Fréttablaðið - 19.05.2015, Side 2
19. maí 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 2
BANDARÍKIN Níu létust og átján
voru fluttir á sjúkrahús eftir skot-
bardaga milli fimm mótorhjóla-
gengja í borginni Waco í Texas á
sunnudagskvöld. Blóðbað varð á
bílastæði útibús veitingastaðar-
ins Twin Peaks eftir að meðlimir
gengjanna höfðu safnast saman
inni á veitingastaðnum. Átökin
hófust með slagsmálum en leyst-
ust fljótt upp í skotbardaga. Fjöld-
inn allur af skotvopnum, keðjum og
hnífum var gerður upptækur.
Lögreglan í Waco gaf út yfirlýs-
ingu á sunnudagskvöld og sagð-
ist hafa handtekið um tvö hundruð
vegna bardagans en lækkaði töluna
í gær niður í 160. Talsmaður lög-
reglunnar í Waco, Patrick Swan-
ton, sagðist aldrei hafa séð nokkuð
þessu líkt á rúmlega þriggja ára-
tuga starfsferli sínum hjá lögregl-
unni. Hann sagði lögreglu hafa vitað
að gengin hefðu ætlað að safnast
saman og varað veitingastaðinn við.
Enn fremur segir Swanton lög-
reglu hafa reynt að vinna með
eigendum staðarins til að reyna
að koma í veg fyrir atvikið en án
árangurs og sagði orð talsmanns
veitingastaðarins þess efnis að
hann hafi reynt að vinna með lög-
reglu algjöran tilbúning.
Keðjan sem útibúið fékk rekstr-
arleyfi sitt hjá hefur nú afturkallað
leyfi útibúsins sem upphaflega átti
einungis að loka í viku til að rann-
saka vettvang bardagans. - þea
Lögregla ásakar útibú veitingastaðar í Waco um alvarlega vanrækslu í aðdraganda skotbardaga:
Veitingastaðurinn í Waco missir leyfið
MISSIR LEYFIÐ Útibú Twin Peaks í
Waco missir rekstrarleyfið vegna skorts
á samstarfi við lögreglu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
REYKJAVÍK „Eru Sumargötur
bara fyrir suma?“ spyr Valgerð-
ur Árnadóttir, íbúi á Vatnsstíg í
miðbæ Reykjavíkur, í pistli sem
fylgir undirskriftasöfnun þess
efnis að Laugavegi skuli lokað
við Snorrabraut en ekki Vatnsstíg
eins og nú er gert. Undirskrifta-
söfnunin fer fram á vefsíðunni
change.org. Tæplega 250 manns
höfðu skrifað undir í gærkvöldi.
Valgerður segir núverandi
lokun þýða stanslausan umferð-
arnið hjá sér og svo mikinn
útblástur að hún geti ekki opnað
hjá sér glugga. „Og það er
sumar!“ áréttar hún. - þea
Vilja loka Laugavegi öllum:
Íbúar vilja loka
við Snorrabraut
VEÐUR
Í dag snýst vindur til sunnanáttar. Síðdegis
verða 8 til 15 metrar á sekúndu og
rigning. Hægari vindur, léttir til og hlýnar
á Norður- og Austurlandi.
3°
9°
11°
8°
8°
3
4
4
3
5
SJÁ SÍÐU 22
BARA KLASSÍK.
STUNDUM VILL MAÐUR
ÞÁ ER TÍMI FYRIR
SÍGILT SÚKKULAÐI.
TÍMI FYRIR
INDLAND Aruna Shanbaug, sem verið hafði í dái í tæp 42 ár eftir að ræst-
ingamaður á King Edward Memorial sjúkrahúsinu í Mumbaí á Indlandi
réðst á hana og nauðgaði henni, lést í gær. Í tilkynningu sjúkrahússins
segir að hún hafi verið 67 ára gömul.
Shanbaug fékk lungnabólgu fyrir viku og lést á gjörgæsludeild sjúkra-
hússins þar sem hún starfaði áður og þar sem ráðist var á hana 27. nóvem-
ber 1973. Þá varð hún fyrir alvarlegum heilaskaða og lamaðist. Mál henn-
ar hefur verið í miðju umræðu um líknardráp á Indlandi síðustu ár. - óká
Heilasköðuð og lömuð eftir árás á sjúkrahúsi árið 1973:
Látin eftir tæplega 42 ár í dái
BORIN TIL GRAFAR Hjúkrunarfólk á King Edward Memorial sjúkrahúsinu auk
annars starfsfólks og aðstandenda taka þátt í göngu þar sem Aruna Shanbaug var
borin til grafar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
SVÍÞJÓÐ Undanfarin sex ár hafa
553 afbrotamenn í Svíþjóð kom-
ist hjá afplánun fangelsisdóma
með því að halda sig til hlés þar
til brotið er fyrnt. Í sumum til-
fellum nægir að vera í felum í
fimm ár en dæmdur afbrotamað-
ur kann að þurfa að vera í felum
í 30 ár, að því er sænskir fjöl-
miðlar greina frá. Dómar vegna
mjög grófra afbrota, til dæmis
morðs eða hryðjuverks, fyrnast
ekki.
Óttast er að virðing fyrir rétt-
arkerfinu minnki þegar slíkur
fjöldi sleppur við afplánun.
- ibs
Afbrotamenn í felum:
Hundruð kom-
ast hjá fangelsi
SUÐUR-KÓREA John Kerry, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, fór mikinn um málefni Norður-Kóreu í
heimsókn sinni til höfuðborgar Suður-Kóreu, Seúl,
í gær.
Kerry sagði að norðurkóreska ríkisstjórnin væri
hvergi nærri því að binda enda á kjarnorkuvopnavæð-
ingu ríkisins í ljósi þess hve ítrekað ríkið hefur ögrað
alþjóðasamfélaginu nýverið. „Ég held að alþjóðasam-
félagið hafi aldrei verið jafnsameinað og nú. Það er
forgangsatriði númer eitt að binda enda á kjarnorku-
vopnaáætlun Norður-Kóreu,“ sagði hann.
Kerry sagði enn fremur að bandaríska ríkisstjórn-
in myndi funda með þeirri kínversku í júní um næstu
skref í þessum málum. Talsmaður utanríkisráðuneyt-
is Kínverja, Hong Lei, neitaði að tjá sig um ummæli
utanríkisráðherrans bandaríska. Kínverjar hafa oft
og lengi beitt neitunarvaldi sínu í öryggisráði Sam-
einuðu þjóðanna þegar aðgerðir gegn Norður-Kóreu
hafa verið til umræðu.
„Ríkisstjórn Norður-Kóreu er eitt alversta dæmið
um algjöra vanvirðingu við mannréttindi og mannfólk
alls staðar í heiminum. Hún sýnir af sér viðurstyggð,
ógeð og hrylling að geðþótta leiðtogans,“ sagði Kerry
að lokum. Allsherjarráð Sameinuðu þjóðanna hefur
lagt til að ákæra ríkið fyrir mannréttindabrot en lík-
legt þykir að Kínverjar beiti neitunarvaldi gegn slíkri
kæru. - þea
Bandaríkjamenn og Kínverjar ræða samstarf gegn kjarnorkuvæðingu:
Herða aðgerðir gegn N-Kóreu
HARÐORÐUR John Kerry sparaði ekki stóru orðin er hann
ræddi um Norður-Kóreu. NORDICPHOTOS/AFP
REYKJAVÍK „Við höfum verið að
leggja skýrari línur en áður varð-
andi þessa hluti. Við höfum verið
að gefa út fyrirmæli um það
hvernig við viljum hafa þetta,“
segir Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri í ljósi umræðu síðustu daga
um akstur hópbifreiða um íbúðar-
götur í miðbænum.
Lögregla getur ekkert aðhafst
vegna aksturs hópbifreiða í íbúða-
hverfum þar sem engin lög banna
slíkan akstur. Engin lög eru til um
akstur hópbifreiða í íbúðahverfum
en borgin getur sett reglur með
samþykki lögreglustjóra. „Lög-
reglustjóri fær tillögur frá Reykja-
víkurborg og getur þá bannað
slíka umferð,“ segir Dagur sem
telur að grípa þurfi til aðgerða.
„Það er alveg möguleiki að það
þurfi að skoða lagasetningu ef ekk-
ert annað gengur. Ég tel aðalatrið-
ið vera að reglurnar séu skýrar
þannig að allir geti lifað í sátt og
samlyndi.“ Dagur kveðst þó von-
góður um að málið leysist með
góðu samstarfi.
Varaformaður Samtaka ferða-
þjónustunnar, Þórir Garðarsson,
sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 í
gær að lausnin fælist í aukinni
samvinnu milli ferðaþjónustunn-
ar og Reykjavíkurborgar.
„Við hjá borginni munum grípa
til frekari aðgerða, það er engin
spurning. Ég mun taka þetta mál
upp á næsta reglulega fundi með
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
um næstu mánaðamót og á von á
góðu samstarfi,“ segir Dagur sem
telur ástandið alvarlegt. Þá standi
einnig yfir fundarhöld með fulltrú-
um ferðaþjónustunnar.
„Atburðir síðastliðinnar helgar
sprengdu mælinn að mínu mati,“
segir Hjálmar Sveinsson, for-
maður umhverfis- og skipulags-
ráðs Reykjavíkurborgar. „Í dag
hitti ég framkvæmdastjóra Sam-
taka ferðaþjónustunnar á fundi
og vorum við sammála um að það
þurfi aðgengilegri reglur,“ segir
hann og telur að hugsanlega þurfi
að herða reglurnar um akstur hóp-
bifreiða.
Hjálmar telur vandann felast
í að samþykktir sem settar hafi
verið séu ekki nægilega aðgengi-
legar.
„Þær eru skýrar en það þarf
meðal annars að kynna reglurnar
fyrir hóteleigendum,“ segir Hjálm-
ar, en umhverfis- og skipulagsráð
fjallar um málið á fundi í vikunni.
„Aukið álag fylgir fjölgun ferða-
manna og við hjá borginni verðum
að passa að rúturnar trufli ekki
um of í íbúðahverfunum,“ segir
Dagur. nadine@frettabladid.is
Útilokar ekki að
breyta þurfi lögum
Borgarstjóri og formaður umhverfis- og skipulagsnefndar segja að setja verði
skýrari og aðgengilegri reglur um akstur hópbifreiða um götur miðbæjarins. Báðir
segja að þeir að borgin muni grípa til aðgerða og eru bjartsýnir á að málið leysist.
ÞRENGSL Í ÞINGHOLTUNUM Engin lög eru til um akstur hópbifreiða í íbúðahverf-
um. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DAGUR B.
EGGERTSSON
HJÁLMAR
SVEINSSON
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
E
-4
9
9
C
1
7
5
E
-4
8
6
0
1
7
5
E
-4
7
2
4
1
7
5
E
-4
5
E
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
5
6
s
_
1
8
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K