Morgunblaðið - 02.05.2015, Page 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2015
Stærðir 8“-12“
Verð kr. 5.230–
8.580 kr.
Klæðskeraskæri
NÝ SENDING AF
SPÆNSKU EÐALSTÁLI
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | brynja@brynja.is
Opið
virka
daga
frá 9-
18
lau fr
á 10-1
6
Þynningarskæri
kr. 6.295
kr. 5.170
Hárskæri
16 cm
5.350 kr.
Gaffall
3.115 kr.
3.290 kr.
25 cm
4.860 kr.
Bróderskæri
Kr. 2.565
20 cm
20 cm
4.110 kr.
Heiða Björk Norðfjörð er þjálfari og hóptímakennari hjá Gymheilsu. Hún er einnig myndlistarmenntuð og hefur samiðnokkrar barnabækur og myndskreytt.
„Heilsa og myndlist fara vel saman. Hjá Gym heilsu, sem er mín
daglega vinna, er ég með hóptíma sem kallast morgunpuð, hádeg-
ispuð og síðan morgunhressingu sem er fyrir 60 ára og eldri.
Þá er spiluð gömul tónlist og við tvistum í upphitun, það er frá-
bært að byrja vikuna á smá puði og gömlum klassískum slögurum.
Í lok ágúst munu koma út hjá bókaforlaginu Skruddu fimm bækur
sem eru fyrir yngstu kynslóðina eftir mig með mínum myndskreyt-
ingum, fjórar sem eru í einni bókaseríu og svo ein sem er stök. Ég
samdi sögur fyrir yngri systkini mín þegar þau voru lítil og það sit-
ur enn í mér að semja sögur. Ég hef mest gaman af því að gera
myndir fyrir börn, geri mest vatnslitamyndir fyrir yngstu kynslóð-
ina, á líka eina skottu sem er eins árs. Yngstu börnin eru hrifnust af
einföldum, skemmtilegum og litríkum myndum með fígúrum.“
Heiða ætlar að njóta afmælisdagsins í Brekkukoti í Kjósinni með
nánustu ættingjum. Unnusti hennar er Andrew Shaw sem er mennt-
aður heimspekingur og starfar á eigin vegum. Dóttir þeirra er Eva
María. Foreldrar Heiðu eru Jóhannes Norðfjörð og Sólrún Lilja
Ragnarsdóttir. Systkini eru Ragnar, Íris og Magnús Freyr.
Heiða Björk Norðfjörð er fertug í dag
Myndlistarmaðurinn Heiða við nokkur verka sinna.
Heilsa og myndlist
fara vel saman
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Reykjavík Kristófer Máni fædd-
ist 10. maí 2014 kl. 00.46. Hann
vó 4.480 g og var 54 cm. Móðir
hans heitir Bára Líf.
Nýr borgari
A
tli fæddist í Reykjavík
2.5. 1985 og átti heima
á Neshaga 12 til
tveggja ára aldurs, síð-
an í Rochester í New
York-fylki í tvö ár meðan foreldrar
hans voru við nám, þá aftur í sömu
íbúðinni í Vesturbænum en í des-
ember 1990 flutti fjölskyldan í
Fossvoginn þar sem foreldrar hans
búa enn þó Atli hafi hleypt heim-
draganum 2005 og búið í mið-
bænum að mestu leyti síðan. Hann
var í Fossvogsskóla og Réttarholts-
skóla, lauk stúdentsprófi frá MH
vorið 2004, lauk BA-gráðu í al-
mennri bókmenntafræði frá HÍ vor-
ið 2007 og meistaraprófi í enskum
bókmenntum frá Concordia Uni-
versity í Montréal í Kanada haustið
2011.
Atli hefur unnið við skipulagn-
ingu kvikmyndahátíðarinnar RIFF
á hverju ári frá árinu 2005 að
tveimur árum undanskildum. Hann
var ritstjóri Stúdentablaðsins vet-
urinn 2007-2008, var kynningar-
stjóri Forlagsins næsta vetur og er
nú hugmyndasmiður hjá auglýs-
ingastofunni Jónsson & Le’macks.
Auk þess hefur hann verið tónlist-
argagnrýnandi og greinarhöfundur
fyrir Morgunblaðið, Reykjavík
Grapevine og DV: „Þessi blaða-
mennska hefur hentað mér vel því
ég er greiningarglaður og hef gam-
an af því að velta fyrir mér merk-
ingu hlutanna í stóru samhengi. Ég
Atli Bollason þúsundþjalasmiður 30 ára
Í Perú Atli og Ásrún við ægifagurt lón í grennd við Huaraz í Perú. Myndin var tekin milli jóla og áramóta árið 2013.
Rýnir í, semur, skrifar
og spilar lög og texta
Brosmild systkini Sverrir, Einar, Atli og Brynhildur. Myndin var tekin af
þeim síðasta sumar er faðir þeirra hélt upp á sextugsafmælið sitt.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.