Morgunblaðið - 02.05.2015, Blaðsíða 32
32 MESSURá morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2015
-Viðhaldsfríir
gluggar
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Viðhaldsfríir sólskálar og svalalokanir
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 30 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
AÐVENTKIRKJAN í Reykjavík | Ingólfs-
stræti 19, Reykjavík. Biblíufræðsla laugardag
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12. Ræðumaður: Eric
Guðmundsson. Barna- og unglingastarf. Sam-
eiginlegur málsverður eftir samkomu.
AÐVENTKIRKJAN í Vestmannaeyjum |
Brekastíg 17, Vestmannaeyjum. Guðsþjónusta
laugardag kl. 12. Bein útsending frá
Reykjavíkursöfnuði.
AÐVENTSÖFNUÐURINN á Akureyri | Eiðs-
vallagötu 14, Gamli Lundur. Biblíurannsókn
laugardag kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12. Barna-
starf.
AÐVENTSÖFNUÐURINN á Suðurnesjum |
Blikabraut 2, Keflavík. Biblíufræðsla laugardag
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12. Ræðumaður: Ein-
ar Valgeir Arason.
AÐVENTSÖFNUÐURINN í Árnesi | Eyravegi
67, Selfossi. Biblíufræðsla laugardag kl. 10.
Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður: Jens Dani-
elsen. Barna- og unglingastarf.
AÐVENTSÖFNUÐURINN í Hafnarfirði |
Hólshrauni 3, Hafnarfirði. Guðsþjónusta laug-
ardag kl. 11. Ræðumaður: Stefán Rafn Stef-
ánsson. Biblíufræðsla kl. 11.50. Barna- og
unglingastarf. Umræðuhópur á ensku. Súpa
og brauð eftir samkomu.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11
með þátttöku íþróttafélagsins Fylkis. Prestur
Þór Hauksson ásamt Ingunni Björk Jónsdóttur
djákna. Söngur, biblíusögur og brúðuleikhús.
Fimleikadeild Fylkis verður með fimleikasýn-
ingu. Um undirleik sér Kjartan Jósefsson Ogni-
bene. Kökusala á vegum fimleikadeildarinnar.
Boðið upp á pylsur og ávaxtasafa að lokinni
guðsþjónustu.
ÁSKIRKJA | Útvarpsmessa kl. 11. Séra Sig-
urður Jónsson sóknarprestur prédikar og þjón-
ar fyrir altari ásamt Lindu Jóhannsdóttur
djákna. Kammerkór Áskirkju syngur. Organisti
Magnús Ragnarsson. Kaffisopi á könnunni að
messu lokinni. Guðsþjónusta á hjúkrunarheim-
ilinu Skjóli kl. 13. Séra Sigurður Jónsson sókn-
arprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Al-
mennur söngur. Organisti Magnús Ragnars-
son. Aðstoð vina og vandamanna vel þegin.
BESSASTAÐAKIRKJA | Vorhátíð Bessa-
staðasóknar. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.
Lærisveinar hans leiða lofgjörðina undir stjórn
Bjarts Loga organista, Agla Bríet Einarsdóttir
syngur nokkur lög, sr. Hans Guðberg og Mar-
grét djákni leiða stundina. Í Brekkuskógum 1
verða svo grillaðar pylsur, hoppukastali verður
á svæðinu, andlitsmálun og fleira.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Safnaðarferð Breið-
holtssafnaðar. Lagt af stað frá Breiðholtskirkju
kl. 10, áætluð heimkoma um kl. 16.30. Kl. 14
verður hinn árlegi kirkjudagur Fáskrúðsfirðinga-
félagsins og sumri fagnað. Sr. Jóna Kristín Þor-
valdsdóttir messar og er dagurinn helgaður
100 ára afmæli Fáskrúðsfjarðarkirkju.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11. Tón-
list og fræðsla. Jónas Þórir við hljóðfærið. Bára
Elíasdóttir og Daníel Gautason leiða sam-
veruna ásamt sóknarpresti. Foreldrar og afar
og ömmur hvött til þátttöku. Guðsþjónusta kl.
14. Félagar úr Kór Bústaðakirkju leiða söng-
inn. Organisti Jónas Þórir. Messuþjónar að-
stoða. Heitt á könnunni eftir messu. Prestur
Pálmi Matthíasson.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur
Gunnar Sigurjónsson. Organisti Peter Máté.
Félagar úr Samkór Kópavogs sjá um söng.
Súpa í safnaðarsal að athöfn lokinni.
Dómkirkja Krists konungs, Landakoti |
Messa kl. 10.30, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á
ensku. Virka daga kl. 18, og má., mi. og fö. kl.
8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 er sunnu-
dagsmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11, séra Hjálmar
Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Dómkór-
inn syngur undir stjórn Kára Þormar dómorg-
anista.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur Svavar Stefánsson. Kór kirkjunnar leið-
ir sönginn. Organisti Guðný Einarsdóttir. Með-
hjálpari Kristín Ingólfsdóttir. Heitt á könnunni
eftir messu.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Fjölskylduhátíð í
Kaldárseli kl. 11. Létt og skemmtilega dagskrá
og hljómsveitin heldur uppi fjörinu. Börnin fá
grillaðar pylsur og hinir eldri setjast að veislu-
borði í sumarbúðunum þar sem tekið er við
frjálsum framlögum fyrir veitingarnar.
FRÍKIRKJAN Kefas | Vorhátíð sunnudaga-
skólans kl. 11. Hundurinn Helgi lítur við, söng-
ur, grillaðar pylsur og leikir.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta kl.
14. Hjörtur Magni Jóhannsson safn-
aðarprestur predikar og þjónar fyrir altari.
Sönghópurinn við Tjörnina leiðir sönginn
ásamt Gunnari Gunnarssyni organista.
GLERÁRKIRKJA | Vorhátíð kirkjunnar og fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Sunna Kristrún
Gunnlaugsdóttir djákni og sr. Jón Ómar Gunn-
arsson þjóna. Barna- og æskulýðskór Glerár-
kirkju syngur undir stjórn Margrétar Árnadóttur
og Rósu Tómasdóttur. Kvöldmessa kl. 20.30.
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, pred-
ikar. Prestar og djákni safnaðarins þjóna við
messuna. Kaffi og samfélag eftir messuna.
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra
Guðrún Karls Helgudóttir prédikar og þjónar fyr-
ir altari. Kór kirkjunnar syngur. Organisti: Há-
kon Leifsson. Sunnudagaskóli kl. 11. Umsjón
hefur Þóra Björg Sigurðardóttir. Undirleikari:
Stefán Birkisson.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10 og
bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11. í
umsjá Lellu o.fl. Messa kl. 11. Altarisganga.
Samskot til ABC-barnahjálpar. Messuhópur
þjónar. Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Organ-
isti Ásta Haraldsdóttir. Prestur Ólafur Jóhanns-
son. Molasopi eftir messu. Hversdagsmessa
með léttu sniði á fimmtudag kl. 18.10-18.50.
Þorvaldur Halldórsson sér um tónlist.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili |
Guðsþjónusta klukkan 14 í hátíðasal. Séra
Sveinbjörn Bjarnason þjónar. Grundarkórinn
leiðir söng undir stjórn Helgu Þórdísar Guð-
mundsdóttur organista.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Prestur Karl V.
Matthíasson. Barnakór Guðríðarkirkju syngur
undir stjórn Ásbjargar Jónsdóttur. Kirkjuvörður
Lovísa Guðmundsdóttir. Aðalsafnaðarfundur
Grafarholtssóknar verður strax eftir messu kl.
12.15.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt hópi messuþjóna. Fé-
lagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða
messusöng. Organisti er Hörður Áskelsson.
Gestakór frá Southwark-dómkirkju í London í
Bretlandi syngur í messunni. Umsjón barna-
starfs Inga Harðardóttir.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa og barnastarf kl.
11. Prestur María Ágústsdóttir. Organisti Kári
Allansson. Félagar í Kór Háteigskirkju syngja.
Hátúnsheimilið | Guðsþjónusta kl. 13 í Betri
stofunni, Hátúni 12. Kristín Þórunn Tóm-
asdóttir prédikar og þjónar ásamt Guðrúnu Kr.
Þórsdóttur djákna og Kristni Guðmundssyni
meðhjálpara. Kjartan Sigurjónsson organisti
leiðir söng.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar, organisti
Jón Ólafur Sigurðsson. Félagar úr kór Hjalla-
kirkju leiða söng og safnaðarsvör. Allir sálmar
úr nýju sálmabókinni. Léttur hádegisverður í
safnaðarheimili að guðsþjónustu lokinni. Kl.
13 verður síðasti sunnudagaskóli vetrarins.
HREPPHÓLAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Sam-
koma kl. 11. Helgi Guðnason prédikar um fyr-
irheit Föðurins um fyllingu Heilags anda. Kaffi
og samfélag eftir samkomu. Samkoma á
ensku hjá Alþjóðakirkjunni kl. 14. English
speaking service. Útsending á www.filadelfia-
.is
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma kl.
13.30 með lofgjörð og fyrirbænum. Ólafur H.
Knútsson predikar. Einnig verður heilög kvöld-
máltíð. Barnastarf á sama tíma. Kaffi á eftir.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Síðasti sunnudaga-
skóli vetrarins í Kirkjuvogskirkju í Höfnum kl.
11. Nesti snætt við kirkjuvegg ef veður leyfir.
Kosning sóknarprests fer fram í Oddfellowhús-
inu, Grófinni 6, föstudaginn 8. maí kl. 13-20.
Utankjörstaðakosning fer fram í Grófinni 2.
maí kl. 13-16 og 5. maí kl. 15-18 og á Bisk-
upsstofu virka daga. Sjá kirkjan.is.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Nemendur Gít-
arstofu Steingríms sjá um tónlist og stúlkur úr
Gosukórnum syngja undir stjórn Lindu Cardew.
Stúlkurnar eru fyrrverandi nemendur Þórunnar
Björnsdóttur kórstjóra.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Sunnu-
dagaskóli á sama tíma. Sr. Guðbjörg Jóhann-
esdóttir predikar og þjónar fyrir altari ásamt
messuþjónum og kirkjuverði. Gradualekór
Langholtskirkju syngur. Organisti er Jón Stef-
ánsson. Jóhanna Gísladóttir æskulýðsfulltrúi
og Snævar Andrésson guðfræðinemi sjá um
fjörið í sunnudagaskólanum ásamt Esju. Kaffi í
safnaðarheimilinu að messu lokinni.
LAUGARDÆLAKIRKJA í Flóa | Ferming kl.
13. Fermd verður Elísabeth Alda Eiríksdóttir,
Háengi 14, Selfossi. Organisti Ingi Heiðmar
Jónsson og prestur Kristinn Ágúst Friðfinns-
son.
LAUGARNESKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón-
usta og sumargleði barnastarfsins kl. 11. Sr.
Kristín Þórunn Tómasdóttir þjónar og prédikar,
Kjartan Sigurjónsson leiðir tónlist og söng.
Börn í æskulýðsstarfi Laugarneskirkju flytja
söngleikinn Biblían, Guð og bara allt undir
stjórn Hjalta Jóns Sverrissonar og Hrafnkels
Más Einarssonar. Kökubasar í umsjón kirkju-
kórsins eftir samveruna.
LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta í Lága-
fellskirkju kl. 11. Kirkjukór Lágafellssóknar
syngur. Organisti er Arnhildur Valgarðsdóttir.
Sr. Ragnheiður Jónsdóttir.
Maríukirkja við Raufarsel | Messutímar:
Alla virka daga kl. 18.30. Laugardaga (sunnu-
dagsmessa) kl. 18.30 á ensku. Sunnudaga kl.
11. Barnamessur út maí kl. 12.15.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Háskólakórinn
syngur undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar.
Kaffi á Kirkjutorgi að messu lokinni. Barna-
starfið er í höndum sr. Sigurvins, Katrínar og
Ara. Prestur er Skúli S. Ólafsson.
REYNIVALLAKIRKJA í Kjós | Ferming-
armessa kl. 14. Fermdur verður Hrafnkell Har-
aldsson, Lækjarbraut 2, Kjós. Gunnar Krist-
jánsson sóknarprestur annast athöfnina,
kirkjukór Reynivallakirkju syngur undir stjórn
Páls Helgasonar organista.
SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 14 í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60, 3.
hæð. ,,Blessun örlætis.“ Ræðumaður Skúli
Svavarsson. Túlkað á ensku. Sunnudagaskóli
fyrir börnin.
SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Uppskeru-
hátíð kóranna. Stúlkur úr unglingakór sem
hætta vegna aldurs verða heiðraðar. Barna- og
unglingakórinn syngur undir stjórn Edit Mólnar.
Kirkjukórinn syngur undir stjórn Jörg Sonder-
mann, organista. Prestur Þorvaldur Karl Helga-
son. Kaffi eftir messu og súpa og brauð. Kvöld-
messa kl. 20. Þóra Gylfadóttir sópran og Egill
Árni Pálsson tenór syngja við undirleik Jóns
Bjarnasonar organista. Prestur Þorvaldur Karl
Helgason.
SELJAKIRKJA | Kirkjureið. Safnast verður
saman í hesthúsahverfum á höfuðborg-
arsvæðinu og riðið saman til Seljakirkju, þar
sem guðsþjónusta hefst kl. 14. Valgeir Ást-
ráðsson, fyrrverandi sóknarprestur, prédikar.
Brokk-kórinn syngur undir stjórn Magnúsar
Kjartanssonar og á orgelið leikur Tómas Guðni
Eggertsson. Að lokinni guðsþjónustu verður
boðið upp á veitingar í safnaðarheimili kirkj-
unnar. Á planinu verður traust gerði með
gæslu meðan á guðsþjónustunni stendur.
SELTJARNARNESKIRKJA | Messa kl. 11.
Bjarni Þór Bjarnason sóknarprestur þjónar.
Glúmur Gylfason er organisti. Félagar úr
Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiða almenn-
an safnaðarsöng. Kaffiveitingar. Aðalfundur
safnaðarins hefst kl. 12.30. Högni Óskarsson
geðlæknir flytur erindi á fundinum sem heitir
Trú, hugkyrrð og heilsa. Venjuleg aðalfundar-
störf. Kaffiveitingar.
SEYÐISFJARÐARKIRKJA | Vorhátíð barna-
starfsins. Umsjón hafa sr. Sigríður Rún
Tryggvadóttir, Arna Magnúsdóttir og leiðtogar
úr sunnudagaskólanum. Meðhjálpari er Jó-
hann Grétar Einarsson. Veitingar í safnaðar-
heimili eftir guðsþjónustu.
STÓRA Núpskirkja | Guðsþjónusta kl. 14.
VÍDALÍNSKIRKJA | Leikmannamessa kl. 11.
Sigurbjörn Þorkelsson predikar og þjónar
ásamt messuþjónum. Kór Vídalínskirkju syng-
ur undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar. Sunnu-
dagaskóli.
Orð dagsins: Sending
heilags anda.
(Jóh. 16)
Morgunblaðið/Jim Smart
Neskirkja
Hafliði Baldursson
og Árni Guðbjörnsson unnu
Súgfirðingaskálina
Sjöunda og síðasta lota í Súgfirð-
ingaskálinni, tvímenningsmóti Súg-
firðingafélagsins, lauk í byrjun hörpu
á nöpru sumarkvöldi. Hafliði Bald-
ursson og Árni Guðbjörnsson voru
með mjög vænlega stöðu og héldu sjó
í norðannepju og fögnuðu sumrinu
með öruggum sigri. Félagarnir Karl
og Ólafur höfnuðu í öðru sæti og
skiptu við Flemming og Kristján um
bronssætið en höfðu endað þar tvisv-
ar í röð árin áður. Naumari gat mun-
urinn ekki verið.
Lokastaðan þegar slakasta kvöldi
sleppti, meðalskor 936 stig.
Hafliði Baldursson - Árni Guðbjörnsson 1076
Karl Bjarnason - Ólafur Ólafsson 1050
Flemming Jessen - Kristján Björnss. 1049
Kristján Pálss. - Ólafur Karvel Pálss. 1010
Rafn Haraldsson - Jón Sveinsson 1010
Úrslit í 7. lotu, meðalskor 156 stig.
Eðvarð Sturluson - Mortan Hólm 185
Karl Bjarnason - Ólafur Ólafsson 180
Flemming Jessen - Kristján Björnss. 176
Þorsteinn Þorsteinss. - Jón Sveinsson 173
Sigurður G. Ólafss. - Ásgeir Ingvi Jónss. 170
Góð niðurstaða fyrir Eðvarð og
Mortan en Mortan skipulagði frí sitt
erlendis í kringum mótið og var ný-
lentur.
Kristján Pálsson afhenti skálina í
mótslok og þremur efstu pörum
verðlaun til minningar um góðan ár-
angur í skemmtilegu átthagamóti.
Alls spiluðu 16 pör í mótinu. Spila-
stjóri var Sigurpáll Ingibergsson.
Sigurvegarar frá upphafi, en þetta
er fjórtánda árið sem spilað er um
Súgfirðingaskálina:
2015 Hafliði Baldurss. - Árni Guðbjörnsson
2014 Þorsteinn Þorsteinss. - Rafn Haraldss.
2013 Kristján H. Björnss. - Flemming Jes-
sen
2012 Hlynur Antonsson - Auðunn Guðmss.
2011 Þorsteinn Þorsteinss. – Rafn Haraldss.
2010 Einar Ólafss. - Þorsteinn Þorsteinss.
2009 Gróa Guðnad. - Guðrún K. Jóhannesd.
2008 Arnar Barðason - Hlynur Antonsson
2007 Arnar Barðason - Hlynur Antonsson
2006 Karl Bjarnason - Valdimar Ólafsson
2005 Ásgeir Sölvason - Guðni Ólafsson
2004 Gróa Guðnad. - Guðrún K. Jóhannesd.
2003 Guðbj. Björnss. - Steinþ. Benediktss.
2002 Guðbj. Björnss. - Steinþ. Benediktss.
Súgfirðingafélagið vill þakka öll-
um bridsspilurum fyrir þátttökuna
og góðan félagsskap. Brids gerir lífið
skemmtilegra.
Nýtt mót með nýjum áskorunum
hefst í lok september.
Vortvímenningur
Bridsfélags Rvíkur
Staðan eftir þriðju umferð af fjór-
um í vortvímenningi BR (prósent-
skor).
Guðm. Skúlason - Stefán Stefánss. 56,7
Björn Eysteinss. - Guðm. Hermannss. 56,3
Gunnl. Karlsson og Kjartan Ingvarss. 55,2
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is