Morgunblaðið - 02.05.2015, Page 29

Morgunblaðið - 02.05.2015, Page 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2015 Magnús Carlsen sigraði áminningarmótinu umVigar Gashmov í Aser-baídsjan sem lauk um síðustu helgi. Hann fékk 7 vinninga af níu mögulegum og er það árangur sem reiknast uppá tæplega 3000 elo- stig. Magnús er nú með 2876 elo- stig. Yfirburðir hans þessi misserin eru miklir og eins og sakir standa er vandfundinn sá skákmaður sem get- ur ógnað veldi hans. En mótinu í Aserbaídsjan var ekki fyrr lokið en athyglin beindist vestur um haf. Í St. Louis í Mississippi-ríki settist hinn 52 ára gamli Garrí Kasparov niður við það sem hann gerir best – að tefla og háði 10 skáka einvígi við gamlan kunningja sem hann hefur margoft tuskað til áður, enska stór- meistarann Nigel Short. Tíu ár eru liðin frá því að Kasparov hætti tafl- mennsku og sneri sér að pólitík. Kasparov hafði þá unnið til fjögurra ólympíugullpeninga fyrir Rússland á árunum 1992-2002 og átti kannski von á vinsamlegri viðtökum en þeim sem hann hefur mátt lifa við: morð- hótunum, barsmíðum og fangels- unum. Svo fór hann að hann hraktist úr heimalandi sínu og býr nú í New York ásamt fjölskyldu sinni. Þeir Short tefldu tvær atskákir, 25 10 og átta hraðskákir, 5 3. Kasparov vann 8½ : 1½ . Í einu tapskákinni féll hann á tíma og var þá með betri stöðu. Einvígið tók tvo daga, eftir fyrri daginn var staðan 3 ½ : 1 ½ en seinni daginn vann Kasparov allar skák- irnar. Persónulega fannst mér Garrí full hógvær í yfirlýsingum eftir ein- vígið þar sem hann taldi engar líkur á að hann myndi gera atlögu að heimsmeistaratitlinum. Það blasir við að Magnús myndi ekki eiga auð- velt verk fyrir höndum ef til einvígis þeirra kæmi. Taflmennska Kasp- arov logaði af krafti. Þeir sem skoða skákir hans ættu alltaf að veita því athygli hversu sterk áhersla hans á frumkvæðið er. Hann er tilbúinn að kaupa það dýru verði sbr. eftirfar- andi hraðskák: St. Louis 2015; 8. skák Nigel Short – Garrí Kasparov Kóngsindversk vörn 1. d4 Short sem löngum hefur þótt góð- ur kóngspeðsmaður átti ekkert svar við sikileyjarvörn Kaspaovs í þessu einvígi. Hann leitar því á náðir drottningarpeðs-byrjunar – ekkert dugar. 1. … Rf6 2. Rf3 g6 3. Bg5 Bg7 4. Rbd2 h6 5. Bh4 d6 6. c3 g5 7. Bg3 Rh5 8. e3 Rd7 9. Bd3 e6 10. O-O De7 11. a4 f5 12. Re1 Rdf6 13. f4 Rxg3 14. hxg3 O-O 15. e4 c5!? Rökrétt. Svartur ræðst til atlögu við miðborðið en leikurinn ber einnig með sér lúmska gildru. 16. dxc5 Short hefði sennilega átt að leika 16. exf5, 16. Rc2 er lakara vegna 16. … c4! Nú hrifsar Kasparov tíl sín frumkvæðið. 16. … d5! 17. exf5 Dxc5+ 18. Kh1 exf5 19. Rb3 De3 20. Df3 Valdar g3-peðið og býður drottn- ingar-uppskipti. 20. … De8! Finnur h5-reitinn, eftir að ridd- arinn kemst til g4 verður erfitt að verja kóngsstöðuna. 21. Rc2 Rg4 22. Kg1 Dh5 23. Hfe1 Bd7! Virkjar báða hrókana – hótunin er 24. … Hae8. 24. Dxd5+ Kh8 25. Dxd7 Dh2+ 26. Kf1 Had8 27. Dxb7 Dxg3 28. He2 Hxd3 29. Rc5 Dxf4+ 30. Ke1 Dg3+ Það er erfitt að finna leik sem ekki vinnur en hér kemur þó einn, 30. … Hxc3?? 31. Dxg7+! Kxg7 32. Re6+ ásamt 33. Rxf4 og hvítur stendur til vinnings. 31. Kf1 Dh4 32. g3 Hxg3 33. Re6 Hg8 34. Rxg7 Rh2+ 35. Ke1 Rf3+ 36. Kf2 Hh3 37. Ke3 Df4 38. Kd3 Re5 mát! Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Yfirburðir Short (t.v.) hafði ekkert í Kasparov að gera. Kasparov hefur engu gleymt – vann Short, 8½ : 1½ Í makaskiptum fyrir: 1. Lækjarmelur 12, Esjumelum sem er fullbúið 131 fm. Auk möguleika á 70 fm millilofti. Verð 28,5 millj 2. Sem ný Kawasaki Vulcan 2000 árg 2007, Yamaha Faiser 600 árg. 2007 og Chevrolet Corvette árg ‚94 3. Umsamin peningamilligjöf Jón Egilsson hrl, sími 568 3737, 896 3677 Stórt einbýlishús óskast á 50-60 milljónir HJALPRA:DISHERINN A fSLANDI 120 ARA DAGSKRA AFM.IELISVIKUNNAR oa deildarstj6rinn Gunnar Eide asamt Rut og Peter Rannva Olsen sja um t6nlistina asamt heimamonnum. l>ar msj6n Rut og Peter Baronowsky dir yfirskriftinni Supa-Sapa-Hjalprreoi i 120 ar. Leioin afram on prestur i Digraneskirkju, Vilborg Oddsd6ttir felagsraogjafi nad6ttir fyrrum felagsmalastj6ri i Reykjanesbre og It. Peter/ ur Ingimarsson og lofgjoroarsveit Hersins f Mj6dd asamt og Davio. a Vfnlandsleio til kl. 19. Supa i booi fra kl. 16. ,. skarsd6ttir syngur. Sigurour Ingimarsson leioir t6nlist yri. Rreoumaour Peter Baronowsky. talanum ogMiriam 6skarsd6ttir leikur og syngur iga velkomin a einn eoafieiri vioburoi SUPA sAPA HJALPlvEDI Ég bara get ekki orða bundist þegar úrelt og afar ómanneskjuleg lög Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN) eru annars vegar. Stöðugt berast fréttir af deilum vegna ábyrgðarmanna lánþega LÍN, ábyrgðir þeirra ná út yfir gröf og dauða eins og margoft hefur komið fram. Annar hópur öllu hljóðlátari, sem verið er að beita mikilli ósanngirni, er lánþegar LÍN sem verða fyrir því óláni að fara í gjaldþrot. Núverandi lög sem LÍN starfar eftir eru afdrátt- arlaus þegar lánþegar þeirra verða gjaldþrota. Um leið og skiptabúi hef- ur verið lokað hefur LÍN um- svifalaust samband við ábyrgð- armann/menn viðkomandi lánþega og ábyrgðarmönnum boðið að greiða upp skuldina eða gefið verði út skuldabréf að hámarki til 10 ára hjá Landsbankanum með tilheyrandi lántökukostnaði og okurvöxtum. Tökum sem dæmi 10 milljóna króna námslán, sem er ekki óeðlileg upp- hæð fyrir námsmenn sem klárað hafa meistaragráðu á sínu sviði og því láni er breytt í skuldabréf. Miðað við hóf- lega 3% verðbólgu og 5,75% ársvexti þarf ábyrgðarmaður að greiða 110.000 kr. fyrsta mánuðinn en 147.000 kr. síðasta mánuðinn 10 árum seinna! Þetta eru upphæðir sem mörgum er ofviða að standa undir of- an á allt annað. Það fer enginn í gjaldþrot ótil- neyddur, það er þrautaleið sem er ekki farin fyrr en öll sund eru lokuð fjárhagslega og veldur viðkomandi miklum sársauka. Þegar lán var tekið upphaflega var miðað við ákveðnar forsendur, lántakandi ætlaði sér al- gerlega að standa í skilum og ábyrgð- armaður ætlaði að standa við sína ábyrgð samkvæmt þeim forsendum sem voru til staðar. Það þarf ekki að fjölyrða um þann forsendubrest sem varð við hrun bankakerfisins. Sem betur fer hafa margir fengið smá leiðréttingu en hópurinn sem hér um ræðir stendur ekki bara uppi slyppur og snauður heldur eru settar auknar álögur á ábyrgðarmenn frá því sem skrifað var undir í upphaf- legum lánssamningi með því að setja lánið í innheimtu hjá banka á stórauknum vöxtum og lántöku- kostnaði. Vissulega er boðið upp á að borga lánið upp en fæstir hafa efni á því og neyðast þá til að taka þeim afarkost- um að skrifa undir skuldabréf hjá banka. Er ekki rétt að sýna nú þá sanngirni að breyta lögum þannig að lán- þegar sem fara í gegnum umrætt tveggja ára gjaldþrotaferli eigi kost á því að halda áfram að greiða af náms- lánunum þar sem frá var horfið að gjaldþrotaferli loknu? Vextirnir greiðist áfram á þessu tveggja ára tímabili og því verði ríkið ekki af neinum fjármunum við lagabreyting- arnar. Eða í það minnsta að ábyrgð- armenn fái að greiða af láninu á sömu kjörum og það var tekið á en ekki mun hærri bankavöxtum. Þetta er sérlega ósangjarnt í ljósi þess að árið 2009 voru sett lög um að ekki þurfi ábyrgðarmenn hjá lántak- endum námslána. Það er dálítið hráslagalegt að sú bankastofnun sem í dag er sett í það að rukka fyrir LÍN sé einmitt ein af þeim bankastofnunum sem áttu sinn þátt í að leggja þjóðfélagið á hliðina árið 2008 sem er einmitt rótin að mörgum gjaldþrotamálum enn í dag. Ég vil því varpa þeirri spurningu til menntamálaráðherra hvort hann ætli ekki að beita sér fyrir því að breyta þessum lögum þannig að þeir sem leggja í þá eyðimerkurgöngu sem gjaldþrot er, eygi von um að bjartari tímar gangi í garð? Ef ekkert verður að gert tel ég að grimmd nú- verandi fyrirkomlags muni eiga sinn þátt í að ýta enn frekar undir land- flótta menntafólks, sem er afleitt fyr- ir þjóðina. Eftir Elvar Reykjalín Elvar Reykjalín »Ef ekkert verður að gert tel ég að grimmd núverandi fyr- irkomlags muni eiga sinn þátt í að ýta enn frekar undir landflótta menntafólks. Höfundur er framkvæmdastjóri. LÍN, sýnið sanngirni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.