Morgunblaðið - 11.06.2015, Page 11
Morgunblaðið/Golli
Vitundarvakning Þórdís Elva segir ríka þörf á vitundarvakningu og að vel upplýstir foreldrar séu besta forvörnin.
um hætti, laumuðust kannski á
sama aldri til að krota nafn kær-
ustunnar eða kærastans á klósett-
vegg og þvíumlíkt.“
Langflestir unglingar eiga
snjallsíma og geta tekið myndir
hvar sem er, hvenær sem er og af
hverju sem er. Þórdís Elva segir
símana tvímælalaust mesta
áhættuþáttinn. „Margir foreldrar
eiga erfitt með að setja börnum
sínum mörk varðandi samfélags-
miðla, t.d. Snapchat og Instagam,
sem eru með 13 ára aldurs-
takmark. Á fyrirlestrunum kynni
ég fyrir þeim lista með spurn-
ingum til að auðvelda þeim að
ræða við börnin um sexting og
hrelliklám. Í byrjun er best að
ræða á almennu nótunum við ung-
linga um hugtök eins og sexting og
fikra sig síðan inn í reynsluheim
þeirra. Næg er þörfin því 75%
krakka á aldrinum 12 til 15 ára
sem ég hef frætt höfðu verið beðin
um nektarmyndir eða þekktu jafn-
aldra sem höfðu verið beðnir um
slíkar myndir.“
Fölsk öryggiskennd
Þótt foreldrum gangi gott eitt
til og reyni sitt besta, segir Þórdís
Elva þá alls ekki vera nægilega
upplýsta um afleiðingar myndbirt-
inga í netinu. „Oft sló þögn á hóp-
ana þegar ég dró upp raunsæja en
myrkra mynd af veruleikanum.
Ekkert foreldri vill að barnið
þeirra lendi berrassað á netinu,“
segir Þórdís Elva og bendir á að
hafa skuli varann á forritum sem
bjóði upp á falska öryggiskennd.
Fyrrnefnt Snapchat leyfi not-
endum til dæmis að senda mynd
eða myndskeið sem virðist gufa
upp innan 10 sekúndna en í raun-
inni sé mjög auðvelt að afrita
skilaboðin.
Þórunn Elva segir að hún hafi
næstum fengið áfall þegar hún leit-
aði heimilda fyrir fræðsluerindin
og las um þann breytta heim sem
börn og unglingar alast upp í.
„Þau eru alltaf með farsíma, alltaf
nettengd og engin leið fyrir for-
eldra að vera yfir öxlunum á þeim
allan sólarhringinn. Hvers kyns sí-
ur eru gagnlegar en aðallega þurf-
um við að byggja síur inn í höfuð
barnanna okkar þannig að þau læri
umgengnisreglur, fái siðferðisvið-
mið um hvernig eigi að koma fram
við aðra og hvaða afleiðingar hegð-
un þeirra getur haft á netinu. Það
stendur upp á okkur sem fullorðin
erum að aðlaga okkur og ná tökum
á þessum nýja veruleika, setja
okkur inn í vandamál sem börnin
okkar glíma við til þess að geta
hjálpað þeim að fóta sig í þeim
frumskógi sem netið og smáfor-
ritin eru. Slíkt forvarnarstarf er
affarsælast innan veggja heim-
ilanna.“
Þótt núorðið ætti flestum að
vera ljóst að það sem einu sinni fer
á netið verður ekki aftur tekið seg-
ir Þórdís Elva að oft séu ákvarð-
anir um nektarmyndir teknir í hita
leiksins.
Nýmóðins kynfræðsla
„Mér dettur ekki í hug að
ljúga því að börnum að þeim sé
bannað um aldur og ævi að taka af
sér nektarmyndir eða myndir sem
sýna hold, enda ráða þau því sjálf
þegar þau verða 18 ára. Rétt eins
og kynfræðslu er háttað ganga fyr-
irlestrar mínir ekki út á að banna
kynlíf, heldur að fólk viti hvað það
er að fara út í og geti tekið örugg-
ar og upplýstar ákvarðanir,“ segir
Þórdís Elva. „Ég segi stundum að
fyrirlestrar mínir séu nýmóðins
kynfræðsla vegna þess að sam-
skipti kynjanna fara mikið fram í
gegnum öpp og netmiðla. Við verð-
um að geta kynfrætt unglingana
um þann þátt heimsins til að fyr-
irbyggja að þau fari sér að voða
þar rétt eins og í svefnherberginu
í raunheimum,“ bætir hún við.
Þar sem nektarmyndatökur og
-sendingar eru orðin liður í kyn-
hegðun ungs fólks telur Þórdís
Elva að margir, sérstaklega stúlk-
ur, alist upp við þá þöglu og allt-
umlykjandi ógn að myndirnar fari
á flakk um netið. „Stundum þarf
ekki mikið til að slettist upp á vin-
skapinn þegar búið er að skiptast
á nektarmyndum,“ segir hún. Í
fyrirlestrum sínum segist hún hafa
lagt ríka áherslu á að þeir sem
brjóti trúnað og dreifi viðkvæmum
myndum og efni á netið séu hinir
raunverulegu gerendur, sem eigi
að axla ábyrgðina og sitja uppi
með skömmina.
Brjóstabyltingin til höfuðs
hrelliklámi
Henni finnst brjóstabyltingin,
Free The Nipple, þegar konur
streymdu berbrjósta út á götur og
birtu um tólf þúsund íslenskar
brjóstamyndir á netinu, fyrst og
fremst hafa snúist um að vísa
skömminni þangað sem hún átti
heima og sýna þolendum hrellik-
láms samstöðu.
„Ég var stödd fyrir norðan
með fimm fyrirlestra daginn sem
brjóstabyltingin reið yfir í lok
mars. Foreldrarnir urðu margir
hverjir hálf ráðvilltir og sumum
gramdist svolítið, enda kannski ný-
búnir að útlista fyrir börnum sín-
um að það væri ekki það skyn-
samlegasta sem maður gerði að
birta slíkar myndir á netinu.“
Þórdís Elva hefur fullan skiln-
ing á því úr hvaða jarðvegi
brjóstabyltingin er sprottin; ungar
konur vilji taka málin í sínar hend-
ur, gera mögulegar nektarmyndir
af þeim á netinu að bitlausu vopni,
sem ekki sé hægt að nota til að
níða þær og niðurlægja.
„Mín lokaorð í fyrirlestrunum
eru tilmæli til þeirra foreldra sem
hugsanlega hafa eða eiga eftir að
hafa með mannaráðningar að gera
að láta leitarniðurstöður á Google
ekki hafa áhrif á stöðu umsækj-
anda. Margar sögur geta búið að
baki nektarmyndum á klámsíðum,
algengastar eru trúnaðarbrestur
og svik eða að myndirnar séu bein-
línis falsaðar, en sumir hafa gert
sér að leik að setja annað andlit á
búk klámmyndaleikkonu. Eina
leiðin til að slá vopnin úr höndum
spellvirkjanna er að leyfa þeim
ekki að hafa áhrif og svipta þol-
endur tækifærum í lífinu. Barátt-
unni gegn netníðingum er ekki lok-
ið,“ segir Þórdís Elva og ætlar
ekki að láta sitt eftir liggja. Hún
hefur ýmislegt á prjónunum og
fleiri fyrirlestrar eru á döfinni.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2015
TWIN LIGHT GARDÍNUR
Láttu sólina ekki
trufla þig í sumar
Betri birtustjórnun
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Hringdu og bókaðu tíma í máltöku
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. Sími: 588 5900 ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík. Sími: 421 2061
Glerárgötu 32, Akureyri. Sími: 462 5900 ▪ alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán.-fös. 10-18
Meira úrval
Meiri gæði
Íslensk
framleiðsla
eftir máli
Í Tékkheftinu eru ýmis dæmi um
hvernig skuldir í vanskilum geta
hækkað. Tíu mánaða vanskil á síma-
reikningi, sem upphaflega var 8.530
kr. verða 22.914 kr. að viðbættum
vöxtum, kostnaði kröfuhafa og inn-
heimtukostnaði.
Morgunblaðið/Eggert
Margar ástæður Allir
geta lent í því að ráða
ekki við fjárhags-
skuldbindingar sínar.
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir er
leikkona, leikskáld og rithöf-
undur, fædd árið 1980. Hún hefur
undanfarin ár starfað mikið að
fræðslu- og forvarnarmálum. Bók
hennar, Á mannamáli, kom út
2009 og fjallar um kynbundið of-
beldi. Bókin var tilnefnd til Ís-
lensku bókmenntaverðlaunanna
það ár og þótti varpa nýju ljósi á
þetta hljóðláta samfélagsmein. Á
sviði leikritunar liggja m.a. eftir
Þórdísi verkin Brotið, Hungur og
Fýsn.
Þórdís Elva hefur leikið aðal-
og aukahlutverk í sjónvarpsþátt-
um og bíómyndum. Nýverið skrif-
aði hún handrit að tveimur verð-
launuðum fræðslumyndum um
kynferðismál, annars vegar
myndinni Stattu með þér fyrir
10-12 ára börn og hins vegar
Fáðu já fyrir 13-15 ára unglinga.
Vitundarvakning, samstarfsverk-
efni á vegum þriggja ráðuneyta,
fjármagnaði báðar myndirnar.
95% allra 15 ára unglinga á land-
inu sáu síðarnefndu myndina og
samkvæmt viðhorfskönnun með-
al þeirra sögðust 70% þeirra
skilja betur muninn á kynlífi og
klámi og vera betur í stakk búnir
til að tala um kynferðismál, sam-
þykki og mörk við bólfélaga sína
í framtíðinni.
„Þótt myndin hafi unnið til
verðlauna þótti mér vænst um að
heyra að svona mörg börn töldu
myndina hafa breytt hugarfari
sínu,“ segir hugsjónakonan.
Hugsjónakona
ÞÓRDÍS ELVA ÞORVALDSDÓTTIR
Sexting
Sexting er enskt orð sem
samanstendur af orðunum
„sexual“ og „texting“. Um er
að ræða kynferðisleg smá-
skilaboð, oft ljósmyndir, sem
sýna nekt eða eru með kyn-
ferðislegum undirtóni. Skila-
boðin eru yfirleitt ætluð einni
manneskju, þótt raunin sé sú
að sexting myndir fari í mörg-
um tilvikum á flakk.
Hrelliklám
Hrelliklám, eða hefndar-
klám, er ljós- eða hreyfimyndir
sem sýna nekt og eru settar í
dreifingu á netinu án sam-
þykkis þess sem sést á mynd-
unum. Sumar hrelliklámmyndir
eru settar á netið af ein-
staklingi í hefndarhug, t.d.
fyrrverandi maka. Sumar
myndir eru afleiðing kúgunar,
sumar eru falsaðar og búnar til
í myndvinnsluforritum, aðrar
fara í dreifingu á netinu eftir
að hafa verið stolið. Hver sem
uppruninn er brýtur hrelliklám
gegn friðhelgi og er gróf innrás
í einkalíf þess sem fyrir því
verður.