Fréttablaðið - 21.04.2015, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 21.04.2015, Blaðsíða 52
21. apríl 2015 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 24 Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is Eftir rysjóttan vetur svífur andi ástar og drauma yfir vortónleikum Kvennakórs Kópavogs að sögn Ásdísar Arnardóttur, einnar í hópnum. Líka örlítil von um sólríkt sumar. „Það sakar ekki að láta sig dreyma,“ segir hún. Létt klúbbastemning verður á tónleikunum sem verða í Ferðafélagssalnum í Mörkinni 6. Þeir hefj- ast klukkan 20.30 en húsið verður opnað klukku- stund fyrr með fordrykk og lifandi tónlist. Hluti tónleikanna er tileinkaður íslenskum þjóð- og dægurlögum en annar hluti er settur saman af þekktum erlendum lögum í djass útsetningum. Gestir sitja við borð og barinn verður opinn eitt- hvað fram eftir kvöldi. Með kórnum koma fram þau Stefanía Svavars- dóttir söngkona, Richard Korn, sem leikur á bassa, og Ellert S.B. Sigurðarson á trommur og gítar. John Gear leikur á trompet og píanó og hann er jafn- framt stjórnandi kórsins. - gun Andi ástar og drauma svífur yfi r Kvennakór Kópavogs syngur annað kvöld í sal Ferðafélagsins í Mörkinni 6. KVENNAKÓR KÓPAVOGS Vortónleikarnir verða með léttri klúbbastemningu þetta árið. VALUR – HAUKAR LEIKUR ÞRJÚ Í UNDANÚRSLITUM Í Vodafonehöllinni í kvöld kl. 19.30 GRILLAÐIR BORGARAR FYRIR LEIK! María Ólafs og Ásgeir Orri Eurovisionfarar mæta og taka lagið í hálfleik! Áfram Valur! Á Listahátíðinni í Reykjavík í vor verður boðið upp á einstaklega spennandi danskvöld í Borgarleik- húsinu. BLÆÐI er sýning þar sem þrjú stór nöfn í dansheiminum leiða saman hesta sína í þremur sjálf- stæðum sýningum. Damien Jalet er eini danshöf- undurinn sem tengir saman öll þrjú verkin. Fyrst skal telja tvö brot úr hinu geysivinsæla Babel (words) eftir Damien Jalet og Sidi Larbi Cherkaoui. Þá Les Méduses eftir Damien Jalet, sem er ásæk- ið verk fyrir kventríó og var upp- runalega samið fyrir Louvre-lista- safnið í París. Dagskránni lýkur svo með verkinu Black Marrow eftir Damien Jalet og Ernu Ómars- dóttur. Ýtum hvort öðru áfram Leið Ernu og Damiens lágu einmitt fyrst saman þegar þau dönsuðu saman í sýningunni Foi eftir Sidi Larbi sem þau túruðu svo með um heiminn fyrir um tíu árum og segir Damien að þau hafi strax fundið að það ætti vel við þau að vinna saman. „Við fundum á fyrsta degi að það hentaði okkur vel að vinna saman. Við höfum svipaða sýn á hlutina að mörgu leyti en erum svo líka gjörólík að öðru leyti. En við virðumst deila einhverjum sam- eiginlegum grunni,“ segir Damien og heldur áfram: „Málið er að ég geri aðra hluti þegar ég vinn með Ernu en þegar ég vinn einn. Þetta er ekki spurning um einhvers konar samtal heldur eru þetta tengsl og svo ýtum við hvort öðru áfram.“ Erna tekur undir þetta og segir að þau séu nú stundum farin að minna á gömul hjón. „En svo er líka mikilvægt í svona sam- starfi að kunna að stíga til hliðar og leyfa hinum aðilanum að vinna. Koma sínum hugmyndum að. Þetta er spurning um traust og það er til staðar hjá okkur.“ Verk sem taka breytingum „Á sínum tíma þá gerðum við Transaquania Out of the Blue í Bláa lóninu fyrir Íslenska dans- flokkinn,“ segir Erna og leggur áherslu að þetta tengist því sem komi í framhaldinu. „Þar unnum við með vatnið og lónið, bjuggum til okkar eigin ímynduðu goðsögn um lónið sem táknaði upphaf lífs- ins. Sama ár var okkur svo boðið að vinna í Ástralíu og þar unnum við með hinn pólinn sem talaðist á við Transaquania. Það verk er Black Marrow.“ „Black Marrow er upprunalega samið fyrir Chunky Move, einn helsta nútímadansflokk Ástralíu, og var frumflutt á listahátíðinni í Melbourne árið 2008. Verkið sækir vissulega innblástur í frumbyggja Ástralíu en er á sama tíma eins konar samtíma ritúal. Það tekst á við tengsl okkar við jörðina, samspil náttúru og siðmenningar og upphaf hlutanna og möguleg endalok.“ „Í framhaldinu gerðum við verk hér heima sem heitir Into Thin Air og byggir á Transaquania svona eftir að það er komið upp úr vatn- inu. Það sem sagt þróaðist á sinn hátt. Eins er Black Marrow samið fyrir Ástralíu en útgáfan sem við vinnum hér er búin að taka ákveðnum breytingum og er nú samin með og fyrir Íslenska dans- flokkinn.“ Efnið er olía „Ef við rekum nál í gegnum jörð- ina á Íslandi,“ segir Damien og brosir, „þá kemur hún að endingu upp í Ástralíu. Það er svona dæmi um hvernig við tengjum þetta líka í heild. Ástralía er heit og þurr. Ísland blautt og kalt. Tvær eyjar í hafinu sín hvorum megin á hnett- inum. Við vinnum líka mikið með efni jarðarinnar. Vatn sem lífgjafa og upphaf og olíuna sem er þarna líka. Afsprengi lífs og órjúfanleg- ur hluti af jörðinni. Við skoðum líka hvernig olían, eða öllu heldur nýting okkar á henni, hefur farið með jörðina. Við skoðum hvernig frumbyggjar Ástralíu lifa með náttúrunni en ekki af henni.“ Þarfir og langanir Damien segir að þegar þau hafi farið að skoða frumbyggja Ástral- íu í samhengi við nútímasamfélag- ið hafi verið sláandi hversu háður nútíminn er jarðefnaeldsneyti. „Iðnvæðingin hefur breytt okkur og mótað. Fært okkur fjær upp- runanum. Frumbyggjarnir heila jörðina, lifa með henni í sátt en við sjúgum úr henni allt líf. Við erum í leit að jafnvægi en er það of seint?“ Erna bætir við að þau séu líka að skoða hversu háð við erum lífsstíl okkar í dag. „Hvaðan kemur allt sem við nýtum? Við erum að breyta náttúrunni á óafturkræfan hátt. Ástæðan er kannski ekki síst sú að einhvers staðar á leiðinni hafi þetta hætt að snúast um þarfir hjá okkur og farið að snúast um langanir.“ Leitin sem skiptir máli Damien og Erna segja verkið hafa þróast í nýja og spennandi átt núna í æfingaferlinu á Íslandi þar sem þau eru að vinna verkið upp á nýtt með dönsurum Íslenska dans- flokksins. „Nú erum við að vinna með öðru fólki,“ segir Damien, „og það er ekki hægt að troða þessu áfram. Verkið þarf að fá að þróast og vera í samhljómi við þá sem eru að takast á við það hverju sinni.“ Erna áréttar að Black Marrow sé í rauninni ljóðrænna en það er pólitískt þar sem líkamarnir fá að tala frekar en orðin. „Þannig að það er í raun í mörg- um lögum. Í verkinu er að finna fegurð og ljótleika og það er í senn einfalt og flókið. Málið er að við erum í leit að sannleika án þess að komast að niðurstöðu en það er leitin sem skiptir máli. Öll sköpun breytir manni og þrosk- ar. Því getur verið erfitt að koma aftur að verki en þá er líka gott að hafa einhvern óbreytanlegan fasta eins og við höfum núna í tónlistinni. Ben Frost frumsamdi tónlistina og var með okkur á æfingaferlinu í Melbourne og tón- listin er það eina sem mun hald- ast alveg óbreytt.“ Að lifa með en ekki af náttúrunni Erna Ómarsdóttir og Damien Jalet eru höfundar Black Marrow sem verður ásamt tveimur öðrum verkum sýnt á danskvöldinu BLÆÐI í Borgarleikhúsinu á Listahátíðinni í Reykjavík í vor. Þau hafa nú unnið saman af og til í ein tíu ár. DANSHÖFUNDARNIR Erna Ómarsdóttir og Damien Jalet eru höfundar Black Marrow sem verður sýnt á Listahátíðinni í Reykjavík í vor. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR BLACK MARROW Mynd úr sýningunni í Ástralíu á sínum tíma árið 2008. Iðnvæðingin hefur breytt okkur og mótað. Fært okkur fjarri upp- runanum. Frumbyggj- arnir heila jörðina, lifa með henni í sátt en við sjúgum úr henni allt líf. Við erum í leit að jafn- vægi en er það of seint? Damien Jalet MENNING 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 6 1 -6 4 8 C 1 7 6 1 -6 3 5 0 1 7 6 1 -6 2 1 4 1 7 6 1 -6 0 D 8 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 6 4 s _ 2 0 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.