Morgunblaðið - 11.06.2015, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2015
Samkaupum Strax í Kórahverfi hef-
ur verið lokað og verður húsnæðið
nýtt fyrir nýja Nettóverslun sem
verður opnuð í lok mánaðar. Rým-
inu verður breytt og verslunin verð-
ur heldur stærri en Samkaupaversl-
unin.
Um ástæður þessa breytinga segir
Ómar Valdimarsson, fram-
kvæmdastjóri Samkaupa, að Nettó
sé einfaldlega sterkara merki en
Samkaup. „Nettó er sterkara merki.
Það er nóg af verslunum þarna og
nóg af samkeppni. Við erum að
koma til móts við unga neytendur
með nýrri og glæsilegri verslun,“
segir Ómar. Aðspurður hvort erfitt
sé að reka matvöruverslanir sem
ekki eru lágvöruverslanir segir Óm-
ar verslunarrekstur alltaf vera
áskorun. „Það er eiginlega sama
hvernig búð þú ert með, það er alltaf
áskorun að reka verslanir. Það sem
við höfum verið að fylgjast með er
að fylgja þróun í nágrannalönd-
unum og í Bandaríkjunum, þar eru
menn að draga sig út úr stórversl-
unum og verslun er að færast aftur
nær íbúunum og inn í hverfin. Það
er kannski sú þróun sem við erum að
svara þarna í Kópavoginum. Kúnn-
inn vill hafa búðirnar nær, fara oftar
í búðir og gera minni innkaup
hverju sinni,“ segir Ómar.
Nettó í stað
Samkaupa
Merki Nettó sterk-
ara en Samkaupa
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
Í sumar verða sett upp fræðsluskilti
í Öskjuhlíð í Reykjavík sem fjalla
um stríðsminjar með áherslu á
minjar sem tengjast flugsögunni.
Menningar- og ferðamálaráð
Reykjavíkurborgar samþykkti
verkefnið einróma í vikunni.
Verkefnið er unnið af starfshópi
um menningarmerkingar sem vinn-
ur í samvinnu við Isavia. Tillagan
að stríðsminjaskiltunum kom fram
á samráðsvefnum Betri Reykjavík,
þar sem íbúar geta lagt til hug-
myndir að umbótum á borginni.
Helstu áhersluatriði skiltanna
eru mörg; Reykjavíkurflugvöllur
og saga hans, enda var hann upp-
runalega byggður af breska hern-
um, eldsneytistankarnir og gryfjan
sem þeim fylgir, rafstöðin og ýmiss
konar varnarviðbúnaður, t.d. vél-
byssuvígi, koma við sögu. Jafn-
framt er áætlað að setja upp skilti á
fjórum stöðum í Öskjuhlíð þar sem
stríðssagan er sögð með áherslu á
mannlíf. Uppsetning þeirra skilta
er áætluð í október eða nóvember
2016. Einnig verður gerður göngu-
stígur upp frá Litluhlíð og hugað að
bekkjum og tengslum skilta við án-
ingarstaði í hlíðinni.
Stefán Benediktsson, fulltrúi
Samfylkingarinnar í menningar- og
ferðamálaráði Reykjavíkurborgar,
segir eftirspurn hafa verið eftir
merkingum stríðsminja í Öskjuhlíð-
inni. Þá hafi fólk verið að spyrja um
sögu einstakra minja og því sé lagt í
þetta verkefni.
Reisa skilti um stríðsminjar
Mynd/Sigurður Bogi Sævarsson
Saga Margir hafa áhuga á stríðsminjunum í Öskjuhlíð, t.d. vélbyssuvígjum.
Skiltin verða sett upp í Öskjuhlíð í samstarfi við Isavia
Engin ákvörðun
hefur verið tekin
um hvort fjárhæð
atvinnuleysisbóta
verður hækkuð til
samræmis við
launahækkanir í
þeim kjarasamn-
ingum sem skrif-
að hefur verið
undir. Gissur
Pétursson, for-
stjóri Vinnumálastofnunar, segir að-
spurður að ekki hafi verið föst regla í
gegnum tíðina að atvinnuleysis-
bætur hækki í kjölfar kjarasamn-
inga ,,en það er gjarnan tekið tillit til
einhverra verðlagshækkana á milli
ára“, segir hann. Á árum áður voru
grunnbæturnar bundnar við ákveð-
inn taxta fiskvinnslufólks. ,,Það er
það ekki lengur og er þetta metið
hverju sinni. Ég hef ekki átt samtöl
við ráðuneytið um hvort þetta stend-
ur til.“ omfr@mbl.is
Engin ákvörð-
un um hækk-
un bótanna
Gissur Pétursson
LEIÐRÉTT
Synti frá Drangey
Vegna myndatexta í blaðinu í gær
með umfjöllun um tónlistarhátíðina
Drangey Music Festival skal það
leiðrétt að Grettir gamli Ásmund-
arson synti úr Drangey að Reykja-
strönd, en ekki öfugt. Beðist er vel-
virðingar á rangherminu.