Morgunblaðið - 11.06.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2015
Fjármálaráðherra segir í samtalivið Morgunblaðið að bætt
staða ríkissjóðs, vegna aðgerða í
tengslum við afléttingu haftanna,
skapi svigrúm fyrir áframhaldandi
skattalækkanir en þær þurfi að
tímasetja mjög vel.
Eftir heilt kjör-tímabil af
skattahækkunum
vinstristjórnar er
jákvætt að rætt sé
um skattalækkanir.
Og vissulega hafa ákveðnirskattar verið lækkaðir eða
látnir renna út í tíð núverandi ríkis-
stjórnar og frekari lækkanir verið
kynntar.
Engu að síður er ljóst að vinstri-stjórnin var mun afkastameiri
í skattahækkunum en núverandi
ríkisstjórn í skattalækkunum.
Þess vegna er enn verk að vinna.
Sjálfsagt er að tímasetja skatta-lækkanir en meginatriðið er að
eftir gegndarlausar hækkanir í
fjögur ár, vel á annað hundrað
hækkanir, er brýnast að ráðist sé í
lækkanir.
Skattahækkanir vinstristjórnar-innar voru til mikillar óþurftar
og hafa farið illa með fjárhag heim-
ila og atvinnulífs.
Þessir háu skattar eru enn tilóþurftar og þeir sem óbreyttir
standa hafa ekkert batnað þó að
skipt hafi verið um ríkisstjórn.
Skattgreiðendur eiga skilið aðlosna sem fyrst úr álögum
vinstristjórnarinnar.
Bjarni
Benediktsson
Skattgreiðendur
losni úr álögum
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 10.6., kl. 18.00
Reykjavík 9 skýjað
Bolungarvík 7 alskýjað
Akureyri 7 rigning
Nuuk 3 léttskýjað
Þórshöfn 9 þoka
Ósló 17 heiðskírt
Kaupmannahöfn 18 heiðskírt
Stokkhólmur 18 heiðskírt
Helsinki 13 heiðskírt
Lúxemborg 21 skýjað
Brussel 22 heiðskírt
Dublin 17 léttskýjað
Glasgow 20 heiðskírt
London 17 léttskýjað
París 22 heiðskírt
Amsterdam 18 léttskýjað
Hamborg 22 heiðskírt
Berlín 20 heiðskírt
Vín 25 léttskýjað
Moskva 17 heiðskírt
Algarve 20 skýjað
Madríd 23 þrumuveður
Barcelona 25 léttskýjað
Mallorca 32 léttskýjað
Róm 27 léttskýjað
Aþena 22 súld
Winnipeg 20 skýjað
Montreal 21 léttskýjað
New York 25 heiðskírt
Chicago 30 léttskýjað
Orlando 29 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
11. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:02 23:54
ÍSAFJÖRÐUR 1:33 25:33
SIGLUFJÖRÐUR 1:16 25:16
DJÚPIVOGUR 2:19 23:36
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
,,Með þessu erum við að styrkja
farmsvæðin til lengri tíma litið,“
segir Gísli Gíslason, hafnarstjóri
Faxaflóahafna. Fyrir dyrum stend-
ur stórverkefni við stækkun í
Sundahöfn á næstu þremur árum
með gerð hafnarbakka utan Klepps.
Fyrstu framkvæmdir við jarð-
vegsvinnu, efnisöflun, grjótvörn
o.fl. hafa þegar verið auglýstar í út-
boði á vegum Verkís en meiri þungi
kemst í framkvæmdirnar á næsta
ári, að sögn Gísla. ,,Við erum enn í
forleiknum og verður annað svipað
útboð haldið í haust en ekki hefur
verið tímasett hvenær verkið sjálft
verður boðið út. Það gæti orðið
undir áramót,“ segir hann.
400 metra viðlegubakki
„Þetta verkefni mun taka um
þrjú ár og verður örugglega byrjað
á bakkagerðinni á næsta ári. Um er
að ræða 400 metra viðlegubakka,
sem kemur í stað gamla Klepps-
bakka. Þarna munum við geta tekið
á móti djúpristari skipum en í dag,“
segir Gísli. Hann bendir á að
Kleppsbakki sé kominn til ára sinna
og því sé þessi framkvæmd nauð-
synleg en meginástæðan sé þó sú
að Faxaflóahafnir séu að búa sig
undir að geta á næstu árum og ára-
tugum tekið á móti næstu kynslóð-
um vöruflutningaskipa með auknu
dýpi við höfnina.
Á að geta dugað næstu 60 árin
Verkefninu á að ljúka á árinu
2018 og segir Gísli að viðlegumann-
virkin eigi að geta dugað næstu 60
árin. Menn hugsi í 50 til 100 ára
tímaskeiðum þegar unnið sé að þró-
un hafnarsvæða og hafnarbakka.
Gísli segir að skemmtiferðaskipin
risti ekki eins djúpt og stór vöru-
flutningaskip. Eftir samtöl við sér-
fróða menn í skipaflutningum sjái
menn fram á að á næstu árum muni
koma fram stærri og burðarmeiri
skip sem verði með meiri djúpristu.
Í dag yrði ekki hægt að taka á móti
svo stórum skipum á farmsvæðum
Eimskipa og Samskipa að sögn
Gísla.
Kostar 2 til 2½ milljarð
Framkvæmdirnar eru með
stærri verkefnum sem Faxaflóa-
hafnir hafa staðið fyrir á síðari ár-
um og er áætlaður kostnaður á
bilinu tveir til tveir og hálfur millj-
arður króna.
Stækkun Sundahafnar
Heimild: Faxaflóahafnir
Hafnarbakki utan Klepps. Verktími 2015-2018.
Undirbúa framkvæmdir
við stækkun í Sundahöfn
Geta tekið á móti djúpristari flutningaskipum í framtíðinni
Morgunblaðið/RAX
Þörf á stækkun Skemmtiferða- og vöruflutningaskip liggja við Klepps-
bakka í Sundahöfn. Nýr 400 metra viðlegubakki kemur í stað Kleppsbakka.
„Við erum með þessu að þétta rað-
irnar og sameinast um bætt skipulag
sérnámskennslu í heimilislækn-
ingum,“ segir Ófeigur Tryggvi Þor-
geirsson, framkvæmdastjóri þróun-
arsviðs hjá Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.
Í endurnýjuðu samkomulagi
Landspítala (LSH) og Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins er kveðið
skýrar á um skipulag kennslunnar.
Er með því leitast við að styrkja enn
frekar við sérnám í heimilislækn-
ingum sem samfellds námstíma á
heilsugæslustöðvum og LSH.
Að sögn Ófeigs Tryggva er með
samkomulaginu meðal annars komið
á auknu samráði og umsjón með
námi og kennslu sérnámslækna í
heimilislækningum innan LSH.
„Þetta er mjög mikilvægt fyrir bæði
okkur og spítalann,“ segir hann.
Fram kemur í tilkynningu vegna
samkomulagsins að skipaðir verða
umsjónarlæknar, einn frá hvorum
aðila, sem sameiginlega munu bera
ábyrgð á kennslu og námi sérnáms-
lækna innan LSH. Er þeim ætlað að
vinna náið með sérnámslæknum,
mentorum, kennslustjóra og fleirum
innan LSH. Í sumar hefst svo vinna
við að móta nánar starfshlutverk
þessara lykilaðila sem m.a. á að
treysta mjög stöðu sérnámslækna í
heimilislækningum innan LSH.
Morgunblaðið/Eggert
Læknir Heilsugæslan er mikilvæg.
Bæta fyr-
irkomulag
kennslu
LSH og heilsu-
gæslan þétta raðir