Morgunblaðið - 18.06.2015, Síða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2015
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
Aldrei hefur
verið
auðveldara
að heyra
Enn er bætt um betur með nýju
ReSound heyrnartækjunum
sem gefa eðlilega og
áreynslulausa heyrn.
Taktu þátt í framþróuninni og
prófaðu þessa hágæða tækni.
GOLDEN
LOBE
AWARDS
2014
ASSOCIATION OF
INDEPENDENT
HEARING HEALTHCARE
PROFESSIONALS
Most Innovative
Concept 2014
presented to:
Resound - LiNX
made for iPhone
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég er í sjöunda himni með þessa viðurkenn-
ingu. Þetta er mikil og falleg staða,“ segir
Kristín Jóhannesdóttir leikstjóri, sem við há-
tíðlega athöfn í Höfða í gær var útnefnd
borgarlistamaður Reykjavíkur 2015.
„Ég hef alltaf litið á útnefningu borg-
arlistamanns sem mikinn heiður og ætíð
fyllst ákveðinni lotningu gagnvart því fólki
sem orðið hefur þess heiðurs aðnjótandi að
vera borgarlistamaður. Með þessari viður-
kenningu er listafólk sett í nokkurs konar
framvarðasveit og því fylgir ákveðin ábyrgð.
Þannig hvílir á manni að vera öflugur tals-
maður lista og öflugur listamaður.“
Í reglum um útnefninguna kemur fram að
um sé að ræða heiðursviðurkenningu til lista-
manns sem með listsköpun sinni hefur skar-
að fram úr og markað sérstök spor í íslensku
listalífi. Óhætt er að segja að það hafi Kristín
gert. Hún stundaði nám í bókmenntafræði og
kvikmyndafræði í Montpellier og París og
lauk þaðan fyrri hluta doktorsgráðu í kvik-
myndafræðum auk þess sem hún lauk loka-
prófi frá CLCF í kvikmyndaleikstjórn.
Kristín hefur verið einkar farsæl sem leik-
stjóri jafnt kvikmynda og sjónvarpsmynda
sem og í leikhúsi og útvarpi. Árið 2009 hlaut
hún Grímuna, íslensku leiklistarverðlaunin,
fyrir leikstjórn sína á Utan gátta eftir Sigurð
Pálsson, en sýningin hlaut alls sex Grímu-
verðlaun, m.a. sem leiksýning ársins. Hún
var tilnefnd til Grímunnar fyrir leikstjórn
sína á Rautt eftir John Logan og hlaut
Menningarverðlaun DV fyrir leikstjórn sína
á Svörtum hundi prestsins eftir Auði Övu
Ólafsdóttur. Í ár fengu þrjár sýningar í
hennar leikstjórn samtals ellefu tilnefningar
til Grímuverðlaunanna, en þetta voru Enda-
tafl eftir Samuel Beckett, Segulsvið eftir Sig-
urð Pálsson og Blinda konan og þjónninn eft-
ir Sigurð Pálsson, en síðastnefnda verkið
hlaut verðlaunin sem útvarpsverk ársins.
Leikstýrir Emmanuelle Riva
Aðspurð hvað sé framundan hjá sér í list-
inni segist Kristín munu nýta árið til að und-
irbúa og leikstýra kvikmynd eftir eigin hand-
riti sem nefnist Alma. „Alma þýðir sál. Stóru
línurnar í myndinni eru sekt og sakleysi,
glæpur og refsing, ástir og örlög,“ segir
Kristín leyndardómsfull, en upplýsir þó að
um samtímasögu sé að ræða. „Tökur hefjast
í haust og munu eflaust standa fram í mars á
næsta ári,“ segir Kristín og tekur fram að ef
eftirvinnslan gangi vel verði hægt að frum-
sýna myndina haustið 2016. Innt eftir leik-
aravali upplýsir Kristín að Elma Stefanía
Ágústsdóttir muni fara með titilhlutverkið,
en Elma Stefanía fór með hlutverk Unnar í
Segulsviði sem Kristín leikstýrði fyrr í vetur.
„Elma Stefanía er afburðaleikkona og ég
vænti mjög mikils af henni í hlutverki Ölmu.
Í myndinni leitar Alma til tveggja kvenna
um nírætt sem búa í litlu sjávarþorpi úti á
landi,“ segir Kristín og upplýsir að með hlut-
verk eldri kvennanna tveggja fari Emm-
anuelle Riva og Kristbjörg Kjeld. „Ég heill-
aðist strax af Emmanuelle Riva í námi mínu
úti þegar ég sá Hiroshima Mon Amour, sem
er með stærri myndum kvikmyndasögunnar,
eftir handriti Marguerite Duras og í leik-
stjórn Alain Resnais. Síðan var hún í aust-
urrísku myndinni Amour sem Michael Ha-
neke leikstýrði, en myndin var tilnefnd til
fimm Óskarsverðlauna árið 2013,“ rifjar
Kristín upp. Myndin var m.a. tilnefnd sem
besta mynd ársins, Haneke sem leikstjóri
ársins og Riva sem leikkona ársins í aðal-
hlutverki, en myndin var verðlaunuð sem
besta erlenda mynd ársins.
„Ég hlakka óskaplega mikið til að vinna
með Emmanuelle og Kristbjörgu, því það er
svo spennandi að vinna með leikkonum sem
búa yfir jafnmiklum þroska og þær. Ég
hlakka svo til að sjá þær saman, því þær
tvær eiga eftir að magna hvor aðra upp,“
segir Kristín, sem margoft hefur unnið með
Kristbjörgu, m.a. leikstýrði hún henni í
Strompleik, Utan gátta, Svörtum hundi
prestsins og Karma fyrir fugla.
Of langur tími milli mynda
Alma er þriðja kvikmyndin í fullri lengd
sem Kristín leikstýrir, en fyrri myndir henn-
ar eru Á hjara veraldar sem frumsýnd var
árið 1983 og Svo á jörðu sem á himni frá
árinu 1992. Þegar Kristín hlaut heið-
ursverðlaun Eddunnar árið 2013 notaði hún
tækifærið til að gagnrýna skertan hlut
kvenna í íslenskum kvikmyndum og sagði við
það tækifæri m.a.: „Þjóðfélag verður aldrei
heilt með karllæg gildi ein í öndvegi.“
Spurð hvort Alma hafi verið komin á
teikniborðið þegar þessi orð voru látin falla
eða hvort heiðursverðlaunin hafi hjálpað
henni að láta myndina verða að veruleika
svarar Kristín: „Ég viðurkenni það fúslega
að það hefur liðið alltof langur tími milli
mynda hjá mér. Á sínum tíma lá ég á hurð-
unum hjá Kvikmyndasjóði með handritin í
bunkum, en þar var allt lokað. Að lokum
gafst ég því upp og sneri mér alfarið að leik-
húsinu. Ég ætla ekkert að leggja dóm á það
hvort það stafi af því að konur hafi minna
vægi, en mér finnst þetta samt grunsamlegt.
Mér finnst rétt að hvetja konur áfram og því
tók ég svona sterkt til orða þegar mér voru
veitt heiðursverðlaunin. Ég valdi að taka
mjög skýra afstöðu og hvetja konur áfram,
því þær verða að ryðjast upp völlinn eins og
strákarnir og láta að sér kveða,“ segir Krist-
ín og rifjar upp að í framhaldi af ræðunni
hafi Guðrún Edda Þórhannesdóttir kvik-
myndaframleiðandi sett sig í samband við
hana.
„Guðrún er undraverð kona. Hún hafði
samband við mig og spurði hvort ég væri
ekki með eitthvert handrit sem hún mætti
skoða. Ég fann að ég gat treyst henni og lét
hana fá handritið að Ölmu og hún varð svona
uppnumin yfir því og hafði það í gegn að
myndin komst í framleiðslu. Það var mikið
gleðiefni að það opnuðust loks einhverjar
dyr.“
Andleg upprisa í leikhúsinu
Aðspurð segist Kristín hafa saknað þess að
leikstýra ekki fyrir hvíta tjaldið sl. rúma tvo
áratugi. „Ég hef engu að síður notið þess
mjög að vinna í leikhúsinu og ekki síst að fá
næði til að vera í samvistum við leikara svo
vikum skiptir. Það hefur þroskað ákveðna
hæfni til að byggja upp persónur og skynja
hvers leikarinn er megnugur og hvers ekki,
þ.e. að skilja þarna á milli. Leikhúsið og
kvikmyndin hafa mjög skýran skurðpunkt í
vinnu leikarans. Hins vegar eru þetta í
grunninn líka algjörlega tveir ólíkir heimar.
Þess vegna er mjög gott að hafa reynslu af
báðum miðlum til að geta t.d. forðast það að
láta fögin tvö flækjast fyrir sér. Það er mikil-
vægt að vera sér meðvitaður um styrkleika
beggja listgreina.
Mér hefur þótt svolítið erfitt að verða vitni
að því að fólk er í auknum mæli að biðja um
sjónvarpsefni í leikhúsi, ef ekki svona stór-
myndaviðhorf. Leikhús er í raun í ætt við
helgileiki, enda er leikhúsið upprunalega
helgileikjavettvangur. Í leikhúsinu gefst
áhorfandanum tækifæri til að sameinast öðru
fólki í einhvers konar sálhreinsun og teygja
sig í átt að andlegu jafnvægi og jafnvel and-
legri upprisu,“ segir Kristín að lokum.
„Ég er í sjöunda himni“
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Borgarlistamaður „Með þessari viðurkenningu er listafólk sett í nokkurs konar framvarðasveit
og því fylgir ákveðin ábyrgð,“ segir Kristín Jóhannesdóttir leikstjóri.
Kristín Jóhannes-
dóttir borgarlistamað-
ur Reykjavíkur í ár
burðum mörg ár aftur í tímann, þar
sem sögupersónur eiga einnig hlut
að máli. Ágætlega spunnið en fram-
vindan er frekar hæg.
Mörg helstu vandamál, sem virð-
ast herja á Svíþjóð og fleiri lönd um
þessar mundir, fléttast inn í söguna.
Þar má nefna peningaþvætti, skatta-
brot, félagsleg vandamál og haturs-
umræðu á netinu. Nina og Annika
verða margs vísari og lesandinn
kynnist ekki síður þeirra eigin
vandamálum.
Fólk fetar mismunandi brautir í
lífinu og glæpasagan Ham-
ingjuvegur greinir frá nokkrum leið-
um. Ekki verður á allt kosið, en oft
má finna leið út úr ógöngum.
Liza Marklund hefur sentfrá sér nokkrar ágætarspennusögur en Ham-ingjuvegur er fyrst og
fremst að mörgu leyti vel upp byggð
glæpasaga, þar sem meira púðri er
eytt í að segja frá
hversdagslegu lífi
helstu persóna en
glæpunum sem slík-
um.
Hrottaleg árás á
fyrrverandi stjór-
málamann verður til
þess að lög-
reglukonan Nina
Hoffmann og blaðamaðurinn Annika
Bengtzon fara að rannsaka málið,
hvor með sínum hætti. Málið vindur
upp á sig og ýmislegt, sem áður
hafði verið grafið, kemur upp á yf-
irborðið.
Sagan gerist að mestu á fimm
virkum dögum í maí, en tengist við-
Góð Liza Marklund hefur sent frá
sér nokkrar ágætar spennusögur.
Óvæntur endir út
úr myrkrinu
Glæpasaga
Hamingjuvegur bbbmn
Eftir Lizu Marklund.
Ísak Harðarson þýddi. Mál og menning,
2015. Kilja, 384 bls.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR