Morgunblaðið - 18.06.2015, Qupperneq 11
Breskt leikfang Lafði Judi Dench, 80 ára, hafð ekkert á móti landa sínum
Bill Nighy, 65 ára, sem leikfangi í the Second Best Exotic Marigold Hotel.
Eldri og hærri Tom Hardy er þremur árum yngri en mótleikkona hans, Charlize Theron,
40 ára, í Mad Max: Fury Road, sem sýnd er í íslenskum kvikmyndahúsum þessa dagana.
Frægustu hjón kvikmyndasögunnar Humphrey Bogart var 45
ára og Lauren Bacall 20 þegar þau léku fyrst saman í kvikmynd.
Það borgaði sig einfaldlega ekki að
bera slíkt á borð fyrir kvenkyns
áhorfendur, þeim væri misboðið og
virtar og áhrifamiklar leikkonur
tækju ekki lengur þátt í leiknum og
væru farnar að gagnrýna þennan
kynlega aldursmun harðlega.
Þroskuð stöðutákn
Karlleikarar hafa jafnan frem-
ur horft til sér yngri kvenna bæði
sem eiginkvenna og meðleikara í ár-
anna rás. Tólf ára aldursmunur
stjörnuparsins, Brad Pitt og Angel-
inu Jolie, þykir ekki mikill, hann er
52 ára, hún fertug. Aldarfjórðungs
aldursmunur var á einu frægasta
pari hvíta tjaldsins, Humphrey Bog-
art og Lauren Bacall, hann var 45
ára, hún 20 þegar þau léku saman í
To Have and Have Not árið 1944 og
giftu sig ári síðar. Bogart mun hafa
uppskorið mikla aðdáun fyrir að
hafa krækt í svona unga þokkadís.
Hjónabandið var reyndar farsælt,
þau léku saman í mörgum myndum
og voru óaðskiljanleg þar til Bog-
art lést 1957.
Ef marka má umfjöllun í The
Sunday Times finnst helstu karl-
kyns stjörnuleikurum Hollywood
ekki eins mikil skrautfjöður í sín-
um hatti og forðum að leika á
móti kornungum konum. „Slíkt
þótti áður fyrr stöðutákn, núna
vilja þeir sýna fram á að þeir
séu nógu þroskaðir til að leika á
móti jafnöldrum sínum,“ hefur
blaðið eftir fyrrverandi mark-
aðsfræðingi hjá Warner Bros.
Margir krefjist þess því að
mótleikkonurnar séu á þeirra
reki frekar en af kynslóð
dætra þeirra. Þessi breyttu
viðhorf speglast æ meira í
nýjum og væntanlegum
kvikmyndum, t.d. er Mich-
ael Fassbinder, 38 ára,
einu ári yngri en mótleik-
kona hans, Marion Cotillard,
í nýjustu kvikmyndaútgáfunni
af Macbeth, sem frumsýnd verð-
ur í október, Charlize Theron, sem
verður fertug á árinu, leikur á móti
Tom Hardy, 37 ára, í Mad Max:
Fury Road, og Carla Gugino er lít-
illega eldri en bæði Dwayne John-
son sem leikur eiginmann hennar og
Ioan Gruffudd sem leikur ástmann-
inn í nýju stórslysamyndinni San
Andreas.
007 og dömurnar
Meira að segja njósnari hennar
hátignar, kvennamaðurinn mikli
James Bond, er farinn að líta eldri
konur hýrara auga en áður. Í
Spectre, nýjustu myndinni um 007,
sem frumsýnd verður í nóvember,
er leikarinn Daniel Craig, 47 ára,
látinn falla fyrir töfrum leikkon-
unnar Monicu Bellucci, 51 árs, í
hlutverki ekkju leigumorðingja sem
njósnarinn knái kemur fyrir katt-
arnef. Í Quantum of Solace frá 2008
lék Gemma Arterton, þá 22 ára, hina
fögru Strawberry Fields, sem Bond
(Craig) gerði sér dælt við.
Sérfræðingar í markaðsmálum
rekja sífellt minni aldursmun karla
og kvenna í hlutverkum elskenda í
kvikmyndum til þess að núorðið
þyki kynferðislegt samband eldri
karla og mjög ungra kvenna jaðra
við að vera ósiðlegt, í gamla daga
hafi áhorfendur hins vegar ekki
deplað auga. Umboðs-
maður sem vann við þrill-
erinn Arbitrage frá 2012
er þeirrar skoðunar að
sjálfstraust leikara eins
og Richard Gere, 65 ára,
eigi líka hlut að máli, en
hann mælti með Susan
Sarandon, 68 ára, í hlut-
verk eiginkonu sinnar í
þeirri mynd. „Ekki er
langt síðan kvikmyndaverið hefði
krafist þess að Gere, sem svika-
hrappur á Wall Street, ætti sér þrjá-
tíu árum yngri frú til að monta sig
af. En Sarandon var trúverðugri
fyrir myndina,“ sagði umboðsmað-
urinn.
65 ára „leikfang“ lafði Dench
Kevin Costner, 60 ára, hefur
lengi barist fyrir hinni svokölluðu
tíu ára reglu; karlleikari ætti ekki að
eiga í ástarsambandi við konu sem
væri meira en áratug yngri en hann
sjálfur. Sjálfur sveikst hann undan
merkjum í fyrra þegar hann lék í
Draft Day á móti Jennifer Garner,
17 árum yngri en hann, og auk-
inheldur barnshafandi eftir sögu-
hetjuna.
Eldri leikkonur eru þó óðum að
sækja í sig veðrið, t.d. leikur Meryl
Streep, 66 ára, rokkgyðju í Ricki
and the Flash, sem sýnd verður síð-
ar á árinu, og Blythe Danner, 72
ára, móðir Gwyneth Paltrow, sam-
þykkti Martin Starr, 32 ára, sem
vinalegt „leikfang“ sitt í myndinni
I’ll See You in My Dreams. Lafði
Judi Dench, 80 ára, var hæstánægð
með sitt „leikfang“, Bill Nighy, 65
ára, í The Second Best Exotic Mari-
gold Hotel.
Framangreind dæmi eru þó
frekar undantekningar og ýkt í hina
áttina. Ennþá er algengast að mót-
leikkonur karla á fertugs- og fimm-
tugsaldri og þaðan af eldri séu
minnst áratug yngri. Martha Lau-
zen, prófessor í San Diego State-
háskólanum, sem rannsakar kyn-
legan aldursmun í
Hollywood-
kvikmyndum, von-
ast til að með lið-
sinni nafntogaðra
leikara og leik-
kvenna jafnist leik-
ar með tíð og tíma.
Þótt hin 37
ára Maggie Gyllen-
haal þætti of gömul
til að leika á móti 55 ára karli lætur
hún engan bilbug á sér finna. „Í
fyrstu varð ég furðu lostin, mér leið
illa, síðan varð ég reið, en loks gat
ég ekki annað en hlegið. […] Marg-
ar leikkonur vinna alveg frábært
starf, þær leika raunverulegar kon-
ur, konur með flókna persónuleika.
Ég er alls ekkert örvæntingarfull
heldur leita vongóð að hlutverki sem
heillar mig.“
Of gömul
Maggie Gyl-
lenhaal, 37 ára,
þótti of gömul
fyrir 55 ára
mótleik-
ara.
AFP
Margir leikarar
vilja sýna fram á
að þeir séu nógu
þroskaðir til að
leika á móti jafn-
öldrum sínum.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2015
Að lifa í jafnvægi
Holl fæða hjálpar okkur að skapa
stöðugleika í líkamanum og lífinu.
ABT vörurnar fást í handhægum og
þægilegum umbúðum og henta vel sem
morgunverður eða millimál.