Fréttablaðið - 21.04.2015, Side 43
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa V O R B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 5 5
E
Ljóð
D
E
D
E
Ævintýri
Jonas T. Bengtsson
Þýð.: Ísak Harðarson
Einu sinni voru feðgar í felum á jaðri
samfélagsins. Faðirinn segir drengnum
ævintýri til að útskýra flökkutilveru
þeirra en dag einn breytist það í veru-
leika. Tíu árum síðar stendur drengur-
inn uppi með annað líf, annað nafn –
og fer að leita að sjálfum sér. Mögnuð
þroskasaga á mörkum ævintýris og
dauðans alvöru.
437 bls.
Forlagið – Mál og menning
Cold was that Beauty
Icelandic nature poetry
Þýð.: Bernard Scudder
Samant.: Helga K. Einarsdóttir
Íslensk náttúra, ógn hennar og fegurð,
er viðfangsefni ljóðanna sem bókin
geymir. Ljóðin eru eftir flest helstu
skáld Íslendinga fyrr og síðar. Gull-
falleg gjöf handa enskumælandi unn-
endum ljóðlistar.
88 bls.
Salka
Endur
útgáfa
Fardagar
Þankar um hringleið
Ari Trausti Guðmundsson
gola hvíslar/ við undirleik hjartans
/ grjótglamur við fót … Fardagar er
sjöunda ljóðabók Ara Trausta. Skáldið
ferðast hér víðsvegar um Ísland og
deilir skynjun sinni af landinu og nátt-
úruöflunum með lesendum. Það leynir
sér ekki að þessi ferðalangur þekkir
land sitt í þaula og ber hag þess fyrir
brjósti.
54 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
Ljóðasafn
Ingunn Snædal
Ingunn Snædal hefur sent frá sér fimm
ljóðabækur, sem hafa vakið athygli og
aflað henni vinsælda. Hér er að finna
heildarsafn ljóða metsöluskáldsins frá
Jökuldal, frá 1995 til 2015, ásamt áður
óbirtum ljóðum. Ljóð Ingunnar eru
skemmtileg og vekja bæði forvitni og
samúð hjá lesanda. Þau gefa góða inn-
sýn í flókinn veruleika á hnitmiðaðan
og ísmeygilega fyndinn hátt.
Bjartur
Norður
Eyþór Árnason
Eyþór Árnason hefur vakið mikla
athygli fyrir ljóð sín en hann hlaut
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guð-
mundssonar fyrir fyrstu ljóðabók sína,
Hundgá úr annarri sveit. Í Norður
leitar Eyþór í sveitirnar norðan heiða –
með nokkrum útúrdúrum.
102 bls.
Veröld
E
E
E
E
E
E
Snjór í myrkri
Sigurjón Magnússon
Yfir minningunni um tónlistarkonuna
Lillu grúfir dimmur skuggi. Eftir stutt-
an en glæsilegan feril finnst hún myrt á
hrottafenginn hátt. Lítt þekktur rithöf-
undur fær það verkefni að skrifa ævi-
sögu hennar. Kvöld eitt verður á vegi
hans ung kona sem býr yfir óþægilegri
vitneskju …
182 bls.
Ugla
Stúlkan með náðargjafirnar
M. R. Carey
Þýð.: Magnea J. Matthíasdóttir
Á hverjum morgni bíður Melanie í
klefanum sínum eftir að komast í tíma.
Það besta sem hún veit er að læra um
heiminn utan skólastofunnar. Melanie
er sérstök stúlka sem býr yfir óvana-
legum hæfileikum. Guðirnir voru
örlátir daginn sem henni var úthlutað
náðargjöfunum. „Einlæg, vægðarlaus
og átakanlega mannleg …“
438 bls.
Björt bókaútgáfa
Sverðagnýr
2: Blóð og gull
George R.R. Martin
Þýð.: Elín Guðmundsdóttir
Magnþrunginn sagnabálkur, kenndur
við fyrstu bók bálksins, Game of Thro-
nes, eftir hinum vinsælum sjónvarps-
þáttum sem m.a. eru teknir upp á Ís-
landi. Stark-ættbálkurinn er sundraður
og Daenerys, síðasti erfingi drekakon-
unganna, setur stefnuna á Westeros
með hefndarhug í hjarta.
630 bls.
Ugla
Syndlaus
Viveca Sten
Þýð.: Elín Guðmundsóttir
Syndlaus er þriðja bókin í röð geysi-
vinsælla glæpasagna sem gerast á
Sandhamn, einni af sumarleyfisperlum
skerjagarðsins fyrir utan Stokkhólm.
Fyrstu bækurnar tvær, Svikalogn og
Í innsta hring, fengu afbragðs viðtökur
íslenskra lesenda.
418 bls.
Ugla
Við
David Nicholls
Þýð.: Arnar Matthíasson
Lífefnafræðingurinn Douglas Petersen
reynir að bjarga hjónabandinu með því
að leggja upp í mikla menningarreisu
um Evrópu ásamt eiginkonu og syni. Á
ferð um París, Amsterdam, Feneyjar og
Flórens vaknar óneitanlega sú spurning
hvort menningarreisur séu heppilegar
til að bjarga hjónaböndum og bæta
sambandið við börnin. – Grátbrosleg
saga um nútímafjölskyldulíf, krydduð
kaldhæðnum breskum húmor.
Bjartur
Vorlík
Mons Kallentoft
Þýð.: Jón Þ. Þór
Fallegan vordag er kyrrðin skyndilega
rofin í hjarta Linköping á ofsafenginn
hátt. Fjórða bókin um rannsóknarlög-
reglukonuna Malin Fors. Mons Kal-
lentoft er einn af þekktustu höfundum
Svíþjóðar og bækur hans um Malin
Fors hafa notið mikilla vinsælda jafnt á
Íslandi sem annars staðar.
464 bls.
Ugla
E
E
E
E
C
Hildigunnur Þráinsdóttir les
E
Leyndarmál eiginmannsins
Liane Moriarty
Þýð.: Helgi Jónsson
Cecilia finnur gamalt bréf frá eigin-
manni sínum, John Paul, bréf sem
hann vill ekki að sé lesið fyrr en hann
deyr. John Paul er reyndar í fullu fjöri,
svo hvers vegna skrifaði hann þetta
bréf ef ekki má lesa það? Forvitni eig-
inkonunnar er vakin og bréfið lætur
hana ekki í friði.
350 bls.
Tindur
Væntanleg
Mamma, pabbi, barn
Þýð.: Nanna B. Þórsdóttir
Þriggja ára stúlka vaknar alein. Hún
er læst inni og enginn kemur að vitja
hennar. Og dagarnir líða … Tvö ein-
kennileg mál hafna samtímis á borði
lögregluforingjans Connys Sjöberg
og hann og félagar hans velta fyrir sér
hvort þau geti tengst. Ný glæpasaga
eftir höfund Piparkökuhússins sem sló
í gegn.
348 bls.
Forlagið – JPV útgáfa
Morðin í Skálholti
Stella Blómkvist
Áttunda bókin um Stellu sem er að
vanda harðsnúin, sjálfstæð og herská.
Hvert snýr kona sér þegar eiginmaður-
inn er sakaður um að hafa myrt pabba
hennar og bestu vinkonu? Hvað gera
ættingjar stúlku sem hverfur sporlaust
og lögreglan segir að muni aldrei koma
í leitirnar? Þeir sem engu hafa að tapa
snúa sér til Stellu Blómkvist.
288 bls.
Forlagið – Mál og menning
Morðið í
Austurlandahraðlestinni
Agatha Christie
Þýð.: Jakob F. Ásgeirsson
Nokkru eftir miðnætti verður hin
fræga Austurlandahraðlest að nema
staðar á miðri leið vegna mikillar snjó-
komu. Um morguninn kemur í ljós
að einn farþeginn hefur verið myrtur
í klefa sínum sem er læstur innan frá.
Ein snjallasta bók drottningar saka-
málasögunnar – og frægasta ráðgáta
Hercule Poirots.
260 bls.
Ugla
Náðarstund
Hannah Kent
Þýð.: Jón St. Kristjánsson
Uppl.: Hildigunnur Þráinsdóttir
Agnes Magnúsdóttir bíður aftöku fyrir
hrottalegt morð. En er hún sek? Hér er
dregin upp margræð og ógleymanleg
mynd af nöprum íslenskum veruleika,
heitum tilfinningum og hörmulegum
örlögum. Bókin hefur fengið frábæra
dóma og unnið til fjölda viðurkenn-
inga víða um heim.
675 mín.
Hljóðbók.is
Skæri blað steinn
Naja Marie Aidt
Þýð.: Ingunn Ásdísardóttir
Saga um það að komast áfram í
samfélaginu, saga um kærleik, hefnd
og völd. Og mátt skáldskaparins.
„Tilfinningaríkur, nákvæmur og
kraftmikill texti.“ – Politiken
Þetta er fyrsta skáldsaga Naju Marie
sem hlaut bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs fyrir smásagnasafnið
Bavíana, sem Bjartur gaf út 2011.
363 bls.
Bjartur
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
6
2
-8
2
E
C
1
7
6
2
-8
1
B
0
1
7
6
2
-8
0
7
4
1
7
6
2
-7
F
3
8
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
0
6
4
s
_
2
0
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K