Morgunblaðið - 11.06.2015, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 11.06.2015, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2015 BAKSVIÐS Bjarni Steinar Ottósson bso@mbl.is Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófasts- dæma (KGRP) og formaður Kirkju- garðasambands Íslands, telur stöðu garðanna alvarlega þar sem ekki sé hægt að sinna sumarviðhaldi garð- anna eins og skyldi. Grípa þurfti til þess að ganga á eftirlaunasjóð, 65 milljónir króna, til þess að sinna við- haldi og endurnýja nauðsynlegan tækjabúnað. Ekki voru gerðar at- hugasemdir við það í ársreikningi. KGRP rekur kirkjugarðana við Suð- urgötu, í Fossvogi, Kópavogi og Gufunesi auk smærri verkefna. Ár- lega eru um 1.000-1.100 manns lagðir til hinstu hvílu í görðum KGRP og vex sá fjöldi ár frá ári. Ríkið lagði KGRP til rúmar 500 milljónir kr. á síðasta rekstrarári skv. ársreikningi frá apríl síðastliðnum. Þar af dragast um 50 milljónir kr. sem framlag í Kirkjugarðasjóð, eins konar jöfnunarsjóð kirkjugarða. Þór- steinn telur þetta framlag þurfa að vera 30-40% hærra, eða sem nemur 150-200 milljónum króna. Framlög hafi farið þverrandi að teknu tilliti til verðbólgu frá bankahruni og var KGRP rekið með 36,1 milljónar kr. tapi á síðasta ári. Garðarnir hafi þurft að draga saman seglin hvað varðar viðhald og þjónustu, fyrir hrun voru um 165 manns ráðnir þar til sumar- starfa en nú eru þeir um 110. Garð- arnir hafi þó stækkað á þessum tíma þar sem ný svæði hafi verið tekin í nýtingu. Að mati Þórsteins þyrfti um 180 starfsmenn svo sinna mætti al- mennilega viðhaldi þeirra 90 hektara sem garðarnir spanna. Þjónustuskerðing að óbreyttu Spurður hvort ekki þurfi eitthvað undan að láta ef rekstrarforsendur breytist ekki segir Þórsteinn svo vera. Skert sumarviðhald sé þegar raunin en á endanum verði að tak- marka starfsemina við lögbundin verkefni. Þar nefnir Þórsteinn til dæmis kapellu og líkhús sem KGRP rekur en hefur ekki getað haft tekjur af og yrði líklega það fyrsta sem yrði lagt af ef nauðsyn krefur. Þar sé um að ræða þjónustu sem kirkjugörðum er heimilt en ekki skylt að veita, en flestar útfararstofur á svæðinu nýta sér líkhúsið. Innanríkisráðuneytinu hafi margsinnis verið gert viðvart um þessa stöðu en engin viðbrögð hafi fengist þaðan. Breyttur veruleiki kirkjugarða Þórsteinn segir svipaðar aðstæður að finna í kirkjugörðum um land allt. Tíðkast hafi t.d. að gröfumenn og aðrir sem starfi við garðana gefi vinnu sína alfarið eða starfi á óeðlilega lágum taxta. Mönn- um hlaupi blóðið til skyldunnar að þessum málum sé vel sinnt en garðarnir geti bæði ekki gengið að þessu vísu og þróun- in sé í áttina frá þessu. Fjár- framlög þurfi að mæta þessum að- stæðum og taka viðmið af kostn- aðaraukningu garðanna. Fjársvelti plagar kirkjugarða  Viðvarandi rekstrarhalli hefur heft starfsemi Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma  Færri sumarstarfsmenn og styttri starfstími til viðhalds  Gætu þurft að loka líkhúsinu í Fossvogi Morgunblaðið/Jim Smart Kirkjugarðar Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri KGRP, segir ekki hægt að sinna viðhaldi kirkjugarðanna. Bálfarir og duftgreftranir hafa færst mjög í vöxt. Sérstakir duftreitir eru nú starfræktir í þremur kirkjugörðum KGRP: í Gufunesi, Kópavogi og Foss- vogi. Duftgreftranir taka minna pláss en kistugrafir, en sex duftgrafir komast á sama skika og ein kistugröf. Þórsteinn seg- ir þó óverulegan sparnað felast í þessari þróun í krónum talið þar sem kostnaður sé mikið til fastur, m.t.t. til þess að stærsti hluti landsins sé eldri grafir. Ein bálstofa er hér á landi og hún er í Fossvogskirkjugarði. Þar þjónar enn sænskur IFÖ- líkbrennsluofn frá árinu 1948 en til hefur staðið að flytja starfsemina í Gufunes og kaupa þá nýjan ofn. Ofninn sem nú er í notkun er illa búinn hreinsibún- aði og myndi ekki uppfylla strangari kröfur um mengunarvarnir. Nýjum kirkjugarði hefur verið fundið stæði viðÚlfars- fell og er vonast til að fram- kvæmdir þar hefjist á næsta ári, en 6-8 ár tekur að standsetja jarðveg fyrir nýjan kirkjugarð. Bálfarir tíðar í borginni 67 ÁRA GAMALL OFN Þórsteinn Ragnarsson Baldur Arnarson baldura@mbl.is Már Guðmundsson seðlabankastjóri segist aðspurður ekki hafa komið að jafn umfangsmiklu verkefni og gerð áætlunarinnar um afnám hafta. Þetta verkefni sé ekki líkt neinu sem hann eða samstarfsmenn hans í Seðlabankanum hafi reynslu af. „Í fyrsta lagi hafa ekki marga þjóðir sem haft fjármagnshöft á seinni árum. Í öðru lagi er umfangið hér nánast fordæmalaust enda er verið að gera upp þriðja stærsta gjaldþrot í sögu mannkynsins innan eins minnsta ríkis Evrópu. Það blandast saman við okkar greiðslu- jöfnuð og okkar litla gjaldmiðil. Það hefur alla tíð legið fyrir að á sama hátt og vandinn er fordæma- laus yrðu aðgerðirnar að einhverju leyti að vera fordæmalausar líka, þótt reynt sé eftir megni að standa við alþjóðlegar skuldbindingar, og það verður gert. Það er því erfitt að finna hliðstæðu,“ segir Már og ber verkið saman við alþjóðlega reynslu sína. Mjög stórt í hlutfalli við landið „Ég hef komið að ýmsu sem lýtur að peningamálum, bæði hér innan- lands og erlendis. Ég hjálpaði einu sinni Kínverjunum á bak við tjöldin að breyta sveigjanleika gengisstefn- unnar hjá sér. Auðvitað var það náttúrulega stórt á sögulegan mæli- kvarða, hefur miklu meiri áhrif á heimsbúskapinn en það sem við er- um að gera hér. Það sem hér er stórt er hlutfallið við landið. Þannig að svarið er nei. Ég held að ég hafi ekki fordæmi,“ segir Már, sem var áður aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Al- þjóðagreiðslubankanum í Basel. Spurður hversu stór hluti af tíma hans hafi farið i verkefnið og hversu margir hafi komið að því innan Seðlabankans segir Már að farið hafi „feikilega mikill tími í málið“. „Svo verður áfram. Ég hef þurft að sjá af fólki sem er mjög atkvæðamikið í því að stýra bankanum almennt sem hefur þurft að draga úr því og vinna í þessu verkefni. Við erum með 16 manna gjaldeyriseftirlit. Mjög stór hluti vinnunnar hjá því fólki hefur farið í þetta verkefni. Við erum með sérstakan greiðslujafnaðarhóp þriggja sérfræðinga sem hefur unn- ið að málinu dag og nótt. Fjármála- stöðugleikasvið og hagfræðisvið okkar hafa komið mikið að verkefn- inu, til dæmis með því að móta texta og búa til útskýringar sem geta hjálpað gagnvart því að útskýra þetta erlendis. Svona gæti ég haldið áfram. Það hefur í raun farið meiri vinna í þetta hjá mér en sjálfa peningastefnuna. Ég verð því glaður að geta farið að snúa mér í meiri mæli að einhverju öðru, en það er enn mikið eftir í þessu,“ segir Már Guðmundsson. Segir haftaáætlunina fordæmalausa aðgerð  Már aðstoðaði einu sinni Kínastjórn „á bak við tjöldin“ Morgunblaðið/Golli Seðlabankastjóri Már á blaðamannafundi í Hörpu um afnám hafta. „Að sjálfsögðu skoðum við það, en eðli bréfa er þó þannig að þau eru órekjanleg,“ segir Brynjar Smári Rúnarsson, markaðsstjóri Íslands- pósts, spurður hvort Íslandspóstur rannsaki nú hvort annar póstur en sá sem fannst í vikunni í þremur pokum í Gufuneskirkjugarði hafi ekki ratað á réttan stað. Íslandspóstur vinnur nú að því að koma póstinum sem fannst í kirkju- garðinum á mánudaginn til skila. Íslandspóstur mun ekki auglýsa sérstaklega eftir ábendingum en Brynjar segir að sem betur séu við- skiptavinir Íslandspósts athugulir og duglegir við að koma ábendingum til skila. „Það er verið að bera saman ábendingar til þess að sjá hvort ein- hverjar gætu átt við málið,“ segir Brynjar en tekur þó fram að lang- stærstur hluti þess pósts sem berast hafi átt í umrædd póstnúmer á þessu tímabili hafi komist til skila. Íslandspóstur ákvað að kæra mál- ið til lögreglu, sem rannsakar nú hvernig pósturinn endaði í Gufunes- kirkjugarði og hvort að einhver frek- ari póstur hafi ekki borist móttak- endum. Viðbragðsferlar settir í gang Íslandspóstur biður alla hlutaðeig- andi afsökunar en Brynjar segir að viðbragðsferlar séu til staðar þegar svona atvik koma upp. „Starfsmannastjórinn fundaði í [gær]morgun með starfsmönnum á þessum dreifingarstöðvum og mun svo í kjölfarið funda með starfs- mönnum annarra dreifingarstöðva til þess að ítreka alvarleika málsins, en pósturinn tekur skyldur sínar mjög alvarlega,“ segir Brynjar og bætir við að þegar svona alvarleg at- vik komi upp séu verkferlar endur- skoðaðir og allt gert sem hægt er til þess að koma í veg fyrir að slíkt end- urtaki sig. Þriðja tilvikið á árinu Fyrr á árinu komu upp tvö tilvik þar sem póstberar brugðust skyld- um sínum og lágu á pósti sem þeir áttu að bera út. Að sögn Brynjars voru þau mál leyst innanhúss en ekki leitað eftir aðkomu lögreglu eins og nú hefur verið gert. Þetta er því þriðja tilvikið í ár þar sem umtalsvert magn af pósti er skilið eftir á röngum stað. Skoða hvort meiri póst vantar  Verið að bera sam- an ábendingar  Verkferlar endur- skoðaðir Valdís Þórðardóttir Póstberi að störfum Þrír pokar af pósti fundust í kirkjugarði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.