Morgunblaðið - 02.05.2015, Blaðsíða 47
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Macho Man Saving History (Salurinn)
Sun 3/5 kl. 20:00
Eldhúsið (Salurinn)
Lau 23/5 kl. 14:00
Síðbúin rannsókn (Aðalsalur)
Þri 12/5 kl. 20:00 Fös 15/5 kl. 20:00
Both Sitting Duet og Body Not Fit For Purpose (Salurinn)
Lau 30/5 kl. 20:00
The Border (Salurinn)
Mán 18/5 kl. 20:00 Þri 19/5 kl. 20:00
Endatafl (Salurinn)
Lau 2/5 kl. 20:00 Fim 14/5 kl. 20:00 Sun 24/5 kl. 20:00
Fim 7/5 kl. 20:00 Lau 16/5 kl. 20:00 Fim 28/5 kl. 20:00
Fös 8/5 kl. 20:00 Sun 17/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 20:00
Hávamál (Salurinn)
Mið 27/5 kl. 20:00 Sun 31/5 kl. 16:00 Sun 31/5 kl. 20:00
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2015
Málþing um þýðingarýni verður
haldið í dag kl. 10-16 í Lögbergi,
stofu 101, í Háskóla Íslands.
Meistaranemar í þýðingafræði
munu þar rýna í hvernig aðrir þýð-
endur þýða bækur sínar og kennir
þar margra og forvitnilegra grasa,
eins og segir í tilkynningu. „Fátt
segir jafn mikið um ríkjandi bók-
menntasmekk og hugmyndafræði
og hvernig þýðendur þýða á hverj-
um tíma. Og það er einn stærsti
misskilningur sögunnar að þeir fari
alltaf eins að og þýði sama „frum-
textann“ með
sama hætti. Við
fáum að heyra
athuganir á jafn
ólíkum bókum og
Dagbók prins-
essu og ljóðum
Yahya Hassans;
kynnumst nýjum
og gömlum þýð-
ingum á Önnu í
Grænuhlíð,
Harry Potter fer undir smásjána og
ensk þýðing á Draumalandi Andra
Snæs einnig,“ segir m.a. um mál-
þingið. Að afloknu málþinginu fer
fram kynning á nýrri þýðingu á
verkum skáldsins Guttorms J. Gutt-
ormssonar, eins fremsta skálds á
Nýja-Íslandi í Kanada.
Málþing um
þýðingarýni
Danska ljóðskáldið
Yahya Hassan
því hver það er sem horfir. Þeir sem
vilja vita meira geta skoðað fallega
hannaða og aðgengilega sýning-
arskrána eða fengið vefleiðsögn í
snjallsíma eða á heimasíðu safnsins.
Fræðsluþátturinn er sérlega vel unn-
inn og munu sérfræðingar á því sviði
– sem og á öðrum sviðum – hafa tekið
þátt í mótun sýningarinnar frá
grunni. Víða leynast spennandi
fræðslu- og þátttökuhorn fyrir
yngstu kynslóðina, hægt er að
glugga í bækur um tengt efni (og sjá
hvað hefur verið útgefið af rannsókn-
artengdu efni í lestrarsalnum) og
horfa á sjónvarpsþátt um íslenska
listasögu. Um leið má sjá þá sömu
sögu, eða réttara sagt sögur, bók-
staflega þenjast út fyrir augum sér
þegar sjóntaugarnar þreifa á þeim
myndheimum sem upp ljúkast í
þessu völundarhúsi aldanna.
Sjónarhornið „upp“ (á birting-
armyndir trúarefnis og valdhafa),
þar sem m.a. eru til sýnis munir úr
vörslu Þjóðminjasafnins sem tengj-
ast kirkjulist fyrri alda, er gott dæmi
um framsetninguna. Myndheimar
tengjast þar þvert á aldir, aðferðir og
efni, en um leið á merking verkanna
greiða leið að áhorfandanum; skyld-
leikinn milli myndverks Muggs, Sjö-
undi dagur í Paradís, og kápu Ágætis
byrjunar hljómsveitarinnar Sigur
Rósar verður ljós, ekki síst í sam-
hengi þeirrar allsherjar sköp-
unarsögu sem sýningin miðlar. Póli-
tískt inntak í verkum Rósku og
Hildar Hákonardóttur öðlast visst
tímaleysi (án þess að glata róttækni)
innan um eldri verkin og máluð lág-
mynd Huldu Hákon áréttar þann
þráð alþýðlegrar tjáningar og hand-
verks sem liggur um lista- og menn-
ingarsöguna allt til samtímans.
Söfn í safni
Í þessu samhengi er vert að
árétta að hér á landi hefur um árabil
verið starfrækt merkilegt safn,
Safnasafnið á Svalbarðseyri, sem
ræktar einmitt slíkan þráð og þá
merkingarsköpun sem verður til á
skörunarsvæði ólíkra safna og mis-
munandi tjáningar. Sýningarstefna
sem gengur út á samræðu þvert á
hefðbundnar flokkunar- og frásagn-
arleiðir – í þeim tilgangi að höfða til
breiðari hóps en ella og hvetja hann
til þátttöku í túlkunarferlinu – hefur
raunar í vaxandi mæli sett svip á sýn-
ingarhald hérlendis og má segja að
sýningarnefnd Safnahússins sé því í
takti við tímann. Í Safnahúsinu er
þessari aðferð beitt af alúð, hugvits-
semi, kímni og smitandi leikgleði til
að bregða ljósi á sérstæða sögu lít-
illar þjóðar í norðri í einstöku sam-
spili þekktra og lítt þekktra muna,
„dýrgripa“ og hversdagslegra hluta.
Þannig segja t.d. Maríumyndir (sjón-
arhornið er „upp“) sýningarinnar
sögur af þjóðsögum, náttúrufyr-
irbærum, myndrænu tungumáli, per-
sónulegri sem opinberri trúariðkun
og tjáningu lærðra og leikra í sam-
stillingu verka úr öllum söfnunum.
Maríulíkneski og Maríumyndir úr
gögnum, handritum og kirkjum fyrri
alda mæta Maríutúlkunum í 20. aldar
myndverkum listmálara og portrett-
mynd Jóns Kaldals, og í formi frí-
merkja af maríuerlum, þurkaðs mar-
íustakks, ljósmyndar af maríutásum
(skýjamyndunum) og uppstoppaðs
hvítfálka með bráð sína, rjúpuna – en
þjóðsagan segir að heilög María hafi
einmitt verið áhrifavaldur í sambandi
þessari fugla. Hnykkt er á hinni lif-
andi hrynjandi milli minna og stefja,
forma og mynstra með sjónarhorni
sem heitir einfaldlega „aftur og aft-
ur“. Gersemar úr safni Árnastofn-
unar og Landsbókasafnsins sjást þar
við hlið listilegs útsaums, útskorinna
rúmfjala og framúrstefnulegrar sam-
tímamyndlistar. Og við þetta má
bæta að á sérsýningu á 3. hæð taka
handritin á sig óvæntar myndir í
meðförum vídeólistamannsins Steinu
Vasulka.
Sjóngleði
Eins og nærri má geta er ekki
einfalt mál að sýna safngripi með
ólíkar „þarfir“, t.d. hvað varðar
birtu-, raka- eða hitastig. Þetta kallar
á talsverðan fjölda sýningarskápa og
sýningarborða. Hönnun þeirra er
einföld og stílhrein; ómálaður kross-
viður myndar hlýlegan og „lifandi“
bakgrunn og skáparnir mynda lát-
lausa umgjörð í fagurfræðilegu sam-
tali sýningargripanna sín á milli og
við sjálft húsið. Myndheimarnir
magnast þannig hver af öðrum og í
hinni sterku sjónrænu og rýmislegu
reynslu sýningargesta. Slík reynsla
teygir sig í króka og kima hússins og
alla leið upp á pall á 4. hæð þar sem
opnast sýn á Esjuna, fyrirmynd lista-
manna í stórskemmtilegri „mál-
verkasýningu“ sem undirstrikar ekki
aðeins tengsl menningar og lands,
heldur það hvernig tíðarandinn mót-
ar túlkun á umheiminum. Safnahúsið
er góður staður til að opna skilning-
arvitin upp á gátt og hugsa um hið
stóra samhengi hluta en líka til að
gleyma sér í grúski og óvæntum upp-
götvunum – ef til vill með kjörgrip
sýningarinnar að leiðarljósi: upp-
stoppaðan og útdauðan Geirfuglinn
og steingert egg hans. Hann er tákn-
mynd þeirrar fortíðar sem söfnin
leitast við að ná á tangarhaldi og
jafnframt þeirra náttúrugæða sem
við megum ekki glata. Jafnframt
minna „Sjónarhorn“ Safnahússins á
þann lærdóm sem draga má af fortíð-
inni og sýna að merkingin getur lifað
og dafnað í núinu.
Ísland Í litlum klefa gefur að líta
umslag plötu Spilverks þjóðanna.
Fléttur Svipuð form, í fjöl frá um
1000 og í verki Þórs Vigfússonar.
Morgunblaðið/Einar Falur
Forvitnilegt Í sal I má m.a. skoða Manntal Árna Magnúsar og Páls Vídalín frá 1703 (á heimsminjaskrá UNESCO),
bókverk eftir Sólveigu Aðalsteinsdóttur og konseptlistaverk eftir Kristján Guðmundsson og Rúrí.
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Sun 3/5 kl. 19:00 Fös 15/5 kl. 19:00 Sun 31/5 kl. 19:00
Þri 5/5 kl. 19:00 Sun 17/5 kl. 19:00 Mið 3/6 kl. 19:00
Mið 6/5 kl. 19:00 Mið 20/5 kl. 19:00 Fim 4/6 kl. 19:00
Fim 7/5 kl. 19:00 Fim 21/5 kl. 19:00 Fös 5/6 kl. 19:00
Fös 8/5 kl. 19:00 Fös 22/5 kl. 19:00 Lau 6/6 kl. 19:00
Lau 9/5 kl. 19:00 Mán 25/5 kl. 13:00 Ath kl
13
Sun 7/6 kl. 19:00
Sun 10/5 kl. 19:00 Mið 27/5 kl. 19:00 Mið 10/6 kl. 19:00
Mið 13/5 kl. 19:00 Fös 29/5 kl. 19:00
Fim 14/5 kl. 19:00 Lau 30/5 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Sun 3/5 kl. 13:00 Sun 10/5 kl. 13:00 Sun 17/5 kl. 13:00
Síðustu sýningar leikársins
Er ekki nóg að elska? (Nýja sviðið)
Sun 3/5 kl. 20:00 17.k Sun 10/5 kl. 20:00 21.k Fim 21/5 kl. 20:00
Mið 6/5 kl. 20:00 aukas. Þri 12/5 kl. 20:00 aukas. Fös 22/5 kl. 20:00
Fim 7/5 kl. 20:00 18.k Mið 13/5 kl. 20:00 22.k. Fim 28/5 kl. 20:00
Fös 8/5 kl. 20:00 19.k Fim 14/5 kl. 20:00 23.k.
Lau 9/5 kl. 20:00 20.k. Fös 15/5 kl. 20:00 aukas.
Nýtt verk eftir Birgi Sigurðsson höfund hins vinsæla leikrits Dagur vonar
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Lau 2/5 kl. 20:00 Lau 16/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 20:00
Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni
Beint í æð (Stóra sviðið)
Lau 2/5 kl. 20:00 Lau 16/5 kl. 20:00
Sýningum fer fækkandi
Peggy Pickit sér andlit guðs (Litla sviðið)
Sun 3/5 kl. 20:00 5.k. Lau 9/5 kl. 20:00 Sun 17/5 kl. 20:00
Fim 7/5 kl. 20:00 6.k. Sun 10/5 kl. 20:00 Fim 21/5 kl. 20:00
Urrandi fersk háðsádeila frá einu umtalaðasta leikskáldi Evrópu
Hystory (Litla sviðið)
Fös 8/5 kl. 20:00 auka. Fös 15/5 kl. 20:00
Fim 14/5 kl. 20:00 Mið 20/5 kl. 20:00 auka.
Nýtt íslenskt verk eftir Kristínu Eiríksdóttur
Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl.
leikhusid.is Segulsvið – ★★★★ „Mikill galdur“ – AV, DV
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
Fjalla - Eyvindur og Halla (Stóra sviðið)
Lau 2/5 kl. 19:30 12.sýn Lau 9/5 kl. 19:30 14.sýn
Sun 3/5 kl. 19:30 13.sýn Lau 16/5 kl. 19:30 15.sýn
Síðustu sýningar.
Segulsvið (Kassinn)
Sun 3/5 kl. 19:30 Lokas.
Hefur hlotið frábærar viðtökur - aðeins ein sýning.
Svartar fjaðrir (Stóra sviðið)
Mið 13/5 kl. 19:30 Frums. Mið 20/5 kl. 19:30 3.sýn Sun 31/5 kl. 19:30 6.sýn
Fös 15/5 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/5 kl. 19:30 5.sýn
Kuggur og leikhúsvélin (Kúlan)
Sun 3/5 kl. 13:30 Sun 10/5 kl. 13:30
Kuggur og félagar geysast nú upp á svið í Þjóðleikhúsinu í fyrsta sinn!
Leitin að Jörundi (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 3/5 kl. 20:00 Sun 10/5 kl. 20:00 Sun 17/5 kl. 20:00
Sápuópera um hundadagakonung