Fréttablaðið - 22.07.2015, Side 11

Fréttablaðið - 22.07.2015, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 22. júlí 2015 | SKOÐUN | 11 Sem ungur hjúkrunarfræð- ingur efaðist ég ekki um að hafa valið rétta starfið fyrir lífstíð. Í dag hefði ég valið á annan hátt. Heilbrigðis- kerfinu okkar hefur hnign- að mjög síðustu 20 ár vegna sparnaðar og hagræðingar. Verst hefur mér þótt hversu mjög hefur verið sparað í starfsfólki. Fyrir hrun var byrjað að fækka starfsfólki á vöktunum og eftir hrun var haldið áfram að fækka. Svo var farið að spara klukkustund hér og klukkustund þar og vakt- irnar styttar. Þrátt fyrir að nægur tími og umhyggja sé það sem oftast skiptir skjólstæðingana hvað mestu máli. Í dag kvíða margir heilbrigðis- starfsmenn vinnudögunum enda náum við sjaldan að hlaupa nógu hratt til að sinna þörfum heimilis- fólksins eins vel og við vildum. En að hafa starfsfólk sem vinnur meira og hleypur hraðar fyrir léleg laun kemur sér vel fyrir ráðamenn sem halda áfram að herða sparnaðar- ólina. Við svona vinnuálag og virðingar- leysi fer óánægjan að krauma og vinnugleðin þverr. Gæðastundum fækkar, mórallinn verður neikvæð- ur, bök bresta, veikindadögum fjölgar og góðir starfsmenn kulna í starfi. Faglærðu hjúkrunarfólki hjúkrunarheimila fækkar, sem er mjög slæmt að öðru starfsfólki ólöstuðu. Á sumarleyfistíma fastra starfsmanna eru ófaglærðar ungar skólastúlkur í meirihluta. Þær eru reynslulausar en koma með ferskan blæ, kappsemi, dugnað, jákvæðni, falleg bros og hafa góð áhrif á alla í kringum sig. Dagurinn í dag hefur verið erfiður, deildin þung og heimilis- menn þurfa mikla hjúkrun. Okkar viðfangsefni er lifandi fólk. Ekki pakkar í hillum eða seðlar í skúff- um. Ég gleypi í mig morgunmat klukkan hálftólf og sé fram á að sleppa hádegismatnum. Það mun spara tíma og koma sér vel fyrir deildina. Eftir stutt rapport spyr ég ungu stúlkurnar hvernig þeim líði í vinnunni. Svörin flæða fram og ég skrifa þau hjá mér; það er alltof mikið að gera, mér líður svo illa að geta ekki sinnt öllu eins vel og ég vildi, þegar ég kem heim – vá þá er ég svo þreytt og get ekki hætt að hugsa um vinnuna, það er svo leiðinlegt að þurfa að segja bíddu aðeins þegar fólkið biður um eitthvað, mér finnst sumir aðstandendur halda að við séum ekki að vinna vel. Ein þeirra bætir við: ég vildi óska þess að hjúkrunar- fræðingarnir hefðu meiri tíma fyrir sín störf, þær hafa alltof mikið að gera og það er slæmt fyrir alla. Þegar ég kem heim sest ég niður og byrja að skrifa. Starf mitt hefur markað líf mitt og ég er ekki lengur ung. Að vinna sem hjúkrunarfræð- ingur við þessar aðstæður gerir mig sorgmædda og mér finnst eins og gamli neistinn í hjartanu hafi horf- ið með niðurskurðinum. Álag á hjúkrunarheimilum er alls staðar svipað. Mér þykir vænt um minn ágæta vinnustað. Þar er mjög gott starfsfólk sem vinnur vel. En ég deili á þá sem forgangs- raða fjármunum þjóðfélagsins án þess að huga betur að þeim sem minna mega sín. Það hlýtur að vera hægt að spara annars staðar. Mér er næst að halda að þrátt fyrir mikla umfjöllun geri hvorki ráðamenn né almenningur sér grein fyrir ástand- inu í heilbrigðiskerfinu sem er oft óboðlegt bæði fyrir skjólstæðinga og starfsfólk. Stjórnendur og millistjórnend- ur heilbrigðiskerfisins ættu að standa betur með þeim sem vinna á gólfinu, þeirra skyldur eru ekki bara að framfylgja skipunum að ofan um sparnað. Þetta fólk getur sagt hingað og ekki lengra og stuðlað að því að snúa þróuninni við. Hvernig líður okkur í vinnunni? Styttri vinnudagur barna er ein af megináherslum Bjartrar fram- tíðar í Hafnarfirði. Aukin sam- fella í skóladeginum, frístunda- og félagsstarfi auk annarrar virkni á borð við listnám eða íþróttir, er að okkar mati lykill að þessu mark- miði. Fagleg, góð og hagkvæm þjónusta við börn og fjölskyldur þeirra er okkur hjartans mál sem við stefnum að með öllum færum leiðum. Nýlega samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar breytt skipurit bæj- arins, sem felur meðal annars í sér tilfærslu íþrótta- og tómstunda- mála til baka frá fjölskyldusviði til fræðslusviðs. Í því felst að rekstur frístundaheimila verður samþætt- ur við annað starf skólanna. Rétt er að árétta að endanleg útfærsla á umræddum breytingum er ekki búin, þar sem eftir er að fjalla um þau mál jafnt á vettvangi stjórn- sýslu sem kjörinna fulltrúa í við- eigandi ráðum og nefndum. Ný vinnubrögð Nýútkominni úttekt ráðgjafa- fyrirtækjanna Capacent og R3 á rekstri Hafnarfjarðarbæjar fylgir fjöldi tillagna um skipu- lags- og rekstrarbreytingar af ýmsu tagi. Úrvinnsla þess- ara ábendinga stendur nú fyrir dyrum innan stjórnkerfis bæjar- ins. Skiljanlegt er að þessi vinnu- brögð geti, og hafi, valdið mis- skilningi, þar sem tillögurnar eru birtar í heild sinni með opnum hætti áður en endanleg ákvörðun á grunni þeirra hefur verið tekin. Með þeim hætti er aðgengi íbúa að ferlinu opnað, í samræmi við stefnu Bjartrar framtíðar um opna stjórnsýslu. Í fullkomnum heimi væru umræður um tillögur ráðgjafanna lausar við verðmiða og kostn- aðarvitund. Staða mála er hins vegar sú að bæjarstjórn Hafnar- fjarðar verður að finna leið til að létta rekstur bæjarins. Markmið- ið í þeim efnum er að finna svig- rúm upp á 5-600 milljónir króna. Þetta verðum við að hafa hugfast í þeirri úrvinnslu á niðurstöðum rekstrarúttektar sem fram undan er. Þessi nauðsyn til að mæta slæmri fjárhagsstöðu eykur enn mikilvægi þess að ferlið sé opið gagnvart íbúum, enda brýnt að hlustað sé á vilja bæjarbúa og leit- ast við að mæta óskum þeirra eins og hægt er. Breytingar– ógn eða tækifæri? Björt framtíð leggur megináherslu á að tilfærsla á rekstri frístunda- heimila í skólunum frá fjölskyldu- sviði til fræðslusviðs hafi ekki áhrif á faglegt starf nema þá til eflingar. Áfram verði forstöðu- menn á hverjum stað, auk þess sem fagstjóri starfi áfram í mið- lægri stjórnsýslu. Þessar áherslur eru í samræmi við vinnu þverpóli- tísks starfshóps sem fjallað hefur um frístundastarfið undanfarna mánuði. Skýr greinarmunur er gerður á rekstrarlegri stjórnun og faglega þættinum. Fjölmörg tækifæri fylgja breyttu skipuriti. Meðal annars er tækifæri til að draga úr starfs- mannaveltu með því hugsan- lega að geta boðið starfsfólki frí- stundaheimila lengri starfsdag og hærra starfshlutfall. Þá er tæki- færi til að auka samfellu í vinnu- degi barnanna okkar með því að tryggja að stoðþjónusta sé sam- felld og fleira mætti nefna. Málið snýst á endanum um að efla vellíð- an og þroska barna okkar. Horft verður til reynslu annarra sveitarfélaga á sambærilegu fyrir- komulagi, þ.e. að fella rekstur frí- stundaheimila inn í heildarstarf skólanna. Við erum t.d. meðvit- uð um það að gæta þarf að fjár- veitingum til frístundamálanna svo þau verði ekki afgangsstærð í heildarrekstrinum. Ræðum málin til enda Frá því tillögur ráðgjafa voru birt- ar á vef bæjarins hafa þær verið túlkaðar með ýmsum hætti, meðal annars af hálfu minnihlutans í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Þess- ar tillögur eru grunnur að ákvarð- anaferlinu sem fram undan er, þær ber ekki að túlka sem endan- lega niðurstöðu, fyrst þurfa þær umfjöllun. Við vonumst eftir víðtækri þátt- töku í því samtali og munum sjálf hafa að leiðarljósi að finna sem best jafnvægi milli óumflýjan- legrar leiðréttingar á slæmri fjár- hagsstöðu og áframhaldandi upp- byggingar á öflugri þjónustu við bæjarbúa. Það verkefni mun vafa- laust kalla á útsjónarsemi og því kjósum við að nálgast það með opnum hug og bjartsýni, í anda Bjartrar framtíðar. Faglegt æskulýðsstarf í Hafnarfi rði Yfirlýsingar Bjarna Bene- diktssonar fjármálaráð- herra, um að áformað sé að fella niður tolla á fötum og skóm um næstu áramót og tolla af öllum öðrum vörum nema matvöru fyrir árið 2017, marka mikil tímamót í íslenzkri verzl- unarsögu. Þessi áform stjórnvalda eru til marks um að þau átti sig á því hversu skað- legir tollar og önnur höft á alþjóðaviðskiptum eru. Í fréttatilkynningu fjármála- ráðuneytisins um þessi áform segir réttilega: „Tollar hafa haml- andi áhrif á viðskipti og draga úr alþjóðaviðskiptum í heild sinni. Þegar tollur er lagður á innflutta vöru hækkar verðið sem inn lendir neytendur þurfa að greiða fyrir vöruna sem aftur dregur úr eftir- spurn eftir henni. Afnám tolla lækkar vöruverð til neytenda, bætir samkeppnishæfni seljanda og eykur skilvirkni á innlendum markaði.“ Þessar setningar eru teknar upp úr skýrslu starfshóps um endur- skoðun tollskrár og þar er orða- lagið raunar enn afdráttarlaus- ara; starfshópurinn bendir á að í skjóli tollmúra geti innlendir fram- leiðendur hækkað verð umfram heimsmarkaðsverð og allir tapi; aukning tekna hins opinbera verði minni en tap neytenda og fram- leiðenda. Mótsagnakennd stefna Í ljósi þessarar afdráttarlausu afstöðu fjármálaráðuneytisins til skaðsemi tolla skýtur vissulega skökku við að fjármálaráðherr- ann hafi ekki einu sinni ámálgað að gera breytingar á matartollum. Alþjóðaviðskipti með matvöru lúta ekki öðrum hagfræðilegum lög- málum en viðskipti með allar aðrar vörur. Starfshópurinn sem vann skýrsluna sem tillögur ráðherrans byggjast á var hins vegar ekki einu sinni beðinn að skoða afnám matar- tolla. Stefna ríkisstjórnarinnar í þess- um málum er mótsagnakennd á ýmsa lund. Á sama tíma og fjár- málaráðherrann boðaði afnám allra annarra tolla skrifaði landbúnaðarráð- herrann upp á að tollar á mat, sem fluttur er inn á svokölluð- um WTO-tollkvóta, skyldu hækka um rúmlega 7% á milli ára! Hreint engin fásinna Mjög mikilvægt og fordæmis- gefandi skref varðandi breyting- ar á matartollum er þó stigið með áformum fjármálaráðherra. Með þeim er viðurkennt að ekkert er því til fyrirstöðu að lækka tolla ein- hliða. Því hefur gjarnan verið hald- ið fram að það sé ekki hægt; Ísland verði að semja við önnur ríki og fá eitthvað í staðinn fyrir að lækka tolla á innflutningi. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráð- herra uppástóð til dæmis á Bún - aðar þingi í marz síðastliðnum að það væri „hrein fásinna“ að tala um að afnema tolla einhliða án þess að fá neitt á móti. Með því væri samn- ingsstöðu Íslands kastað á glæ. Nú hefur fjármálaráðherrann komizt að allt annarri niðurstöðu en forsætisráðherrann; það er í góðu lagi að afnema eða lækka tolla einhliða. Það hefur raunar verið gert áður hvað matvöru varð- ar, þegar tollar á innfluttu gróður- húsagrænmeti voru felldir niður árið 2002. Afleiðing þeirrar tolla- lækkunar var veruleg verðlækkun og jafnframt aukin sala bæði inn- lends og erlends grænmetis. Inn- lend grænmetisframleiðsla hefur blómstrað síðan og unnið stórvirki í nýjungum og vöruþróun. Nú hefur verið höggvið myndar- lega í tollmúrana. Þess getur ekki verið langt að bíða að verndar- múrarnir sem reistir hafa verið um innlenda matvælaframleiðslu molni líka niður. Einhliða tollalækkun er engin fásinna Guðlaug Kristjánsdóttir bæjarfulltrúi Bjartrar framtíðar í Hafnarfi rði Matthías Freyr Matthíasson formaður íþrótta- og tómstundanefndar í Hafnarfi rði ÆSKULÝÐS STARF KJARAMÁL Elínborg Angantýsdóttir hjúkrunar fræðingur EFNAHAGSMÁL Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnu- rekenda í tileFni dAgsinS – alLa dagA með vaNillubrAgðI með súKkulaðIsósU hneTuís Með karaMellusósU -Toppurinn á ísnum ÍSinn Með Gula LokinU RR \\\ TBW A TBW TBWBWBWWW A AA • S SÍAA SÍA SÍA •• 15 016 4 15 016 4 5 016 5 016 Liggurðu á skoðunum þínum? Það er algjör óþarfi . Sendu greinina þína á greinar@visir.is og við komum henni á framfæri hið snarasta. ➜ Fagleg, góð og hag- kvæm þjónusta við börn og fjölskyldur þeirra er okkur hjartans mál sem við stefnum að með öllum færum leiðum. ➜ Nú hefur fjármála- ráðherrann komizt að allt annarri niður- stöðu en forsætis- ráðherrann; það er í góðu lagi að afnema eða lækka tolla ein- hliða. 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :5 9 F B 0 4 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 1 -1 8 5 C 1 7 5 1 -1 7 2 0 1 7 5 1 -1 5 E 4 1 7 5 1 -1 4 A 8 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 0 4 0 s _ 2 1 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.