Fréttablaðið - 21.04.2015, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 21.04.2015, Blaðsíða 6
21. apríl 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 6 Ástralía 12. til 29. október Ferðask r i f s to fa Ley f ishaf i Ferðamannastofu Verð á mann í tvíbýli kr 687.000 Upplýsingar í símum 845-1425 / 899-1295 eða á tölvupósti info@iceline.isIceLine Travel Nánari ferðalýsing á www.iceline.is Sydney, Brisbane, Fraser Island, þjóðgarðar o.fl. er meðal þess sem boðið verður upp á í þessari ferð. – G Ó Ð U R Á B R A U Ð – Í S L E N S K U R HEILBRIGÐISMÁL Verkfalls aðgerðir félagsmanna BHM ná til 500 starfsmanna Landspítalans og hafa haft mikil áhrif á starfsemi og þjónustu við skjólstæðinga hans. Biðlistar eftir rannsóknum og aðgerðum lengjast og nú hefur 220 skurðaðgerðum verið frest- að. Einhverjir þeirra sem bíða eftir aðgerðum hafa beðið frá því í læknaverkfallinu og er því upp- safnaður vandi innan heilbrigðis- kerfisins mikill. Engar aðgerðir eru fram- kvæmdar sem krefjast blóð- eða myndgreiningar. Meðferð alvar- legra sjúkdóma er í bið á meðan verkfallsaðgerðir standa yfir. Sem dæmi má nefna að nýgreind- ir sjúklingar með krabbamein fá ekki þjónustu fyrr en verkfalli lýkur nema að meinið sé metið sem bráð veikindi. Forsvarsmenn Landspítalans telja sig hafa fag- legar ástæður fyrir því að veita nýgreindum ekki læknisþjónustu. Þeim sem hafa beðið lengur en þrjá mánuði eftir aðgerðum og meðferð vegna sjúkdóma sinna hefur fjölgað um 60%. Þá er mik- ill fjöldi fólks nú innlagður en kemst ekki til síns heima, þar sem ekki er hægt að útskrifa það. Frá þessu greinir aðstoðarkona Páls Matthías sonar, forstjóra Landspít- alans, Anna Sigrún Baldursdóttir. Hún vill minna fólk á sem telur sig þurfa á bráðaþjónustu að halda að mæta á spítalann. „Eitthvað hefur borið á því að fólk mæti ekki þótt það telji sig þurfa á þjónustu að halda. En fólk sem þarf á bráða- þjónustu að halda, það fær hana,“ minnir hún á. Hjúkrunarráð lýsir yfir veru- legum áhyggjum vegna verkfalls félagsmanna BHM og segir í yfir- lýsingu frá ráðinu að verkfalls- aðgerðir hafi þegar valdið auknu álagi á heilbrigðisstarfsmenn sem geti ógnað öryggi sjúklinga. Guð- ríður Kristín Þórðardóttir er for- maður ráðsins og segir að þótt öll áhersla sé lögð á að halda uppi bráðastarfsemi spítalans sé upp- safnaður vandi mikill. „Við höfum ítrekað bent á mikið álag á Land- spítala og skort á heilbrigðisstarfs- fólki. Álagið var mikið fyrir og nú bætist ofan á það. Við höfum áhyggjur af skertri þjónustu við sjúklinga og löngum biðlistum sem hlaða utan á sig frá verkfalli lækna. Þetta verkfall hefur ekki síður áhrif á þessa biðlista. Við vitum að fram undan eru sumar- lokanir, það er óumflýjanlegt og því er orðið knýjandi að finna lausn á deilunni,“ segir Guðríður Kristín sem segir hvern dag verk- fallsins auka álag á deildum spítal- ans og hættu á því að öryggi sjúk- linga sé ábótavant. „Þjónusta við sjúklinga er verri og mjög skert í þessum aðstæðum. Við þurfum í verkfallsaðgerðunum að meta hverjir sjúklinganna eru veik- astir og taka ákvörðun um að meðhöndla þá,“ bendir Guðríður Kristín á og segir ómælda áhættu fólgna í slíku verkalagi. „Það er mikil óvissa í þessu verklagi sem ógnar öryggi sjúklinga, býður hættunni heim. Þetta er líka óreiða sem hefur áhrif á flæði sjúklinga í gegnum spítalana. Hér eru sjúk- lingar sem hafa legið inni á spítal- anum í nokkra daga vegna þess að þeir komast ekki í einfaldar rann- sóknir.“ kristjanabjorg@frettabladid.is Mikill uppsafnaður vandi á Landspítala Fólk sem er greint með krabbamein þarf að bíða eftir meðferð þar til verkfalls- aðgerðum lýkur nema að veikindi þess teljist bráð. Skjólstæðingum spítalans sem hafa beðið lengur eftir aðgerð en þrjá mánuði hefur fjölgað um sextíu prósent. SUMARLOKANIR FRAM UNDAN Enn lengist biðlisti sjúklinga eftir aðgerðum og meðferð. Guðríður Kristín Þórðardóttir, for- maður hjúkrunarráðs, segir uppsafnaðan vanda mikinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Við þurfum í verk- fallsaðgerðunum að meta hverjir sjúklinganna eru veikastir og taka ákvörð- un um að meðhöndla þá. Guðríður Kristín Þórðardóttir, formaður hjúkrunarráðs. 220 skurðaðgerðum hefur verið frestað. 500 starfsmenn Landspítala eru í verkfalli. 60% er fj ölgun þeirra sem hafa beðið eft ir meðferð lengur en í þrjá mánuði. VINNUMARKAÐUR Björn Snæ- björnsson, formaður Starfsgreina- sambandsins, á ekki von á öðru en að verkfallsaðgerðir verði sam- þykktar af félagsmönnum. Kosn- ingu um verkfall lauk á miðnætti hjá félagsmönnum innan Starfs- greinasambandsins og mun sam- bandið kynna niðurstöður kosning- anna klukkan 11 í dag. „Ég get ekki trúað öðru en að kosningin verði afgerandi hjá okkar fólki og að verkfalls aðgerðir verði samþykktar,“ segir Björn. „Fyrstu verkföllin okkar munu þá bresta á þann 30. apríl næstkom- andi.“ Björn segir þetta verkfall geta haft miklar afleiðingar í för með sér og að ferðaþjónustan gæti misst spón úr aski sínum. „Það eru flest allir sem munu finna fyrir fyrstu verkfallsaðgerðum okkar. Þetta eru ræstingafólk og fólk í fiskvinnslu og kjötiðnaðarstöðvum svo dæmi sé tekið. Einnig er um að ræða einstaklinga í ferðaþjónustu sem og á veitingastöðum.“ - sa BJÖRN SNÆBJÖRNSSON Formaður SGS segist ekki trúa öðru en að afger- andi niðurstaða verði um verkfallsað- gerðir hjá félögum sambandsins. Starfsgreinasambandið kynnir niðurstöður úr atkvæðagreiðslu félagsmanna: Telur líklegt að af verkfalli verði SPÁNN Lögreglan í Barcelona hefur handtekið 13 ára dreng fyrir morð á grunnskólakennara. Drengurinn, sem var nemandi við skólann, mætti þangað seint í gærmorgun vopnaður heima- tilbúnum lásboga og hníf. Kennar- inn sem hann réð bana hlaut bana- sárin við að verja annan kennara og nemanda sem drengurinn réðst á. Aðrir nemendur hafa greint frá því að hann hafi áður talað um að hann ætlaði sér að skaða kennara og nemendur hans. - srs 13 ára drengur handtekinn: Drap kennara með lásboga MENNING Óánægju gætir með ráðningu Steinunnar Birnu Ragn- arsdóttur, tónlistarstjóra í Hörpu, í starf óperustjóra Íslensku óper- unnar. Telja tónlistar- menn ekki hafa verið vandað nægilega til verka og að ráðningarferlið hafi ekki verið nægjan lega gegnsætt. Fimmtán manns sóttu um stöðu óperustjóra og var Stein- unn Birna sú eina sem boðuð var í viðtal. Eftir viðtalið á hún að hafa fengið starfið. Fimm manna stjórn stýrir íslensku óperunni og sitja tveir ein- staklingar í stjórninni fyrir hönd Vinafélags Íslensku óperunnar. - sa Nýr óperustjóri ráðinn: Ráðningarferlið talið ógagnsætt REYKJAVÍK Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur flutt skrifstofu sína tímabundið í Breiðholtið. Skrifstofa borgarstjóra verður í Menningarmiðstöðinni Gerðu- bergi næstu tvær vikurnar. Fyrirkomu- lagið er arfleifð Besta flokksins en Jón Gnarr færði sig fyrst- ur um set til þess að kynnast betur þörfum íbúa mismunandi borgarhluta. Borgarstjóri mun funda með starfsfólki stofnana Reykjavíkur- borgar í Breiðholti og heimsækja fyrirtæki í hverfinu. Í dag heim- sækir borgarstjóri leikskóla í hverfinu og svo verður haldinn borgarstjórnarfundur í Gerðu- bergi. - kbg Skrifstofa færð tímabundið: Borgarstjórn í Breiðholti DAGUR B. EGGERTSSON STEINUNN B. RAGNARSDÓTTIR VEISTU SVARIÐ 1. Hvaða skóla eru unnið að því að sameina? 2. Hver sér um morgunleikfi mina á Rás 1 Útvarpsins? 3. Hvar á að koma upp brandarastíg? SVÖR: 1. Tækniskólann og Iðnskólann í Hafnarfi rði. 2. Halldóra Björnsdóttir. 3. Í Hafnarfi rði. 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 6 2 -2 0 2 C 1 7 6 2 -1 E F 0 1 7 6 2 -1 D B 4 1 7 6 2 -1 C 7 8 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 6 4 s _ 2 0 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.