Fréttablaðið - 22.07.2015, Blaðsíða 26
USD 134,82
GBP 209,54
DKK 19,74
EUR 147,25
NOK 16,60
SEK 15,74
CHF 140,58
JPY 1,09
Netfang rit stjorn@markadurinn.is Sími 512 5000 Fax 512 5301
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is
Gengi gjaldmiðla FTSE 100
6.769,07 -19,62
(-0,29%)
Viðskiptavefur Vísis
@VisirVidskipti
STJÓRNAR -
MAÐURINN
@stjornarmadur
7,1% HÆKKUN
Krefjast gagna frá ráðuneytinu
Magntollar sem lagðir eru á matartolla hækka
um 7,1-7,5% milli ára. Þetta kemur fram í bréfi
Félags atvinnurekenda til atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytisins þar sem krafist er
upplýsinga um tollana. Í bréfinu er vísað til
upplýsingalaga og farið fram á að ráðuneytið
afhendi öll gögn og útreikninga sem liggja að
baki þessari tollahækkun, þar með talið afrit
af öllum inn- og útsendum erindum og upp-
lýsingum sem aflað var.
15 MILLJARÐAR
Rýr arður af raforku
Þótt ekkert land í heiminum framleiði jafn
mikla raforku á mann og Ísland og hlutfall
endurnýjanlegra orkugjafa í raforkuframleiðslu
sé óvíða hærra er beinn arður Íslendinga af
raforkuframleiðslu rýr. Í nýjum Markaðspunktum
Greiningadeildar Arion banka er bent á að þetta
endurspeglast í því að langstærsti raforkufram-
leiðandi landsins, Landsvirkjun, hefur í 50 ár
greitt samtals um 15 milljarða króna í arð að
núvirði.
17.07.2015 „Þegar við keyptum okkar fyrsta húsnæði
tókum við 90% lán. Við áttum nánast ekkert eigið fé.
Það þurfti lítið áfall til þess að við stæðum ekki undir
afborgunum. Það var reyndar stórt áfall í mínu tilviki, ég
missti vinnuna. Maður hugsaði eftir á, kannski átti ég
að bíða lengur, leggja fyrir. Við erum að búa til leið
fyrir fólk til að leggja til hliðar, en við vitum líka að
það er fullt af fólki sem er ekki í stöðu til þess.“
Eygló Harðardóttir,
félags- og húsnæðismálaráðherra.
Stjórnarmaðurinn tók á dögun-
um á móti útlendum vinum sínum.
Vinirnir eru vanir ferðalangar og
hafa heimsótt Ísland nokkuð oft.
Þó aldrei áður yfir háannatíma að
sumri til.
Í ÞETTA SKIPTIÐ höfðu þeir á orði
að hlutirnir væru öðruvísi en áður;
meiri mannmergð í flugstöðinni,
uppáhaldshótelið fullbókað og erfið-
ara að fá leigubíl fyrir utan flug-
stöðina. Þá fannst þeim hærra hlut-
fall af úlpuklæddum Ameríkönum í
gönguskóm við morgunverðarborð-
ið á hótelinu sem þeir loks fundu.
Þeir kipptu sér þó ekki sérstaklega
upp við þetta, heldur ypptu öxlum
og sögðust geta sjálfum sér um
kennt. Þeir hefðu jú valið að koma á
háannatíma.
MARGIR ÍSLENDINGAR virðast þó
ekki nálgast ferðamannaflaum-
inn með jafn stóískri ró. Lausleg
skoðun á fréttamiðlum bendir til
að þeir erlendu gestir sem hingað
koma geri helst ekki þarfir sínar
nema á víðavangi, ferðist ekki
nema í rútum sem allt stífla í mið-
bænum, hendi erlendum gjaldeyri í
Peningagjá (stjórnarmaðurinn hélt
raunar að það væri jákvætt fyrir
gjaldeyrisjöfnuðinn) og strandi í
stórum stíl uppi á hálendi með til-
heyrandi kostnaði fyrir skattgreið-
endur.
ÁSTANDIÐ virðist meira að segja
orðið svo alvarlegt að vinsælasti
vefmiðill landsins býður nú les-
endum sínum upp á sérstakan flipa
undir fyrirsögninni „Ferðamennska
á Íslandi“. Þetta er nýmæli fyrir
ferðaþjónustuna, en a.m.k. síðan frá
bankahruni hefur sjávarútvegurinn
verið eini íslenski iðnaðurinn sem
skipað hefur sérstakan og sjálf-
stæðan fréttaflokk í fjölmiðlum.
Í ÁR áætla stjórnvöld að ferða-
mannafjöldi á Íslandi fari í fyrsta
skipti yfir eina milljón. Árið 2014
komu tvöfalt fleiri ferðamenn til
landsins en árið 2010.
ÞAÐ er ekkert óeðlilegt við að
ýmsir vaxtarverkir komi upp þegar
ferðamannafjöldi tvöfaldast á fjór-
um árum. Nú er hins vegar tíminn
til að bregðast við og styrkja inn-
viðina. Þá blasa áleitnar spurningar
við. Er eðlilegt að fólk greiði sér-
staklega fyrir aðgang að ferða-
mannastöðum? Er vit í því að hafa
flugvöll sem varla er notaður á
besta byggingarlandi í höfuðborg-
inni? Eigum við að leggja lest frá
Keflavík? Eiga ferðamenn að taka
þátt í kostnaði við björgunarað-
gerðir, eða eiga skattgreiðendur að
greiða fyrir kamaraðstöðu við Gull-
foss?
ALLT SAMAN eru þetta, og fleira til,
áleitnar spurningar sem fólk verður
að mynda sér skoðun á og hafa hug-
rekki til að íhuga með opnum hug.
Þar þýðir ekki að leita sökudólga.
STAÐAN er sú sem hún er, og stað-
reyndin sú að enginn sá fyrir að
ferðamannafjöldi myndi tvöfaldast
á örskotsstundu.
Útikamar
við Gullfoss
TÓNLISTARSJÓÐUR
AL DI MEOLA, ROBBEN FORD
BJÖRN THORODDSEN, PEO ALFONSI,
BRYNHILDUR ODDSDÓTTIR OFL.
INTERNATIONAL GUITARFEST
HÁSKÓLABÍÓ 3. OKTÓBER KL. 20
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:5
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
2
-A
3
5
C
1
7
5
2
-A
2
2
0
1
7
5
2
-A
0
E
4
1
7
5
2
-9
F
A
8
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
4
0
s
_
2
1
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K