Morgunblaðið - 11.06.2015, Qupperneq 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2015
Nú hefur góður
vinur, hann Palli,
kvatt þetta mannlíf.
Það verður ekki hjá
því komist að maður
hrökkvi við og sálin
fari í hnút þegar svona dapurleg
atvik gerast. Manni finnst þetta
gerast langt á undan því sem
væntingar standa til. Ég hef lengi
horft á lífið sem fljót sem endar í
fossi þegar dauðinn að lokum tek-
ur við. Þegar við vorum ungir
eygðum við ekki fossbrúnina, en
núna vorum við komnir á þann
aldur að það mátti kannski sjá úð-
ann af vatnsfallinu í fjarska ef allt
færi svona eins og hjá flestum.
Því var ekki svo farið með bless-
aðan hann Palla minn. Það kom
slæm rifa á hans lífsfley sem
sökkti því áður en í hefðbundinn
foss var náð. En sá vágestur sem
knúði dyra hjá þessu einstaka
ljúfmenni lítur ekki á klukkuna
né spáir í hvort ungur eða gamall
á í hlut. Okkar leiðir lágu snemma
saman, oft hittumst við á gras-
flötunum við Smárahvamm, þá
kornungir til að spila fótbolta á
sumrin. Þar áttum við ófáar
ánægjustundir og þær voru
stundum bragðbættar þegar ein-
hver sparkaði boltanum framhjá
markinu, en þá átti boltinn það til
að lenda í rófubeðum þeirra
Smárahvammshjóna. Það kom
fyrir að sá sem kom með boltann
til baka hafði með sér eina og eina
rófu sem við gæddum okkur á. Í
eitt skiptið þegar vel stóð á hjá
okkur fórum við upp að Smára-
hvammsbænum til að kaupa róf-
ur í stað þess að hnupla þeim.
Þegar við komum að bænum og
bönkuðum upp á tók frúin á móti
okkur og seldi okkur nokkur
stykki. Við bárum okkur manna-
lega og spurðum hvort þetta
væru ekki góðar rófur. Frúin leit
brosmild á okkur og mælti þessi
ógleymanlegu orð: „ Þær þykja
víst góðar á kvöldin.“ Þegar heim
var haldið á kvöldin eftir fótbolt-
ann, var oftast stoppað í menn-
ingarmiðstöðinni Drífu við Hlíð-
arveg og var þar keypt eitthvað
uppbyggilegt eins og t.d. Spur-
cola, lakkrísrör og kókosbolla.
✝ Páll Eyvinds-son fæddist 4.
júlí 1951. Hann lést
29. maí 2015.
Útför Páls fór
fram 9. júní 2015.
Síðan var Bratta-
brekkan tekin og við
kvöddumst á Digra-
nesveginum, en þar
hélt Palli áfram yfir
í Löngubrekkuna.
Þetta var í þá daga
þegar ungt fólk enn
gekk. Palli líktist
um margt honum
Árna afa mínum.
Hann hafði góðilm
öðlings í skapgerð
og fasi. Einstaklega bónfús og
hjálplegur þegar leitað var til
hans. Nú er ský sorgar yfir að-
stæðum og orð mega sín lítils til
huggunar þar sem fráfallið hefur
mikið tekið á þá sem voru Palla
tengdir. Erfitt er t.d. að horfa á
andlit barnabarnanna, og þá
einkum þeirra elstu, sem eru
snortin mun dýpra af þessari eld-
raun en hin yngri. Að sjá tárvot
augun og tárin renna frá þeim út
á ljósrauðar kinnarnar eru erfið-
ar aðstæður að vera í, ekki síst
vegna svarafæðarinnar sem er til
staðar. Fyrir systur mína og
börnin þeirra verður þetta fráfall
þungt og erfitt, því hátt var reitt
til höggs gagnvart honum sem
var þeim svo undursamlega kær.
Það svífa í gegnum hugann minn-
ingar og ýmsar myndir af mínum
elskulega mági og blanda af sökn-
uði og undrun sækir á mann
reglulega þessa fyrstu daga eftir
andlát hans. Ég bið þess að
gæskuríkur Guð gefi frið í hjörtu
allra þeirra sem þurfa að takast á
við að bera þessa þungu sorgar-
byrði.
Saknaðarkveðja
Sverrir Gaukur.
Það er erfitt að sætta sig við
það að þú sért farinn í þitt síðasta
flug. Það vakna fjölmargar
spurningar sem erfitt er að fá
svör við. Að þú komir ekki til
baka úr þessari ferð er eitthvað
svo óraunverulegt. Okkar fyrstu
kynni voru árið 1999 og síðan
réðstu mig í vinnu sem flugmann.
Það var ekki nóg að þú værir að
kenna mér að fljúga þotu, heldur
þurfti einnig að laga aðeins orða-
forðann, það voru að detta orð
sem þú kærðir þig ekki um, svo í
hvert skipti sem maður henti út
einhverju blótsyrði, gerðir þú at-
hugasemd og sagðir alltaf, „af
hverju ertu að nota þessi orð“.
Eftir nokkur ár þá fór þetta nú
allt að lagast og er ég nú orðinn
nokkuð góður í þessu, enn ekki
fullkominn. Nú ertu farinn og enn
ertu að þjálfa mig, satt best að
segja hefði ég vilja sleppa þessari
þjálfun, því þetta eru erfið skrif.
Bros og hlátur er eitthvað sem
einkenndi okkar vináttu og vor-
um við meiri vinir enn vinnufélag-
ar. Við áttum rosalega margt
sameiginlegt og golf var eitt af
því. Þeir eru ófáir golfhringirnir
sem við höfum labbað og keyrt,
þó að það hafi nú ekki alltaf geng-
ið stórslysalaust fyrir sig. Það var
eins og Guð væri með þér á vell-
inum, því oft varst þú í vonlausri
stöðu en náðir einhvern veginn að
redda þessu og náðir góðu skori.
Við vorum byrjaðir að kalla þetta
að taka einn „Eyvindsson“ á
þetta.
Nú ert þú farinn í þína síðustu
ferð og væntanlega kominn í hóp
annarra góðra manna.
Þú ert og varst ein allra besta
manneskja sem ég hef hitt. Eftir
standa fjölmargar minningar um
þig kæri vinur. Ég er þakklátur
fyrir að hafa kynnst þér og geta
sagt að vinátta okkar hefur gert
mig að betri manni, þú varst vin-
ur minn og ég segi stoltur frá því.
Hvers vegna er leiknum lokið?
Ég leita en finn ekki svar.
Ég finn hjá mér þörf til að þakka
þetta sem eitt sinn var.
(Starri í Garði.)
Við fjölskyldan sendum fjöl-
skyldu Palla samúðarkveðju.
Góða ferð, minn kæri. Sé þig
seinna.
Grétar.
Páll Eyvindsson, eða Palli eins
og hann var alltaf kallaður, er
fallinn frá eftir stutta en harka-
lega baráttu við illvígan sjúkdóm.
Við í stjórn Fríkirkjunnar Kefas
viljum minnast hans með nokkr-
um orðum.
Palli var hluti af starfi kirkj-
unnar allt frá stofnun hennar og
hefur spilað á bassa með lofgjörð-
arsveitinni meira og minna öll ár-
in, þegar hann átti frí frá fluginu.
Hann tók þátt í gerð geisladisks,
ótal tónlistarkvöldum, samkom-
um, mótum og trúboðsferðum.
Hann var alltaf tilbúinn að vera
með og vildi styðja við bakið á
sínu fólki. Hans skarð í lofgjörð-
arsveit Kefas er mikið og hans
verður sárt saknað. Palli var
einnig öflugur liðsmaður þegar
kom að ýmsum lagfæringum og
vinnu við húsnæðið að Dalvegin-
um og síðar við byggingu kirkj-
unnar á Vatnsenda. Hann lagði
sannarlega sitt á vogarskálina við
að kom upp þessu fallega húsi
sem kirkjan er í dag.
Palli átti létta lund og var mik-
ið ljúfmenni. Hann bar hag fjöl-
skyldu sinnar fyrir brjósti og það
var gaman að fylgjast með því
hvað hann naut sín vel í afahlut-
verkinu. Barnabörnin sóttu mikið
til hans og honum var jafnan vel
fagnað þegar hann kom í kirkj-
una og þau hittu hann þar.
Fyrir hönd Fríkirkjunnar Ke-
fas þökkum við Palla samfylgdina
og allar þær stundir sem hann gaf
í starf kirkjunnar. Við trúum því
að nú hafi hann gengið „í hlýjan
faðm föðurins“ eins og segir í
einu af hans uppáhalds lögum.
Við vottum fjölskyldu og vinum
samúð okkar og biðjum Drottin
að hugga þá sem syrgja og sakna.
Blessuð sé minning Palla.
F.h. stjórnar Fríkirkjunnar
Kefas,
Guðrún Hlín Bragadóttir.
Góður drengur, ljúflingur, fjöl-
skyldufaðir, góður afi, skemmti-
legur og hress. Þetta eru orð sem
koma í hugann þegar ég minnist
Palla. Það var þægilegt að vera í
kringum hann og hann gat ein-
hvern veginn oft létt andrúms-
loftið þar sem hann var. Sem
krakki fór ég gjarnan í heimsókn
í Skólagerðið og síðar Digranes-
veginn til frændsystkina minna,
sem eru mér nánast eins og
systkini, og á þaðan sælar minn-
ingar. Palli var oft að heiman en
ég man að það var alltaf mikil
gleði þegar hann var heima. Í
gegnum kirkjustarfið fékk ég að
kynnast Palla betur en hann var
alltaf jafn ljúfur og hress. Það er
skrýtið að hugsa til þess að Palli
eigi ekki aftur eftir að vera fyrir
aftan mig á bassanum í bandinu í
Kefas, spila af gleði, grínast smá
á milli laga, ruglast á einstaka
gripum og stinga upp á kaffipásu.
Hann var léttur í lund og það
smitaði út frá sér til okkar hinna.
Það var átakanlegt að fylgjast
með veikindum Palla og baráttu
hans við þennan illvíga sjúkdóm.
Ég trúi því þó að undir lokin hafi
hann átt frið og fengið þann styrk
sem Drottinn einn getur gefið.
Skarð hans í fjölskyldunni er
mikið og stórt og hans verður
sannarlega sárt saknað. Elsku
Helga, Björg mín, Ármann,
Sverrir, Bagga, Sverrir og fjöl-
skyldur. Ég bið Drottin að
styrkja ykkur og hugga á þessum
erfiða tíma. Við sjáum á eftir góð-
um dreng en minningarnar ylja
og kannski getum við séð fyrir
okkur að hann sitji með foreldr-
um sínum, systur, Ármanni afa
og mömmu og hafi fengið frið frá
veikindum sínum og streði. „Hinn
veiki segi – ég á styrk“, segir í
einu af hans uppáhaldslögum. Ég
bið þess að Drottinn huggi og
styrki þá sem syrgja og sakna,
ekki síst litlu barnshjörtun sem
sjá á eftir afa sínum. „Drottinn
veitir lýð sínum styrk, Drottinn
blessar lýð sinn með friði“. Sálm
29.11
Guðrún Hlín.
Páll
Eyvindsson
Fósturlandsins
Freyja,
fagra vanadís,
móðir, kona,
meyja,
meðtak lof og prís.
Blessað sé þitt blíða
bros og gullið tár.
Þú ert lands og lýða
ljós í þúsund ár.
(Matt. Joch.)
Í dag kveð ég Þóru mína, kæra
vinkonu og föðurömmu dóttur
minnar. Samleið okkar stóð í 27 ár
eða frá þeim degi er við hittumst
fyrst sumarið 1988, nokkrum vik-
um fyrir fæðingu Söru okkar. Í
sameiningu hlúðum við að litlu
skottunni okkar, fylgdumst með
henni dafna og vaxa upp í þessa
fallegu og hjartahlýju ungu konu
sem hún er í dag, báðar svo stoltar
af henni. Það var mér mikil gleði
að sjá hversu nánar þær urðu
strax frá upphafi. Þær áttu margt
sameiginlegt og nutu góðra og
einlægra samvista í gegnum árin
og Aggi frændi var aldrei langt
undan. Þóra og Aggi sýndu mér
og mínu fólki mikla ræktarsemi og
það var oft skrafað yfir kaffibolla
og kökuhlaðborði á heimili hennar
í Sólheimunum. Þóra var glæsileg
kona og mikil dama, alltaf vel til
höfð og vel klædd, og bar sig vel.
Ég kveð hana með söknuði en trúi
því að hennar bíði margar ham-
ingjustundir þarna hinum megin.
Ég er innilega þakklát fyrir okkar
kynni og fyrir tryggð hennar
gagnvart mér og fjölskyldu minni.
Guð blessi minningu Þóru Péturs-
dóttur. Við sendum Agnari, Pétri
og öðrum í fjölskyldunni okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Sigrún.
Með nokkrum orðum langar
mig að minnast ömmu minnar
Þóra Jónheiður
Pétursdóttir
✝ Þóra J. Péturs-dóttir fæddist
10. desember 1925.
Hún lést 30. maí
2015.
Útför Þóru fór
fram 9. júní 2015.
Þóru, sem nú er látin
89 ára að aldri.
Amma var glæsi-
leg kona og glettin
og vakti víða eftir-
tekt fyrir hlýlega
framkomu og fallega
brosið sitt. Hún
hafði einstaklega
góða nærveru og leið
mér hvergi betur en
á hlýlegu heimili
ömmu og Agnars
frænda í Sólheimum 10. Þaðan á
ég margar af mínum allra bestu
minningum, bæði úr barnæsku og
fullorðinsárum. Amma gaf ætíð
mikið af sér, bæði hlýju og vænt-
umþykju og þakka ég henni inni-
lega fyrir það.
Amma átti aðeins þrjú barna-
börn og tvö langömmubörn og
elskaði hún okkur öll afar mikið.
Hún fylgdist vel með öllum okkar
áföngum, afmælum og persónu-
legum sigrum og tók þátt í þeim
eins og henni var unnt, allt fram í
lokin. Allt var skipulega skráð í
dagbækur og afmælisbækur svo
hún gæti nú fylgst með og glatt
okkur með gjöfum og hlýjum
kveðjum þegar tilefni var til.
Amma var líka mikill gestgjafi
og minnist ég hennar í eldhúsinu í
Sólheimunum með svuntuna sína
um sig miðja að baka pönnukökur
og útbúa heitt súkkulaði með
handþeyttum rjóma. Yfirleitt
bættust við stórar hnallþórur og
dísæt vínarbrauð sem glöddu alla
þá sem settust við borðið. Það var
því erfitt að fara svangur frá
ömmu Þóru. Hún vissi hvað okkur
þótti gott og hafði alltaf úr nægu
að velja.
Ung að árum fór ég að dvelja
hjá ömmu og Agnari frænda og
lögðu þau sig ávallt fram við að
gera heimsóknina eftirminnilega
og ánægjulega. Samt á svo lát-
lausan og eðlilegan hátt. Bara
notaleg samvera sem einkenndist
af kærleika og vináttu. Tímunum
saman gátum við setið við eldhús-
borðið og rætt daginn og veginn.
Ýmist ræddum við hversdagsleik-
ann eða fortíðina. En amma var
nefnilega mikil sagnakona og
Elsku fallegi
Stefán Sölvi okkar.
Það er sárt til þess
að hugsa að þú sért
farinn en um leið huggum við
okkur við það að núna þarft þú
ekki að þjást meira. Þú varst um-
vafinn ást og bræddir alla sem
voru svo lánsamir að kynnast
þér. Hún Teresa Rós vinkona þín
skilur ekkert í því að núna geti
hún ekki hitt þig aftur og knúsað
þig, þú varst í miklu uppáhaldi
hjá henni. Hún róast samt sem
áður við það að núna sértu
kannski hlaupandi um í skýjun-
Stefán Sölvi
Fjeldsted
✝ Stefán SölviFjeldsted
fæddist 30. apríl
2013. Hann lést 28.
maí 2015.
Útför Stefáns
Sölva fór fram 4.
júní 2015.
um hlæjandi og
glaður, umvafinn
englum.
Við erum svo
þakklát fyrir að hafa
kynnst þér elsku
kallinn, þú hefur gef-
ið og kennt okkur
svo mikið. Minning
þín lifir í hjörtum
okkar um ókomna
tíð.
Við skulum gera
okkar besta til að passa upp á
mömmu þína, pabba, Amelíu og
Hjört Karl. Hvíldu í friði elsku
fallegi engillinn okkar.
Kristur minn ég kalla á þig,
komdu að rúmi mínu.
Gakktu hér inn og geymdu mig
Guð í faðmi þínum.
(Höf. ók.)Þínir vinir
María, Ari, Róbert Páll,
Kara Petra og Teresa Rós.
✝ Sigurður Kon-ráð fæddist 9.
ágúst 1942 í Reykja-
vík. Hann lést 31.
maí 2015 á Ullevål
sjúkrahúsinu í Ósló
Noregi.
Móðir hans var
Ásta Halldóra Kon-
ráðsdóttir sem
fæddist í Móum í
Grindavík, 6.11.
1924, d. 25.4. 1944.
Uppeldisforeldrar hans fæddust
einnig í Grindavík en þau voru
Konráð Árnason, f. 26.2. 1902, d.
22.12. 1975, og Sigríður Jóns-
dóttir, f. 1.9. 1895, d. 27.6. 1957.
Hálfsystir Sigurðar Konráðs er
Ásta Jóhanna Barker, f. 23.2.
1944. Uppeldissystkini (móður-
systkini) hans eru: Guðbjörg, f.
21.11. 1922, d. 14. 2. 1923, Árni
Jón, f. 16. 9. 1926, Sigríður Þóra,
f. 15.11. 1928, d. 31.12. 1982, Jó-
hanna, f. 12.7. 1930, d. 27.12.
2011, Eggert, f. 11.4. 1934, Ásdís
Guðbjörg, f. 21.3. 1936 og Rafn, f.
14.12. 1937. Sigurður Konráð,
sem var alltaf kallaður Siggi,
giftist Bryndísi Kjartansdóttur
og eignaðist með henni þrjú börn:
Sigríði, f. 28.1. 1963, maki Eirík-
ur Ingimagnsson, saman eiga þau
fjögur börn og sjö barnabörn.
Kjartan Brynjar, f.
9.4 1964, maki Unn-
ur Erla Malmquist,
börn þeirra eru tvö
og tveir dóttursynir.
Birgir, f. 4.9. 1965,
hans maki er Hildur
Loftsdóttir en sam-
an eiga þau sex börn
og fimm barnabörn.
Siggi vann hin
ýmsu störf á þessum
árum, svo sem á sjó,
sem ráðsmaður og fleiri
verkamannastörf. Þegar Siggi
og Bryndís skildu í kringum 1969
lá leið hans til Svíþjóðar og síðan
til Noregs en þar kynntist hann
Marit Håkonsen og eignaðist
með henni Sigdis (Håkonsen)
Haukåssveen, f. 19.2. 1972, maki
hennar er Ove Haukåssveen og
eiga þau saman tvo syni. Siggi og
Marit bjuggu saman til ársins
1983. Í Noregi starfaði Siggi
meðal annars hjá Volvo, við bíla-
sprautun og síðan rak hann eigin
vörubíl þar til veikindi stöðvuðu
hann. Það var svo árið 1986 sem
hann kynntist Else Marie Ped-
ersen, f. 16.10. 1944 og bjó með
henni þar til yfir lauk.
Sigurður var jarðsunginn frá
kapellu Ullevål sjúkrahússins í
Osló 8. júní 2015.
Ég kynntist Sigga tengdaföð-
ur mínum fyrst árið 1983 þegar
hann kom í heimsókn til Íslands,
aðallega til að leita sér lækninga.
Sigurður Konráð
Konráðsson
Þökkum vináttu og samúð vegna andláts
og útfarar
RAGNHEIÐAR EIDE BJARNASON.
.
Bjarni Ágústsson, Matthildur Kristinsdóttir,
Guðrún Ágústsdóttir, Svavar Gestsson.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
REBEKKA GUÐMANN,
Holtateigi 14,
Akureyri,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri
mánudaginn 8. júní.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
fimmtudaginn 18. júní kl. 13.30.
.
Hermann Sigtryggsson,
Anna R. Hermannsdóttir, Björgvin Steindórsson,
Edda Hermannsdóttir, Andrew Kerr,
Birkir Hermann Björgvinsson, Ágústa Sveinsdóttir,
María Björk Björgvinsdóttir, Sverrir Karl Ellertsson,
Rebekka Elizabeth Kerr,
Freyja Dögg, Kristjana Birta og Aníta Bríet.