Fréttablaðið - 22.07.2015, Síða 8
22. júlí 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 8
ÞÝSKALAND „Herra Schäuble hefur
ögrað Jafnaðarmannaflokknum,“
sagði Sigmar Gabriel, leiðtogi Jafn-
aðarmannaflokks Þýskalands og
varakanslari, við þýsku sjónvarps-
stöðina ZDF í gær.
Það hriktir í stoðum þýsku rík-
isstjórnarinnar eftir ummæli
fjármálaráðherrans Wolfgangs
Schäuble frá því í síðustu viku.
Schäuble talaði þá um að mögulega
gæti reynst betra að víkja Grikkjum
tímabundið úr evrusvæðinu.
Ummæli fjármálaráðherrans
fóru öfugt ofan í þingmenn Jafn-
aðarmannaflokksins, samstarfs-
flokks Kristilega demókrataflokks-
ins, flokks Angelu Merkel.
Gabriel sagði hugmynd Schäuble
ósanngjarna og að átök hans við
Merkel væru ólíðandi.
Varaformaður jafnaðarmanna-
flokksins, Ralf Stegner, gagnrýndi
Schäuble harðlega og gaf í skyn við
fjölmiðla að fjármálaráðherrann
ætti að segja af sér.
„Hegðun Schäuble sýnir að
hægriflokkarnir í Evrópu hafa
týnt áttum þegar að Evrópumálum
kemur,“ sagði Stegner enn fremur.
Stjórnmálaskýrendur í Þýska-
landi hafa velt vöngum yfir því
hvort Schäuble muni segja af sér
embætti en hann hefur þó sjálfur
hafnað því. Í viðtali við Der Spiegel
sagði Schäuble að hann hefði ólík-
ar hugmyndir en Merkel í mörgum
málum, en að margbreytilegar skoð-
anir væru hluti af lýðræðinu.
Schäuble hafnaði einnig hug-
myndinni um þýsk yfirráð í Evrópu.
„Þýskaland ræður ekki yfir Evrópu-
sambandinu. Hagkerfi Þýskalands
er sterkt, því neitum við ekki, en
öfugt við Frakkland og Bretland
er Þýskaland ekki með fast sæti í
öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.
Því er ekki hægt að segja að Þýska-
land sé í yfirburðastöðu,“ sagði
Schäuble.
Fjármálaráðherrann skaut einnig
föstum skotum á Gabriel. „Allir
flokkar hafa sín vandamál,“ sagði
Schäuble. „En í samsteypustjórn
þarf að sýna hinum flokknum til-
litsemi. Þú reynir ekki að leysa þín
eigin vandamál með ónákvæmum
ásökunum í garð annarra.“
Þýski þingmaðurinn Hans
Michel bach úr flokki Kristilegra
demókrata í Bæjaralandi, sem
styður ríkisstjórn Angelu Merkel,
studdi við bakið á Schäuble í gær.
„Við þörfnumst Schäuble nú meira
en nokkurn tímann áður,“ sagði
hann. „Schäuble leyfir röddum
þeirra sem efast um Evrópusam-
bandið að heyrast.“
stefanrafn@frettabladid.is
thorgnyr@frettabladid.is
Jafnaðarmenn ósáttir við
ummæli fjármálaráðherra
Jafnaðarmannaflokkurinn í Þýskalandi er ósáttur við kristilega demókrata sem starfa með þeim í ríkisstjórn.
Formaður og varaformaður segja hugmyndir fjármálaráðherra um brotthvarf Grikkja vera ósanngjarnar.
TITRINGUR Ummæli Wolfgang Schäuble um brotthvarf Grikkja úr evrusvæðinu
valda jafnaðarmönnum áhyggjum. NORDICPHOTOS/AFP
-Toppurinn
á ísnum
með karamellufyllingu og
ristuðum möndlum
NORÐUR-KÓREA „Við erum augljós-
lega kjarnorkuveldi og kjarnorku-
veldi gæta eigin hagsmuna,“ segir
í yfirlýsingu sem norðurkóreska
utanríkisráðuneytið sendi frá sér
í gær. Samkvæmt tölum Alþjóða-
öryggis- og vísindastofnunarinn-
ar búa Norður-Kóreumenn trúlega
yfir um 30 kjarnaoddum.
Ráðamenn í landinu hafa ekki
áhuga á samningi svipuðum þeim
sem stórveldi heimsins, Banda-
ríkin, Rússland, Bretland, Kína,
Frakkland, Þýskaland og Evrópu-
sambandið, gerðu við Írana í síð-
ustu viku. Í þeim samningi segir
að Íranar megi ekki þróa kjarn-
orkuvopn en á móti verði viðskipta-
banni Bandaríkjanna, Sameinuðu
þjóðanna og Evrópusambandsins á
landið aflétt.
„Það er órökrétt að bera stöðu
okkar saman við stöðu Írana þar
sem við erum ávallt fórnarlömb
ögrandi hernaðaraðgerða Banda-
ríkjamanna, til að mynda risavax-
inna hernaðaræfinga og kjarnorku-
ógnarinnar,“ segir í yfirlýsingunni.
„Við höfum engan áhuga á við-
ræðum sem hefðu það markmið að
afsala okkur kjarnorkusprengjum
okkar,“ segir enn fremur.
Líkt og á Írana hafa Bandaríkin,
Sameinuðu þjóðirnar og Evrópu-
sambandið sett strangt viðskipta-
bann á alla verslun við Norður-
Kóreu. - þea
Utanríkisráðherrann hafnar öllu tali um samkomulag við stórveldin svipað því sem gert var við Írana:
Norður-Kórea vill ekki kjarnorkusamning
KJARNORKUVELDI Ríkisstjórn Kim
Jong-Un hyggst ekki afsala sér kjarn-
orkuvopnum sínum. NORDICPHOTOS/AFP
Herra
Schäuble hefur
ögrað Jafn-
aðarmanna-
flokknum.
Sigmar Gabriel,
varakanslari
Þýskalands.LEIÐRÉTT
Rangt var farið með föðurnafn Páls
Þórhallssonar, formanns stjórnar-
skrárnefndar, og hann sagður Þor-
steinsson. Hlutaðeigandi eru beðnir
velvirðingar á þessum mistökum.
Í Fréttablaðinu í gær kom fram að
þeir Norður-Kóreumenn sem ekki
kjósa verði líflátnir. Hið rétta er að
þeir verða sendir í vinnubúðir.
Í Fréttablaðinu í gær kom fram að lög-
fræðingurinn og fyrrverandi atvinnu-
maður í knattspyrnu, Guðni Bergsson,
fagnaði fimmtudagsafmæli sínu í gær.
Það er ekki rétt því Guðni fagnaði að
sjálfsögðu fimmtugsafmæli sínu í gær.
Beðist er velvirðingar á þessum mis-
tökum.
SVONA ERUM VIÐ
31 prósent fanga sat inni vegna fíkniefnabrota
árið 2013.
Árið 1993 voru 8 prósent fanga í
fangelsum vegna fíkniefnabrota.
NEYTENDUR Kaupás hefur, í sam-
ráði við matvælaeftirlit Reykja-
víkur, innkallað First Price Naan-
brauð vegna myglu.
Um er að ræða pakkningu með
tveimur stykkjum af naanbrauð,
annars vegar hefðbundið naan-
brauð og hins vegar hvítlauks-
naanbrauð.
Dreifiaðilar brauðsins eru
verslanir Krónunnar, Nóatúns
og Kjarvals um land allt. Við-
skiptavinum sem hafa keypt
vöruna í framangreindum versl-
unum er bent á að skila þeim í
viðkomandi verslun.
- fbj
Hægt að skila í verslanir:
Innkalla mygl-
að naanbrauð
EVRÓPUMÁL Framlög Íslands til
Uppbyggingarsjóðs EES munu
hækka um 11,3 prósent. Samn-
ingaviðræðum milli EFTA-
ríkjanna innan EES og ESB um
framlög til sjóðsins fyrir tímabil-
ið 1. maí 2014 til 30. apríl 2021 er
lokið. Fyrri samningur rann út í
lok apríl 2014.
Í frétt á vef utanríkisráðuneytis-
ins segir að samningaviðræður hafi
staðið yfir á annað ár þar sem mikið
hafi borið á milli aðila í upphafi.
Samhliða þessum viðræðum hafi
farið fram viðræður um endurnýj-
un samninga um tiltekna tollfrjálsa
innflutningskvóta fyrir sjávaraf-
urðir frá Íslandi inn á markað ESB.
Niðurstaða samninga inniheldur
meðal annars að hækkun framlaga
til uppbyggingarsjóðs EES milli
tímabila nemur 11,3 prósentum,
sem er í takt við verðlagsbreyting-
ar frá árinu 2009.
Þá felur niðurstaða samninga í
sér að árlegir tollfrjálsir kvótar
fyrir humar aukast úr 580 tonnum
í 1.000 tonn, fyrir fersk karfaflök
úr 850 tonnum í 2.000 tonn og nýr
kvóti bætist við fyrir unna þorsk-
lifur upp á 2.500 tonn.
Samningurinn gildir í sjö ár, eða
frá 1. maí 2014 til 30. apríl 2021.
- ngy
Samningar um uppbyggingarsjóð EES eru í höfn:
Framlög Íslands
hækka um 11%
KARFI Niðurstaðan felur í sér að tollfrjálsir kvótar fyrir fersk karfaflök fara úr 850
tonnum í 2.000 tonn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:5
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
2
-4
A
7
C
1
7
5
2
-4
9
4
0
1
7
5
2
-4
8
0
4
1
7
5
2
-4
6
C
8
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
0
4
0
s
_
2
1
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K