Morgunblaðið - 18.06.2015, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 18.06.2015, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2015 ráða dagskrá þingsins og því séu miklir hagsmunir undir á fund- unum, en sá fyrsti er 22. júní. „Það þarf gífurlegan pólitískan þrýsting til þess að koma málinu á dagskrá,“ segir Auður. Fyrir liggur að Alþingi samþykkti þingsályktunartillögu um að Ísland ætti að beita sér fyrir því að rannsóknir á taugakerfinu kæmust á lista yfir þróunarmark- miða SÞ. Hún segir að stofnað hafi verið til samstarfs á vettvangi Norðurlandaráðs um slíkar rann- sóknir. Í kjölfar fundar aðstandenda átaksins með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra hafi ráðuneytið sent bréf til Norð- urlandaþjóðanna þar sem þær eru beðnar um liðsinni við að koma mál- inu áfram. Ísak Rúnarsson isak@mbl.is Átakinu „Stattu með taugakerfinu“ er nú lokið, en þar ritaði 26.131 nafn sitt við bréf sem sent hefur verið aðalritara Sameinuðu Þjóðanna þar sem biðlað er til hans að rannsóknir á taugakerfinu verði eitt af þróunar- markmiðum SÞ. „Nú veltur allt á því hvað stjórnvöld gera“ segir Auð- ur Guðjónsdóttir, formaður Mænu- skaðastofnunar Íslands, en nú í september fer fram allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sem fulltrúar Íslands sitja. Fyrir þingið verða þrír undirbúningsfundir þar sem dagskrá þingsins verður ákveðin. Auður segir að útkoma undir- búningsfundanna muni að mestu „Það eru gífurleg tækifæri fyr- ir litla þjóð að vera í forsvari fyrir svona mikilvægt verkefni, en á heimsvísu hefur um milljarður manns orðið fyrir taugakerfisskaða. Ímyndaðu þér heiður Íslands ef rannsóknirnar bera árangur, það gæti jafnvel orðið til Nóbels- verðlauna,“ segir Auður og bætir við að nú séu fáir aðrir að beita sér í þessu máli sem snerti þó svo marga. Ef rannsóknir á taugakerfinu komast á lista SÞ yfir þróunarmark- mið mun taugakerfið fá töluverða athygli á heimsvísu en einnig um- talsvert fjármagn. Auður segir að undanfarin ár hafi komist hreyfing á hlutina í þessum málaflokki en þetta sé hennar síðasta rimma í þessari baráttu eins og málin standi núna. Hún hugsi sér að loka Mænuskaðastofnuninni þegar í ljós komi hvort takmarkið náist eftir allsherjarþingið en hún voni með öllu hjarta að það takist. Mikið tækifæri fyrir Íslendinga Morgunblaðið/Kristinn Baráttukona Auður Guðjónsdóttir, formaður Mænuskaðastofnunar.  Rúmlega 26 þúsund vilja taugakerfið í forgang  Undirskriftir sendar til Ban Ki-moon aðalritara Sameinuðu þjóðanna  Boltinn er hjá stjórnvöldum Guðni Einarsson gudni@mbl.is Fiskistofa auglýsir í dag eftir um- sóknum um leyfi til makrílveiða, samkvæmt nýrri reglugerð um stjórn makrílveiða íslenskra fiski- skipa árið 2015. Reglugerðin var gef- in út 16. júní sl. Þau nýmæli eru helst í nýju reglu- gerðinni að nú hefur öllum flokkum skipa verið lokað gagnvart makríl- veiðum. Þetta er 6. reglugerðin um stjórn makrílveiða, en þær hafa verið gefnar út frá 2010. Í fyrstu var ein- ungis 4. flokki lokað, þ.e. til skipa sem veitt höfðu makríl í flottroll og nót á árunum 2007, 2008 og 2009, og var kvóta þeirra úthlutað á einstök skip. Tveimur árum seinna var 3. flokki, sem nær til vinnsluskipa, einn- ig lokað og makrílkvóta úthlutað á einstök vinnsluskip. Nú var stigið það skref að loka einnig 1. flokki, flokki smábáta sem veiða makríl á handfæri eða línu, og 2. flokki, flokki ísfiskskipa. Jóhann Guðmundsson, skrif- stofustjóri í Atvinnuvegaráðuneyt- inu, sagði að allir bátar sem nú fengju að veiða makríl hefðu áunnið sér veiðireynslu og fengju úthlutað aflaheimildum samkvæmt því. Hann sagði að veiðiheimildum í 2. flokki, flokki ísfiskskipa, hefði alltaf verið skipt niður á skip en allir getað kom- ist inn í flokkinn sem það hefðu vilj- að. Veiðiheimildum hefur ekki verið skipt niður á skip í 1. flokki, smábáta- flokknum, fyrr en nú. Smábátarnir hafa getað veitt að vild þar til heild- arafla flokksins var náð. Mjög hefur fjölgað í þessum flokki á undan- förnum árum. Jóhann sagði að það hefði verið mat sjávarútvegsráðherra að tímabært væri að loka þessum flokki. Í reglugerðinni er kveðið á um ákvörðun aflaviðmiðunar hvers skips. Það er nánast sama regla og er í frumvarpi til laga um makrílveiðar, sem lagt var fram í vor, en þar var gert ráð fyrir að smábátar féllu undir kvótasetningu í makríl líkt og önnur fiskiskip. Jóhann sagði að gert hefði verið ráð fyrir að makrílfrumvarpið yrði að lögum fyrir sumarið en ekki hefur enn orðið af því. „Nú fara makrílskipin að halda á miðin og það var ekki hægt að bíða lengur með að setja þessa reglu- gerð,“ sagði Jóhann. Stærri makrílkvóti en í fyrra Heildarkvótinn í makríl verður nú 172.964 lestir, þar með taldar 20.000 lestir á samningssvæði NEAFC utan lögsögu ríkja. Jóhann sagði að Íslendingar styddust við sömu viðmið og strand- ríkin, þ.e. ESB, Færeyjar og Nor- egur, sem gert hafa samning sín á milli um makrílveiðar. Þá er miðað við fiskveiðidánartölu 0,26 og hlut Ís- lands upp á um 16,6%. Út úr því koma 174.964 lestir en teknar eru frá 2.000 lestir sem ekki er úthlutað í bili. Heildaraflinn í makríl eykst frá því í fyrra, þegar var fyrst miðað við 147.721 lestar heildarafla en hann var síðan aukinn í 167.826 lestir. Makrílkvóti einnig gefinn út fyrir smábáta  Heildarmakrílkvótinn eykst á milli ára og verður nú 172.964 lestir Morgunblaðið/Styrmir Kári Makríll Reglugerð um stjórn makríl- veiða kom fyrir makrílvertíðina. Makríllinn » Makríll hefur gengið í vax- andi mæli á Íslandsmið undan- farin ár og fór að veiðast sem meðafli fyrir Austurlandi árið 2006. » Beinar makrílveiðar byrjuðu árið 2007 og hefur aflinn auk- ist ár frá ári. Makrílafli Íslend- inga í fyrra var 173.000 tonn. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Starfshópur sem skipaður var um hreindýraeldi var sammála um að mæla ekki með hreindýraeldi eða stórfelldum hreindýrabúskap í hreindýrahögum á Austurlandi ef á sama tíma ætti að standa vörð um villtan stofn hreindýra í landinu. Umhverfis- og auðlindaráðherra skipaði starfshópinn 11. febrúar 2014. Honum var falið „að fjalla um hugmyndir um hreindýraeldi og hreindýraræktun sem nýja búgrein á Íslandi“ eins og segir í skýrslu hópsins. Starfshópnum var falið að skoða málið frá öllum hliðum og draga fram þau atriði sem gætu skipt máli fyrir villt hreindýr hér á landi, veiðar þeirra og verndun, bú- fjársjúkdóma og landbúnað og land- nýtingu. Þá átti hópurinn að fjalla um áhrif þess að taka stóran hóp dýra úr stofni villtra hreindýra til að koma upp hjörð eldisdýra. Einnig hver áhrif þess yrðu að skila sam- bærilegum fjölda eldisdýra aftur inn í villta stofninn. Í áliti starfshópsins segir m.a. að hreindýraeldi gæti hugsanlega kom- ið þeim til góða sem fengju að taka hreindýr úr íslenska stofninum. Hreindýrastofninn, eins og aðrir stofnar villtra dýra, sé ekki háður beinum eignarrétti eins eða neins í einkaréttarlegum skilningi. Löggjaf- inn geti þó sett reglur um meðferð og nýtingu verðmæta eins og hrein- dýra. „Starfshópurinn hefur hins vegar ekki fundið nein önnur rök eða ástæður sem gerir það að verkum að hann telji rétt að mæla með hrein- dýraeldi,“ segir í álitinu. Þá telur starfshópurinn að verði tekinn upp stórfelldur hreindýra- búskapur aukist líkur á útbreiðslu sjúkdóma og beitaráhrif séu óviss. Eins þyrfti að breyta fjölmörgum lögum og reglugerðum og óljóst sé hver ætti að bera kostnað af því. „Starfshópurinn telur að hreindýra- eldi sem ný búgrein geti haft umtals- verð áhrif á stöðu villtra hreindýra og getur ekki mælt með því að það skref verði tekið. Afstaða starfshóps- ins miðast fyrst og fremst við stór- fellt eldi hreindýra en ekki hvort heimila eigi að dýr séu höfð í haldi í „dýragörðum“ af svipuðu tagi eða minni og fjölskyldugarðurinn í Reykjavík.“ Þegar vegnir eru saman kostir þess annars vegar að viðhalda villt- um hreindýrastofni og nýtingu hans eins og gert er í dag og hins vegar að heimila stórfellt hreindýraeldi, með óvissu um áhrif þess á náttúru lands- ins, þar með talið á hreindýrastofn- inn sjálfan og aðra þætti lífríkisins, telur starfshópurinn farsælast að viðhalda núverandi sjálfbærri nýt- ingu og vernd villtra hreindýra á Ís- landi. Áætlanir um ferðaþjónustu Stefán Magnússon, hreindýra- bóndi á Grænlandi, og Björn Magnússon, áhugamaður um hrein- dýraeldi, sóttu um leyfi til hreindýra- eldis 2013. Starfshópurinn var skip- aður í framhaldi af umsókn þeirra. Björn sagði í samtali við Morgun- blaðið að niðurstaða starfshópsins ylli sér vonbrigðum. Hann kvaðst vera ósáttur við að þeir Stefán hefðu aldrei fengið að koma á fund starfs- hópsins til að gera grein fyrir hug- myndum sínum og áætlunum. „Við höfum kynnt okkur vel hvernig þetta er gert erlendis,“ sagði Björn. „Okkar áætlanir snertu ekki síst ferðaþjónustuna, það voru kannski stærstar vonirnar þar. Í Skotlandi eru þeir t.d. með 150 full- tamin hreindýr sem eru bara notuð fyrir ferðaþjónustu. Þar bera þau klyfjar ferðamanna upp á hæstu fjöll. Það vantar svona á Íslandi.“ Morgunblaðið/RAX Í Kringilsárrana Starfshópur um hreindýraeldi telur farsælast að viðhalda núverandi nýtingu og vernd hreindýra. Starfshópur leggst gegn hreindýraeldi  Umsækjendur um leyfi hugðust nota dýrin í ferðaþjónustu Landhelg- isgæslunni barst fyrir hádegi í gær beiðni um aðstoð frá rússneskum togara sem var við veið- ar á Reykja- neshrygg, um 200 sjó- mílur frá landi. Sjó- maður um borð hafði veikst, en hann varð að sögn Land- helgisgæslunnar fyrir lömun í and- liti. Þyrla Gæslunnar var send til móts við skipið og mætti því um sjö- leytið. Sjómaðurinn var síðan kom- inn á slysadeild skömmu fyrir níu og var líðan hans þá talin stöðug. TF-Líf sótti mann á togara

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.