Fréttablaðið - 21.04.2015, Síða 44
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápaV O R B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 56
G
E
E
E
E
D
Fyrstu 1000 dagarnir
Sæunn Kjartansdóttir
Fyrstu 1000 dagarnir er aðgengileg
handbók fyrir alla foreldra. Í bókinni
eru gefin góð ráð um hvernig foreldrar
geta búið sig undir fæðingu barns og
annast það og örvað fyrstu árin með
það að leiðarljósi að byggja upp heil-
brigðan og ástríkan einstakling. Sæunn
Kjartansdóttir hefur áður skrifað bók-
ina Árin sem enginn man.
232 bls.
Forlagið – Mál og menning
Handbók húsmæðra
1000 húsráð
Er hiksti þig t.d. lifandi að drepa eða
fló á skinni? Eru varirnar sprungnar og
nefið rautt? Þarftu að losna við óþef úr
íbúð og blett úr flík? Eru eggin fúl eða
kaffið svikið? Þarftu að fá páfagauk-
inn til að tala eða fæla burtu flugur og
mýs? Svör við öllu þessu og svo miklu
fleiru finnur þú í þessari gagnmerku
bók. 1000 húsráð fyrir alla, jafnt konur
sem karla.
240 bls.
Nýhöfn
Hjólabókin – Árnessýsla
Dagleiðir í hring á hjóli –
4. bók: Árnessýsla
Ómar Smári Kristinsson
Í mestu ferðamannasýslu landsins er
fjöldinn allur af spennandi leiðum fyrir
hjólreiðafólk. Rúmlega 200 ljósmyndir
gefa innsýn í sýsluna.
Hjólabækurnar eiga sér enga hlið-
stæðu hér á landi.
112 bls.
Vestfirska forlagið
Væntanleg
Hornstrandir og
Jökulfirðir 4. bók
Samant.: Hallgrímur Sveinsson
Hornstrandir heilla.
Fjölbreyttar, áhugaverðar og
spennuþrungnar frásagnir, sem jafn-
ast á sinn hátt fyllilega við glæpasögur
nútímans.
131 bls.
Vestfirska forlagið
Hreint mataræði
Alejandro Junger
Þýð.: Nanna Gunnarsdóttir og
Guðrún Bergmann
Byltingarkennt kerfi sem hjálpar lík-
amanum að heila sig á náttúrulegan
hátt.
Girnilegar og saðsamar uppskriftir,
fræðsla, hvatning og ráð. Þrjár vikur –
og áhrifin láta ekki á sér standa!
312 bls.
Salka
Iceland Defense Force
Bragi Þór Jósefsson
Ljósmyndir Braga Þórs Jósefssonar
af mannlausu Miðnesi rétt eftir að
Bandaríkjaher hvarf á brott. Bygging-
arnar hafa lokið upphaflegum tilgangi
sínum og bíða þess sem verða vill, á
valdi náttúrunnar og nýrra herra.
38 bls.
Crymogea
D
G
E
G
G
D
Áhrifasaga Saltarans
Gunnlaugur A. Jónsson
Áhrifasaga Saltarans fjallar um
Davíðssálma í sögu og samtíð. Efnið er
afar umfangsmikið og vitnar um ótrú-
lega víðtæk áhrif Sálmanna á flestum
sviðum mannlífsins, jafnt í gyðingdómi
og kristni. Áherslan í þessari bók hvílir
talsvert á íslenskri áhrifasögu, ekki síst
í síðari tíma trúarlífi og menningu.
629 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
Ástin, drekinn og dauðinn
Vilborg Davíðsdóttir
Í Ástinni, drekanum og dauðanum
lýsir Vilborg Davíðsdóttir vegferð sinni
og hennar heittelskaða. Bókin veitir í
senn innsýn í veröld krabbameinsins
og djúpa sorg þess sem hefur elskað
og misst. En hún er ekki síður óður
til kærleikans, hvatning til að lifa í
árvekni og sættast við að dauðinn er
órjúfanlegur hluti af lífinu.
265 bls.
Forlagið – Mál og menning
Bókin um vefinn
Sjálfshjálparkver fyrir
metnaðarfulla vefstjóra
Sigurjón Ólafsson
Bókin um vefinn er hugsuð sem hand-
bók fyrir þá sem sinna vefstjórn,
reynda vefstjóra sem og nýliða í vef-
umsjón. Vefstjórar hafa orðið útundan
þegar kemur að fræðslu í vefgeiranum,
jafnt hér á landi sem erlendis. Þörfin er
hins vegar mikil þar sem vefstjórnend-
ur fá yfirleitt vefinn í fangið án nauð-
synlegrar þjálfunar og fræðslu.
187 bls.
IÐNÚ útgáfa
Breyttur heimur
Jón Ormur Halldórsson
Um þessar mundir eru ný stórveldi að
eflast; þau eldri missa mátt sinn. Sagan
kennir að slíkar breytingar á valdahlut-
föllum bjóða hættunni heim. Bókin
Breyttur heimur varpar ljósi á ýmsar
óraflóknar og hnattrænar átakalínur
okkar tíma og sýnir þær sem samhang-
andi og skiljanlega heild.
448 bls.
Forlagið – Mál og menning
Bylting
og hvað svo?
Björn Jón Bragason
Nýstárleg bók sem hverfist um stjórn-
arskiptin 1. febrúar 2009. Hér koma
fram nýjar upplýsingar um aðdraganda
þeirra og greint er frá örlagaríkum
atburðum sem fylgdu í kjölfarið. Ýmis-
legt mun hér koma á óvart.
210 bls.
Salka
Djúsbók Lemon
Jón Arnar Guðbrandsson og
Jón Gunnar Geirdal
Í Djúsbók Lemon er að finna fjöru-
tíu sælkerasafa og þeytinga úr besta
fáanlega hráefni, einfalda, frísklega
og stútfulla af hollefnum úr ávöxtum,
grænmeti, skyri og náttúrulegu kryddi
og bragðefnum. Drykkir sem bjarga
deginum!
80 bls.
Forlagið – Vaka-Helgafell
D
D
G
Fræði og bækur
almenns efnis
G
G
Passíusálmarnir
Hallgrímur Pétursson
Umsj.: Mörður Árnason
Ný útgáfa Marðar Árnasonar íslensku-
fræðings á Passíusálmunum gerir þetta
vinsælasta íslenska bókmenntaverk
allra tíma loksins aðgengilegt. Skýring-
ar, umföllun og samantektir gera efnið
leikandi létt og glæsileg bókarhönnun
hjálpar enn betur til.
656 bls.
Crymogea
Þakklæti
Sigurbjörn Þorkelsson
Í bókinni eru 146 ljóð, þar af 112 áður
óbirt og 34 úr fyrri ljóðabókum höf-
undar. Einnig ljóðatengd orð um við-
brögð við áfalli, vonbrigði og glímu,
baráttu og erfiðar tilfinningar. 10
Morgunblaðsgreinar, 15 Facebook
færslur, 26 ljósmyndir auk eftirmála
og annarra orða. Bókin er þó fyrst og
fremst óður til lífsins og tjáir þakk-
læti fyrir undursamlegar gjafir þess.
Lifi lífið!
240 bls.
Sigurbjörn Þorkelsson
Við sem erum blind og nafnlaus
Alda Björk Valdimarsdóttir
Fyrsta ljóðabók Öldu Bjarkar sem hef-
ur áður birt ljóð sín í TMM og Stínu og
var valin Háskólaskáldið 2013 í ljóða-
samkeppni Stúdentablaðsins. Ný rödd
í íslenskri ljóðagerð.
69 bls.
Forlagið – JPV útgáfa
22 Places You Absolutely
Must See in Iceland
22 lugares de Islandia que
no te puedes perder
22 Places – Kínverska
Myndir: Vigfús Birgisson
Nú er þessi vinsæla bók um Ísland fá-
anleg í spænskri og kínverskri útgáfu.
96 bls.
Crymogea
55 leiðir til þess að bera
fram orðið Siglufjörður
Lefteris Jakúmakis
Þýð.: Róbert Viðarsson
55 myndir eftir málarann Lefteris Jak-
úmakis og frásagnir innblásnar af líf-
inu á Norðurlandi. Umfjöllunarefnin
eru margbreytileg, hversdaglífið á
Siglufirði, beitningarvinna, þjóðsögur
staðarins og fegurð íslenskrar náttúru.
Málarinn veltir líka fyrir sér afleiðing-
um af ofnýtingarstefnu, fjölgun ferða-
manna og græðgi auðvaldsins.
88 bls.
Anagramma
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
6
2
-5
1
8
C
1
7
6
2
-5
0
5
0
1
7
6
2
-4
F
1
4
1
7
6
2
-4
D
D
8
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
6
4
s
_
2
0
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K