Morgunblaðið - 02.05.2015, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 02.05.2015, Blaðsíða 15
Verðmæti til framtíðar Landsvirkjun var stofnuð 1. júlí 1965. Búrfellsstöð var fyrsta stórframkvæmd fyrirtækisins og stærsta framkvæmd Íslandssögunnar á þeim tíma. Með byggingu hennar var lagður grunnur að nýjum iðnaði í landinu sem leiddi af sér aukna verkþekkingu og fjöl- breyttara atvinnulíf á Íslandi. Landsvirkjun 50 ára2015 Landsvirkjun byggir á traustum grunni. Eftirspurn eftir endurnýjanlegri íslenskri raforku er orðin meiri en framboð og í því umhverfi hefur góður rekstur skapað tækifæri til að skila arði til eiganda fyrir- tækisins, íslensku þjóðarinnar. Á opnum ársfundi munum við fjalla um hvaða áhrif stofnun Landsvirkjunar hafði á íslenskt samfélag. Hvers vegna raforka er verðmæt vara? Hversu mikið viljum við virkja? Hvenær getum við greitt aukinn arð? Við stöndum frammi fyrir einstökum tækifærum til að skapa þjóðinni aukin verðmæti til framtíðar. Ársfundur á 50. afmælisári Landsvirkjunar Verið velkomin á ársfund Landsvirkjunar í Eldborg í Hörpu, þriðjudaginn 5. maí kl. 14–16. Nánari upplýsingar og skráning á landsvirkjun.is. #lv50ára

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.