Morgunblaðið - 11.06.2015, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2015
» Litla gula hænan, barnaleikrit meðþungarokksívafi, gladdi börn jafnt
sem fullorðna í Elliðaárdalnum í gær.
Leikhópurinn Lotta stendur að sýn-
ingunni sem byggð er á sögunum af
litlu gulu hænunni og Jóa og bauna-
grasinu en handritið samdi einn liðs-
manna leikhópsins, Anna Bergljót
Thorarensen. Verkið var frumsýnt 27.
maí og verður sýnt um allt land í sum-
ar, að jafnaði 5-6 sinnum í viku.
Leikhópurinn Lotta sýndi Litlu gulu hænuna í Elliðaárdal í gær
Bros á brá Börnin sátu í grasinu og voru alveg dolfallin þar sem þau fylgdust með leikritinu um litlu gulu hænuna og alla skrautlegu félaga hennar lenda í ýmsum ævintýrum.
Ævintýr Rósa Ásgeirsdóttir í hlutverki risans, Baldur Ragnars-
son sem Jói í baunagrasinu og litla gula hænan leika fyrir börnin.
Hænan Sigsteinn Sigurbergsson í hlutverki hænunnar og einnig
bílstjóri sem leiddi hópinn í lundinn góða þar sem allt lifnaði við.
Sprell Rósa Ásgeirsdóttirí hlutverki Lettu lambs og Anna Berg-
ljót Thorarensen í hlutverki Gilla gríslings, eitthvað að gantast.
Galvösk Þessir krakkar voru heldur betur skelegg þar
sem þau komu skundandi til fundar við leikpersónur.
Gaman saman Fullorðnir skemmtu sér ekki síður en blessuð
börnin og allir nutu þess að njóta leikrits saman úti í náttúrunni.
Morgunblaðið/Eggert
Paul Feig, leikstjóri og hand-ritshöfundur Spy, á að bakitvær vel heppnaðar gam-anmyndir, The Heat og
Bridesmaids, báðar með Melissu
McCarthy í einu af aðalhlutverkun-
um og þær eiga auk þess sameigin-
legt að aðalpersónur þeirra eru kon-
ur. Í Spy fer McCarthy með burðar-
hlutverkið og er að vanda bráð-
fyndin. Í myndinni er stólpagrín gert
að njósnamyndum og þá einkum
kvikmyndunum um James Bond,
þær stældar mjög augljóslega með
gamansömum hætti. McCarthy leik-
ur Susan Cooper, starfsmann banda-
rísku leyniþjónustunnar, CIA, sem
uppfyllir öll nauðsynleg skilyrði til að
starfa sem njósnari á vettvangi en
hefur þess í stað varið tíu árum í að
aðstoða sjálfumglaða njósnarann
Bradley Fine (Jude Law), tala í eyr-
að á honum frá stjórnstöð og lóðsa
um hættusvæði. Fine þessi myrðir
fyrir slysni búlgarskan glæpakóng
sem á kjarnorkusprengju og þarf í
kjölfarið að hafa uppi á dóttur hans,
Raynu Boyanov (Rose Byrne) þar
sem hún ein veit hvar sprengjan er
geymd. Boyanov reynist hið mesta
skaðræðiskvendi og myrðir Fine.
Cooper er þá send í sína fyrstu
njósnaferð með það að markmiði að
finna Boyanov og sprengjuna. Í
stuttu máli fer Cooper ekki að til-
mælum yfirmanns síns og vingast við
Boyanov í því skyni að finna sprengj-
una. Hinn mistæki njósnari Rick
Ford (Jason Statham) er einnig á
hælum Boyanov og þarf Cooper
ítrekað að bjarga honum frá bráðum
bana.
Spy er hvort tveggja í senn hasar-
og gamanmynd og kemur skemmti-
lega á óvart hversu mikið er lagt í
hasaratriðin og þá sérstaklega vel út-
færð og spaugileg slagsmálaatriði.
Eitt þeirra er með endemum hlægi-
legt, þegar Cooper tekst á við morð-
kvendi í eldhúsi á veitingastað þar
sem eldhúsáhöld eru notuð með
einkar frumlegum hætti. Þá er flakk-
að milli borga líkt og í Bond-mynd og
eltingarleikir um stræti Parísar og
Rómar gefa alvöruhasarmyndum lít-
ið eftir. McCarthy fer á kostum í
hlutverki sínu sem hin vingjarnlega
en óvænt stórhættulega Cooper og
Law er sem sniðinn í hlutverk
súkkulaðisæta njósnarans sem Coo-
per hefur verið ástfangin af um ára-
bil, án þess að hann hafi orðið þess
var. Statham kemur líka skemmti-
lega á óvart sem gamanleikari, að
venju í hlutverki hörkutóls sem að
þessu sinni er hraðlygið og mikill
hrakfallabálkur. Ef typpa- og kúka-
bröndurum hefði verið sleppt í mynd-
inni hefði grínið orðið öllu betra og
tekið skal fram að myndin hentar
ekki barnungum áhorfendum þar
sem nokkur illmenni eru drepin með
heldur subbulegum hætti. Í Spy eru
konurnar með tögl og hagldir, þær
eru hörkutólin sem er kærkomin til-
breyting frá öllum karla-njósna-
myndunum þar sem kvenpersónur
eru of oft heldur fyrirferðarlitlar og
einkum notaðar til skrauts.
Skopleg Melissa McCarthy, ein besta gamanleikkona Hollywood, í hlut-
verki njósnarans Susan Cooper í Spy. Cooper er hér í dulargervi í Róm.
Háskólabíó, Sambíó Egilshöll,
Smárabíó, Laugarásbíó og
Borgarbíó
Spy bbbmn
Leikstjóri og handritshöfundur: Paul
Feig. Aðalleikarar: Melissa McCarthy,
Jude Law, Jason Statham og Rose
Byrne. Bandaríkin, 2015. 120 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Bond berst samkeppni úr óvæntri átt