Morgunblaðið - 02.05.2015, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2015
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sp
ör
eh
f.
Kynningarfundur verður haldinn 5. maí kl. 20:00
hjá Bændaferðum í Síðumúla 2, 2. hæð.
Við segjum Aloha Hawaii og höldum í einstaka ferð um
eyjarnar Oahu, Kauai og Maui. Landslagið er dásamlegt,
hvítar strendur og blágrænn sjór í bland við spúandi
eldfjöll. Við heimsækjum Pearl Harbor, Ioni konungshöllina,
gamla hvalveiðibæinn Lahaina og Haleakala þjóðgarðinn.
Gist á góðum hótelum við fallegar strendur.
30. janúar - 12. febrúar Fararstjóri: Inga Ragnarsdóttir
Hawaii -Honolulu&Maui
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Forseti ASÍ hvetur til þess að afl að-
ildarfélaga og félagsmanna Alþýðu-
sambandsins verði sameinað undir
einum fána 110 þúsund félagsmanna
til þess að hámarka þrýstinginn og
herkostnað atvinnurekenda þegar í
upphafi baráttunnar sem nú stendur
yfir. Kom þetta fram í ræðu Gylfa
Arnbjörnssonar á baráttufundi
verkalýðsfélaganna í Reykjanesbæ í
gær. Hann sagði í samtali við Morg-
unblaðið að ef aðrir hópar innan ASÍ
efndu til verkfalla, eins og Starfs-
greinasambandið hefur þegar gert,
mætti búast við að 100 þúsund fé-
lagsmenn yrðu komnir í verkfall
undir lok mánaðarins.
Gylfi sagði í ávarpi í 1. maí blaði
Vinnunnar að íslenskur vinnumark-
aður logaði nú í illdeilum og fyrirsjá-
anleg væru mikil
átök á næstu vik-
um. Rakti hann
það til þess að
kjarasamningar
sem ríki og sveit-
arfélög gerðu við
kennara og há-
skólamenn í kjöl-
far kjarasamn-
inga ASÍ og
BSRB í fyrravet-
ur og samninga ríkisins við lækna í
byrjun þessa árs.
„Það á öllum að vera ljóst að það
verður engin sátt um það að almennt
launafólk axli eitt ábyrgð á forsend-
um gengis og verðstöðugleika á
meðan aðrir taki sér launahækkanir
svo tugum prósenta skipti. Krafan
er því að kjör okkar fólks verði leið-
rétt miðað við það sem á undan er
gengið,“ skrifar forseti ASÍ.
Átakið verður léttara
Í ræðu sinni rifjaði Gylfi upp að
aðildarfélög ASÍ hafi löngum verið
treg að grípa til verkfallsvopnsins
því samfélagslegur kostnaður þess
væri mikill og því fylgdi mikil
ábyrgð notkun þess. „Það er langt
síðan við höfum beitt þessu vopni
okkar en ég lít hins vegar þannig á
að það sé búið að stilla almennu
launafólki upp við vegg og við eigum
engra annarra kosta völ […].“
Gylfi segir í samtali við Morgun-
blaðið að ekki hafi verið ákveðið að
fara í samstilltar verkfallsaðgerðir
allra félaga innan ASÍ. „Við skulum
þó vera minnug þess að þegar allir
taka á árinni verður álagið á hvern
og einn minna, en sameinað afl okk-
ar í samstöðunni þeim mun meira,“
sagði Gylfi í ræðunni í Reykja-
nesbæ.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Kröfur Fjölmennt var í kröfugöngu á baráttudegi verkafólks á Akureyri. Svo var einnig víðar um landið.
Hvatt til sameiginlegs
verkfalls ASÍ-félaga
Forseti ASÍ býst við 100 þúsund manna verkfalli í lok maí
Gylfi
Arnbjörnsson
„Svo langt er á milli aðila að við telj-
um okkur nauðbeygð að efna til
þessarar atkvæðagreiðslu,“ segir
Ólafur G. Skúlason, formaður Fé-
lags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Stjórn félagsins ákvað á fundi í gær-
morgun að efna
til atkvæða-
greiðslu um boð-
un verkfalls frá
og með 27. maí
hjá hjúkrunar-
fræðingum sem
starfa hjá ríkinu
og stofnunum
þess.
Atkvæða-
greiðslan hefst
næstkomandi
mánudag og stendur til 10. maí. Nær
hún til rúmlega 2.100 hjúkrunar-
fræðinga sem starfa hjá ríkinu.
Greidd verða atkvæði um ótíma-
bundið verkfall sem hefst 27. maí ef
samningar hafa ekki náðst fyrir
þann tíma. Verkfallið mun hafa áhrif
á allar heilbrigðisstofnanir sem ríkið
rekur auk annarra vinnustaða hjúkr-
unarfræðinga hjá hinu opinbera.
Ekki samningsvilji
Ólafur G. Skúlason vísar til þess
að samninganefnd hjúkrunarfræð-
inga hafi fundað með fulltrúum rík-
isins í vetur. Hjúkrunarfræðingar
vísuðu deilunni til ríkissáttasemjara
fyrir mánuði og segir Ólafur að síðan
þá hafi verið haldnir þrír árangurs-
lausir samningafundir. Í tilkynningu
félagsins kemur fram að ekki sé að
merkja mikinn samningsvilja hjá
samninganefnd ríkisins og því sjái
félagið sig nú knúið til að kanna hug
félagsmanna til verkfalls.
Samninganefnd hjúkrunarfræð-
inga hefur lagt áherslu að hækka
dagvinnulaun hjúkrunarfræðinga
þannig að þau endurspegli bæði
ábyrgð og menntun hjúkrunarfræð-
inga. „Markmið okkar er að gera
þau samkeppnishæf við laun ann-
arra stétta háskólafólks hjá ríkinu,“
segir Ólafur. Hann segir að meðal
dagvinnutekjur hjúkrunarfræðinga
séu nú 14-25% lægri. „Hjúkrunar-
fræðingar sætta sig ekki lengur við
það að vera á lægri enda launaskala
háskólamanna. Ríkið sýndi það með
samningum við lækna og kennara í
vetur að það er svigrúm til launa-
hækkana. Nú er tímabært að hækka
laun hjúkrunarfræðinga,“ segir
Ólafur.
Jafnlaunaátak dugði ekki
Margir hjúkrunarfræðingar
sögðu upp störfum í byrjun árs 2013.
Þá voru launin hækkuð með svoköll-
uðu jafnlaunaátaki. Ólafur segir
greinilegt að það hafi dugað skammt
því launamunurinn hafi ekkert
lagast.
„Við vonum innilega að það verði
samið áður en til verkfalls kemur.
Það er búið að herja á heilbrigðis-
kerfið með verkföllum og vonandi
verður það ekki raunin með hjúkr-
unarfræðinga. Við erum að missa
hjúkrunarfræðinga í önnur störf og
til útlanda. Við þurfum á starfs-
kröfum þeirra að halda,“ segir Ólaf-
ur. helgi@mbl.is
Launin verði
samkeppnishæf
Hjúkrunarfræðingar greiða atkvæði
um boðun verkfalls hjá ríkinu 27. maí
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Krafa Hjúkrunarfræðingar tóku
þátt í kröfugöngum.
Ólafur Guðbjörn
Skúlason
’
Þetta er svo einfalt reikningsdæmi,
þegar við horfum til þjóðflutninga
íslensks launafólks til annarra landa á
undanförnum árum. Nú ætla launþegar
að rétta sinn hlut, exel-skjöl lögfræð-
inga og hagfræðinga vinnuveitenda
breyta engu þar um.
Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar -
Iðju og Starfsgreinasambandsins
’
Maður veltir því oft fyrir sér hvort
ríkjandi ójöfnuður sé orðinn svo
rotinn að okkur takist ekki að leiða
þjóðarsálina inn á nýjar brautir
Aðalsteinn Árni Baldursson,
formaður Framsýnar
’
Með aðgerðum sínum í þágu hinna
fáu efnameiri hafa stjórnvöld og
atvinnurekendur hafnað því að vinna
sameiginlega á grunni stöðugleika og
samstöðu
Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB
’
Atvinnurekendur og stjórnvöld
hafa lítið fram að færa í þeim við-
ræðum sem átt hafa sér stað und-
anfarin misseri, því miður. Það er til lít-
ils að lýsa yfir að hér sé slegið met í
kaupmáttaraukningu ef fæstir finna
fyrir því á eigin skinni
Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR
’
Stöðugleiki sem byggir á ósann-
gjarnri misskiptingu auðs og
löskuðu velferðarkerfi er ekki stöð-
ugleiki sem hægt er að sætta sig við.
Drífa Snædal, framkvæmdastjóri SGS
’
Við stöndum nú á tímamótum þar
sem teknar verða afdrifaríkar
kvarðanir um afdrif þjóðarinnar. Nú
standa yfir einhver mestu og illvígustu
átök á vinnumarkaði sem sést hafa í
áratugi. Fullkomið vantraust og trún-
aðarbrestur er á milli aðila.
Árni Stefán Jónsson, formaður SFR
’
Launafólk er orðið langeygt eftir
kjarabótum og þolinmæðin
endanlega þrotin. Fólk tekur ekki mark
á þeim fullyrðingum að ekki sé hægt
að borga laun sem duga fyrir fram-
færslu.
Arnar G. Hjaltalín, formaður Drífanda
Orðrétt
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Barátta Mikill mannfjöldi var á Ingólfstorgi í Reykjavík.
Fjölmenni tók þátt í kröfugöngum og hátíðarhöldum í
Reykjavík og víðar um land á baráttudegi verkalýðsins.
Kjaradeilur á vinnumarkaði, viðræður um nýja samn-
inga og verkfallsaðgerðir, voru ofarlega í huga ræðu-
manna og ljóst virðist að það stefnir í enn meiri átök á
næstu vikum.
Fjölmenni á hátíðarhöldum á baráttudegi