Morgunblaðið - 11.06.2015, Page 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2015
FRÁ FRAMLEIÐANDANUM STEVEN SPIELBERG
KEMUR EIN FLOTTASTA MYND SUMARSINS
POWERSÝNING
KL. 10:35
Sími: 553-2075
www.laugarasbio.is
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS
EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI
- bara lúxus
TÓNLEIKAR
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
„Góðan dag. Ég er að hringja fyrir
hollensku hljómsveitina Focus. Hún
hefur áhuga á að koma og halda tón-
leika hjá þér. Er það mögulegt?“
Einhvern vegin svona hófst símtal
sem Haukur Tryggvason, tónleika-
haldari á þessum þekkta stað á
Akureyri, fékk fyrir nokkrum mán-
uðum.
„Ég hélt auðvitað að einhver væri
að gera grín að mér. Focus er nefni-
lega oft í spil-
aranum á Græna
hattinum, fyrir
og eftir tónleika,
og einhvern tíma
þegar við vorum
að spila þá á fullu
blasti sagði ég við
félaga minn:
Djö... væri gam-
an að fá þá til að
spila hér. Þegar
ég fékk símtalið var ekki liðinn mán-
uður frá því ég nefndi þetta!“ segir
Haukur við Morgunblaðið.
Thijs van Leer og félagar hans í
Focus eru komnir til landsins og
halda hér tvenna tónleika á vegum
Hauks. Þá fyrri í Bæjarbíói í
Hafnarfirði annað kvöld í samstarfi
við Menningar- og listafélag Hafnar-
fjarðar, og síðan á Græna hattinum á
laugardagskvöldið. „Ég hafði séð þá
auglýsta á nokkrum tónlistar-
hátíðum í sumar og þessi hljómsveit
var á fantasíuóskalistanum hjá mér,
ef svo má segja.“
Haukur er með Hammond-orgel á
staðnum svo van Leer þarf engu að
kvíða. En tónleikahaldarinn veit
ekki fyrir víst hvers vegna Focus
vildi koma og halda tónleika. „Mér
finnst tengingin við Færeyjar líkleg.
Þeir voru að spila þar fyrir hálfu ári
og nýlega var færeysk hljómsveit
hjá mér sem spilaði lög með Uriah
Heep. Focus kemur hingað í gegn-
um umboðsmann sinn á Norður-
löndunum.“
Haukur hefur lengi fylgst með og
hlustað á þessa frægustu hljómsveit
Hollands. Músíkin er flokkuð sem
progressive rock upp á útlensku;
prog-rokk, segja íslendingar stund-
um. Framsækið rokk væri fallegra,
hvað svo sem það nú þýðir...
Focus var stofnuð árið 1969 og var
starfandi til 1978, í fyrstu lotu. Thijs
van Leer stofnaði bandið, en hann er
aðalsöngvari auk þess að leika á org-
el og þverflautu. Með honum nú eru
gítarleikarinn Menno Gootjes,
Bobby Jacobs bassaleikari og
trommarinn Pierre van der Linden.
Sá síðastnefndi var með nánast frá
byrjun, kom í bandið 1970 áður en
það sló í gegn. Hann hætti 1974 en
gekk aftur til liðs við sveitina ári síð-
ar og hefur setið sem fastað við
trommusettið nánast óslitið síðan,
þegar Focus hefur starfað. Sveitin
lagði upp laupana 1978, kom saman í
verkefni 1985, 1990 og 1999 en van
Leer sló í klárinn af fullum krafti á
ný 2002 og kvartettinn hefur verið
iðinn við kolann síðan á tónleikum og
gaf út plötu 2012.
Focus var á tónleikaferðalagi frá
því snemma árs og fram í maí, gerði
þá stutt hlé þar sem þó verður
staldrað við hérlendis, og tekur svo
upp þráðinn síðar á árinu.
„Ég hlustaði mikið á Focus á milli
1970 og 1980; það gerðu allir
tónlistarnördar á þeim tíma!“ segir
Haukur. „Hljómsveitin var í miklu
uppáhaldi.“
Focus hafði áhrif á íslenskar
hljómsveitir, ekki síst Þursaflokk-
inn. „Tveir aðallagasmiðirnir í Focus
eru klassískt menntaðir í músík og
annar þeirra, van Leer, hefur gefið
út nærri þrjátíu sólóplötur.“
Frægasta lag Focus er Hocus
Pocus, sem mjög margir kannast
við, þó að ekki sé víst að allir viti
hver flytjandinn er. Lagið var nefni-
lega notað í auglýsingu sem íþrótta-
vörurisinn Nike lét gera fyrir heims-
meistaramótið í fótbolta í
Suður-Afríku 2010 og enginn
áhugamaður um íþróttina komast
hjá að sjá og heyra ótal sinnum.
Flestir kinka án efa einnig kolli
þegar Sylvia er spilað. Þá hlýddu ís-
lenskir sjónvarpsáhorfendur árum
saman á lag með Focus; upphafs-
lagið á Stiklum, þeim vinsælu þátt-
um Ómars Ragnarssonar.
Haukur hlakkar mikið til að taka á
móti van Leer og félögum.
„Það er ekki á hverjum degi sem
boðið er upp á svona viðburð á Akur-
eyri og í svona litlu húsi! Ég á varla
eftir að toppa þetta.“
Haukur fékk þau skilaboð frá
Focus að tónlistarmennirnir væru
tilbúnir að hitta aðdáendur sína að
tónleikum loknum. „Fólki er vel-
komið að koma með gömlu plöt-
urnar. Þeir eru til í að árita þær,“
segir Haukur.
Má Focus koma og spila hjá þér?
Tónlist Focus er oft í spilaranum á Græna hattinum „Djö... væri gaman að fá þá til að koma og
spila“ sagði Haukur vert við félaga sinn eitt kvöldið Ekki var liðinn mánuður þegar síminn hringdi
Í dag Hljómsveitin Focus eins og hún er nú skipuð. Frá vinstri: Menno Gootjes, Thijs van Leer, Bobby Jacobs og Pierre van der Linden.
Áttundi áratugurinn Hljómsveitin Focus árið 1974. Frá vinstri: Jan Akker-
man, Bert Ruiter, stofnandinn Thijs van Leer og Colin Allen.
Haukur
Tryggvason
Átta sóttu um embætti listdans-
stjóra Íslenska dansflokksins (Íd),
sem laust varð til umsóknar í lok
mars og hefur nú verið greint frá því
hverjir það eru: Bryndís Ragna
Brynjólfsdóttir, Cedric Lambrette,
Erna Ómarsdóttir, Gunnlaugur Eg-
ilsson, Hervé Palito, Jóhann Freyr
Björgvinsson, Karen María Jóns-
dóttir og Sveinbjörg Þórhallsdóttir.
Viðtöl við umsækjendur fóru fram í
síðustu viku og er gert ráð fyrir að
listrænn stjórnandi taki við starfinu
1. ágúst nk.
Samkomulag á milli Láru Stefáns-
dóttur og mennta- og menningar-
málaráðuneytis um starfslok hennar
sem listdansstjóra Íd var undirritað
í byrjun mars í fyrra og hefur enginn
gegnt embættinu síðan. Erna Óm-
arsdóttir, dansari og danshöfundur
og einn umsækjenda um starf list-
dansstjóra, var ráðin sem listrænn
ráðgjafi dansflokksins fyrir leikárið
2014-15 í ágúst í fyrra.
Listdansstjóri er forstöðumaður
Íd og veitir dansflokknum listræna
forystu og mótar listræna stefnu
hans í samráði við stjórn, eins og því
er lýst á vef dansflokksins. Hann ber
einnig ábyrgð á daglegum rekstri
dansflokksins og reikningsskilum og
er skipaður til fimm ára í senn.
Umsækjandi Erna Ómarsdóttir.
Átta sóttu um starf list-
ræns stjórnanda Íd