íslensku síldinni tekur heimasíldin við að sögn Siggeirs, en hún verður unnin í Vestmannaeyjum. „Við förum í bolfiskvinnslu þegar þessu síldarævintýri lýkur,“ segir hann. Vertíðin var á margan hátt svipuð og í fyrra, en þá var metár hjá vinnslunni, „svo það telst líklega bara aldeilis gott að taka tvö góð ár í röð,“ segir hann. „Við erum ánægð með það.“ Vonbrigði með minni loðnukvóta Hins vegar lýsir hann áhyggjum með minnkandi kvóta þegar kemur að norsk-íslensku síldinni og segir blikur á lofti sem vissulega sé ástæða til að óttast. Óvissa ríki um hrygn- ingarstofninn og hvað veiða megi úr stofninum á komandi árum. „Það voru okkur líka von- brigði að sjá hversu úthlutun í loðnu fyrir komandi vetur er lítil. Við höfðum væntingar um að byrjunarúthlutunin yrði meiri miðað við mælingar í fyrra. Það verður farið í leiðang- ur til að mæla loðnu aftur í jan- úar og við vonum að þá finni Hafró meira magn af henni en síðasta loðnuvertíð var mjög lé- leg,“ segir Siggeir. Mikið hefur verið um að vera í vinnslustöð Ísfélagsins á Þórshöfn. Þar hafa tvö skipafélagsins landað um 11 þúsund tonnum af síld úr norsk-íslenska stofninum undanfarnar vikur og annríki verið á starfsfólkinu. Myndir: Líney Sigurðardóttir Siggeir Stefánsson framleiðslustjóri Ísfélagsins á Þórshöfn: Metvertíð í fyrra og stefnir í álíka góða nú Vertíðin sem nú stendur yfir er á margan hátt svipuð og í fyrra, en þá var metár hjá vinnslunni, „svo það telst líklega bara aldeils gott að taka tvö góð ár í röð,“ segir Siggeir framleiðslustjóri á Þórshöfn.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.