Fréttablaðið - 22.07.2015, Qupperneq 16
| 2 22. júlí 2015 | miðvikudagur
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ
Hagstofan – Mánaðarleg launa-
vísitala
FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ
Össur – Uppgjör annars ársfjórð-
ungs 2015
Hagstofan – Vísitala neysluverðs
MÁNUDAGUR 26. JÚLÍ
Icelandair – Uppgjör annars árs-
fjórðungs
ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER
Hagstofan – Nýskráningar og
gjaldþrot í júní
Dagatal viðskiptalífsins dagatal viðskiptalífsins
Gengi félaga í Kauphöll Íslands
Á UPPLEIÐ
Félög sem hækkuðu
í verði
Á NIÐURLEIÐ
Félög sem lækkuðu
í verði
STÓÐU Í STAÐ
Félög sem stóðu
í stað
MESTA HÆKKUN
NÝHERJI
141,1% frá áramótum
ÖSSUR
4,4% í síðustu viku
MESTA LÆKKUN
TM
-18,6% frá áramótum
ICELANDAIR
-0,2% í síðustu viku
12
1
3
Aðallisti Kauphallarinnar | Nasdaq Iceland
Félag Gengi í gær Frá áramótum Vikubreyting
Bank Nordic (DKK) 124,00 19,2% 0,0%
Eik fasteignafélag* 6,82 0,3% 2,4%
Eimskipafélag Íslands 226,50 -4,4% 0,0%
Fjarskipti (Vodafone) 39,50 12,9% 1,2%
Hagar 37,40 -7,5% 0,8%
HB Grandi 41,70 23,4% 0,0%
Icelandair Group 25,10 17,3% -0,2%
Marel 191,75 38,9% 1,5%
N1 39,45 70,0% 2,6%
Nýherji 12,49 141,1% 3,1%
Reginn 15,70 15,9% 2,1%
Reitir* 68,80 7,7% 3,3%
Sjóvá 11,14 -6,8% 4,1%
Tryggingamiðstöðin 21,40 -18,6% 0,9%
Vátryggingafélag Íslands 8,40 -7,2% 1,2%
Össur 501,00 38,8% 4,4%
Úrvalsvísitalan OMXI8 1.478,27 14,8% 0,9%
First North Iceland
Century Aluminum 3.300,00 0,0% 0,0%
Hampiðjan 28,00 23,9% 6,9%
Sláturfélag Suðurlands 1,40 -24,3% 0,0%
*Skráð á árinu (þróun frá útboðsgengi).
ÁFORM fjármálaráðherra um afnám
tolla, annarra en tolla á matvæli,
fyrir árið 2017 eru jákvæð tíðindi
fyrir íslenska neytendur. Það er
mjög miður að matvælatollar skuli
ekki einnig lækkaðir þar sem afnám
þeirra er líklega mikilvægasta kjara-
bót sem hægt er að færa íslenskum
heimilum.
EN tollaafnámið er ekki fyrir íslenska
neytendur. Það er fyrir verslunina í
landinu. Hennes & Mauritz er með
ráðandi markaðshlutdeild á íslensk-
um fatamarkaði þrátt fyrir að
hér á landi sé engin H&M-versl-
un. Íslendingar versla í H&M í
útlöndum.
ÞESSA verslun vill ríkisstjórn-
in færa inn í landið með því
að afnema tolla. Auknar
tekjur af virðisaukaskatti vega upp á
móti tekjutapi ríkisins af tollalækk-
un. Heildsalar og verslunin í landinu
hagnast líka og það dregur úr ójöfn-
uði milli þeirra Íslendinga sem versla
erlendis og hinna sem ekki hafa efni
á að ferðast til útlanda.
ÞAÐ ER dapurlegt að á 21. öld skuli
íslensk stjórnvöld halda dauðahaldi
í úrelt landbúnaðarkerfi sem byggt
er á fyrirkomulagi sem komið var
á snemma á 20. öld. Innfl utnings-
bönn og verndartollar á innfl utt
matvæli bitna hart á neytendum og
leika bændur sjálfa grátt. Þrátt fyrir
afnám tolla eiga þessir verndartollar
að lifa.
ÍSLENSKIR bændur hanga margir á
horriminni. Þetta er afl eiðing aldar-
langrar miðstýringar og hafta. Í stað
þess að sjá tækifæri í markaðslausn-
um í landbúnaði einblína stjórnvöld
á skrattann sem hagsmunaaðilar í
landbúnaði mála á vegg. Hagsmunir
einokunarmilliliða ganga gegn hags-
munum bæði neytenda og bænda.
LANGT fram yfi r miðja síðustu öld
voru ferðalög með fl ugvélum til
útlanda munaður sem einungis efnað
fólk gat leyft sér. Ungir, áræðnir
menn stofnuðu Loftleiðir og hleyptu
samkeppni inn á íslenskan fl ug-
markað. Loftleiðir gerðu ekki aðeins
Íslendingum kleift að ferðast ódýrar
en fyrr. Fólk beggja vegna Atlants-
ála nýtti sér lág fargjöld félagsins til
ferðalaga yfi r hafi ð.
SAMKEPPNIN í fl ugi stækkaði mark-
aðinn og enn sér ekki fyrir endann
á því. Nú fl júga fjölmörg erlend fl ug-
félög til og frá Íslandi og afkoma
íslensku félaganna hefur aldrei verið
betri. Hvernig ætli íslenskri ferða-
þjónustu vegnaði nú, ef í fl ugmálum
hefði verið fylgt sömu verndar- og
einokunarstefnu og gert er í landbún-
aði? Ætli ríkisfl ugfélagið skilaði jafn
góðri afkomu og Icelandair gerir nú?
Værum við að taka á móti 1,2 millj-
ónum ferðamanna á þessu ári?
LANDBÚNAÐUR var stærsta atvinnu-
grein þjóðarinnar fyrir hundrað
árum. Nú kemst hann ekki á verð-
launapall þrátt fyrir umfangsmikla
og dýra ríkisvernd. Íslensk fl ugfélög
hafa þurft að keppa í harðri alþjóð-
legri samkeppni og eru nú hluti af
stærstu atvinnugrein þjóðarinnar.
Ef flugið væri rekið eins og landbúnaður
Nánast tvöfalt fl eiri sólarstundir
voru á tímabilinu 1. júní til og með
19. júlí í ár miðað við á sama tíma í
fyrra. Samkvæmt upplýsingum frá
Trausta Jónssyni veðurfræðingi
voru þær 305 í ár en 163 á sama
tímabili í fyrra. Ísframleiðendur
segja að þessi niðurstaða hafi mikil
áhrif á framleiðslu þeirra.
„Það er töluvert mikið meiri
sala núna. Það helgast af því að
við erum með góða veðrið sunnan
heiða,“ segir Guðrún Hafsteins-
dóttir, sölu- og markaðsstjóri
Kjöríss. Hún segir að í fyrra og
hittiðfyrra hafi verið gott veður
fyrir norðan og austan og salan
þar eftir því. „En þar bara vant-
aði fólkið. Þegar við fáum ekki
þessa góðu daga á höfuðborgar-
svæðinu þá fi nnum við gríðarlega
fyrir því,“ segir Guðrún. Það ári
því miklu betur hjá íssölum núna.
„Þó að það sé kalt. Það er sólríkt
og það er þurrt og það er það sem
skiptir mestu máli,“ segir Guðrún
og bætir því við að salan sé um það
bil 15-20 prósentum meiri í ár en í
fyrra. Guðrún segir að Kjörís taki
um helminginn af ársveltunni inn
á sumarmánuðunum þremur. „Við
bara lifum á sumrinu og þegar
höktir í því og höktir á veðrinu þá
kemur það niður á okkur og við
náum því ekkert upp með öðru
móti,“ segir Guðrún.
Ragnar Birgisson hjá Emmess ís
segir, eins og Guðrún, að þetta
sumar sé miklu betra en í fyrra.
„Síðustu fi mm vikur hafa verið
mjög góðar. En það er líka vegna
þess að við höfum verið með nýjar
vörur,“ segir Ragnar og bætir því
við að markaðssetning þeirra hafi
skipt máli. Hann segir áhrif veð-
urs á íssölu vera mjög mikil. „Hiti
hefur rosalega mikið að segja. Ef
þú færð gott hitastig þá virkar það
betur en ef það kemur sól en bull-
andi rok,“ segir Ragnar, en bætir
því við að góða veðrið hafi komið
seint. „Eins og bændurnir segja,
þá erum við þremur vikum á eftir
áætlun.“ jonhakon@frettabladid.is
Helmingur íss selst á sumrin
Sólarstundir eru næstum tvöfalt fleiri í sumar en á sama tíma í fyrra. Ísframleiðendur
segja þetta hafa mikil áhrif á sölu þeirra. Helmingur framleiðslu Kjöríss seldur á sumrin.
Í SUMARFRÍI Ferðamenn streyma til landsins á sumrin og margir þeirra fá sér ís þegar heitt
er í veðri. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Lánshæfi smatsfyrirtækið Stand-
ard & Poor´s hækkaði lánshæf-
ismat stóru viðskiptabankanna
þriggja í fjárfestingafl okk í gær.
Lánshæfi smat þeirra er hækkað
í framhaldi af því að S&P hækk-
aði lánshæfismat ríkissjóðs á
föstudaginn úr BBB- í BBB. Ein-
kunn ríkissjóðs til skamms tíma
var einnig hækkuð úr A-3 í A-2 og
horfur stöðugar.
Í tilkynningu frá S&P kom fram að
hækkun lánshæfi smats ríkissjóðs
byggist á trúverðugri aðgerða-
áætlun stjórnvalda til losunar fjár-
magnshafta. - jhh
Bankarnir í fjárfestingaflokk:
S&P hækkar
lánshæfismat
STANDARD & POOR’S Telja bjartara fram-
undan á ÍSlandi. NORDICPHOTOS/GETTY
Sími 555 3100 www.donna.is
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Fáðu gust úr vandaðri Honeywell viftu
Gæða viftur - margar gerðir
Sk
jó
ða
n
SKJÓÐAN er frekju- og leiðindaskjóða, sem
lætur ekkert mannlegt sér óviðkomandi.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:5
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
2
-C
A
D
C
1
7
5
2
-C
9
A
0
1
7
5
2
-C
8
6
4
1
7
5
2
-C
7
2
8
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
0
4
0
s
_
2
1
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K