Morgunblaðið - 11.06.2015, Page 22

Morgunblaðið - 11.06.2015, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2015 Að kveðja ætt- ingja og vin er ekki auðvelt. Ein af mín- um fyrstu minning- um er að ég fór með honum í bílferð. Plötuspilarinn spilaði Lóan er komin. Ég söng af lífs og sálarkröftum með. Mörg- um árum seinna skildi ég að svip- urinn á frændanum lýsti skelfingu því ég var alveg rammfölsk en hann sagði við mig að ég hefði ver- ið dugleg að syngja með. Hann var afar barngóður, svo mjög að flestöll börn hændust að honum. Við áttum margar stundir saman ég og frændinn. Ég studdi við hann og hann við mig. Á stundum skammaðist ég er ég taldi of mörgum stundum varið með Bakkusi. Hann tók því nú oftast vel, margar rökræðurnar fóru fram okkar á milli. Það er nefni- lega svo satt sem hann sagði: Það er ekki sama hver og hvernig maður er skammaður, Ásta. Í dag skil ég betur hvað hann átti við en áður. Já, það eru svo margar minn- ingar svo skemmtilegar og fyndn- Friðrik Gestsson ✝ Friðrik Gests-son fæddist 14. janúar 1950. Hann lést 23. maí 2015. Útför Friðriks fór fram 2. júní 2015. ar eins og þegar Eygló mín og Torfi teiknuðu framan í þig með art line- penna þegar þú fékkst þér kríu í sóf- anum. Þú svaraðir fyrir þig með vísu. Mikið hlegið eftir að vísan var lesin og all- ir sáttir. Þú varst snillingur í að yrkja ljóð og mikill sögu- maður enda orðheppinn mjög. Það var aldrei leiðinlegt að eyða með þér stundum enda vorum við mikið saman gegnum tíðina. Eitt sinn leigðum við okkur sumarbú- stað á Illugastöðum yfir helgi og fórum þangað með Tryggva Jón. Það var alveg mögnuð helgi, gerð- ar krossgátur, gerðar vísur, eld- aður góður matur, já og alltaf hlátur og sögustundir. Þú og Tryggvi Jón voruð ein- staklega miklir vinir. Þú hafðir alltaf tíma fyrir hann og þolin- mæði. Það eru nú samt til alveg ótrúlega margar myndir hjá mér af ykkur tveimur saman í fyrr- nefndum stofusófa að fá ykkur kríu. Þú varst aldrei mikið fyrir að mæta í veislur og ég man eitt sinn þegar ég hafði boðið þér í afmælið mitt og þú komst ekki en mættir nokkrum dögum seinna og færðir mér vísu: Þrettánda desember skaust hún í heim- inn ég man ekki árið því ég er svo gleym- inn. Fimm dögum seinna ég mæti hér feim- inn og vona að ég fái ekki spark útí geim- inn. Svona var nú alltaf stutt í grínið hjá frændanum. Alltaf að sjá spaugið í sem flestu. Af mörgu er að taka í minningabankanum en ég held að ég segi ekki mikið meira að sinni. Ég hugsa þeim mun meira og trúi því að hann muni vita af því. Nú getur hann hitt ásvini sína sem farnir eru, glaðst og grínast með þeim öllum. Litið eftir prinsinum mínum og þeir prakkarast saman. Ég læt fylgja orðum mínum hér ljóð er ég samdi eftir að þú, minn kæri, kvaddir þennan heim og hélst af stað á betri stað þar sem gleðin mun ráða ríkjum. Elsku, Magga, Susan, Sara, Gestur og Maggý, mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Öðlingur hefur fallið mér og öðrum frá, seint ég mun honum Fidda gleyma. Hann kunni að yrkja og segja vel frá, ég sit og myndir fram í hugann streyma. Tárin detta eitt, tvö, þrjú, samt var gleðin okkur oft svo nærri. Hann gat verið bæði húsbóndi já eða hjú, allt eftir því hvað á var kosið. Þrátt fyrir vorið þá finnst mér nú, að í sál minni sé allt dálítið frosið. Ásta Fr. Reynisdóttir. ✝ Kristín Þor-leifsdóttir fæddist 22. maí 1917 á Höfða í Eyjahreppi í Hnappadalssýslu. Hún lést á dvalar- og hjúkrunarheim- ilinu Grund í Reykjavík 4. júní sl. Foreldrar henn- ar voru Þorleifur Jónsson, bóndi á Höfða, f. 20 apríl 1874 í Ytri-Hraundal, Hraunhreppi í Mýrasýslu, d. 19. október 1954 í Reykjavík, og kona hans, Jóhannna Sigríður Ólafsdóttir, f. 25. október 1878 í Tjaldbrekku, Hraunhreppi í Mýrasýslu, d. 9. febrúar 1979 í Reykjavík. Kristín giftist 17. júní 1952 Guðjóni Kristmannssyni, f. 18. október 1918 í Gíslholti vestra, við Ránargötu í Reykjavík. Guðjón var löngum togara- sjómaður en síðast inn- heimtumaður. Hann lést í Reykjavík 6. maí 1984. Kristín og Guðjón áttu heima á Holts- götu 18 í Reykjavík en frá 1993 var heimili Kristínar á Granda- vegi 47 í Reykjavík. Barn Kristínar og Guðjóns er Auð- ur, f. 13. apríl 1954 í Reykjavík, kenn- ari við Fjölbrauta- skólann í Breið- holti. Hún var í sambúð með Magn- úsi Snædal há- skólakennara. Barn þeirra er Kári, f. 10. nóv- ember 1978, forrit- ari í Reykjavík. Auður giftist 5. júní 1998 Helga Þorlákssyni há- skólakennara. Barn þeirra er Kristín Halla, f. 8. nóvember 1993 í Reykjavík, háskólanemi. Kristín var yngst níu systk- ina, þau eru öll látin. Hún réð sig í vist í Reykjavík en skömmu síðar fluttist fjölskylda hennar til Reykjavíkur, faðir hennar var bóndi í Langholti 1934-36 og síðan í Breiðholti 1936-54. Kristín stundaði m.a. kaupavinnu á ýmsum stöðum og síldarsöltun en vann annars á búi föður og bróður í Breið- holti. Hún starfaði lengi í bók- bandsvinnu, lengst af í Bókfelli á Hverfisgötu í Reykjavík. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey. Elsku amma mín. Þegar ég fæddist átti ég enga ömmu á lífi. En svo gerðist það. Við Kári sát- um í eldhúsinu í yndislegu ris- íbúðinni þinni á Holtsgötu að borða ís og ég spurði „Amma, má ég fá meira?“ Þetta sagðir þú mér mörgum árum seinna, líka það að þér var brugðið, þarna kallaði ég þig ömmu í fyrsta skipti. Þú passaðir mig á nánast hverjum degi frá því að ég var þriggja mánaða gömul og fram til fimm ára aldurs. Þannig voru margar af mínum fyrstu minn- ingum heima hjá þér, með þér. Þú, blómin, pilsin þín, garðurinn, sólskinið, lyktin, maturinn. Þú varst alltaf að reyna að fita mig. Mikið var alltaf gott að koma til þín. Einhverra hluta vegna var mjólkin alltaf langbest hjá þér. Það var samt ekki bara mjólkin sem var best heldur var lífið líka best þá. Ég hugsa til þessa tíma með mikilli hlýju. Sömu yndis- legu hlýjunni og örygginu sem ég fann fyrir þegar ég var með þér. Elsku amma. Það er svo sárt til þess að hugsa að geta aldrei aftur faðmað þig, verið hjá þér. En þú skilur eftir þig svo margar fallegar minningar. Takk fyrir allt sem þú hefur gert og allt sem þú varst í mínu lífi. Þú komst þér rækilega fyrir í hjartanu mínu og ég get sótt hlýjuna þína þangað hvenær sem er. Ég mun sakna þín, elsku besta amma. Nú færðu loksins að hvíla þig. Þín Hanna Kristín. Kristín tengdamóðir mín var fumlaus og forkur til vinnu, sterk og hraust. Um leið var hún ljúf og blíð og alltaf tilbúin að spauga, mest á eigin kostnað. Undanfarin ár sagðist hún bara „liggja í leti og ómennsku“, gerði ekkert ann- að en að hvíla sig. Stundum spurði ég um gamla daga og þá kom í ljós að hún sló með orfi og ljá eins og karlarnir, var í kaupa- vinnu og ráðin til sláttar, enda skemmtilegra en að raka, sagði hún. Um áttrætt var hún enn svo mikilvirk að undrun vakti. Hún vildi aldrei láta hafa neitt fyrir sér, gerði alltaf skyldu sína og sat fram á kvöld, á tíræðisaldri, lagði saman reikningana sína, meðan sjón leyfði, og greiddi allt í tæka tíð. Hún gladdist yfir litlu, t.d. kaffisopa og sígarettu, já hún reykti á tíræðisaldri. Hún kættist þegar boðið var upp á spil. Minn- isstæð er hún í sumarbústað, 97 ára gömul, hálfsjónlaus og spilaði eins og engill, var kannski öðrum lengur að sortera í upphafi en sagnirnar voru skynsamlegar og hún var klók að reikna út hvað aðrir höfðu á hendi enda vann hún nánast alltaf. Oft fór hún yfir stöðuna, að loknu spili, rakti hvað hver hefði haft á hendi og hvenær staðan var tvísýn og sérstaklega spennandi. Stundum benti hún á eigin mistök og hló yfir aula- skapnum sem hún kallaði svo. Síðan fór hún kannski út á pall með kaffi og sígarettu nema hún færi í heita pottinn. Full af inn- lifun og lífsgleði, 97 ára. Í fyrrahaust datt hún illa í íbúðinni sinni, fór á sjúkrahús og loks á Grund. Við það fóru venju- bundnir hættir úr skorðum, svo sem tengslin við útvarpið, þótt gerðar væru ráðstafanir til að bjarga því. Áður gat dóttir henn- ar hringt og spurt, þegar á þurfti að halda, hvernig veðrið yrði á morgun; aldrei brást að hún kunni veðurspána utan að, en ekki lengur, eftir byltuna. Og hún var hætt að hlusta á upplestur á diskum sem Hljóðbókasafnið sendi. Það eru fá misseri síðan hún var jafnan fyrst í fjölskyld- unni til að kynna sér nýjustu jóla- bækurnar, hlýddi á þær lesnar upp, og ræddi um þær af skiln- ingi og skynsemi. Á Grund hlaut hún góða umönnun og við tókum stundum í spil. En þetta var ekkert líf, fyrir þennan dugnaðarfork, og samt tók hún öllu með æðruleysi og gerði að gamni sínu fram í and- látið. Fyrir fáum dögum lýsti dóttir hennar fyrir henni að nóg væri að gera hjá okkur, hún hefði gert þetta, ég hitt. „Getið þið ekki fundið eitthvað fyrir mig að gera?“ sagði Kristín og brosti. Þá hafði hún enn hrasað, fann fyrir eymslum og dóttir hennar, sem vildi að færi betur um hana, vissi ekki hvernig hún gæti mjakað henni upp á við í rúminu. „Toga hérna,“ sagði Kristín, og greip í eigið hár í hnakkanum. Mér er nær að halda að Kristín Þorleifsdóttir hafi verið alveg fullkomin tengdamóðir, laus við alla afskiptasemi og naut þess að hjálpa og gleðja, veitingasöm og hlý, stórbrotin í gjöfum og besta amma sem Kári og Stína gátu ímyndað sér. En mest var um vert að fá hana í heimsókn um helgar, uppábúna og glaða og spjalla við hana um gamla daga, minnuga og hleypidómalausa. Helgi Þorláksson. Stína frænka sagði mér að það hefði snjóað mikið þegar ég fæddist og hún því ekki komist strax til að skoða barnið. Nú er enginn lengur til frásagnar um merkilegan atburðinn. Að sjálf- sögðu er margs að minnast af langri lífsgöngu okkar saman. Stína var alltaf til staðar en mamma kallaði hana „hjálpar- sveitina“ því hún var stoð hennar og stytta, að síðustu í veikindum hennar fyrir um 30 árum. Með þessum skrifum vil ég þakka allt það sem Stína gerði fyrir okkur á langri ævi sinni. Ófáa sumardagana dvöldum við á Þingvöllum. Þar við vatnið, undum við í tjöldum umvafin lág- vöxnu kjarrinu, ásamt fleiri systkinum Stínu og börnum. Man ég vel kvöldgönguna þegar við stelpurnar röltum að Valhöll með Stínu frænku í sérkennilegri aft- anbirtunni. Smáar upplifanir æskunnar eru yndislegar. Stína hafði mikla ánægju af veiði og fór oft með körlum og börnum enda fannst henni sil- ungur góður matfiskur. Því rat- aði oft afli annarra veiðitúra til hennar síðar meir. Við frænka mín áttum það sameiginlegt að hafa gaman að hannyrðum, hún saumaði mikið út og prjónaði margar flíkurnar og sýndi mér gjarnan vinnu sína. Ég naut þess að geta aðstoðað hana þegar þess þurfti og sjónin var að hverfa. Margar voru ferðirnar okkar upp í sumarbústað þeirra Stínu og Guðjóns í Breiðholtinu, rétt hjá gamla Breiðholtsbænum, þar sem þau systkini bjuggu áður ásamt foreldrum sínum. Þá tók- um við t.d. far með strætisvagni upp í Blesugróf og gengum upp holtið að bústaðnum. Þegar ég sagði ungum dætrum mínum frá þessum bústaðarferðum okkar frá því í gamla daga, þótti þeim líklegt að við hefðum gengið upp eftir á sauðskinnsskóm, svo mikil forneskja fannst þeim vera í frá- sögninni. Stór Breiðholtsfjöl- skyldan tók móður mína að sér opnum örmum, við skilnað for- eldra hennar þegar hún var 6 ára gömul, en þau leigðu húsið sem afi minn smíðaði á Rauðamel á Snæfellsnesi. Aldrei voru veislurnar hjá for- eldrum mínum á gamlárskvöld án þeirra hjóna úr Vesturbænum og einkadóttur þeirra, Auðar. Við vorum í rauninni öll alin upp sam- an, ásamt systurdætrum Stínu, þeim Helgu og Jóhönnu, sem voru á svipuðu reki. Síðustu árin hittumst við í afmæli Stínu þar sem hún bakaði sjálf veitingarn- ar, seinast komin á tíræðisaldur. Alltaf var Stína tilbúin að að- stoða okkur yngri kynslóðina. Hún var hjálparhellan mín og gætti dóttur minnar þegar skóli 6 ára stúlku var brot úr degi. Svip- að gerði hún fyrir Önnu systur og eftir það kölluðu dætur hennar hana ömmuna sína þar eð þær áttu enga slíka á lífi. Þegar aldurinn færðist yfir komu Stína og Hanna með okkur í sumarbústaði víðsvegar á land- inu. Í Þórsmörk gengum við Auð- ur langa vegu með þeim systrum á áttræðisaldri. Sumarkvöld- göngunni frá Vífilsstöðum að El- liðavatni gleymi ég ekki, þar sem þær mæðgur og ég réðumst göngulúnar til inngöngu í mann- laust hús og tókum á móti hús- ráðendum stuttu síðar með rjúk- andi heitu kaffi. Nú gengur Stína síðustu skrefin inn í sólsetrið til móts við Guðjón og alla vinina sem hún saknaði samvista við síð- ustu æviárin sín. Hrafnhildur Gunnlaugsdóttir Hún elsku Stína okkar er nú fallin frá 98 ára að aldri. Ég var svo lánsöm að eiga Stínu sem frænku. Þegar ég hugsa til baka koma upp margar skemmtilegar og ljúfar minning- ar. Þar ber hæst allar sumarbú- staðarferðirnar í Sauðhúsaskóg og veiðiferðirnar sem tilheyrðu ferðalögunum. Stína hafði gaman af því að ferðast, prjóna og baka. Þegar farið var í Sauðhúsa- skóg var alltaf mikil spenna og gleði, hún var búin að baka margs konar bakkelsi til að taka með í nesti og var maulað á þessu alla ferðina. Hún naut útiverunn- ar og þegar sólin ákvað að láta sjá sig var hún fyrst út á verönd með góða bók í hönd. Það til- heyrði að fara að veiða í Langa- vatni í þessum ferðum, Stína og afi höfðu einstaklega gaman af því að láta okkur krakkana koma orminum á öngulinn því okkur fannst það ógeðslegt og vor- kenndum aumingja ánamaðkin- um. Að koma til hennar á Holtsgöt- una og á Grandaveginn var alltaf spennandi og gaman, þar tók á móti manni ilmandi baksturslykt, bakstur var Stínu lítið mál. Vildi hún að við boðuðum komu okkar til hennar þannig að hún gæti verið búin að baka pönnukökur eða finna til það sem hún átti í frysti, aldrei skorti neitt þegar þangað var komið. Á meðan Guð- jón lifði var farið út í smíða- geymslu og ýmislegt brasað þar ásamt því að taka upp radísurnar í garðinum og að því loknu fékk maður mjólkurglas og eitthvað nýbakað í gogginn. Stína var mikil prjónakona og prjónaði hún margar flíkurnar sem við vorum svo heppin að eignast. Hún kenndi mér að prjóna og hjálpaði mér með fyrstu peysuna, til hennar var alltaf hægt að leita ráða með prjónaskap og margt annað. Stína var hreinskilin, jarð- bundin og samkvæm sjálfri sér, minnug og full af fróðleik það var andleg næring að sitja með henni á spjallinu. Börnin okkar Gunna tóku miklu ástfóstri við Stínu frænku og var hún í miklu uppáhaldi hjá þeim. Þegar bakað er banana- brauð hér á bæ tala þau alltaf um Stínu brauð. Þau bíða spennt eft- ir því að fara í Veiðivötn og nota Stínustöng og á jólunum setja þau upp jólasveinana sem Stína prjónaði handa þeim Við kveðjum nú elsku Stínu með söknuði með góðar og fal- legar minningar í hjörtum okkar. Anna, Gunnar, Malín María, Rak6el Rán og Oliver Orri. Langlífi virðist sumum ættum betur gefið en öðrum. Það þarf ekki endilega að vera blessun, sumum jafnvel böl, en ef lífið farnast vel skapast ómetanleg tenging milli kynslóða. Færir vitneskju gamalla og hálf- gleymdra tíma inn á gafl afkom- enda og sannfærir þá á svip- stundu um að merkilegustu framfarirnar voru þegar gúmmí- stígvélin komu til sögunnar og verður ekki deilt um það. Annars var Stína ekkert að velta sér upp úr þessu, var frekar að pæla í samtímanum og hafði skoðun á öllum fjáranum, jafnvel svo að yngra fólk sem allt þykist vita varð kjaftstopp. Stundum er þörf að leiðrétta þegar farið er með fleipur. Með sitt blágráa hár, sem var ekta, með sitt ákveðna ljúflyndi, sem líka var ekta, var hún af- skaplega góður sessunautur, ræðin og rökföst, og minnið nán- ast óbrigðult. Það er ávallt eft- irsjá að öllum þeim fróðleik sem fer forgörðum þegar slíkir sagna- bankar kveðja og verður seint bætt. Hún leit til með stelpunum mínum þegar þær voru litlar og var þar í ömmustað, sveif áreynslulaust inn í það skarð sem tengdamóðir mín og uppeldis- systir hennar, Hanna Haralds- dóttir, skildi eftir þegar hún lést, langt um aldur fram. Þá bar hún veturlangt á milli okkar Guðjóns mannsins síns kerskniskveðskap og rímþrautir af ýmsum gæðum og gerðum en við höfðum alla- vega gaman af. Ófáum sinnum dvöldum við saman í sumarbú- stöðum hingað og þangað um landið og undum okkur við spil og léttar veigar í góðum félagsskap Auðar dóttur hennar og Helga hennar manns, að ógleymdri Stínu nöfnu hennar, en þetta fólk tel ég til minna bestu vina. Í þess- um hópi var mikla vitneskju að finna, sem var óspart deilt og er ég mun fróðari fyrir bragðið. Það hefur auðgað líf mitt að fá að verða samferða Kristínu Þor- leifsdóttur öll þessi ár, en þau eru orðin æði mörg. Minningarnar um hana, Guðjón og ljóð og sögu landsins munu fylgja mér alla tíð. Farvel Stína mín. Sigurður Rósarsson. Að fá að kynnast Kristínu Þor- leifsdóttur og eiga fyrir vinkonu voru forréttindi. Hún var amma bestu vinkonu minnar, Kristínar Höllu. Milli þeirra var einstök tenging og leitun er að fallegra sambandi. Síðasta heimsókn mín til Kristínar eldri var viku áður en hún dó og mun ég ævinlega vera þakklát fyrir að hafa getað kvatt hana á þann hátt. Sólríkur maídagur sem ég og Stína höfð- um varið í Vesturbæjarlaug. Kristín lá þá á Grund þar sem hún dvaldi síðasta hálfa æviár sitt. Stína var þegar komin til hennar, sat á rúmstokknum og hélt um hendurnar á ömmu sinni. Þar voru samankomnir tveir sálufélagar. Það var ekki að sjá á Kristínu að hún væri á förum eitthvað í bráð þó hún hefði verið rúmliggjandi undir hið síðasta, svo brann gleðin og kímnin í aug- unum. Hún reisti sig upp við dogg þegar ég kom inn í herberg- ið og fannst gaman að sjá mig og mér hana. Hún lék á als oddi, með glettið bros á vör. Hún tók sig aldrei hátíðlega og það var ekki til í henni tilgerð eða hroki. Með báða fætur á jörðinni, kona sem hafði marga fjöruna sopið og uppskar eins og hún sáði á langri og gæfuríkri ævi. Aldrei logn- molla í kringum hana. Kristín var oft mjög hnyttin og orðheppin í tilsvörum – húmoristi fram í fing- urgóma, en Stína vinkona hefur sennilega erft það í beinan kven- legg. Fyrst og fremst var Kristín þó blíð og góð, með hlýja og ynd- islega nærveru. Hugurinn reikar aftur til gæðastunda sem ég átti með þeim nöfnum í litla eldhús- inu á Grandavegi 47, með útsýni yfir hafið, sérbakað vínarbrauð á borðum og spjall um daginn og veginn. Þetta eru minningar sem ég mun varðveita eins og fjár- sjóð. Þegar Stína hringdi í mig og sagði mér að amma hennar hefði kvatt, hjólaði ég út í búð og vildi finna blóm. Ég staldraði fyrst við hvítan rósavönd, hafði heyrt að það væri viðeigandi við andlát. En hvít blóm fannst mér dapur- leg og alls ekkert lýsandi fyrir Kristínu Þorleifs. Upp í huganum kemur mynd af smávaxinni en hraustri konu, fullri af seiglu og lífsgleði. Alltaf glæsileg til fara, oft í litríkum blússum, með fín- gerða gullkeðju um hálsinn og snjóhvítt hár. Með sígarettu og kaffibolla við hönd, svalir fylltar blómum sem hún sinnti af alúð. Sannarlega góð og elskandi amma. Ég endaði á að velja lítið og sterkrautt rósabúnt, fegursta vöndinn sem ég fann og í takt við hennar einstaka og fallega kar- akter. María Elísabet Bragadóttir. Kristín Þorleifsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.