Fréttablaðið - 21.04.2015, Síða 24
FÓLK|HEILSA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur
og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið
ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Hönnun: Silja
Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
MÁLSTOFA
Nanna Guðný er
ein þeirra sem taka
til máls á málstofu
í hreyfivísindum
sem haldin verður
miðvikudaginn 22.
apríl á Háskóla-
torgi HT-101 klukk-
an 8.30. Málstofan
er á vegum náms-
brautar í sjúkra-
þjálfun.
Endurhæfing aldraðra hefur ekki verið mikið rannsökuð hér heima en það er að verða æ mikilvægari
þáttur í starfi sjúkraþjálfara og annars
heilbrigðisstarfsfólks að sinna öldr-
uðum,“ segir Nanna sem hefur starfað í
fimm ár á endurhæfingardeild Hrafnistu
í Reykjavík og er gæðastjóri Hrafn-
istuheimilanna. Hún leggur nú einnig
lokahönd á rannsókn sem er hluti af
meistaranámi hennar í hreyfivísindum
við Læknadeild Háskóla Íslands. Rann-
sóknin ber heitið: „Áhrif endurhæfingar
á hjúkrunarheimili, afturvirk rannsókn.“
„Við eigum mikið gagnasafn hér á
Hrafnistu sem var tilvalið að nýta til
að gera rannsókn sem hefur einnig
klínískt notagildi,“ segir Nanna en mark-
mið rannsóknar hennar var að kanna
árangur endurhæfingarinnlagna á jafn-
vægi, gönguhraða, styrk og almenna
hreyfigetu þeirra sem dvöldu í endur-
hæfingarinnlögn. „Fjölmargar erlendar
rannsóknir hafa sýnt fram á tengsl
gönguhraða við almenna líkamlega
færni aldraðra og sjálfsbjargargetu
þeirra auk færni til að búa heima,“ segir
Nanna. Þar sem gönguhraði hefur því
sterkt spágildi fékk Nanna gögn frá
þjóðskrá til að kanna hvort þeir sem
bættu gönguhraða marktækt í endur-
hæfingu byggju heima tólf mánuðum
eftir útskrift frá endurhæfingardeildinni.
Úr þeim gögnum er hún enn að vinna og
verður forvitnilegt að sjá hvort niður-
staðan sé sú sama hér á landi og víða
annars staðar.
ENDURHÆFING KEMUR AÐ GAGNI
Nanna er að kanna gögn frá árunum
2011, 2012 og 2013. Hún kannar árang-
ur endurhæfingarinnlagnanna út frá
árangursmælingum sjúkraþjálfara á rúm-
lega 470 manns eins og t.d. jafn vægis-,
göngu- og gönguhraðapróf.
„Ég er enn að vinna úr gögnunum og
og því eru niðurstöðurnar ekki komnar
en erlendar rannsóknir hafa sýnt fram
á að fólk sem fær þverfaglega endur-
hæfingu líkt og hér á Hrafnistu þar sem
teymi sjúkraþjálfara, lækna, hjúkrunar-
fræðinga og iðjuþjálfa leggur hönd á
plóg, sé líklegra til að búa heima 6-12
mánuðum seinna, það flytji seinna
á hjúkrunarheimili og sjúkrahúss-
innlögnum fækki,“ segir Nanna.
FLESTIR VILJA BÚA HEIMA
Nanna segir alltaf koma betur og betur
í ljós að endurhæfingarmöguleikar
aldraðra séu oft vanmetnir. „Það er
hægt að endurhæfa aldraða til að auka
möguleika þeirra á sjálfstæðri búsetu
og veita þeim betri lífsgæði þrátt fyrir
sína færniskerðingu,“ segir hún og
bendir á mikilvægi þess að halda áfram
hreyfingu þegar endurhæfingarinnlögn
lýkur. „Sýnt hefur verið að endurhæf-
ing er áhrifaríkust þegar færni fólks er
metin í upphafi, það fær ákveðna með-
ferð og síðan útskriftaráætlun. Í henni
felast viðeigandi úrræði, til dæmis
áframhaldandi sjúkraþjálfun, ávísun
á félagslega virkni eða með heimilis-
athugun en þá er t.d. gerð úttekt á þörf
á hjálpartækjum til að auðvelda sjálf-
stæða búsetu.“
Nanna segir sífellt mikilvægara að
huga að heilsu aldraðra enda fjölgi þeim
hlutfallslega mikið. „Þjóðin er alltaf að
verða eldri og flestir kjósa að geta búið
sem lengst heima. Því er mikilvægt að
aldraðir haldi hreyfifærni sinni eins
lengi og hægt er með ýmsum ráðum.“
ÓVÍST MEÐ FRAMHALDIÐ
Heilbrigðisráðuneytið hefur ákveðið að
endurnýja ekki samning við Hrafnistu
um endurhæfingarinnlögn aldraðra
sem enn búa í sjálfstæðri búsetu. „Ég
er formaður Félags sjúkraþjálfara í
öldrunarþjónustu og við sendum frá
okkur tilkynningu í febrúar þar sem
félagið harmaði þessa ákvörðun,“ segir
Nanna. Félagið lagði í fréttatilkynn-
ingunni inn fyrirspurn til stjórnvalda
um hvort boðið yrði upp á sams konar
úrræði í endurhæfingu aldraðra annars
staðar en Nanna segir engin svör hafa
borist. „Í skýrslu stýrihóps um málefni
aldraðra til ársins 2015 kemur fram sá
vilji stjórnvalda að aldraðir haldi sem
lengst sjálfstæði á eigin heimili og fái
til þess nauðsynlega hjálp til sjálfs-
hjálpar. Unnið hefur verið markvisst
að því að seinka flutningi á hjúkrunar-
heimili og koma í veg fyrir sjúkra-
hússdvöl með ýmsum úrræðum, þar á
meðal endurhæfingarinnlögn í skamm-
an tíma. Þessi ákvörðun stjórnvalda
um að endurnýja ekki samninginn um
endurhæfingarinnlagnir aldraðra virð-
ist því stangast á við þessa stefnu.“
GÓÐUR ÁRANGUR
AF ENDURHÆFINGU
HEILSA ALDRAÐRA Nanna Guðný Sigurðardóttir sjúkraþjálfari greinir frá fyrstu
niðurstöðum rannsóknar sinnar á árangri endurhæfingar á Hrafnistu á málstofu
í hreyfivísindum sem haldin verður á Háskólatorgi Háskóla Íslands á morgun.
SJÚKRAÞJÁLFARI
Nanna Guðný hefur
starfað fimm ár á endur-
hæfingardeild Hrafnistu
í Reykjavík.
HREYFING ER MIKILVÆG „Erlendar rannsóknir hafa sýnt fram á að fólk sem fær þverfaglega endurhæfingu líkt og hér á Hrafnistu
þar sem teymi sjúkraþjálfara, lækna, hjúkrunarfræðinga og iðjuþjálfa leggur hönd á plóg, sé líklegra til að búa heima 6-12 mánuðum
seinna, það flytji seinna á hjúkrunarheimili og sjúkrahússinnlögnum fækki,“ segir Nanna. NORDICPHOTOS/GETTY
Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook
Opið virka daga kl
. 11–18
Opið laugardaga k
l. 11-16
Fæst í apótekum og heilsubúðum
P
R
E
N
TU
N
.IS
Ég mæli með því að konur velji
náttúrulegu leiðina gegn þrálátum
sýkingum og sem forvörn
Valbjörg Þórðardóttir
hjúkrunarfræðingur
“
Gegn sveppasýkingu,bakteríusýkingu
og þvagfærasýkingu
”
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
6
3
-3
9
9
C
1
7
6
3
-3
8
6
0
1
7
6
3
-3
7
2
4
1
7
6
3
-3
5
E
8
2
8
0
X
4
0
0
8
B
F
B
0
6
4
s
_
2
0
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K