Morgunblaðið - 11.06.2015, Page 1

Morgunblaðið - 11.06.2015, Page 1
F I M M T U D A G U R 1 1. J Ú N Í 2 0 1 5 Stofnað 1913  135. tölublað  103. árgangur  FRÆÐSLA UM SEXTING OG HRELLIKLÁM FOCUS KOMIN TIL ÍSLANDS SPENNA AÐ AUKAST Í HAGKERFINU TVENNIR TÓNLEIKAR 33 VIÐSKIPTAMOGGINNHUGSJÓNIR ÞÓRDÍSAR ELVU 10 Síðustu ár hafa steinvörður sprottið upp víða í nágrenni Þing- valla og skipta þær nú hundruðum, ef ekki þúsundum. Að sögn Ólafs Arnar Haraldssonar þjóðgarðsvarðar eru vörðurnar að mestu utan þjóðgarðsmarka en teygja sig líka inn í garðinn. „Fólk hefur stansað á útsýnisstöðum og þarna hleður það vörður. Þessi ósiður smitast inn í þjóðgarðinn og við höfum töluverðan starfa við það að fella niður misstórar grjóthrúgur,“ segir Ólafur, en vörðugerð er ekki leyfð innan marka þjóðgarðsins. Hann bætir við að töluvert beri á því að hlaðið sé ofan á fornar vörður innan þjóðgarðsmarka. „Fornu vörðurnar eru auðvitað hluti af sögulegu menningarlandslagi Þingvalla,“ segir Ólafur. Viðbætur við þær séu ekki leyfilegar og merkingar séu á Þingvöllum þess efnis. Töluvert hefur borið á nýjum vörðuhleðslum víða um land með stórauknum straumi ferðamanna. Ferðamenn skilja eftir sig minnisvarða í Þingvallaþjóðgarði Morgunblaðið/Árni Sæberg  Tugir útlends göngufólks sem hafði bókað sig í gönguferðir um Laugaveginn í næstu viku, frá Landmannalaug- um niður í Þórs- mörk, gætu þurft að ganga að sunnanverðu ef ástand breytist ekki. Ferðaskipuleggjendur segja þetta líklega snjóþyngsta vorið í seinni tíð en vegurinn í Land- mannalaugar er enn lokaður, mikill snjór er á gönguleiðinni og kuldi í veðurkortunum. »6 Ófærð á vegi á með- an fjöldi er á leið í Laugavegsferðir Ganga Kuldalegt er á Laugaveginum.  Keppnisleið hjólreiðakeppninnar WOW Cyclothon, sem haldin verður 23.-26. júní, hefur verið breytt til að valda ekki umferðaröngþveiti og mun keppnin hefjast í Laugardal og enda á Krýsuvíkurvegi í Valla- hverfinu í Hafnarfirði. Þátttak- endur eru um 1.100 talsins. Í keppninni er hjólað hringinn í kringum landið, rúma 1.300 kíló- metra, og hefur samráð verið haft við Vegagerðina og lögregluna varðandi skipulag keppninnar til að valda ekki umferðaröngþveiti á fjölförnum leiðum. »4 Breyttu keppnisleið WOW Cyclothon Benedikt Bóas Hjörtur J. Guðmundsson „Við þurfum að velta því mjög alvar- lega fyrir okkur hvort það séu ein- hverjar líkur á að samningar geti náðst eftir níu vikna verkfall,“ sagði Bjarni Benediktsson fjármálaráð- herra í gærkvöldi þegar hann var spurður hvort sett yrðu lög á kjara- deilu BHM við ríkið. Ríkissáttasemjari sleit viðræðum skömmu fyrir klukkan 22 í gær eftir 13 klukkustunda viðræður í húsa- kynnum ríkissáttasemjara. „Það er kjarnaatriði í þessari deilu að það er verið að óska eftir kjarabótum sem eru talsvert umfram það sem almenni markaðurinn hefur samið um,“ sagði Bjarni. Fundi í kjaradeilu hjúkrunarfræð- inga var einnig slitið í gær og hefur annar fundur ekki verið boðaður. Spurður um stöðuna í kjaradeilu þeirra segir Bjarni að þær viðræður séu mjög erfiðar. „Það er mjög erfitt þegar menn koma að samningaborð- inu með væntingar um að fá það sama og aðrir og því til viðbótar leiðrétt- ingu á uppsafnaðri skekkju undanfar- inna ára, jafnvel upp á tugi prósenta. Það einfaldlega gengur ekki upp í nú- verandi efnahagsástandi,“ segir Bjarni. Hann bendir á að ríkið hafi lagt mikið af mörkum til að reyna að leysa þá deilu. „Við höfum lagt mikið af mörkum og haft miklar áhyggjur af því verk- falli. Það vita allir að það hefur haft al- varlegar afleiðingar. Við höfum nálg- ast þær viðræður með þeim hætti að við viljum að fólk skynji að við kunn- um að meta störf þess og berum virð- ingu fyrir stétt þess og mikilvægi hennar innan heilbrigðiskerfisins.“ Sátu undir hótunum Þórunn Sveinbjarnardóttir, for- maður BHM, var allt annað en sátt þegar fundi var slitið. „Við sátum fund undir hótunum um lagasetningu. Það hefur verið sagt skýrt af ráðamönnum að það verði að binda enda á þessar verkfallsaðgerðir með lögum. Auðvitað óttumst við það. En ég segi það sama og ég hef áður sagt, það væri versta hugsanlega niðurstaðan,“ sagði Þórunn. Frá árinu 1985 hafa verið sett 15 lög á verkfallsaðgerðir, þar af þrisvar á árinu 2014. Viðræður BHM og rík- isins hófust í desember 2014. Núna, sex mánuðum síðar, er enn himinn og haf á milli og því var viðræðum slitið af ríkissáttasemjara og enginn fundur boðaður. „Við höfum allan þennan tíma verið reiðubúin að semja, unnið mikla vinnu, lagt okkur fram að reyna að ná samningum en það hefur varla þokast hinum megin við borðið,“ sagði Þórunn. „Lög eru versta niðurstaðan“  Fundi BHM slitið af ríkissáttasemjara  Lög yfirvofandi Bjarni Benediktsson Þórunn Sveinbjarnardóttir Beint stöðugleikaframlag Lands- bankans (LBI) nemur um 9% af heildarframlaginu sem ríkissjóður tekur við þegar höftum verður aflétt af slitabúum föllnu bankanna. Kröfu- hafar Glitnis greiða tæp 60% og kröfuhafar Kaupþings um 31%. Í tillögu lykilhóps kröfuhafa LBI sem afhent var fjármálaráðherra í upphafi vikunnar kemur fram að hið lága framlag skýrist af því að kröfu- hafar LBI hafi lagt töluvert af mörk- um með samkomulagi við stjórnvöld á síðasta ári. Það fól meðal annars í sér hagstæðari endurgreiðsluáætlun á hinu svokallaða Landsbankabréfi, sem dregur úr gjaldeyriskaupaþörf Landsbankans á næstu árum. Sam- komulagið fól auk þess í sér að veitt- ur var 37% afsláttur af gengi krónu gagnvart evru við útgreiðslu fjár- muna til forgangskröfuhafa. »Viðskiptamogginn Minnst frá LBI  Greiða mishátt stöðugleikaframlag

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.