Morgunblaðið - 11.06.2015, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2015
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Hinndrengja-legi for-
sætisráðherra
Breta, David
Cameron, hefur
reynst klókari
stjórnmálamaður en margur
hugði. Óvæntur þingmeirihluti
í Bretlandi eftir síðustu kosn-
ingar þykir staðfesta það.
Flokkur breskra sjálfstæðis-
sinna, UKIP, var lengi talinn
útiloka að Cameron næði að
tryggja sér meirihluta á þingi,
enda voru flestir forystumenn
UKIP áður í Íhaldsflokknum
eða stóðu hvað næst honum í
breskum stjórnmálum. Flokkur
Nigel Farage náði í senn glæsi-
legum og ömurlegum árangri í
kosningunum í síðasta mánuði.
Flokkurinn hlaut tæp 13% at-
kvæða og varð þar með þriðji
stærsti flokkur Bretlandseyja.
Það var frábær árangur. En
flokkurinn fékk aðeins einn
þingmann kjörinn. Það var
mikil háðung. Hefðu sömu
kosningaregur gilt á Bretlandi
og á Íslandi hefði UKIP fengið
eina 80 þingmenn!
En hvernig stóð þá á því að
svo hátt atkvæðahlutfall skað-
aði ekki Íhaldsflokkinn svo
mikið að Verkamannaflokknum
tækist þess vegna að ná meiri-
hluta á þingi?
Ýmsar ástæður eru fyrir því.
Ein er sú að Verkamannaflokk-
urinn hrundi til grunna í Skot-
landi. Skoski þjóðarflokkurinn
fékk 56 menn kjörna á þingið í
London, þótt hann væri aðeins
með tæp 40 prósent af at-
kvæðastyrk UKIP. Í annan
stað gerði UKIP ekki einvörð-
ungu út á efasemdir sínar um
ágæti ESB. Flokkurinn spilaði
einnig á vaxandi undirliggjandi
andúð á vaxandi straumi inn-
flytjenda til Bretlands. Á dag-
inn kom að sú áhersla dró ýmsa
kjósendur að UKIP og þeir
komu í ríkari mæli frá hefð-
bundnum stuðningsmönnum
Verkamannaflokksins en frá
þeim sem oftast halla sér að
Íhaldsflokknum í kosningum.
En Cameron hafði einnig
sýnt klókindi í aðdraganda
kosninganna. Hann lofaði því
að fengi hann meirihluta á
þingi, sem hann bjóst alls ekki
við að fá, myndi hann efna til
þjóðaratkvæðis í landinu eigi
síðar en árið 2017. (Fyrir kosn-
ingarnar 2010 lofaði hann
þjóðaratkvæði um Lissabon-
sáttmálann en kom sér undan
því að efna það.) Þá gæfist
Bretum tækifæri til að ákveða
hvort þeir færu út úr ESB eða
yrðu þar áfram. Cameron sjálf-
ur myndi krefjast þess af öðr-
um leiðtogum ESB að Bretar
fengju til baka verulegan hluta
af þeim fullveldisrétti sem þeir
hefðu glatað til Brussel. Eftir
sigur í því kröfumáli myndi for-
sætisráðherrann, gamli ESB-
andstæðingurinn, berjast víg-
reifur fyrir áfram-
haldandi veru
Breta í ESB. At-
kvæði greitt UKIP
frá Íhaldsflokknum
gæti tryggt að sá
flokkur næði ekki
meirihluta og þá yrði engin
atkvæðagreiðsla um veruna í
ESB. Í áróðri hljómaði rök-
semdin svo að atkvæði greitt
UKIP væri ávísun á valdatöku
Milibands og útilokun þjóðar-
atkvæðis um ESB.
Cameron hefur í tvígang lof-
að mönnum þjóðaratkvæði um
mál sem hann er andvígur og
hefur sigrað í þeim báðum.
Fyrst samþykkti hann úrslita-
kost Frjálslyndra fyrir þátt-
töku í ríkisstjórn. Sá snerist
um hlutfallskosningar ein-
menningskerfis. Þegar breskir
kjósendur fengu loks tækifæri
til að velja með fullgildu at-
kvæði hvers og eins kjósanda
um kosningakerfi endurkusu
þeir glaðbeittir gamla kerfið
yfir sig. 1-0 fyrir Cameron.
Næst samþykkti hann að
Skotar einir fengju að ákveða í
almennu þjóðaratkvæði hvort
þeir slitu sambúð við ríkis-
valdið í London, að bústýrunni
í Buckingham-höll þó undan-
skilinni. Kannanir höfðu sýnt
Cameron að öllu yrði óhætt í
þjóðaratkvæði af þessu tagi.
Þegar fáeinir dagar voru til
kosninga sýndu kannanir á sér
aðra hlið. Cameron ákvað,
stífur af ótta, í samráði við
Miliband sem einnig var farinn
á taugum, að lofa Skotum öllu
fögru höfnuðu þeir sjálfstæði.
Það hafðist. 2-0 fyrir Cameron.
Og nú er þriðja atkvæða-
greiðslan ein eftir. Það lítur út
fyrir að hún verði sú þeirra
þriggja sem Cameron fari létt-
ast með.
Hann er búinn að grafa allar
þær alvörukröfur sem hann
kalsaði áður að láta Brussel-
valdið standa frammi fyrir. Að-
eins hreinar málamyndakröfur
standa eftir. Leiðtogum þeirra
ESB-landa sem ein skipta máli
í því sambandi hefur verið gert
ljóst að þeir verði að stynja,
dæsa og stórfurða sig á óbil-
gjörnum og óraunsæjum kröf-
um Breta. Það yrði svo í tólftu
lotu slagsins sem David Cass-
ius Cameron Clay kýldi alla
andstæðinga sína kalda með
óvæntum krók. Í sæluvímu sig-
ursins samþykkja Bretar að
vera í ESB um aldur og ævi og
kyngja tilskipunum þaðan
hraðar en ókeypis bjór á bar.
3-0 fyrir Cameron.
ESB-andstæðingar óttast að
þessi verði niðurstaðan.
Cameron sanni enn og aftur að
hann sé of snjall fyrir þá. Ein-
hverjir halda þó enn í þá vonar-
glætu að í þetta sinn sannist á
Cameron hið fornkveðna, að
yfirsnilld geti orðið flinkum
mönnum að falli. Slík dæmi eru
til.
Breski forsætisráð-
herrann þykir hafa
sýnt klókindi á velli
stjórnmála}
Verður hann of snjall?
Y
firskrift þessa pistils er tilvitnun í
samtal sem átti sér stað á vinnu-
stað í miðbæ Reykjavíkur þar
sem karlmaður ræddi við unga
samstarfskonu sína á vinnutíma
sem gegnir starfi þjóns. Þetta var endapunkt-
urinn á annars langri og nákvæmri grafískri
lýsingu á því hvernig hann vildi að rassar og
brjóst á konum ættu að vera með viðeigandi
skýringum á hvað væri handfylli og hvað ekki.
Hann bætti við í lokin að hann væri nú meiri
„rassamaður“ en „brjóstamaður“. Viðeigandi?
Nei. Kynferðisleg áreitni? Já.
Í nýrri rannsókn sem kynnt var í vikunni á
ráðstefnu SGS, MATVÍS og systursamtökum
á Norðurlöndum kemur fram að helmingur
kvenna hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni
í þjónustustörfum. Birtingarmynd áreitni get-
ur verið með ýmsum hætti, t.d. svipbrigði, látbragð, óvið-
eigandi athugasemdir eða snerting. Samkvæmt rann-
sókninni eru flestir á aldrinum 18-24 ára þegar áreitnin á
sér stað. Í 57% tilvika er það viðskiptavinur sem áreitir, í
31% tilvika er um samstarfsfélaga að ræða og í 25% til-
vika er yfirmaður gerandinn. Það er rétt að hrósa þeim
sem stóðu að rannsókninni fyrir framkvæmdina og
draga þar með upp á yfirborðið að því er virðist stórt
vandamál. Það getur ekki með nokkru móti þótt eðlilegt
að svo stórt hlutfall hafi orðið fyrir kynferðislegri áreitni
í störfum sínum í hótel-, veitinga- og ferðaþjónustunni.
Hverju er um að kenna? Er það samfélagið okkar sem
myndar umgjörð þar sem þetta þykir sjálf-
sagt? Viðgengst þetta af því að það er aldrei
gripið almennilega í taumana og áreitnin
stöðvuð? Er þetta uppeldi? Skólakerfið? Það
er hægt að láta sér detta ýmislegt í hug. Við
megum alls ekki að yppta öxlum og segja að
svona hafi þetta alltaf verið. Það verður að
bregðast við þessu og útrýma þessari hegðun
með öllum mögulegum ráðum. Kannski er
ráð að rannsaka næst þá sem beita áreitn-
inni?
Það má spyrja sig hvar ábyrgð atvinnurek-
enda liggur. Hvaða úrræði eru önnur en að
reka þá sem eru staðnir að því að áreita sam-
starfsfólk sitt ítrekað eða vísa viðskiptavinum
út sem þannig haga sér? Því miður er það lík-
legra að starfsmennirnir sem fyrir áreitninni
verða hætti án þess að atvinnurekandi hafi
gripið til nokkurra ráðstafana.
Stjórn norrænna samtaka starfsfólks í ferðaþjón-
ustugreinum vill auka skilning á þessu alvarlega máli og
ætlar að krefjast aðgerða af hálfu atvinnurekenda með
því meðal annars að innleiða skýra starfsmannastefnu
þar sem fram kemur hvernig skuli fyrirbyggja og með-
höndla vandamálin sem fylgja kynferðislegri áreitni á
vinnustaðnum. Ég hvet stjórnina til þess að standa við
orð sín og finna úrbætur.
Hversu lengi finnst ykkur að unga konan sem minnst
var á í upphafi pistilsins eigi að umbera áreitnina?
margret@mbl.is
Margrét Kr.
Sigurðardóttir
Pistill
„Þú ert með fullkominn rass“
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ærdauði í sauðburði ívor er útbreiddari enáður hefur verið talið.Mesta tjónið hefur
orðið á Vesturlandi en einnig eru
mörg dæmi um að ær hafi drepist í
stórum stíl á sauðfjárbúum á
Norðurlandi og Austurlandi.
Landssamtök sauðfjárbænda standa
fyrir kortlagningu á tjóninu og rann-
sókn á ástæðum þess. Þau telja unnt
að fullyrða að þúsundir kinda hafi
drepist.
Landssamtökin hafa óskað eftir
því að fjárbændur sem fyrir tjóni
hafa orðið láti samtökin vita og tí-
undi jafnframt allt sem þeir telja
hafa verið óvenjulegt í ár, svo sem
varðandi fóðrun og einkenni. Það er
liður í að kortleggja vandann og leita
að ástæðum hans.
Léleg hey á sunnan- og vestan-
verðu landinu eru nærtækasta skýr-
ingin og sú sem sérfræðingar hafa til
þessa helst hallast að. Heyin séu
orkulítil og í þau vanti ef til vill stein-
efni. Kalt vor hafi aukið á vandann.
Ekki fullnægjandi skýring
Forystumenn sauðfjárbænda
segja að tíðarfar, vanhöld eða léleg
fóðrun virðist ekki vera fullnægjandi
skýring. „Ég veit ekki hvað þetta
ætti að vera. Þegar kindur svara því
ekki þegar þeim er gefin fóður-
blanda, lýsi og þess háttar er eitt-
hvað skrítið í gangi. Íslenski fjár-
stofninn væri löngu útdauður ef
menn hefðu bara getað fóðrað á úr-
valsheyi. Bændur hafa oft átt léleg
hey en kindurnar hafa þá meðtekið
það þegar menn hafa gefið þeim
fóðurblöndur og önnur efni með. Því
er ekki að heilsa nú,“ segir Þórarinn
Ingi Pétursson, bóndi á Grund í
Grýtubakkahreppi og formaður
Landssamtaka sauðfjárbænda.
Svavar Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri samtakanna, bætir
því við að vandamálið sé ekki ein-
ungis hjá bændum sem lentu illa í
því með heyskap í fyrrasumar; bor-
ist hafi sömu fregnir frá bændum á
Norður- og Austurlandi sem hafi
náð góðum heyjum. Þá séu fyrir-
myndarbændur að lenda í þessum
vandræðum og ekki hægt að tala um
það sem vandamál búskussa. Sauð-
fjárbændur hafa átt erfitt með að
segja frá fjárdauðanum og þess
vegna hefur ekki verið tekið á mál-
inu fyrr. „Menn eru með lifandi dýr
og finnst slæmt að tala um þegar
þeir missa eitthvað. Það er lenskan
og menn hafa verið hræddir um að
fá á sig búskussa- eða vanfóðrunar-
stimpil. Almennt er það ekki þannig
nú enda brugðust menn hraustlega
við, strax í byrjun febrúar, en það
gekk ekki neitt,“ segir Þórarinn.
Margrét Katrín Guðnadóttir,
dýralæknir í Borgarnesi, sem að-
stoðar sauðfjárbændur við rann-
sóknina, tekur fram að bændur virð-
ist vera að gera allt sem í þeirra
valdi stendur til að koma í veg fyrir
að ærnar drepist. „Féð er þeirra
hjartans mál og þetta er ekki þeim
að kenna. Þeir virðast ekki ráða við
ástandið,“ segir hún.
Á mörgum bæjum hafa drepist
20-40 ær, ýmist skömmu fyrir burð
eða fljótlega eftir burð, en mörg
dæmi eru um mun meiri afföll.
Kortleggja ærdauð-
ann og leita skýringa
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Gefið úti Sauðfjárbændur trúa ekki á þá skýringu á fjárdauðanum að heyin
séu svo léleg frá síðasta sumri. Þeir telja að fleira hljóti að koma til.
Svavar
Halldórsson
Þórarinn Ingi
Pétursson
Byrjað er að
taka blóðsýni
af vanfóðr-
uðum ám.
Æskilegt er að
það sé gert áð-
ur en þeim er
hleypt út. Sýn-
in verða send
til rannsóknar í
Svíþjóð. Margrét Katrín Guðna-
dóttir dýralæknir segir að búast
megi við svörum daginn eftir að
sýnin berist til rannsóknarstof-
unnar.
Margrét vonast til að fá svör
við því hvað hrjái kindurnar.
Hún gerir sér vonir um að úr því
fáist skorið hvort skortur sé á
einhverjum efnum eða ofgnótt,
til dæmis af vítamínum eða
steinefnum. Ef ekki, þá svar um
það hvort merki séu um bólgur
og þar með sýkingar, en það
finnst henni þó ólíkleg skýring.
„Sá möguleiki er fyrir hendi að
þetta skili okkur engu. Við verð-
um þá bara að kyngja því.“
Sýni send til
Svíþjóðar
RANNSÓKN LS
Margrét Katrín
Guðnadóttir