Morgunblaðið - 18.06.2015, Side 15

Morgunblaðið - 18.06.2015, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2015 Prófaðu þetta heyrnartæki í 7 daga Bókaðu tíma í fría heyrnarmælingu Sími 568 6880 www.heyrnartaekni.is Ný tækni - einstök hljómgæði Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880 Ofurnett - ósýnileg í eyra eða falin á bak við eyra Nýju Alta2 heyrnartækin eru með hraðvirkasta örgjafanum frá Oticon fram til þessa og búa yfir öflugri hljóðvinnslu. Með Alta2 verður talmál skýrara og öll hljóð þægilegri áheyrnar. Njóttu þess að taka virkan þátt í samræðum eða hlusta á fagra tóna með Alta2 heyrnartækjum. SVIÐSLJÓS Atli Vigfússon laxam@simnet.is „Við erum að fara í sveitina og ætl- um að fara á hestunum suður Hvammsheiði,“ sagði Tómas Örn Jónsson, sjómaður á Húsavík, þegar hann lagði upp frá brúnni við ós Mýrarkvíslar á sjómannadeginum. Hann vildi nota daginn til þess að fara í útreiðartúr ásamt konu sinni, Svanhildi Jónsdóttur, og dóttur þeirra, Sigrúnu Högnu Tóm- asdóttur, en fjölskyldan á nokkra hesta og eru þeir mikið áhugamál. Dóttirin var himinlifandi enda var það langþráður draumur að fara með báðum foreldrunum í útreiðar- túr, en Tómas er oft svo vikum skipt- ir á sjónum og því oft ekki heima til þess að fara á bak með börnum sín- um. Sjómennskunni fylgir oft löng útivist og þær mæðgur sjá oft um hestana. Eldri systirin, Thelma Dögg, er einnig liðtæk, en hún hefur unnið til margra verðlauna í sínum aldursflokki í hestaíþróttum. Hestaferðir, hestaleigur og glæsileg hesthús Hestabúskapur hefur verið mjög vaxandi í Suður-Þingeyjarsýslu síð- ustu árin og með tilkomu reiðhall- arinnar við Húsavík, sem nefnd hef- ur verið Bústólpahöllin, hefur öll aðstaða breyst mjög til batnaðar. Í landi jarðarinnar Saltvíkur sunnan Húsavíkur er hestabúskapur stundaður á margvíslegan hátt, en þar ber helst að nefna Hestamið- stöðina í Saltvík sem býður ferða- mönnum upp á mjög marga mögu- leika í útreiðum, bæði með lengri og styttri ferðum um sýsluna. Ferðir þessar hafa verið mjög vinsælar og oft uppbókaðar. Hestamiðstöðin í Saltvík býður einnig upp á námskeið bæði fyrir börn og fullorðna og þar eru einnig stundaðar tamningar. Við Bústólpahöllina hafa nú risið tvö glæsileg hesthús með mjög vönduðum innréttingum og öllum búnaði og aðstöðu sem til þarf. Stefnan er að bjóða fólki upp á að flytja sig úr gamla hesthúsahverfinu á Húsavík og á þetta nýja svæði í Saltvík þar sem stutt er í reiðleiðir. Mjög góð aðstaða er þar í nágrenn- inu fyrir beitarhólf og hafa nú þegar nokkrir nýtt sér það þó svo að þeir hafi ekki byggt hesthús á nýja staðn- um. Hestaleigur hafa skotið upp koll- inum víða og á nokkrum sveitabæj- um í Suður-Þingeyjarsýslu er hægt að fá leigða hesta með og án leið- sagnar. Reiðleiðir hafa verið merkt- ar og lagaðar og víða eru vinsælir reiðvegir sem eru mikið notaðir. Hestaleigurnar eru með mismun- andi áherslur, en skemmtileg nýj- ung er í Hraunkoti í Aðaldal þar sem ábúendur hafa keypt hestvagn og bjóða þess vegna upp á svolítið öðru- vísi ferðir. Börnin fara á bak Í Suður-Þingeyjarsýslu eru starf- andi tvö hestamannafélög; Þjálfi, sem starfar mest í sveitunum, og Grani, sem starfar aðallega á Húsa- vík. Nýlega héldu þessi félög saman æskulýðsdag. Félögin buðu börnum á bak og var aðsókn vonum framar. Grani og Þjálfi halda reglulega nám- skeið fyrir yngri og eldri knapa og eru ófáir sem hafa þar stigið sín fyrstu skref í reiðmennskunni. Vaxandi fagmennska í hestabú- skapnum í sýslunni hefur vakið at- hygli þeirra sem muna fyrri tíma, en fyrir nokkrum áratugum var um- hverfið allt annað í búgreininni. Þá voru hestaleigur og skipulagðar ferðir með útlendinga nærri óþekkt fyrirbrigði í héraðinu og ekki mikið um barnanámskeið. Svo var hesta- mennska ekki valfag í skólum hér- aðsins eins og nú er orðið. Hvammsheiði heillar marga Á Hvammsheiði eru mjög vinsælir reiðvegir og á annatímanum yfir sumarið má stundum daglega sjá hesta fara þar um. Tómas og fjöl- skylda fóru veginn sem liggur aust- an í heiðinni meðfram Mýrarkvísl og fór sem leið liggur inn í Reykja- hverfið þaðan sem hann er ættaður. Vegirnir eru mjúkir moldarvegir og þar er með góðu móti hægt að hleypa hestunum. Sigrún Högna dóttir hans var með breitt bros og virtist ekki bangin þegar hún lagði upp með foreldr- unum á flottum hestum suður heið- ina og auðvitað var sprett úr spori. Margir vilja spretta úr spori  Vaxandi hestamennska í Suður- Þingeyjarsýslu  Hestamannafélög- in með gróskumikið starf  Vinsæl- ar reiðleiðir á Hvammsheiði Áhugasamur Heimilishundurinn Fróði hefur gaman af reiðtúrum. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Hestafólk Fjölskyldan á leið í útreiðartúr á Hvammsheiði. Frá vinstri eru Tómas Örn Jónsson, Sigrún Högna Tómasdóttir og Svanhildur Jónsdóttir. Sala geisladiska og hljómplatna frá innlendum útgefendum og dreifend- um hefur dregist saman um 78% frá því árið 1999, þegar salan náði há- marki. Í fyrra seldust 192 þúsund eintök af geisladiskum og hljómplöt- um, eða 676 þúsund færri en árið 1999 þegar salan nam 868 þúsund eintökum. Kemur þetta fram í tilkynningu frá Hagstofu Íslands, sem unnin er upp úr árlegu upplagseftirliti Félags hljómplötuframleiðenda. Athygli vekur að útgáfa og dreifing hljóm- platna færist enn í vöxt en hún nam 11 þúsund eintökum í fyrra, eða sem samsvarar tæpum sex prósentum af heildarsölunni. Frá árinu 1999 hefur seldum ein- tökum geisladiska og hljómplatna á íbúa fækkað úr 3,1 í 0,6. Í fyrra seld- ust um 20 prósentum færri geisla- diskar og hljómplötur á vegum út- gefenda og dreifenda en árið á undan, eða 192 þúsund eintök borið saman við 243 þúsund árið áður. Átta af hverjum tíu eintökum sem seldust á síðasta ári voru innlend framleiðsla. Samfara samdrætti í sölu geisladiska og hljómplatna hef- ur hlutfall innlendrar framleiðslu vaxið jafnt og þétt, frá því að vera innan við helmingur allan tíunda ára- tug síðustu aldar og í rúm 80% frá árinu 2010, að því er segir í tilkynn- ingunni. Sala diska dvínar ört  Útgáfa og dreifing hljómplatna færist enn í vöxt  Salan nam ellefu þúsund eintökum í fyrra  6% af heildarsölunni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.