Morgunblaðið - 18.06.2015, Page 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2015
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Gefðu þér tíma til að greiða úr flækj-
unni og þá leysast allir hlutir auðveldlega.
Hugleiddu eitt, ef við hjálpum ekki hvert
öðru, hver gerir það þá?
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert lífleg/ur og kraftmikil/l. Not-
færðu þér þessa kosti þína aðeins til góðra
verka. Ferðalög eru á næsta leiti, njóttu þín.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú finnur yfirleitt upp á virkilega
hvetjandi viðfangsefnum. Þú sérð stundum
heiminn á furðulegan máta en það er allt í
lagi, þú ert sífellt að uppgötva eitthvað nýtt
og áhugavert.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það eru miklar breytingar í vændum
og þú verður að hafa þig alla/n við til þess að
fylgjast með og læra ný vinnubrögð. Allir hafa
gott af því að víkka út sjóndeildarhringinn
sinn.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ert í þeirri aðstöðu að geta veitt öðr-
um huggun þótt þér finnist þú ekki vel til
þess fallin/n. Þú ert bjartsýn/n að eðlisfari
og á sama tíma ert þú raunsæ/r. Nýttu þessa
kosti þína.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú þarft á tilbreytingu að halda. Veittu
mótspyrnu og varastu tungulipurt fólk sem
ber ekki hag þinn fyrir brjósti.
23. sept. - 22. okt.
Vog Láttu aðra ráða ferðinni í vinnunni í dag.
Stattu samt fast á þínu því enginn sinnir þín-
um málum betur en þú sjálf/ur.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ef þú gáir vel munt þú finna
ákveðið mynstur í þeirri ringulreið sem ríkir á
vinnustað þínum. Leyfðu því engum að hafa
áhrif á þig með neikvæðni eða frekju.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Leyfðu sköpunargáfu þinni að fá
útrás. Gakktu hreint til verks því allt sem þú
gerir færir þér ávinning.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það getur reynst hollt að draga sig
aðeins í hlé frá skarkala lífsins. Njóttu af-
rakstursins og leyfðu þínum nánustu að vera
með.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Berðu framtíðaráform þín undir
vini og vandamenn því það er mjög gott til að
ná fram markmiðum sínum. Þú ert kraft-
mikil/l og þarft helst alltaf að hafa eitthvað
fyrir stafni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú átt erfitt með að einbeita þér að
hlutunum í dag og ættir því að fara þér hægt.
Mundu að endurgjalda þá greiða sem þér eru
gerðir.
Út er komið nýtt hefti af Stuðla-bergi, tímariti helguðu hefð-
bundinni ljóðlist. Það er að vanda
fróðlegt og skemmtilegt. Við vísna-
vinir kunnum Ragnari Inga Að-
alsteinssyni þakkir fyrir framtak
hans, en hann er í senn útgefandi
og ritstjóri tímaritsins.
Í Stuðlabergi er sagt frá Vísna-
keppni grunnskólanna: „Á yngsta
stigi var horft sérstaklega til inni-
halds vísnabotnsins og ríms og var
Gunnar Þór Sigurðarson hlut-
skarpastur en hann er nemandi í 1.
bekk Síðuskóla á Akureyri. Þó að
ekki væri gerð um það sérstök
krafa þá er þessi botn Gunnars
Þórs hárrétt stuðlaður:
Ljósin falleg lýsa brátt,
líða fer að jólum.
Kennararnir hlæja hátt
og halda jól í skólum.
Á miðstigi voru nemendur beðnir
um að huga vel að ljóðstöfum og
rími. Hlaut Ásdís María Þorsteins-
dóttir í 7. bekk Brekkuskólans á
Akureyri verðlaun fyrir besta botn-
inn í sínum aldursflokki:
Grýlukerti glitrar á,
glóir sólin bjarta.
Brennur stjarnan bjarta þá,
bráðnar frosið hjarta.
Á unglingastigi var gerð krafa
um ljóðstafi og rím og fékk Ragn-
heiður Tómasdóttir, nemi í 10. bekk
Garðaskóla í Garðabæ, verðlaun
fyrir sinn vísubotn:
Eftir jólin aftur má
aðeins lengja daginn.
Hurðaskellir heldur þá
heim í jólabæinn.“
Það er ánægjulegt, að lausavís-
unni og vísnagerð skuli gerð svo
góð skil í grunnskólunum sem þess-
ir botnar sýna. Þegar ég var í MA
var settur fram fyrrihluti á árshá-
tíð skólans og sérstök verðlaun
veitt fyrir besta botninn:
Augum renna ungir menn
upp á kvennavistir.
Ég er löngu búinn að gleyma
verðlaunabotninum, en hins vegar
man ég þennan, sem nemandi í 1.
bekk gagnfræðadeildarinnar átti:
Kapphlaupið mun byrja senn.
Hverjir verða fyrstir.
Okkar góði kennari Gísli Jónsson
veitti þessum botni sérstaka við-
urkenningu fyrir góðan húmor!
Margar góðar sögur eru af slíkri
vísnagerð.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Stuðlaberg og vísna-
keppni grunnskólanna
Í klípu
,,FRÁBÆR KYNNING. ÁFRAM ÞÚ.
VILTU HALDA ÁFRAM EÐA ÞARFTU AÐ
ENDURHLAÐA?”
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
,,HVAÐ MEINTI HANN MEÐ ,,ÁSTIN ER
BLIND?””
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að gera það besta úr
umferðaröngþveiti.
LÍSA, ÉG
ER VEIKUR.
GETURÐU NUDDAÐ Á MÉR
AXLIRNAR OG SAGT
,,VESALINGURINN MINN”?
VAR ÞETTA
FLISS?!
HLÁTUR
ER BESTA
MEÐALIÐ.
HRÓLFUR ER Á NÝJA
VÖKVAKÚRNUM...
ÞÚ MÁTT BARA
DREKKA VÖKVA...
... EN ÞÚ MÁTT VELJA HVAÐA
VÖKVA ÞÚ DREKKUR!HVERNIG
VIRKAR
HANN?
FJÁRHAGSÁÆTLUN
NIÐURSKURÐUR
STARFS-
FÓLK
VÖRUR
LEIGA
GJÖLD
BRJÓT!
Víkverji skilur ekki hvers vegnaleikir hverrar umferðar í efstu
deild karla í fótbolta eru helst á
sama tíma. Fyrir bragðið getur hann
bara séð einn leik í hverri umferð en
ef einn leikur væri á dag gæti hann
séð alla leikina.
x x x
Víkverji horfir á fótbolta í sjón-varpi daglega allan veturinn, en
þegar Íslandsmótið loks hefst í maí
verður spennufall, því þá þarf að
bíða allt að viku eftir næsta leik. Það
er of langur tími fyrir fótboltafíkil.
x x x
Víkverji er líka alæta á umfjöllunum fótbolta. Þegar allir leikir í
hverri umferð eru á sama tíma sér
hann aðeins einn leik og les um hina
í Mogganum. Það skapar ójafnvægi
á milli daga.
x x x
Þegar allir leikir hverrar umferðareru á sama tíma verður alltaf
langt hlé vegna landsleikja, bik-
arleikja og Evrópuleikja. Þetta
vandamál verður úr sögunni með því
að spila á hverjum degi, því inn í þá
dagskrá raðast líka bikarleikir, Evr-
ópuleikir og landsleikir. Með öðrum
orðum ekkert hlé heldur stanslaust
fótboltafjör á hverjum degi frá byrj-
un maí út september.
x x x
Með því að dreifa leikjunum áþennan hátt má komast af með
færri dómara og þá hlýtur að verða
minna rifist út í þá en með núverandi
fyrirkomulagi.
x x x
Að sama skapi hlýtur áhorfendumað fjölga á alla leiki. Fólk lætur
sér ekki nægja að sjá FH í Kapla-
krika heldur vill líka fylgjast með
heimaleikjum Stjörnunnar í Garða-
bæ, Breiðabliks í Kópavogi, Fjölnis í
Grafarvogi, Vals að Hlíðarenda, KR
í Vesturbænum, Leiknis í Breiðholti,
Fylki í Árbænum, Skagamönnum á
Skaganum, Víkingum í Víkinni,
Eyjamönnum úti í Eyjum og Kefl-
víkingum í Keflavík. Aðalatriðið er
að leikirnir séu bara á höfuðborg-
arsvæðinu, því það versnar í því ef
aka þarf vestur, austur og norður
vikulega. víkverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn mun frelsa mig frá öllu illu
og mig hólpinn leiða inn í sitt him-
neska ríki. Honum sé dýrð um aldir
alda! Amen. (Tím. 4:18.)