Morgunblaðið - 02.05.2015, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.05.2015, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2015 Hlíðasmára 19, 201 Kópavogur | Sími 514 1400 | sumarferdir.is SÓLARHRINGUR SUMARFERÐA 50% AFSLÁTTUR AF FLUGI FYRIR BÖRNIN Í SÓLINA Hefst á hádegi mánudaginn 4. maí. Nánar á Sumarferdir.is Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ágæt veiði hefur verið á kolmunna- miðunum sunnan við Færeyjar und- anfarna daga. „Þetta hefur verið í góðu lagi,“ sagði Steinþór Hálfdanar- son, skipstjóri á Birtingi NK, í gær. Skipið var þá búið að vera tvo daga á miðunum og sagði Steinþór að ef veið- in héldist svipuð myndi skipið verða komið með fullfermi í nótt eða nú með morgninum. Loðnuskipin draga trollið dag og nótt og hífa gjarnan tvisvar á sólar- hring. Tólf íslensk skip mega vera á veið- um í færeysku lögsögunni á hverjum tíma. Þegar veiðin er góð eins og ver- ið hefur skapar það ekki vandamál því þá eru mörg skip að landa eða sigla til eða frá löndunarstað á Íslandi. Sigl- ingin af miðunum sem ná suður undir miðlínu á milli Færeyja og Skotlands tekur um 30 klukkustundir. Löng sigling af miðunum Kolmunnavertíðin er góð búbót fyrir fiskimjölsverksmiðjurnar. Þannig hafa verksmiðjur Síldar- vinnslunnar á Norðfirði og Seyðisfirði verið í góðum rekstri, þó ekki alveg samfellt. Í gær lauk löndun úr Vil- helm Þorsteinssyni og búist var við að Birtingur yrði næstur. „Það þarf þó ekki mikið út af að bregða með veiði eða veður til að það dragist að bátur komi,“ sagði Gunnar Sverrisson, rekstrarstjóri fiskimjöls- verksmiðja Síldarvinnslunnar. helgi@mbl.is »18 Ágætis veiði á kolmunna- miðunum við Færeyjar Kolmunni Trollið er gjarnan híft úr sjó tvisvar á sólarhring.  Búbót hjá íslensku fiskimjölsverksmiðjunum Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Framlagi Íslands á Fenyjatvíær- ingnum í ár er ætlað að vekja umtal og skapa samræðugrundvöll fyrir trúarhópa og þjóðfélagshópa með ólíkar skoðanir. Þetta segir Eiríkur Þorláksson, formaður stjórnar Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar. Verk svissneska lista- mannsins Christoph Büchel, Mosk- an, The Mosque á ensku, verður sett upp í afhelgaðri kirkju frá 10. öld á þessari alþjóðlegu listasýningu sem hefst 9. maí næstkomandi. „Aðalmarkmiðið af hendi lista- mannsins með þessu verkefni er að skapa samræðugrundvöll fyrir ólíka hópa með ólíkar skoðanir,“ segir Ei- ríkur. Hann segir það, að hugmynd af þessu tagi komi norðan úr Atlantshafi en ekki úr eyðimörkum suðrænna landa, vera til þess fallið að menn ræði saman. „Þörfin er mikil og þessu verkefni er ætlað að benda á þörfina. Ég vona að allir nái að taka því sem slíku,“ segir hann. Kostar tugi milljóna króna Kostnaður við þátttöku Íslands á hátíðinni hleypur á tugum milljóna króna. Í fjárlögum var veitt 12 milljóna króna tímabundið framlag til Kynningarmiðstöðvar listgreina tvö ár í röð, árin 2014 og 2015, vegna þátttöku Íslands á sýning- unni. Eiríkur segir þó ljóst að verk- efnið sé talsvert dýrara en þetta 24 milljóna króna framlag. „Flest ár hefur verið staðið í fjár- öflun með öðrum hætti, bæði hér og erlendis. Það hefur einnig verið gert nú og hefur fengist umtalsverður og mikilvægur stuðningur frá erlend- um og innlendum aðilum,“ segir Ei- ríkur en endanlegar tölur eru ekki ljósar á þessari stundu, segir hann. Aðspurður hvort það séu fordæmi fyrir því að erlendir listamenn séu fulltrúar einhverra landa á listahá- tíðinni segir Eiríkur svo vera, verk hátíðarinnar séu val þátttökuland- anna. „Alþjóðleg listsýning er ekki keppni í þjóðrembingi, þarna kemur saman það sem menn telja best hverju sinni í samtímalist,“ segir hann og því séu verkin ekki bundin við þjóðerni með neinum hætti. Büchel, sem hefur búið hérlendis frá árinu 2008, var valinn fulltrúi Ís- lands á haustmánuðum 2013 en hann hefur tekið þátt í íslensku listalífi til fleiri ára. Er hann því orðinn einn af okkur, segir Eiríkur. Val á fulltrúa Íslands fór fram með öðrum hætti fyrir Feneyjatvíæring- inn í ár en fyrri ár. Nefndin óskaði eftir hugmyndum að verkum og varð önnur tillaga Büchels fyrir val- inu, sem ekki var unnt að fram- kvæma. Lagði hann þá til verkið Moskuna. Íslensku mosk- unni ætlað að vekja umtal  Hinn svissneski Christoph Büchel er fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum List Framlag Íslands á hátíðinni verður sett upp í afhelgaðri kirkju. Feneyjatvíæringurinn » Alþjóðlega listasýningin hefst hinn 9. maí nk. » Ekki keppni í þjóðrembingi, segir formaður stjórnar Kynn- ingarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar. » Önnur hugmynd varð fyrir valinu en ekki reyndist unnt að framkvæma hana. » Verk eru ekki bundin við þjóðerni með neinum hætti. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Óvissan var erfið, að vita í fyrstu ekkert um afdrif ættingja og vina eftir þessar hrikalegum hamfarir. Smám saman hefur myndin þó skýrst, allt mitt fólk er heilt á húfi. Myndir í fjölmiðlum eru hrikalegar og ég beygi af yfir sjónvarpsfrétt- unum,“ segir Ash Kumar Gurung, formaður Félags Nepala á Íslandi. Nær ekki símasambandi Mjólkursamsalan er miðpunktur nepalska samfélagsins á Íslandi. Um 120 manns úr hinu fjarlæga fjallalandi, sem jarðskjálftar skóku um síðustu helgi með hrikalegum afleiðingum, búa hér á landi. Þar af eru þrettán starfsmenn MS, allir starfsmenn í vöruafgreiðslu. Að fjölskyldum þessara manna með- töldum tengist fjórðungur Nepala á Íslandi fyrirtækinu. Því hefur verið til styrktar hjálparstarf í Nepal verið hrundið af stað innanhúss- öfnun meðal starfsmanna MS auk þess sem fyrirtækið sjálft leggur málinu lið. Ash Kumar, jafnan nefndur Ask- ur, segir það hafa verið ónotalegt um síðustu helgi að fá skilaboð í símann um miðjan nótt um jarð- skjálftann í Nep- al, enda strax ljóst að afleið- ingar væru hrikalegar. „Fólkið mitt býr í fjallabyggð fyr- ir sunnan höf- uðborgina Kat- mandú, þar sem urðu talsverðar skemmdir. Frétt- ir af fjölskyldunni hef ég fengið í gegnum Facebook og tölvupóst. Símasambandi hef ég ekki náð í þrjá daga,“ segir Askur sem er fjölskyldumaður og hefur verið við- loðandi Ísland í um 20 ár. „Ég vonast þó til að geta sent fólkinu mínu svo sem hálfa til eina milljón króna svo það geti aftur komið undir sig fótunum. Ég óttast samt að uppbyggingarstarf taki langan tíma, því landið er frumsætt og áhugi á hjálparstarfi fjarar fljótt út,“ segir Askur. Nepalar á Íslandi funduðu í gær með fulltrúum Rauða krossins. Þar kom fram að samtökin yrðu í aðalhlutverki í hjálparstarfi Ís- lands við Nepal og að fjár- söfnun til styrktar þessu verkefni yrði efld á næst- unni. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Mjólkurpóstar Frá vinstri: Supak Chhetri, Dammar Jang Gurung og Tak Bahadur Gurung með fjörmjólkurfernur. Erfitt að fylgjast með fréttunum að heiman  Fjöldi Nepala hjá MS  Starfsfólkið safnar fyrir hrjáða „Starfsmannahópurinn hér er eins og stór fjölskylda og við höfum fundið vel hvað hamfar- irnar í Nepal hafa reynt á fólkið þaðan sem hér starfar,“ segir Hermann Erlingsson, afgreiðslu- stjóri hjá MS. Hjá honum vinna um 50 manns, sem finna til ýms- ar pantanir og koma á bíla sem flytja vörur í verslanir. „Ég hef gengið á milli nep- ölsku strákanna og athugað líð- an og vissulega bera þeir sig vel. Við svona aðstæður er hins veg- ar gott fyrir alla að eiga stuðning vísan og hafa svigrúm. Um Nepalana hér get ég sagt að þetta eru gullmolar, harðduglegir og vinnusamir menn sem munar um.“ Harðduglegir STUÐNINGUR OG SVIGRÚM Hermann Erlingsson Ash Kumar Gurung

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.