Morgunblaðið - 18.06.2015, Qupperneq 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2015
POWERSÝNING
KL. 10:35
BRÁÐSKEMMTILEG GAMANMYND MEÐ
OWEN WILSON, IMOGEN POOTS
OG JENNIFER ANISTON
Sími: 553-2075
www.laugarasbio.is
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS
EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI
- bara lúxus
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Ljótu hálfvitarnir verða með þrenna tón-
leika á Café Rosenberg dagana 18. til 20.
júní nk. en hljómsveitin hefur ekki verið
með tónleika frá því hún fór í verkfall, að
eigin sögn, í apríl. Þeir segjast þó ekki al-
mennilega átta sig á því hvers vegna þeir
fóru í verkfall og enginn hafi gert nokkuð í
réttinda- og launakröfum þeirra. Eftir dá-
góða umhugsun settist hljómsveitin niður
yfir rúgbrauðssneið og setti lög á verk-
fallið. Þeir koma því saman á Café Rosen-
berg við Klapparstíg þrjú kvöld í röð,
fimmtudags-, föstudags- og laug-
ardagskvöld í þessari viku.
Verkfallið hefur greinilega farið vel með
meðlimi hljómsveitarinnar en kraftur er
svo mikill hjá þeim að þeir hafa ákveðið að
skella sér norður á land og spila á Græna
hattinum um sjálfa Pollamótshelgina og
fara þeir tónleikar fram 2., 3. og 4 júlí.
Ljótu hálfvitarnir úr verkfalli
Tónlist Ljótu hálfvitarnir verða með þrenna tónleika í þessari viku á
Café Rosenberg og þrenna tónleika fyrir norðan um Pollamótshelgina.
inni á námsárum sínum í Banda-
ríkjunum.
Einstakt tækifæri
Youth Philharmonic Orchestra er
ekki bara einhver skólahljómsveit
að sögn Ara heldur feiknagóð und-
irbúningshljómsveit fyir fram-
úrskarandi og unga tónlistarmenn.
Íslendingum gefst því gullið tæki-
færi til að hlýða á klassíska tónlist
frá þessum ungu tónlistarmönnum.
„YPO er mjög góð hljómsveit og
það er bæði mikill heiður að fá að
spila með þeim og ánægja,“ segir
Ari en sem fyrrverandi nemandi í
New England Conservatory var
haft upp á honum við komu hljóm-
sveitar skólans til landsins. „Ég er
eini einleikarinn á tónleikunum og
mun leika verkið Poème eftir Er-
nest Chausson, sem ég tók reyndar
upp með Sinfóníuhljómsveit Íslands
fyrir Ríkisútvarpið svo það er
skemmtilegt að fá að spila það
núna á tónleikum,“ segir Ari en
hann mun ekki spila með hljóm-
sveitinni í öðrum verkum.
Tónleikar Youth Philharmonic Orchestra flytur tvenna auglýsta tónleika á
Íslandi í júní og er frítt inn á þá báða og því um einstakt tækifæri að grípa.
Morgunblaðið/Eggert
Fiðluleikari Ari Þór Vilhjálmsson fiðluleikari spilar einleik á tónleikum Yo-
uth Philharmonic Orchestra sem fara fram á Íslandi.
Gjörningaklúbburinn í samvinnu
við Listasafn Reykjavíkur stendur
fyrir gjörningi með þátttöku al-
mennings, í höggmyndagarðinum
Perlufesti í Hljómskálagarðinum
þann 19. júní í hádeginu, á eins árs
afmæli höggmyndagarðsins og 100
ára afmæli kosningaréttar kvenna.
Gjörningurinn hefur hlotið nafnið
Möskvi. Í Möskva verður kíkt ofan í
jarðlög kvennasögunnar og perlur
hennar dregnar fram í dagsljósið.
Möskvi er að hluta til byggður á
þátttöku áhorfenda, en þátttaka
áhorfenda hefur áður verið mik-
ilvægur hluti gjörninga klúbbsins.
Kíkt í kvennasögu
Höggmyndir í
Hljómskálagarði.
Morgunblaðið/Eggert
Landslag er ný sýning eftir Þóru
Björk Schram, textílhönnuð, en
sýningin er í Handverki og Hönnun,
Aðalstræti 10. Teppin sem þar eru
sýnd eru hönnuð af Þóru en þau eru
handtuftuð og flosuð úr 100% ís-
lenskri ull. Þau eru því bæði sterk
og mjúk og henta vel jafnt sem
vegg- eða gólfteppi.
Landslag Þóru
Verk Veggteppi frá Þóru Björk Schram.