Morgunblaðið - 02.05.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2015
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
mánudaginn 4. maí, kl. 18
í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg
Jóhannes
S.Kjarval
Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna
svo og fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna.
Verkin verða sýnd laugardag kl. 11–17,
sunnudag kl. 12–17, mánudag kl. 10–17
Listmunauppboð
í Gallerí Fold
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Þeir sem vilja losna við flugvöll-inn úr Vatnsmýrinni nota til
þess ýmsar aðferðir, meðal annars
að þrýsta byggingum upp að hon-
um úr öllum áttum og vilja að auki
klípa af honum eina
af þremur flug-
brautum hans.
Sú flugbraut hef-ur gjarnan ver-
ið nefnd neyð-
arbraut, enda er
hún notuð þegar
hinar eru lokaðar vegna veðurs og
hefur oft komið að góðum notum.
Í ákafanum að losna við neyð-arbrautina hefur verið reiknað
út að halda megi flugvellinum úti
vandræðalaust án hennar enda
haldist hann að mestu opinn þó að
henni sé lokað.
Þetta er út af fyrir sig dálítiðundarleg röksemdafærsla þeg-
ar neyðarbraut er annars vegar.
Menn sleppa því til dæmis ekki að
spenna á sig öryggisbelti vegna
þess að þeir lenda sjaldan í
árekstri. Það er alltaf spennt því að
enginn veit hvenær óhapp verður.
En nú er búið að fara yfir þá út-reikninga sem stuðst hefur
verið við og þá kemur í ljós að vind-
hraði hefur verið stórkostlega van-
metinn vegna þess að ekki er horft
á veðurgögn nægilega langt aftur í
tímann.
Jóhannes Loftsson verkfræð-ingur, sem hefur yfirfarið veð-
urgögnin og útreikningana, segir
að hin ranga greining geti „stefnt
flugöryggi í áætlunarflugi og
sjúkraflugi hér á landi í voða“.
Þegar svo er komið er tímabærtað hætta að þrengja að flug-
vellinum.
Jóhannes
Loftsson
Flugöryggi
stefnt í voða
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 1.5., kl. 18.00
Reykjavík 4 léttskýjað
Bolungarvík 0 alskýjað
Akureyri 2 skýjað
Nuuk -6 snjókoma
Þórshöfn 4 alskýjað
Ósló 7 skýjað
Kaupmannahöfn 10 léttskýjað
Stokkhólmur 10 skúrir
Helsinki 10 heiðskírt
Lúxemborg 10 skúrir
Brussel 12 heiðskírt
Dublin 10 skýjað
Glasgow 10 léttskýjað
London 11 léttskýjað
París 8 súld
Amsterdam 12 léttskýjað
Hamborg 12 léttskýjað
Berlín 12 heiðskírt
Vín 15 alskýjað
Moskva 12 skúrir
Algarve 21 heiðskírt
Madríd 23 léttskýjað
Barcelona 18 léttskýjað
Mallorca 20 heiðskírt
Róm 17 léttskýjað
Aþena 21 léttskýjað
Winnipeg 17 léttskýjað
Montreal 16 léttskýjað
New York 12 alskýjað
Chicago 16 léttskýjað
Orlando 26 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
2. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:57 21:54
ÍSAFJÖRÐUR 4:45 22:15
SIGLUFJÖRÐUR 4:28 21:58
DJÚPIVOGUR 4:22 21:27
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Sex tilboð bárust í byggingarrétt, að
meðtöldum gatnagerðargjöldum, fyr-
ir lóðirnar á Mýrargötu 27, 29 og 31
og Seljavegi 1A og 1B í Vesturbæ
Reykjavíkur. Frestur til að skila inn
tilboðum rann út sl. þriðjudag.
Þær upplýsingar fengust hjá
Reykjavíkurborg að hæsta tilboðið í
byggingarréttinn hljóðaði upp á 151,2
milljónir. Verið er að kanna hvort
hæstbjóðandi uppfylli skilmála út-
boðsins og verður málið lagt fyrir
borgarráð til afgreiðslu á næstunni.
Á lóðunum er heimilt að reisa fimm
sambyggð hús og eru frumdrög að
þeim sýnd hér til hliðar. Lóðirnar eru
austan við Héðinshúsið og suður af
nýbyggingunni Mýrargötu 26, 68
íbúða stórhýsi sem setur orðið mikinn
svip á götuna.
Lóðirnar eru á svonefndum Ný-
lendureit sem afmarkast af Seljavegi
í vestri, Vesturgötu í suðri, Mýr-
argötu í norðri og Ægisgötu í austri.
Samkvæmt deiliskipulagi er heim-
ilt að reisa íbúðarhús við Mýrargötu
27 og 29 og Seljaveg 1A og 1B. Á
Mýrargötu 31, sem er hornlóð, er
gert ráð fyrir verslun og/eða þjónustu
á 1. hæð en íbúðum á efri hæðum.
Fram kom í kynningargögnum frá
Reykjavíkurborg að kauptilboð
skyldu taka til alls byggingarrétt-
arins sem nemur allt að 1.440 fer-
metrum á fimm lóðum.
Miðað við að flutt verði inn í húsin
eftir tvö ár, í sumarbyrjun 2017, má
ætla að fermetraverð verði ekki undir
hálfri milljón. Samkvæmt því má
lauslega áætla að söluverðmæti eign-
anna verði 700-800 milljónir. Upp-
bygging Icelandair Hotel Reykjavík
Marina við Mýrargötu og fyrirhugað
íbúðarhverfi við Vesturbugt munu
breyta ásýnd svæðisins enn frekar.
Margir vilja lóðir á Nýlendureit
Sex tilboð bárust í byggingarlóðir fyrir fimm sambyggð hús á Mýrargötu
Byggingarmagn allt að 1.440 fermetrar Hæsta boðið var 151 milljón króna
Tölvuteikning/Reykjavíkurborg
Frumdrög Svona gætu húsin fimm á umræddum lóðum litið út.
Nokkuð var um að ökumenn væru
stöðvaðir í fyrrinótt vegna gruns
um að hafa ekið undir áhrifum
fíkniefna eða áfengis, skv. upplýs-
ingum úr dagbók lögreglunnar.
Um miðnætti var bifreið stöðvuð
á Njálsgötu og var ökumaðurinn
grunaður um akstur undir áhrifum
fíkniefna. Farþegi í bílnum er grun-
aður um vörslu fíkniefna og faldi
ætluð fíkniefni í nærbuxum sínum.
Með ætluð fíkniefni
í nærbuxunum
Maður var handtekinn í Austur-
stræti í fyrrinótt grunaður um lík-
amsárás. Hann var í vörslu dyra-
varða er lögreglumenn komu á
vettvang. Maðurinn var í mjög ann-
arlegu ástandi og var hann vistaður
í fangageymslu fyrir rannsókn
máls, segir í dagbók lögreglunnar.
Þegar verið var að færa manninn í
fangageymslu skallaði hann lög-
reglumann í andlitið.
Skallaði lögreglumann