Fréttablaðið - 22.07.2015, Side 34
22. júlí 2015 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 22
365.is Sími 1817
STJARNAN – CELTIC
Íslandsmeistarar Stjörnunnar taka á móti skosku meisturunum
í Celtic í undankeppni meistaradeildarinnar í kvöld.
Þetta er leikur sem þú einfaldlega vilt ekki missa af!
Í DAG KL. 19:00
FÓTBOLTI Stjarnan tekur á móti Cel-
tic í seinni leik liðanna í annarri
umferð forkeppni Meistaradeildar-
innar á Samsung-vellinum annað
kvöld. Celtic vann fyrri leikinn 1-0
í Skotlandi.
Norðmaðurinn Ronny Deila,
knattspyrnustjóri Celtic, tók við lið-
inu í fyrra og mætti KR á sama stigi
keppninnar í sínum fyrsta mótsleik
síðasta sumar.
„Ég er spenntur fyrir þessum
leik. Kringumstæðurnar eru allt
öðruvísi hjá okkur núna en í fyrra
þegar allt var nýtt. Það er svolítið
fyndið að vera búinn að stýra lið-
inu í eitt ár og snúa aftur til nán-
ast sömu borgar. Ég hlakka bara
til leiksins því liðið er að bæta sig
mikið og tímabilið verður spenn-
andi,“ sagði Deila á blaðamanna-
fundi í gær.
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálf-
ari Stjörnunnar, fékk nóg af spurn-
ingum um gervigrasið frá skosk-
um blaðamönnum. Deila hefur ekki
sömu áhyggjur af því enda þjálfaði
hann Strömsgodset í Noregi sem
spilar á gervigrasi.
„Þið vitið að ég er hliðhollur
gervigrasi. Það er betra að spila á
góðum gervigrasvelli en slæmum
grasvelli. Best er þó auðvitað að
spila á góðu grasi eins og á Celtic
Park,“ sagði Deila sem telur sína
leikmenn klára í gervigrasslaginn:
„Góð lið sigra sama á hvaða velli
þau spila,“ sagði Deila. - tom
Á sama tíma ári síðar
Fyrsti leikur knattspyrnustjóra Celtic var á Íslandi.
STÓRVELDI Eftir fall Rangers situr Celtic eitt að skosku fótboltakrúnunni. Leikmenn
liðsins æfðu á Samsung-vellinum í gær fyrir leikinn í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINO
SPORT
BARÁTTA Rakel Hönnudóttir, marka-
skorari Blika, í harðri baráttu gegn
Aftureldingu í leik liðanna á Kópavogs-
velli í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
ÚRSLIT
PEPSI-DEILD KVENNA
ÞÓR/KA - ÞRÓTTUR 5-1
1-0 Klara Lindberg (6.), 2-0 Sandra María Jessen
(49.), 3-0 Kayla Grimsley (66. víti), 4-0 Anna
Rakel Pétursdóttur (78.), 4-1 Madison Sarah
Solow (83.), 5-1 Kayla Grimsley (88.).
VALUR - KR 3-1
1-0 Elín Metta Jensen (17.), 2-0 Katia Maanane
(18.), 3-0 Katia Maanane (64.), 3-1 Sigríður
María S Sigurðardóttir (70.).
BREIÐABLIK - AFTURELDING 1-0
1-0 Rakel Hönnudóttir (70.).
STAÐAN
Breiðablik 11 10 1 0 32-2 31
Stjarnan 11 9 0 2 29-6 27
Valur 11 7 0 4 25-23 21
Selfoss 11 6 2 3 19-10 20
Þór/KA 11 5 3 3 27-18 18
ÍBV 11 5 1 5 22-16 16
Fylkir 11 5 1 5 17-21 16
KR 11 1 3 7 1-25 6
Þróttur 11 0 2 9 2-32 2
Afturelding 11 0 1 10 5-34 1
NÆSTU LEIKIR
Sunnudagur 26. júlí: 16.00 Afturelding - Þór/
KA. Þriðjudagur 28. júlí: 18.00 Þróttur - ÍBV,
19.15 KR - Breiðablik, Fylkir - Valur, Selfoss -
Stjarnan.
FÓTBOLTI
Rakel hetja Breiðabliks
Rakel Hönnudóttir tryggði toppliði
Breiðabliks sigurinn, 1-0, gegn Aftur-
eldingu í 11. umferð Pepsi-deildar
kvenna í gær. Blikar spiluðu manni
færri eftir að Telma Hjaltalín var rekin
út af á 46. mínútu leiksins.
KÖRFUBOLTI „Ég er ekki klár í
að byrja að æfa því það er svo
stutt síðan ég kláraði á Spáni,“
segir Jón Arnór Stefánsson, besti
körfuboltamaður þjóðarinnar, við
Fréttablaðið er hann og blaðamað-
ur standa við bekkina í Ásgarði
og fylgjast með fyrstu formlegu
æfingu landsliðsins fyrir Evrópu-
mótið sem hefst í september.
Æfingahópurinn var tilkynntur
í gær og kom saman í Ásgarði, en
nú hefst sex vikna undirbúningur
fyrir stundina sögulegu í Berlín
þegar Ísland mætir Þýskalandi í
fyrsta leik á EM.
„Tímabilið hjá mér var rosalega
langt og strangt,“ segir Jón Arnór
sem spilar með Unicaja Málaga,
einu besta liði Spánar. Það tap-
aði í oddaleik í undanúrslitum
spænsku úrvalsdeildarinnar.
„Það var mikið af æfingum og
mikið af leikjum þannig að ég þarf
meira frí. Ég tek nokkra daga til
viðbótar sem er meira bara til að
hvíla hausinn,“ segir Jón Arnór
sem er þó alveg heill líkamlega.
„Ég get alveg byrjað leik en
þetta er meira fyrir kollinn. Ég
þarf bara að fá smá frí. Þá verð
ég líka bara ferskari fyrir vikið
en ég er rosalega spenntur fyrir
þessu öllu.“
Auðmýktin mikil
Strákarnir hafa vitað að þeirra
bíður fyrsta ferðin á stórmót síðan
í ágúst í fyrra. Biðin hefur því
verið löng, en verður allt aðeins
raunverulegra þegar æfingar eru
formlega hafnar?
„Bæði og. Þetta er samt enn þá
alltaf svolítið furðulegt,“ segir Jón
Arnór og brosir. „Menn eru búnir
að bíða eftir þessum degi, að geta
loksins byrjað og reynt að sanna
sig. Svo kemur að því að það þurfi
að skera niður og menn eru bara
með brjálaðan metnað fyrir því að
komast í liðið.“
Ísland dróst í algjöran dauða-
riðil með Tyrklandi, Serbíu, Ítalíu,
Þýskalandi og Spáni. Möguleikarn-
ir á móti eru litlir og því má ekki
gleyma að njóta ferðarinnar.
„Leiðin að EM verður ótrúlega
skemmtileg þannig við erum bara
spenntir fyrir þessu,“ segir Jón
Arnór og heldur áfram:
„Ég held við séum mjög auð-
mjúkir. Þetta lið er mjög auðmjúkt.
Við æfum bara rosalega vel og
höfum mikinn metnað.“
Liðið gerir sér fyllilega grein
fyrir því hversu erfitt verkefnið
verður í Berlín.
„Það er eiginlega ekki hægt að
lýsa því hversu sterkur riðilinn er.
Auðvitað ætlum við að njóta þess
bara að spila þarna og keppa við
þá bestu. Við eigum samt að setja
okkur markmið að vinna einn leik.
Það yrði bara afrek að vinna einn
leik í þessu móti. Það er bara sann-
leikurinn,“ segir Jón Arnór.
Var alltaf skemmtilegast
Í liðunum sem Ísland mætir eru
margar af skærustu körfubolta-
stjörnum heims. Spænska liðið er
fullt af NBA-stjörnum og fleiri
má finna í hinum liðunum. Dirk
Nowitzki, fyrrverandi NBA-meist-
ari með Dallas Mavericks, spilar
sína síðustu landsleiki í Berlín.
„Það verður skemmtilegt að
spila á móti þessum körlum í
landsleikjum. Ég hef nú mætt þeim
sumum með félagsliðum. Ég sjálf-
ur er bara spenntur fyrir því að
vera hluti af þessu móti og sjá aðra
leiki líka. Sem aðdáandi körfubolt-
ans er ég rosalega spenntur fyrir
því að sjá umgjörðina til dæmis
hjá Þjóðverjanum,“ segir Jón
Arnór, en spennan fyrir mótinu er
mikil í Berlín.
„Þarna verður fullt af fólki og
mikið af Íslendingum sem ætla
að mæta og skemmta sér og fá sér
bjór. Síðan er Dirk að kveðja og
fleira. Það er langt síðan ég hef
fengið þessa tilfinningu, að vera
á svona móti. Ég man bara eftir
þessu með yngri landsliðunum.
Þetta var það skemmtilegasta sem
maður gerði.“ tomas@365.is
Enn þá allt svolítið furðulegt
Jón Arnór Stefánsson hefur æfi ngar með körfuboltalandsliðinu nokkrum dögum á eft ir hinum strákunum
eft ir erfi tt tímabil á Spáni. Hann segir það afrek ef liðið vinnur einn leik á EM en hlakkar mikið til.
SMÁ FRÍ Jón Arnór Stefánsson var mættur í málarabuxunum á æfingu á mánudaginn en fer svo af stað með liðinu eftir nokkra daga. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:5
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
2
-7
6
E
C
1
7
5
2
-7
5
B
0
1
7
5
2
-7
4
7
4
1
7
5
2
-7
3
3
8
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
4
0
s
_
2
1
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K