Fréttablaðið - 22.07.2015, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 22.07.2015, Blaðsíða 38
22. júlí 2015 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 26 SUMARDRYKKURINN SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Breska tónlistarkonan og söng- dívan Jessie J heldur stórtónleika í Laugardalshöllinni þriðju- daginn 15. september en hún hefur verið ein skær- asta poppstjarna heims undan farin ár. Hún er best þekkt fyrir að flytja risasmelli á borð Price Tag, Bang Bang og Domino. „Mér finnst hún alveg frábær. Það er alveg meiriháttar að ná listamanni til landsins sem er akkúrat núna á toppnum á sínum ferli. Hún er frá- bær á sviði og með eina flottustu röddina í tón- listarheiminum í dag,“ segir Guð- bjartur Finnbjörnsson sem stend- ur fyrir tónleikunum. Jessie J kom fyrst á sjónarsvið- ið árið 2011 með fyrstu plötunni sinni, Who You Are, en á þeirri plötu komust sex lög á topp tíu í Bretlandi og lagið Price Tag fór í efsta sætið um allan heim. Er hún fyrsta konan til að ná sex lögum af sömu plötu inn á topp tíu. Lagið Domino kom svo næst og fór það beint í efsta sæti um allan heim en með því lagi náði Jessie J fótfestu í Bandaríkjunum. Með nýjasta smellinum sínum, Bang Bang, þar sem hú n fær Ariana Grande og Nicky Minaj með sér, er hún virkilega búin að stimpla sig inn sem ofurstjörnu. „Hlutur kvenna hefur ekki verið mikill í erlendu tónleikahaldi hér á landi undanfarin misseri og því finnst mér það líka sérlega frábært að fá hana til landsins. Hún er líka frábær karakter og rakaði meira að segja af sér hárið fyrir nokkrum árum til að styrkja gott málefni,“ segir Guðbjartur. Margir sáu hana árið 2012 í sjón- varpinu á lokaathöfn Ólympíuleik- ana í London, þar sem hún söng We Will Rock You með hljómsveit- inni Queen. Hún hefur einnig verið þjálfari og leiðbeinandi í The Voice í Bretlandi og Ástralíu. Ólíkt mörgum öðrum stjörnum í tónlistarheiminum semur hún flest af sínum lögum sjálf en áður en hún hóf söngferil sinn vann hún við að semja lög fyrir aðra. Hún hefur meðal annars samið lög og texta fyrir Miley Cyrus, Justin Timber- lake, Chris Brown, David Guetta og marga fleiri. Lítið hefur verið um tónleika hér á landi með erlendum poppstjörnum. „Þessi tegund tón- listar hefur verið skilin svolítið út undan í tónleikahaldi hér á landi,“ bætir Guðbjartur við. Jessie J er á tónleikaferð um heiminn að kynna sína þriðju breið- skífu. Hún verður með hljómsveit með sér skipaða topphljóðfæraleik- urum og bakröddum. „Þetta er alveg tuttugu manna hópur sem kemur með henni,“ segir Guðbjartur. Ekki liggur fyrir hvaða hljóm- sveit eða listamaður sér um upp- hitun á tónleikunum að svo stöddu. Miðasala hefst þriðjudaginn 28. júlí á midi.is klukkan 10.00. Einnig verður hægt að fá miða í verslunum Brim Laugavegi og Kringlunni. gunnarleo@frettabladid.is Jessie J kemur fram á tónleikum á Íslandi Breska tónlistarkonan Jessie J, sem hefur verið ein skærasta poppstjarna heims undanfarin ár, ætlar að halda tónleika í Laugardalshöllinni þann 15. september. ➜ Jessie J er 27 ára gömul tónlistarkona, fædd og uppalin í London. ➜ Hún hefur gefið út þrjár breiðskífur; Who You Are árið 2011, Alive árið 2013 og Sweet Talker árið 2014. Hún hefur selt yfir þrjár milljónir platna og yfir tuttugu milljónir smáskífulaga um heim allan. ➜ Fyrsta plata Jessie J naut strax mikilla vinsælda um heim allan, náði fyrsta sæti víða og hefur náð platínusölu í yfir 15 löndum. ➜ Hennar vinsælustu lög eru Price Tag, Domino, Bang Bang og Who You Are, svo nokkur séu nefnd. ➜ Hún hefur unnið fjölda verðlauna og má þar nefna Critic‘s Choice-verð- launin á Brit Awards árið 2011, iHeartRadio-tónlistarverðlaunin fyrir besta samstarfið með Ariana Grande og Nicki Minaj í laginu Bang Bang og fjölda verðlauna frá MTV. ➜ Þá var hún tilnefnd til Grammy-verðlaunanna í ár fyrir samstarf sitt með Ariana Grande og Nicki Minaj í laginu Bang Bang. ➜ Lagið Bang Bang er með tæpar 400 milljónir áhorfa á Youtube. Price Tag er með nærri því hálfan milljarð áhorfa og Domino með rétt tæplega 200 milljón áhorf. ➜ Jessie J hefur samið fyrir Miley Cyrus, Justin Timberlake, Chris Brown, David Guetta og marga fleiri. Hver er Jessie J? Á LEIÐINNI Jessie J hefur verið ein skærasta poppstjarna heims undanfarin ár. Hún kemur fram ásamt hljómsveit í Laugar- dalshöllinni þann 15. september næstkomandi. NORDICPHOTOS/GETTY Skipulagsnefnd Druslugöngunnar stendur fyrir svokölluðu peppkvöldi í kvöld. Veislan hefst klukkan níu á skemmtistaðnum Húrra en mælt er með því að mæta snemma þar sem færri komust að en vildu á seinasta ári. „Þetta er nokkurs konar upphitun fyrir gönguna á laugardaginn. Það koma fram tónlistarmenn, það verða tilboð á barnum og síðast en ekki síst verðum við að selja varninginn svo að fólk geti druslað sig upp fyrir gönguna,“ segir Sunna Ben, sem mun meðal annars spila í kvöld. Sunna mun þeyta skífurnar í lok kvölds en á undan henni verða meðal annars dj Flugvél og geimskip, Vaginaboys og Sturla Atlas. „Við eigum von á mjög mörgum í kvöld enda hefur farið mikið fyrir umræðunni um Druslu- gönguna undanfarið. Það hafa 1.000 manns boðað komu sína á Facebook en það er mun meira en Húrra þolir svo að við mælum með því að mæta fyrr en seinna og nýta tilboðin á barnum. Í fyrra þurftum við að vísa fólki frá vegna eftirspurnar. Við verðum með derhúfur, boli og tyggjótattú til sölu svo að fólk geti verið undirbúið fyrir gönguna. Það sem verður eftir verður selt í Druslu- göngunni. Varningurinn seldist hratt upp í fyrra þannig að við urðum að panta inn meira magn í ár og við vonum að sem flestir nái að næla sér í eitthvað til þess að skreyta sig með.“ - gj Upphitun fyrir Druslugönguna Í kvöld verður haldið svokallað peppkvöld fyrir gönguna á laugardaginn. SKIPULAGSNEFNDIN Ingileif Friðriksdóttir, Helga Margrét Mar, Sunna Ben, Gréta Þorkelsdóttir og María Rut Kristinsdóttir. Á myndina vantar nokkra meðlimi nefndarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Við eigum von á mjög mörg- um í kvöld enda hefur farið mikið fyrir umræðunni um Druslugönguna undanfarið. „Ég verð að segja San Miguel bjór, bara út af því að ég á heima í bæ sem heitir San Miguel.“ Máni Orrason tónlistarmaður – fyrir lifandi heimili – R e y k j a v í k o g A k u r e y r i E I T T S Í M A N Ú M E R 5 5 8 1 1 0 0 w w w . h u s g a g n a h o l l i n . i s NÝTT TWIST ÓTRÚLEGA ÞÆGILEGUR TWIST hægindastóll Tilboð: 59.990 Fullt verð: 69.990 TWIST skemill Tilboð: 24.990 Fullt verð: 29.990 ASTRO hægindastóll, Dökkgrár, kakí, appelsínugulur og dökkrauður. Verð: 59.990. Tilboðsverð: 49.990. ASTRO NÝTT Í HÖLLINNI 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :5 9 F B 0 4 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 1 -8 0 0 C 1 7 5 1 -7 E D 0 1 7 5 1 -7 D 9 4 1 7 5 1 -7 C 5 8 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 0 4 0 s _ 2 1 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.